Alþýðublaðið - 07.02.1967, Síða 13
Síml 5018«.
Ormur rauði
íThe Long Ships)
Afar spennandi og viðburðarík
ný amerísk stórmynd í litnm og
CinemaScope.
Sýnd kl. 9.
Leðurblakan
Blaðaummæii:
Leðurblakan í Bæjarbíó er kvik-
mynd sem óhætt er að '.naela
með.
Mbl. Ó. Sigurðsson.
PALLADIUNl præsenterer:
SHEILA MURRAY
- árets festhgste farvefilm
Sýnd kl. 7.
Mynd fyrir alla fjölskyldtina.
Dr.labuse’s
B0DSFJELBE
LEX BARKER
KARIN DOR
|WERNERPEIERS|vS
KRiMINALGVSER]
/TOPKLASSB
FVLDTMEO “
DJÆVELSK 5
UHVGGE. £
■ ... .— F.F.B. i
Ákaflega spennandi og hroll-
vekjandi ný mynd.
Bönnuð börnum innan 1G ára.
Sýnd kl 9.
— IIJÁLP —
með Bítlunum.
Sýnd kl. 7.
ALLT TIL SAUMA
HANDAN KLAUSTURSINS
signor Rosso segist hafa gert
það, sem hann geti gert — og
Gilly skrifar sjaldan og stutt.
Lestu bréfið frá signornum,
Duncan.
Hún stakk því í hönd lians
og gekk út úr herberginu til
að sækja drenginn, og þegar
"Duncan hafði lesið bréfið, kom
hún inn með hann.
— Þetta er frændi þinn,
Duncan, sagði hún glaðlega og
rétti fram hönd drengsins. —
Þi0 hafið hitzt fyrr, en leyfðu
mér að kynna ykkur almenni-
lega. — Duncan, — þetta er
Duncan, föðurbróðir þinn!
— Skírðuð þið hann í höfuðið
á mér? Hann leit á barnið ein-
kennilegur á svipinn og skelf-
ingin greip Eve. Ef hann gæti nú
séð, hve líkur drengurinn var
Gilly ekki síður en Russ!
— Russell vildi það endilega,
Duncan.
— Þetta er fallegasta barn,
sagði Duncan og brosti til litla
drengsins. — Eve, mig langar
ekki lengur til að kyrkja Russell
næst, þegar ég sé hann, sagði
hann seinmæltur. — En mér
finnst hugmynd þín með að senda
mig til Ameríku í nokkur ár
mjög góð og ég ætla að taka
liemii.
— Það er áreiðanlega rétt lijá
þér, Duncan, þó að við munum
öll sakna þín hérna.
Þau þögðu bæði og Duncan
stóð grafkyrr og le.vfði drengnum
að halda utan um fingur sér.
Nú var hringt og þau heyrðu
bæði djúpa karlmannsrödd. Dun-
can þekkti hana ekki. Það gerði
Eve hins vegar.
— Er frú Hurst heima? Mig
langar til að tala við hana, sagði
djúpa röddin. — Segið henni að
það sé Charles Mayew læknir.
Eve greip andann á lofti. Char-
les Mayhew var fjölskyldulækn-
irinn. Hann vissi allt um hana og
hann hafði sent hana til sérfræð-
ings og sagt henni úrskurðinn.
Hann hafði sjálfur sagt henni blíð
lega en ákveðið, að hún gæti
aldrei eignast barn!
Ef — ef læknirinn segði eitt-
hvað myndi Duncan uppgötva
allt! Russell .... Gilly? En Eve
sá enga útgönguleið. Duncan
virti hana svo einkcnnilega fyrir
sér og svo kom gamli heimilis-
læknirinn til hennar, þar sem
hún stóð með barnið í faðmin-
um — barnið, sem hann hafði
sagt, að hún gæti aldrei eign-
azt!
Charles Mayhew læknir var
vingjarnlegur og vitur maður,
sem hafði verið vinur foreldra
Eve og hann hafði haft áhuga
fyrir uppeldi hennar, en einnig
áhyggjur, þar sem hún var veikl-
uð og hann hafði aldrei gleymt
sorginni í augnaráði hennar, þeg-
ar hann sagði henni, að hún gæti
aldrei eignazt börn.
