Dagur - 17.02.1999, Side 13

Dagur - 17.02.1999, Side 13
MIÐVIKUDAGVR 17. FEBRÚAR 1999 - 13 ÍÞRÓTTIR Kevin Keegan heitur Verður Kevin Keegan næsti landsliðsþjálfari Englands. Líklegt er talið að Kevin Keegan, fram- kvæmdastjóri Fulhain verði á næstu dögum ráðinn nýr landsliðs- þjálfari Englands. Forráðamenn enska knatt- spyrnusambandsins áttu tveggja tíma fund með Keegan á mánu- dag og eftir þann fund telja ensk- ir fjölmiðlar mjög líklegt að Keegan muni taka við enska landsliðinu fyrir Ieikinn gegn Pólverjum í Evrópukeppni lands- Iiða í næsta mánuði. Samkvæmt heimildum enskra hefur Keegan verið boðinn ijögurra ára samn- ingur, en hann hafi þó bent á, að hann vilji standa við gerðan samning við Fulham, sem renn- ur út í júní á næsta ári og þess vegna gæti hann þurft að sinna báðum störfunum fyrst um sinn. Talið er að Keegan muni hitta forráðamenn knattspyrnusam- bandsins aftur á fundi í dag og að þar verði nánar farið yfir mál- in. Hann er sagður hafa sett þau skilyrði fyrir ráðningunni að Howard Wilkinson, komi hvergi nálægt landsliðsmálum, en það gæti einmitt orðið snúið, þar sem Wilkinson er tæknilegur ráðunautur knattspyrnusam- bandsins. Robson varar Keegan við Bobby Robson, fyrrverandi landsliðsþjálfari, hefur varað Keegan \'ið því, að ef hann sam- þykkti að starfa með Wilkinson og verði aðeins í hlutastarfi á meðan hann klárar tímabilið með Fulham, þá sé hætta á því að þær breytingar sem hann vilji sjá á landsliðinu, verði ekki að veruleika fyrr en hann komi í fullt starf. Það er einmitt það sem Keeg- an hræðist og þess vegna vill hann ekki samstarf við Wilkin- son. En vitað er að áhugi Keeg- ans er mikill og þess vegna gæti hann þurft að sætta sig við Wilk- inson á bekknum í landsleikjum og einnig á Iandsliðsæfingum. Keegan vill sjálfur ráða Keegan vill að hann fái sjálfur að ráða sínum aðstoðarmanni og fyrir því hefur hann fengið vil- yrði knattspyrnusambandsins. Þar hefur nafn Arthurs Cox ver- ið efst á blaði, vegna langrar samvinnu þeirra Keegans og ein- nig vegna Iangrar starfsreynslu. Hann hefur verið frekar inni í myndinni heldur en þeir Peter Beardsley og Terry McDermott sem einnig hafa komið til tals. A þessu er þó einn hængur, en það er sá persónulegi stuðningur sem Howard Wilkinson hefur í innsta valdahring enska knatt- spyrnusambandsins, einmitt þeirra manna sem helst beittu sér fyrir því að losna við bæði Glen Hoddle og þar áður Terry Venables. Það verður því hinn stóri höfuðverkur knattspyrnu- forystunnar að ná sáttum um þessi mál, þannig að samningar náist við Keegan. Með saniþykki AI Fayed Keegan gekk til viðræðna við enska knattspyrnusambandið með fullu samþykki A1 Fayed, eiganda Fulham og hefur lagt á það mikla áherslu að hann vilji ldára tímabilið með félaginu. „Eg vil standa við gerða samninga og fólk veit að ég stend við orð mín,“ sagði Keegan. Með hliðsjón af þessum vilja Keegans er búist við að knatt- spyrnusambandið sé að hugleiða samkomulag sem geri ráð fyrir þvf að hann taki við stjórninni fyrir leikinn við Pólvetja, en fái sfðan frí frá leiknum við Ung- verja þann 28. apríl, á meðan hann einbeiti sér að því stýra Fulham í lokabaráttu deilda- keppninnar. Hlutastarf í byrjun Að sögn Geoff Thompson tals- manns enska knattspyrnusam- bandsins gætu menn þar á bæ vel hugsað sér Keegan í hluta- starf til að byrja með. „Við viljum þó að