Alþýðublaðið - 07.02.1967, Side 10

Alþýðublaðið - 07.02.1967, Side 10
i RíýsýSóri Örn Éidsson * | r- I < I Jafntefli Reykjavíkur og Kaupmannahafnar 17:17 í sögulegum leik Á laugardag þreyttu reykvískir handknattleiksmenn sína fyrstu borgakeppni. Leikið var við Kaup mannhöfn í tilefni 25 ára afmælis Handknattleiksráos ReykjaVÍk.’ur, sem var 29. janúar. Leiknum lauk með jafntefli 17 mörk gegn 17 og má segja, að báðir aðilar megi vel við una. Áður en leikurinn hófst flutti Geir Hallgrímsson borgarstjóri ávarp og bauð hina dönsku gesti velkomna til Reykja- vikur. Víkjum nú nokkrum orðum að viðureigninni. ★ FYRRI HÁLFLEIKUR. Reykvíska liðið hóf leikinn og átti fyrstu markskotin, en þau voru hættulítil og hinn danski markvörður átti auðvelt með að verja. Fyrsta markið skoraði Max Nielsen úr vafasömu vítakasti. Þessi dómur var reyndar einskon 0 ar forsmekkur að mörigum fleiri Hermann Gunnarsson átti ágætan leik á laugardag í borgakeppni Reykjavíkur og Kaupmannahafnar í hand- knattleik. Kaupmannahafn- arbúar höfðu yfirhöndina mestallan leikinn, en á síð- ustu mínútunum tókst Reyk- víkingum að jafna. Hermann skoraði tvö síðustu mörkin. Á myndinni skorar hann jöfnunarmarkið. vafasömum dómum, en það skal þó strax viðurkennt að leikurinn var erfiður fyrir Hannes Þ. Sig urðsson, einn okkar reyndasta og bezta dómara. Nokkru eftir vítiskastsmarkið bætti Júrgens öðru marki við af línu. Fyrsta mark Reykvikinga var einnig gert úr vítakasti, sem hinn hávaxni og efnilegi leikmað ur Einar Magnússon gerði. Næstu tvö mörk komu frá Dönum, bæði laglega gerð, Gaard með því að kasta yfir Þorstein markvörð og Nielsen úr langskoti. Reykvíking- ar svöruðu fyrir sig með tveim á- gætum mörkum, sem þeir gerðu Jón Hjaltalín og Gunnlaugur úr erfiðri aðstöðu. Munurinn var nú aðeins eitt mark 3:4. Leikmenn Kaupmannáhafnar voru ákveðnari og eftir klaufalegar sendingar og hik skoraði Per Klaus Jörgen- sen tvívegis og síðara markið var hreinlega gjafamark. Stefán Sand holt laigfærði stöðuna með glæsi legu marki af línu, en Bent Jörgen sen færði Kaupmannahöfn aftur þriggja marka forskot með góðu marki. Næstu mínúturnar léku Reyk víkingar býsna vel og tókst að jafna rnetin með þremur ágætum mörkum, en þau gerðu Guðjón ■Jónsson, Einar Magnússon og Karl Jóhannsson, staðan var 7:7 og 8 mín. til hlés. Dönum fannst nú nóg komið af svo góðu og Kurt Christiansen sendi boltann tvíveg is í mark Reykvíkinga. Guðjón skoraði áttunda mark Reykvíkinga en Kaupmannahafnarbúar eiga síð- asta orðið í fyrri ihálfleik, er Werner Gaard skoraði tvívegis Síðasta markið eða undanfari þess var þó afleitur. Danir slógu knött inn út af og þá er víst venjan að andstæðingarnir eigi innkast ið, en Andersen var nærstaddur þar sem knötturinn fór útaf, gríp ur hann og framkvæmir innkast. Allir búast við að dómari leiðrétti þetta, en svo var ekki og Gaard skoraði eins og fyrr segir. Stað an í hléi er því 11:8 Kaupmanna hafnarbúum í vil. ★ SÍ»ARI HÁLFLEIKUR. Jafnvægi hélzt í leiknum 1. mín. í síðari 'hálfleik, liðin skoruðu á víxl. Stefán Sandholt skoraði fyrsta markið af línu, Nielsen úr vítakasti og síðan Einar Maignús son einnig úr vítakasti. Þá er röð in komin að Gert Andersen, er gerði laglegt mark