Dagur - 17.02.1999, Qupperneq 5
Tfe^ui-
MIÐVIKUDAGVR 17. FEBRÚAR 1999 - 21
LÍFIÐ í LANDINU
Vöxtur Reykjavlkiir í sögulegu samhengi
Saga Reykjavíkur, Borgin 1940-
1990, er -sjálfstætt framhald sam-
nefndra bóka, sem fjalla um tíma-
bilið frá 1870 til 1940. Fyrri hluta
verksins ritaði Guðjón Friðriksson
sagnfræðingur en þau tvö bindi
sem nú eru komin út skrifar Egg-
ert Þór Bernharðsson, sagnfræð-
ingur. Allt er bókverkið glæsilega
út gefið, í stóru broti og mikið
myndskreytt á vandaðan pappír.
Þau tvö bindi sem fjalla um mið-
bik og síðari helming aldarinnar
sem senn er að Iíða, eru samtals
928 blaðsíður að stærð. Iðunn gef-
ur út.
Það tímabil sem síðustu bindin
ná yfir er ekki aðeins saga ört vax-
andi höfuðborgar, heldur einnig
mikilla umbrotatíma í sögu þjóðar-
innar. I verkinu er öllum helstu
þáttum borgarlífins gerð góð skil á
aðgengilegan hátt. Með grunn-
rannsóknum á þessum vettvangi
Ieitast höfundur við að varpa ljósi
á þá gjörbreytingu þjóðfélagshátta,
sem átt hefur sér stað á tiltölulega
skömmum tíma og setur verklegar
framkvæmdir, menningarstrauma
og reynslu þeirra kynslóða sem
byggt hafa borgina síðustu áratugi
f sögulegt samhengi.
Verkinu er skipt í nokkra meg-
inhluta sem greinast í smærri
kafla. I fyrri hlutanum er Qallað
um þá öru þéttbýlisþróun og hvernig
fornir og nýjir hættir fléttuðust saman í
Iífi og starfi borgarbúa í og upp úr síðari
heimsstyrjöld. Sveitamenningin vék hægt
Eggert
Þór Bernharðsson, höfundur síðari binda Sögu Reykjavíkur blaðar í verki sinu og útskýrir fyrir Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur, borgarstjóra.
og sígandi og borgarvitund tók við. Rakin
er þróun atvinnumála og helstu atvinnu-
greinar, og erfiðleika þeirra á haftatíma
og síðan þær byltingarkenndu breytingar
sem orðið hafa á nær öllum sviðum. Sagt
er frá skipulagi og útþenslu byggðar, fjall-
að um húsnæðismál og þær úrlausnir
sem grípa varð til í ört vaxandi þéttbýli. í
Hátt
Iokakafla fyrra bindis er grein
gerð fyrir stjórnmálum og
stjórnsýslu borgarinnar.
Síðara bindið er helgð mál-
efnum daglegs lífs og þeirri
menningu sem einkennir borg-
arlífið. Velferðarþjónusta,
verkalýðsbarátta, heilsuvernd
og er allt hluti kjarabaráttu.
Félagslegar aðstæður borgar-
fjölskyldunnar eru skoðaðar og
viðhorfsbreytingar samfara
nýrri þjóðfélagsgerð. Nýtt gild-
ismat og kvennabarátta setja
sinn svip á tímabilið, þróun
tískustrauma og afþreyingar-
menning er áberandi í borgar-
lífinu. Skólakerfi og uppeldis-
þáttur menntastofnana mótar
unga fólkið í ríkara mæli en
áður og íþrótta- og skemmt-
analíf er umtalsverður hluti
daglega lífsins. Itarleg saman-
tekt í. lista- og menningarlífi
höfuðborgarinnar er að finna í
ritinu og reynt er að skyggnast
í hvað upplifun og túlkun lista-
manna á borginni hefur haft
mikil áhrif.
