Dagur - 03.02.1999, Blaðsíða 4

Dagur - 03.02.1999, Blaðsíða 4
20-MIDVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1999 LÍFIÐ í LANDINU L UMBUDA- LAUST Stefán Jón Hafstein skrifar Túri Morthens orðaði það svona á lokaspretti kvöld- fagnaðarins á Grand Hoteli um helgina: „Þetta er sögu- leg stund, það sem við urð- um vitni að í kvöld er bylting fólksins. Hvorki meira né minna.“ Hafa óspaklegri orð fallið. Olíklegt er að fyrir einu ári hafi Jóhanna Sigurðardóttir þorað að vona að sú stund rynni upp að orðin ódauð- legu yrðu sönn. Okrýndur sigurvegari prófkjörs Samfylk- ingarinnar er hinn nafnlausi samfylkingar- sinni. Hinn stóri lúser er flokkakerfið. Fólk- ið í höfuðborginni neitaði að láta beygja sig á flokksklafana og var þó mikið reynt. I próf- kjörinu töpuðu flokkarnir sem fólki var gert að gera upp á milli. Kvennalistinn og Al- þýðubandalagið „eiga“ miklu meira undir öllum hefðbundnum formerkjum en þarna kom fram. Alþýðuflokkurinn fráleitt svo mikið sem A-hóIfið uppskar. Ellefu þúsund borgarbúar kusu undir formerkjum samfylk- ingar, ekki flokkshólfa, og þeir frambjóðend- ur sem Iengst og best hafa dugað fyrir þá hugsjón uppskáru eins og þeir hafa sáð. Jörðin er frjó. Umræðan Umræðan á prófkjörsnótt, í ijölmiðlum og á göngum Grand Hotels var furðuleg. FjöT miðlamenn, frambjóðendur og stuðnings- menn voru greinilega ekki búnir að átta sig á „byltingu Túra Morthens" og laga orðfæri sitt og hugsun að henni. Hver á fætur öðr- um át upp ldisjuna um „sigur Alþýðuflokks- ins“ þegar ekkert var fjær sanni: Alþýðu- flokkurinn sem stofnun átti einn einasta mann inni í góðu sæti, gamlan Allaballa og Þjóðviljaritstjóra með stóra kúlu á enninu. A sömu stundu var talað um „afhroð Alþýðu- bandalagsins“. Með Bryndísi Hlöðvers og Arna Þór í öruggum sætum var staðan ein- faldlega sú að Mörður Arnason, sá gamli að- stoðarmaður Olafs Ragnars, Þjóðviljaritstjóri og allt sem nöfnum tjáir að nefna fyrrum Allaballi, var einu sæti fyrir ofan Árna Þór. Atkvæðaíjöldi G-hólfsins svipaður og í próf- kjöri Reykjavíkurlistans, Vilhjálmur H. Víl- hjálmsson var nokkrum punktum neðar en Kobbi Magg. Var þetta „afhroð“? Kvennalist- inn hvarf í öldurótinu kringum A-hóIfið, ná- kvæmlega eins og búist var við. Þær stöllur hafa hins vegar aldrei verið inni í samfylk- ingarumræðunni út á stofnanalegan styrk, heldur vegna þess að þær eru pólitískir fána- berar fyrir mikilvæga hugmyndafræði heild- arinnar. Gamlir flokkshestar um víðan völl hafa hvað eftir annað talað um að „henda kerlingunum" út; það er siðferðislegur sigur Samfylkingarinnar að taka þennan fána með þó „inneign" Kvennalistans mælist ekki í gildum sem mölur og ryð fá grandað. Þannig snérist umræðan um sjálfa sig á kolröngum forsendum og hélt áfram í helstu fréttatímum ljósvakans sem komust ekki frá forsendum gömlu stjórnmálanna, þegar prófkjörið sjálft hafði farið fram í krafti fólksins á forsendum nýrra tíma. Persónuleg særindi hlutu alltaf að verða og hjá þeim ekki komist. Allir stóðu sig samt hetjulega, frambjóðendur, foringjar, sigurvegari. List- inn: Jóhanna, Össur, Bryndís, Gunna Ö, Ásta, Mörður, Árni Þór, Guðný, Kobbi, Villi. Víst vildu stöku menn fá betri útkomu og áttu hana jafnvel skilda. En hvaða veraldar- innar máli skipta innbyrðis stólaskipti fyrir heildina? Sigurinn var