hann endurskoðai samn- ing sinn við Fulham fyrir sumar- ið, þar sem ekki kemur til mála að ráða landsliðsþjálfara í hluta- starf, nema í stuttan tíma. Við viljum gera langan samning við Keegan, ekld aðeins í tvo eða þrjá leiki. Við viljum þá að hann stjórni liðinu gegn Póllandi og taki einnig þá leiki sem við spil- um í sumar, áður en hann tæki alveg við liðinu í fullu starfi,“ sagði Thompson. Onnur megin krafa Keegan verður örugglega að fá leik Ful- ham gegn Wallsall í annari deild- inni frestað, en hann á að fara fram 27. mars, sama dag og landsleikurinn gegn Póllandi fer fram á Wembley. Enska knattspyrnusambandið stendur því frammi fyrir því að ganga að þessum kröfum Keeg- ans, auk þess sem honum verði gefið frí í vináttuleiknum gegn Ungverjum í Búdapest þann 28. apríl, ef staða Fulham á þeim tíma kallar á nærveru hans í lokaslag annarar deildarinnar. GEIR A. GUÐSTEINSSON Mjög slæmt fordæmi Sigurmarkið sem Overmars skoraði í ensku bikarkeppninni fyrir Arsenal gegn Sheffield Utd. hefur að vonum vakið athygli enda er það viðtekin venja að þegar innkast er tekið eftir að bolti hefur verið úr Ieik vegna meiðsla leikmanns að boltanum er kastað til andstæðingsins. Það var reyndar gert í umrætt skipti en Ieikmenn Sheffield Utd. sváfu á verðinum og því komst Nwanku Kanu í boltann og sendi á Marc Overmars. Upphafið var það að Alan Kerry markmaður Sheffield sendi boltann útaf þar sem einn sam- herja hans lá meiddur á vellin- um. Samkvæmt knattspyrnulög- um er það hlutverk dómarans að stöðva leik til þess að sinna slös- uðum leikmanni, ekki leik- manna með því að spyrna knett- inum útaf og taka þar með völd- in af honum. KR-ingar höfðu sigur 1-0 gegn Fram £ bikar- keppninni fyrir nokkrum árum vegna þess að boltanum var varpað til samherja þegar Fram- arar bjuggust við að KR-ingar sendu þeim knöttinn samkvæmt viðtekinni venju. Enginn mót- mælti því en heldur þótti Mihajlo Bibercic, sem skoraði markið, farast óíþróttamanns- lega. Það er heldur ekki á valdi Arsene Wenger, þjálfara Arsenal, að bjóða Sheffield Utd. nýjan leik heldur enska knatt- spyrnusambandsins, ef það á að gera yfirleitt. Enska knatt- spyrnusambandið hefur ákveðið að leikið verði að nýju 23. febr- úar nk. og þannig hefur það sýnt dómara leiksins fádæma Iítils- virðingu en hann dæmdi markið að sjálfsögðu gilt, enda ekki um annað að ræða nema að bijóta knattspyrnulögin sem hann á að dæma eftir. Þessi ákvörðun er því slæmt fordæmi. ÍÞRÓ TTAVIÐTALIÐ Vantar stráka í frjálsar Birgitta Guðjónsdóttir þjálfari hjá UFA Meistaramótið ífrjálsum íþróttum innanhúss var haldið um síðustu helgi. Athygli vakti góður árang- urungra stúlknafrá Ung- metmafélagi Akureyrar sem unnu fjóra íslands- meistartitla. Birgitta Guð- jónsdóttir, margfaldurís- landsmeistri ífrjálsum íþróttum erþjálfari hjá UFA. - Hvaðaflokka ertu að þjálfa hjá UFA? „Við Hólmfríður Erlendsdóttir höfum verið að þjálfa hér saman elsta hópinn sem er tólf ára og eldri. Hópurinn er nokkuð stór og mest hafa þau verið 37 í allt. - Hvað æjið þið oft í vikit? „Þau sem eru tólf til Ijórtán ára æfa tvisvar til þrisvar í viku, en þau eldri, fimmtán ára og eldri, allt að sex sinnum í viku þegar mest er.