Heimildaöflun í svona verk
er erfið, að sögn útgefanda,
ekki vegna þess að heimildir
skorti, fremur hitt, að af þeim
er slík ofgnótt að erfitt er að
velja og hafna.
á annað þúsund myndir eru í
bókunum og undirstrika frásögnina og
eru hluti af þeim heimildum, sem gefa
verki sem þessu gildi.
Um stærðfræði
SVOJM
ER LIFID
Pjetur St.
Arason
skrifar
Pjetur
svarar
í símann!
Ertu með ráð,
þarftu að spyrja,
viltu gefa eða
skipta?
Pjetur svarar í
símann kl. 9—12.
Síminn er
563 1626 (beint)
eða 800 7080.
Póstfang:
Þverholt 14 Rvk.
eða Strandgötu 31
Akureyri.
Netfang:
ritstjori@dagur.is
Fyrir nokkkrum árum fengu íslenskir skólamenn vægt áfall af
því að íslensk börn stóðu sig ekki eins vel í stærðfræði og
þeir töldu. Mesta sjokkið var að vera Iakari en helsta saman-
burðarríkið Singapúr. Margir nemendur óttast tölur og
merki, og eru bara með hreina fælni fyrir stærðfræði.
Sumir hafa hins vegar lent £ því að þurfa að reikna sömu
bókina aftur og aftur. A internetinu hefur verið komið upp
stærðfræðivef. Það eru tveir bræður sem hafa veg og vanda
af þessu framtaki. Húgó og Tómas Rassmus. Báðir eru þeir
kennarar. Húgó kennir í Hjallaskóla í Kópavogi en Tómas er
kennari á Flúðum. Tómas hefur starfað við fjarkennslu hjá
Islenska menntanetinu. Hann segir að hugmyndin hjá þeim
hafi verið
að hressa
uppá
krakkana
sem þeir
voru að
kenna.
Vefur-
inn er
hugsaður
fyrir efstu
bekki
grunnskóla
en nem-
endur í
framhaldsskólum eiga einnig að geta haft not af honum. Vef-
urinn skiptist í 1 1 meginþætti og er hverjum þætti skipt í
þrjú þyngdarstig. Þarna geta menn tíl dæmis æft getu sína í
veldareikningi eða Iiðastærðum, reiknað út úr jöfnum, eða
reiknað algebrudæmi úr samræmdum prófum. Hverjum
þætti er fylgt eftir með prófi og þá geta menn fengið niður-
stöðuna strax og þeir hafa reiknað út úr prófinu. Tómas segir
að þeir sem að noti vefinn kerfisbundið geti haft gagn af
honum. Ætli menn sér hinsvegar að notfæra sér hann til
þess að redda sér kvöldið fyrir próf fái þeir í magann.
A heimasíðunni ttp://rvik.ismennt.is/~rasmus/t/ er hægt að
fá nánari upplýsingar um vefinn. Þeir bræður selja aðgang að
vefnum. Fyrirkomulagið á því er þannig að þeir sem hafa
áhuga senda tölvupóst á rasmus@ismennt þeir fá svo sent
lykilorð til baka og gíróseðil. Skólar eru rukkaðir um 10
þúsund krónur auk 200 króna á hvern nemanda sem
notfærir sér þjónustuna. Tómas segir þetta vera svipað og ef
skólinn keypti eina tóma möppu á hvern nemanda. Hann
segir þetta vera Töluvuleik sem að skilar árangri í lífinu.
HVAÐ ER Á SEYfll?
DANSKT - DANSKT - DANSKT
Efnt verður til djasstónleika f Deiglunni á heitum
fimmtudegi í byrjun danskra daga á Akureyri 18.
febrúar kl. 21.00. Þar Ieikur þekkt dankst tríó,
Kind of jazz, skemmtilega efnisskrá, danskt og
dejligt.. Tríóið skipa: Nils Raae á píanó, Ole
Rasmussen á kontrabassa og Mikkel Find á
trommur. Jassklúbbur Akureyrar hefur í samstarfi
við Danska sendiráðið, Norrænu upplýsingarskrif-
stofuna á Akureyri, Café Karólínu og Samland sf.
staðið að heimsókn Kind ofjazz. Danskar veiting-
ar verða á Café Karólínu fyrir tónleikana. Aðgang-
ur er ókeypis fyrir félaga í Jassklúbbi Akureyrar.