heildin sjálf! Enginn má Iáta sig dreyma um að tryggja eftirá. Það væri frekleg móðgun við hinn al- menna mann. Samfylkingin sigraði. Samfylkingarsinnar hvar sem þeir voru skikkaðir í úrelt og heimskuleg hólf fengu góða kosningu. Og svo var hinn ókrýndi sigurvegari númer 2 á vappi, drjúgur með sig á skinnvesti, skeggið snúið upp og augað í pung, en bindið frjáls- lega laust: Öskar Guðmundsson, kosninga- stjóri Jóhönnu. Hans tími var líka kominn. Takið ofan þar sem hann gengur milli kaffi- húsa og analýserar. Hvaða Jóhanna? Ábyrgð Jóhönnu er nú mikil. Hún hefur aldrei verið í svona stöðu áður. Annar eða þriðji maður á lista Alþýðuflokksins á eftir Jóni Baldvini, í ríkisstjórn með honum og Jóni Sigurðssyni - óþægileg samviska Krata - Jóhanna Sig- urðardóttir: Hennar tími? Hennar tími? en ekki leiðtogi breiðfylkingar. Jóhanna upp- sker nú sem skæruliði í íslenskum stjórn- málum. Hún er þekkt sem óþekka, heimtu- freka stelpan, sem var að gera stóru strák- ana í heimspólitíkinni brjálaða, eða þrá- hyggju þingmaður á aftasta bekk út í hprni með eilífðar frammíköll á nautnaseggina í bankakerfinu. Nú er hún forystumaður fyrir miklu breiðari hugmyndafræði en nokkurn tímann hefur komist fý'rir í úttroðnu félags- málamöppunni, sem alltaf er að sliga hana yfir Austurvöll. Hvernig fer hún með? „RéttlætismáljLn“ „Réttlætismálin“. Þetta er vegarnestið sem kjósendur sendu Jóhönnu með inn í fyrsta sætið. Og gefur Samfylkingunni ótrúleg sóknarfæri. En Jóhönnu og Samfylkingar- innar bíður það verkefni að yfirfæra þessa tilfinnginu í hlutlæga, raunverulega stefnu, markmið sem fólk skilur og er tilbúið að kjósa aftur. Það er nefnilega ótrúlega breitt bil á milli þess að vera þingskæruliði sem rífur í sig fitukeppina í bankakerfinu og þess að vera forystumaður fyrir heildstæða þjóð- félagsstefnu. Jóhanna Sigurðardóttir veit þetta. Hún er búin að vera ráðherra og forystukona nógu lengi til þess. En getur bún skapað ferskan andblæ og bylgju „Samfylkingar-nýkratisma" á grunni þeirra gilda sem hún hún hefur svo dyggilega varið? I hópi með öðru fólki? Það væru gróf pólitfsk mistök að halda nú að hægt sé að yfirfæra frábæran prófkjörs- slag Jóhönnu og Ástu R. yfir á lands- málapólitíkina og ná sama árangri út á „aldraða og öryrkja". Svo maður einfaldi málið aðeins: Trygg- ingastofnun er ekki þjóðfélagið. Bætt kjör þeirra sem núverandi ríkisstjórn hefur svín- að svo illa á að snertir samvisku hvers ein- asta hugsandi manns eiga vissulega að vera eitt af höfuðmarkmiðum Samfylkingarinnar. Tveggja ára raunhæf áætlun um það verður að liggja fyrir í kosningaskrá. En það er ekki ætlun Samfylkingarinnar að þjóðfélagið lifi á tryggingabótum. Þjóðfélagið ætlar að skapa svo mikinn auð og svo góða hugsun að bæturnar verði mannsæmandi. Þær eru afleiðing af heildstæðri stefnu um nýsköpun í stjórnmálum og auðsköpun í samfélaginu, ekki markmið í sjálfu sér. Jóhanna er pott- þétt á svelli tryggingabóta og heilbrigða barnið sem sér ekki föt keisarans í dagpen- ingasukkinu - en er hún þjóðarleiðtogi? Stækka með verkefninu Fólk hefur talað endalaust um foringjaskort- inn. Hægt og hægt hafa þó Sighvatur Björg- vinsson og Margrét Frímannsdóttir seiglast áfram og náð miklu lengra en nokkurn tím- an hinir glæstu fjölmiðlaforingjar: Ólafur Ragnar og Jón Baldvin. Þau tvö