af línu, en Stefán Sandholt svaraði á sama hátt, Per Klaus Jörgensen skor aði nú mjög vafasamt mark, en Hermann Gunnarsson framkvæm ir vítakast af öryggi fyrir reyk víska liðið. Kaupmasnahafnarbúar komust í fjögurra marka forystu með mörkum frá Andersen og Nielsen, sem skoraði úr vítakasti Guðjón Jónsson minnkaði muninn í þrjú mörk, en aftur dæmdi Hann es dómari vítakast á Reykvík inga og Nielsen skoraði. Staðan er 17:13 Kaupmannahafnarbúum í vil. Áhorfendur voru nú orðnir allæstir út í dómarann sem þeim fannst dæma mjög illa og Reykvík inigum í óhag. Lokasprettur reyk víska liðsins var glæsilegur, þegar flestir álitu leikinn tapaðan, sýndu liðsmennirnir þá hörku og ákveðni sem nauðsynleg er og tókst að jafna metin.. Gunnlaugur skoraði fjórtánda mark Jiðsins, Einar Magnússon, það fimmtánda og Hermann Gunn arsson tvö síðustu mörk leiksins úr mjög erfiðri aðstöðu. Bæði lið in áttu góð tækifæri til að skora sigurmark, en mistókst. Framhald á 15. síðu. Ingólfur teygir sig hátt í leiknum við KIIF, en ekki nógu liátt eins og myndin sýnir. * Agæt þátttaka og allgöður árangur á Sveinamóti ísiands SVEINAMEISTARAMÓT íslands í frjálsum íþróttum var háð í Keflavik á sunnudag. Þ'átttaka í mótinu var góð og árangur all- góður, sérstaklega þegar tillit er tekið til þess, að flestir drengj- anna eru nýliöar og eiga eitt ár eftir í sveinaflokki. Keppendur voru frá 5 aðilum, Ármanni, ÍR, KR, ÍA og ÍBK. Ungur Akurnesirigur, Árni Sig- urðsosn, sigraði í tveim greinum af fjórum, langstökki og þrístökki án atrennu. Þar er á ferðinni efni- legur íþróttamaður. Skúli Arnars- son, ÍR sigraði í hástökki með at- rennu og var í verðlaunasæti í öll- um greinum. Björn Kristjánsson, KR sigraði í hástökki án atrennu. Elías Sveinsson, ÍR, sigraði ekki í neinni grein en er efnilegur og það sama má segja um Stefán Jó- hannsson, Ármanni. Langstökk án atrennu: m: Árni Sigurðsson, ÍA, 2,73 Elías Sveinsson, ÍR, 2,71 Skúli Arnarson, ÍR, 2,62 Þorvaldur Baldursson, KR, 2,62 Helgi Helgason, ICR, 2,57 Steinar Jóhannsson, ÍBK, 2,54 (23 keppendur). Þrístökk án atrennu: m: Árni Sigurðsson, ÍA, 8,25 Skúli Arnarsson, ÍR, 8,04 Þorvaldur Baldursson, KR, 8,02 Elías Sveinsson, ÍR, 7,66 Helgi Helgason, KR, 7,56 Stefán Jóhannsson, Á., <22 keppendur). 7,49 Hástökk án atrennu: m: Björn Kristjánsson, KR, 1,35 Framhaid á 14. síðu. [ Randy Matson: | I varpaði 20,37m.l | i San Diego, Kaliforníu, 5/2 I | (NTB-AFP). — Á frjáls- \ = íþróttamóti hér um helgina i i sigraði Randy Matson Neal = = Steinhauer í kúluvarpi, sá i i fyrrnefndi varpaði 20,37, en § = Steinhauer 20,17 m. Árang- i i ur Matsons er bezti árangur i = ■ í kúluvarpi innanlniss, en i i heimsmet eru ekki staðfest = = í frjálsum íþróttum innan- i i húss. i Grikkinn Papanicolaou i i komá óvart og sigraði Bob i = Seagren í stangarstökki en i i báðir stukku 5,03 m. Ralph i i Boston sigraði í langstökki = i með 7,87 m. Tommie Smith i i var fyrstur í 440 yds á 48,2 | i sek. i Larry Dunn varð hlut- I = skarpastur í 60 yds hlaupi á | = 60 sek., Jim Grelle í mílu á = = 4.08:4 mín. og Art Walker | i í þrístökki með 16,02 m. | 111111111111111111111111111111111111 10 7. febrúar 1967 - ALÞÝ0UBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.