HÖFÐUBORGARSVÆÐID
Háskólatónleikar
Miðvikudaginn 17. febrúar kl. 12.30
verða Háskólatónleikar í Norræna hús-
inu. Það er tríóið Austan 3 Tríó en það
skipa konur úr Austurbænum, þær Svana
Víkindsdóttir, píanóleikari, Sigurlaug Eð-
valdsdóttir, fiðluleikari og Lovísa Fjeld-
sted, sellóleikari. Á efnisskránni er V op.
70 no. 1 eftir Ludvig van Beethoven.
Verð aðgöngumiða er kr. 400. Ókeypis
fyrir handhafa stúdentaskírteina.
Gönguferð á Þorra
I kvöld, miðvikudagskvöld í síðustu viku
þorra, stendur Hafnargönguhópurinn fyr-
ir gönguferð og býður upp á sýrudrykk og
molakaffi í Iok gönguferðarinnar. Farið
verður frá Hafnarhúsinu að vestanverðu
kl. 20.00, gengið upp Grófina og um Vík-
urgarð og Hljómskálagarð suður í Vatns-
mýri eða eftir gönguhraða hvers og eins
til kl. 20.45. Þá snúið við og gengið til
baka. Þá er einnig hægt að mæta við
Hafnarhúsið ld. 21.30 og njóta hressing-
ar með göngufólkinu. Þórður mætir með
nikkuna. Allir eru velkomnir í ferð með
Hafnargönguhópnum.
Ríkiseign á fjölmiðlum á það við?
Samband ungra jafnaðarmanna og
Heimdallur halda sameiginlegan fund á
Sólon íslandus, 2. hæð fimmtudaginn
18. febrúar kl. 21.30. A fundinum verður
fjallað um réttmæti ríkiseignar í fjölmiðl-
um á Islandi. Framsögumenn verða:
Hrafn Gunnlaugsson, leikstjóri, Guðrún
Helgadóttir, fyrrv. alþingis- og útvarps-
maður og Hólmfríður Sveinsdóttir, stjórn-
málafræðingur.
Félag eldri borgara Ásgarði, Glæsibæ
Almenn handavinna og perlusaumur,
kennari er Kristín Hjaltadóttir kl. 9-
12.30. Línudanskennsla Sigvalda kl.
18.30.
Almennur félagsfundur verður í
Ásagði sunnudaginn 21. febrúar kl.
14.00.
Skyndihjálparnámskeið
Reykjavíkurdeild Rauða krossins gengst
fyrir námskeiði í almennri skyndihjálp
sem hefst fimmtudaginn 18. febrúar.
Kennsludagar verða 18., 22. og 23 febrú-
ar. Neimskeiðið verður haldið í Fákafeni
11, 2. hæð. Þátttaka er heimil öllum 15
ára og eldri. Þeir sem hafa áhuga á að
komast á þetta námsekið geta haft sam-
band við skrifstofu deildarinnar í síma
568-8188 frá kl. 8-16 í dag eða á morg-
un.
Oskudagurinn í Reykjanesbæ
Öskudagshátíð verður fyrir nemendur í
1.-6. bekk grunnskólanna í Reykjanesbæ.
Hátíðin stendur yfir frá 14-16. Nemend-
ur í Myllubakkaskóla mæti í íþróttahúsið
við Sunnubraut og nemendur í Njarðvík-
urskóla í lþróttamiðstöðina. Kötturinn
verður sleginn úr tunnunni, leikir, dans,
glens og grín er á dagskránni. Foreldrum
er bent á að taka virkan þátt í skemmtun-
inni og aðstoða börnin.