voru líka ókrýndir sigurvegarar kvöldsins. Nú kemur Jóhanna upp að hlið þeirra, sem forystu- maður í stærsta og mikilvægasta kjördæmi landsins. Hún styrkir forystusveitina með þeirri skírskotun sem færði henni sigur. En verkefnið sem blasir við er risavaxið: Að nýta þann meðbyr sem nú heimtar að vera nýttur, fyrir nýtt afl, nýja hugsun. Þau sem raðast nú á hvern listann á fætur öðrum verða að vaxa með verkefni. Sighvatur og Margrét hafa sýnt að það er hægt. En stóra stökkið framá við er enn eftir. Stysta Ieiðin að því marki er að trúa því sem gerðist. Samfylkingin sigraði. Hún hef- ur öðlast eigið líf. Ellefu þúsund atkvæði eru hreyfiafl sem verður ekki á móti mælt. Það fólk sem áður hefur starfað í smáflokka- einangrun, innansveitareijum og skotið úr launsátri af aftasta bekk stjórnmálanna hef- ur nú verið borið fram á völlinn. Þetta fólk og Samfylkingin öll verður að trúa því sem gerðist. Hlustið á Túra: Fólkið gerði byltingu. Þetta tækifæri er ekki of gott til að vera satt. Það er einfaldlega gott. ■menningar Guðrún Helga Sigurdardóttir Um „frambæri- legar konur“ Óhefðbundin og góð málnotk- un er alltaf athyglisverð ef hún er skemmtileg. Önnur mál- notkun getur líka verið athygl- isverð meðal annars vegna þess að hún getur komið upp um fordóma og ójafnrétti í þjóðfélaginu á ýmsan hátt og orðið svo lífseig að ekki er nokkur leið að útrýma henni. Þessi málnotkun, jafn röng og hún stundum er, jaðrar við að vera hlægilega sorgleg. Dæmi um sorglega málnotk- un sem hefur gegnumsýrt allt þjóðfélagið í nokkur ár er talið um að hafa „frambærilegar konur" á listum stjórnmála- flokkanna. Þessi málnotkun er óþolandi fyrir kvenkyns fram- bjóðendur, jafnalgeng og hún er í daglegu tali á kosninga- tímum. Þetta er hættulegt tal, vegna þess að fæstir þeirra, sem nota þetta lýsingarorð um konur í framboði, gera sér grein fyrir hvað þeir eru að segja. Vanhugsað og klisjukennt Pirringurinn yfir tali um „frambærilegar konur“ kom upp í huga mér um helgina þegar prófkjör Samfylkingar- innar var til umræðu og karl- kyns kunningi minn kvaðst sorgmæddur yfir útkomu Guð- nýjar Guðbjörnsdóttir því að hún væri svo „frambærileg kona“. Varla þarf að taka fram hvert þessar umræður þróuð- ust en kunninginn hélt því fram að það væri mesta hrósyrði að tala um Guðnjju sem „frambærilega". Undirrit- uð er því algjörlega ósammála og telur að um vanhugsaða og klisjukennda málnotkun sé að ræða. Sómasamleg- eða boðleg? Þegar litio er í Islenska orða- bók kemur fram að lýsingar- orðið „frambærilegur" þýðir boðlegur", ,sómasamlegur“. begar talað er um „frambæri- lega konu“ er því verið að tala um konu, sem þykir „boðleg" á list- um stjórnmála- flokkanna, nógu „sómasamleg“ til að hægt sé að bera hana fram fyrir kjósendur, bjóða upp á hana í þægilegu sæti án þess að ógna þeim körlum sem fyrir eru. Þessi kona þarf að hafa skikkanlegt útlit og mátu- legar skoðanir. Sumsé ekki hver sem er. Eg held að talið um „fram- bærilegar konur“ megi rekja 15-20 ár aftur í tímann. I þá daga var framboð kvenna ekki jafn algengt og í dag og því þótti nauðsynlegt að hafa eina „sómasamlega" konu á hverj- um lista. Eftir niðurstöðuna um síðustu helgi, Ijórar af níu, er þetta þó vonandi liðin tíð. ghs@ff.is V_________________>

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.