Nú sá hann hana skjálfandi
af ótta, en ákveðna, iá svipinn
og hvernig hún þrýsti barninu
20
að sér eins og hún óttaðist að
einhver myndi ræna því frá
henni.
„Charles frændi” eins og Eve
var vön að kalla hann, var vitur
maður og fljótur að skilja hálf-
kveðna vísu. Hann hafði hitt
eiginmann Eve og þekkti svipinn
á Duncan.
Nú gekk hann til Eve og rétti
henni höndina. — Sæl vina mín,
sagði hann hægt og blíðlega til
að gefa henni tíma til að átta
sig. — Ég ætlaði að vita hvern-
ig þér liði, það er langt síðan
við höfum sézt.
— Já, já, sagði Eve ringluð,
lömuð, af létti, því áður hafði
ihún ekkert að óttazt jafn mikið,
að hann myndi segja allt. — Þú
hefur víst ekki hitt mág minn,
Duncan Hurst.
Þegar mennirnir tveir höfðu
heilsazt, sagði Duncan: — Ég
ætlaði einmitt að fara. Ef þér
viljið hafa mig afsakaðan.......
— Nei, farðu ekki, bíddu Dun-
can, sagði Eve áköf og leit á
Mayhew lækni. — Duncan hefur
aldrei séð frænda sinn fyrr, —
Charles frændi — og þú ekki
heldur. Hún rétti barnið fram
lilæjandi, en rödd hennar var
skræk, þegar hún sagði:
— Finnst þér hann ekki alveg
eins og Russ? Mér er hann ekki
vitund líkur.
Þetta var hættuspil og hún
vissi það, en það var svo þýð-
ingarmikið fyrir hana, að nú og
alltaf yrði viðurkennt að litli
Duncan Hurst væri sonur þeirra
Russells!
Gamli læknirinn leit í barns-
andlitið. Eve var ljós yfirlitum
og drengurinn ekki vitund líkur
henni.
— Hann er övenjulega fal-
legt barn, sagði gamli maðurinn
alvarleea og strauk yfir kinn
barnsins. — Hann verður áreið-
anlega foreldrum sínum til
sóma. En ég má ekki vera að
því að stoppa lengur, Eve mín,
ég þarf að fara til gamals sjúkl-
ings. Ég er að vísu búinn að
draga mig í hlé, en enn vilja
sumir gömlu vinirnir sjá mig í
heimsókn.
— Ég er ein af þeim, sagði
Eve og leit í augu hans. Hjarta
hennar barðist af þakklæti. — Ég
fylgi þér til dyra Charles frændi.
— Þú þarft ekki að gera það —
óg rata, brosti hann meðan hann
kinkaði kolli til Duncans og klapp
aði Eve. — Þú lítur vel út vina
mín — betur en nokkru sinni
fyrr.
Duncan 'lieyrði ekki hvísl Eve:
— Þakka þér fyrir Charles
frændi. . . um leið og hún opn
aði dyrnar fyrir gamla manninn
sem sýndi með framkomu sinni
að leyndarmál hennar var vel
geymt og hann sá ekki heldur
Eve halla sér augnablik að dyra
stafnum þegar læknirinn var far
Flutníngar
Framhald af bls. 3
ig áður og jukust um tæplega
50%.
Alls fluttu flugvélar Flugfélags
ins því á árinu 159,656 farþega
i áætlunarferðum. Auk þess fóru
flugvélar félagsins allmargar
leiguflugferðir og fluttu sam-
tals 7904 farþega. Samanlögð far
þegatala með flugvélum Flugfé
lags íslands árið 1966 er því
167,560, sem er rúmlega 22%
fleiri farþegar en árið áður
Rúmenar
Framhald af 2. síðu.
Austur-Þjóðverjar hafa gert
á þá ákvörðun Rúmena að
taka upp stjórnmálasamband
við Vestur-Þýzkaland. Rúm-
enska flokksmálgagnið „Scin
teia” hefur svarað þessum
árásum með því að lýsa því
yfir, að tilraiunir At|stur-<
Þjóðverja til að skipta sér
af rúmenskum utanríkismál-
um geti skaðað samskipti
kommúnistalanda.