“ - Hvernig gekk ykkur Akur- eyringum á meistaramótinu innanhúss um helgina? „Okkur gekk ofsalega vel og okkar krakkar unnu íjóra Islands- meistaratitla. Anna Friðrika Árnadóttir vann 60 metra hlaup- ið, Anna Margrét Ólafsdóttir vann stangarstökkið og hástökk án atrennu og Sigurlaug Níels- dóttir, sem æfir með okkur en er skráð í UMSE, vann 60 metra grindarhlaup. Þar varð Anna Margrét í öðru sæti, þannig að þar áttum við tvær fremstu. Anna Margrét var svo í þriðja sæti í þrístökki með atrennu og náði þar með að komast þrisvar á verð- launapall. Sigurlaug keppti líka í langstökki með atrennu og náði þar öðru sætinu. Þessar stelpur voru þarna að keppa í flokki fullorðinna og þetta er því frábær áranagur. Anna Friðrika er til dæmis aðeins sextán ára og því rétt að byrja þegar hún vinnur sinn fyrsta Is- landsmeistaratitil í fullorðins- flokki. Hún virðist vera að koma mjög sterk inn núna og vonandi á hún eftir að halda áfram á sömu braut. Anna Margrét er líka mjög efnileg, en hún hefur átt við meiðsíi að stríða í baki og gat því ekki beitt sér að fullu." - Hvað með strákana í hópn- um? „Það verður að viðurkennast að það eru alltof fáir strákar að æfa fijálsar hjá okkur. Strákarnir virð- ast frekar sækja í boltaíþróttirnar og í vetur hefur til dæmis aðeins einn strákur verið að æfa með tólf til fjórtán ára hópnum. Við eigum þó efnilega stráka í eldri flokkn- um og má þar til dæmis nefna Arnar Már Vilhjálmsson, sem gat ekki tekið þátt í íslandsmótinu vegna veikinda. Hann hefði ör- ugglega spjarað sig vel á mótinu, en hans greinar eru langstökk og sprettir og aldrei að vita nema hann hefði krækt í einhverja titla. Hann verður vonandi búinn að ná sér fyrir næstu helgi, en þá fer fram lslandsmót 22ja ára og f'ngri" - Farið þið með jjölmenna sveit á það mót? „Það mót er aldursflokkaskipt þannig að þangað förum við með vaska sveit. Við verðum með íjórtán keppendur á mótinu sem eiga örugglega eftir að standa sig vel. Við ætlum okkur stóra hluti og við krækjum okkur vonandi í nokkra titla.“ - Eru einliver önnur stór mót á næstunni? „Um aðra helgi fer fram ís- landsmótið í fjölþraut og þangað sendum við einn keppanda. Anna Margrét Ólafsdóttir ætlar að taka þátt í sjöþraut, sem er reyndar keppni í fullorðinsflokki. Síðan verður íslandsmót 12 - 14 ára helgina þar á eftir og þangað för- um við með ansi stóran hóp. Eins og ég sagði áðan þá er aðeins einn strákur að æfa með þessum hópi, en 25 stelpur, þannig að þetta verður mikill kvennaskari." - Hvað er til ráða til að fá strákana til að æfa frjálsar? „Það er ekki gott að segja, en samkeppnin er mikil við bolta- greinarnar. Eg. vil nota tækifærið og auglýsi hér með eftir strákum. Eg skora á þá að mæta á æfingar og sýna hvað þeir geta. Eg er viss um það að ef þeir mæta einu sinni þá koma þeir örugglega aft- ur.“ - Ertu sjálf hætt að keppa? „Eg er að mestu hætt að keppa, en tek þó þátt í einstaka mótum, eins og bikarkeppninni í fyrra. Annars hef ég helst verið að þjál- fa að undanförnu og hef að mestu látið það duga, þó það kitli mann alltaf að vera með á sumr- in.“ - Áttu ennþá Islandsmetið sem þú settir í sjöþraut fyrir nokkrum árum? „Það met stendur víst ennþá, en það hefur samt verið sótt nokkuð að því. Mín helsta keppn- isgrein var spjótkastið, þannig að árangurinn í því hefur eflaust híft mig upp í sjöþrautinni. Þær Sunna Gestsdóttir og Þuríður Ingvarsdóttir hafa verið nálægt metinu, sem er 5221 stig, en ennþá vantað herslumuninn."

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.