Gunnarsson, Rvík, Kristján Jóns*
son, Hafnarfirði, Halldór Þor-
bergsson, Rvík, Jón Magnússon,
Patreksfirði og Tryggvi Gunnars-
son, Akureyri.
Varamenn voru kosnir: Guðm.
Halldórsson, Bolumgarvík, Trausti
Gestsson, Akureyri, Guðjón Páls-
son, Vestmannaeyjum, Halldór
Brynjólfsson, Keflavík.
í fulltrúaráð félagsins voru eft-
irtaldir fimmtán menn kosnir:
Haukur Bergmann, Keflavík, Jens
Eyjólfsson, Hafnarfirði, Hannibal
Einarsson, Akranesi, Tryggvi Jóns
son, Ólafsvík, Hávarður Olgeirs-
son, Bolungarvík, Bragi Einars-
son, ísafirði, Axel Schiöth, Siglu-
firði, Sigurður Haraldsson, Dal-
vík, Kristján Helgason, Húsavík,
Víðir Frfðgeirsson, Stöðvarfirði,
Ingvar Gunnarsson, Eskifirði,
Högni Jónsson, Neskaupstað, Stef-
án Stefánsson, Vestmannaeyjum,
Páll Guðjónsson, Vestmannaeyj-
um, Vilmundur Ingimarsson,
Grindavík.
Því næst ræddi fundurinn hið
alvarlega ástand, sem skapazt hef-
ur í sölu íslenzkra sjávarafurða
og kaupgjaldsmál sjómanna, sem
skert hafa verið allverulega und-
anfarið.'Fundurinn ítrek'aði fyrri
samþykktir félagsins, gerðar ‘á
Reyðarfirði og fól stjórninni að
vinna áfram að framgangi þeirra.
Á fundinum voru eftirfarandi
tillögur samþykktar einróma:
„Fundur Samtaka síldveiðisjó-
manna álítur að við ákvörðun síld-
arverðs komi ekki til greina að
verðákvörðun sé byggð á verk-
smiðjum, sem fjarri eru veiði-
svæðum og hafa lítið og ekkert
liráefni fengið. Einnig telur fund-
urinn, að þegar verðlöigð sé síld
til söltunar eigi að reikna með að
tunnur séu keyptar, þar sem þær
fást ódýrastar.“
„Fundur „Samtaka síldveiðisjó-
manna" skorar á sjávarútvegs-
málaráðuneyti að háttvirt Alþingi
að sjá um, að þegar síldveiðiflot-
inn er að veiðum á fjarlægum
miðum, fylgi honum skip, sem geti
veitt læknisaðstoð og flutt sjúk-
linga til hafnar ef með þarf.“
Fundinn siátu nokkuð á annað
hundrað starfandi sjómenn úr síld
veiðiflotanum.
Sjúkraskip
Framhald af 1. síðu.
sjúkraaðstöðu skuli fylgja síldar--
flotanum, er hann veiðir á fjar-
lægum miðum.
Formaður undirbúningsnefndar
Jón Tímótheusson setti fundinn
og tilnefndi fundarstjóra, Kristj-
'án Jónsson og ritara, Halldór Þor-
bergsson. Jón hafði framsögu um
lög félagsins, sem síðan voru sam-
þykkt samhljóða. Páll Guðmunds-
son gerði grein fyrir störfum und-
irbúningsnefndar.
Þá var kosin sjö manna stjórn
og fjórir menn í varastjórn. í
stjórn voru kosnir eftirtaldir
menn: Páll Guðmundsson, Rvík,
Jón Tímótheusson, Rvík, Hrólfur
Massey
Ferguson
DRÁTTARVÉLA
og GRÖFUEIGENDUR
Nú er rétti tíminn til að
láta yfirfara og gera við
vélarnar fyrir vorið.
Massey Ferguson-við-
gerðaþjónustu annast
Vélsmiðja
Eysteins Leifssonar
hf.
Síðumúla 17.
sími 30662.
7. febrúar 1967 ~ ALÞÝÐUBLAÐIÐ 33