Dagur - 17.02.1999, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1999 - 23
X^ur.
LÍFIÐ í LANDINU
MEINHORNIÐ
• Furðuleg er sú
árátta Islend-
inga að Ieggjast
í biðraðir við
ferðaskrifstofúr
eins og væru
þeir Rússar fyrir
utan brauðbúð-
ir. Það er ekki
eins og það sé
skortur á utan-
landsferðum
eða framboðið
fullnægi ekki
eftirspurn.
Meinhyrningur
hefur ekki haft
efni á því að
fara í utan-
landsferð s.l. 10
ár. En ef til þess
kemur, þá verð-
ur sko ekki lagst
í biðraðir við
ferðaskrifstofur,
heldur látin þau
boð út ganga að
Meinhyrningur
vilji utan. Og þá
geta fulltrúar
ferðaskrifstof-
anna staðið í
biðröðum við
heimili Mein-
hyrnings og
hampað sínum
undir-, gylli- og
kostaboðum.
Þannig eiga
kaupin auðvitað
að ganga fyrir
sig á utanlands-
ferða-eyrinni.
• Gengdarlaust
offramboð á fót-
bolta og öðrum
knattleikjum á
sjónvarpstöðun-
um er óþolandi.
Það er nánast
sama hvar borið
er niður á rás-
unum, allsstað-
ar er verið að
sparka og henda
boltum. Og yfir-
leitt eru þetta
óþjóðlegir bolt-
ar, amerískir
körfuboltar,
þýskir handbolt-
ar og breskir,
þýskir, ítalskir
og spænskir fót-
boltar. Er furða
þó ekki sé pláss
á rásunum fyrir
þjóðlegustu,
göfugustu, feg-
urstu og karl-
mannlegustu
íþrótt í heimi -
íslensku
glínuina?
FOLKSINS
Flugslys Hu
leioa nr. 4 5
GUÐBJARTUR HALLDORSSON
SKRIFAR
Bréfritari leitar svara frá Flugleiðum
vegna tafa og annarra óþæginda við flug
til London föstudaginn 5. febrúar 1999.
Bréf Guðbjarts birtist hér nokkuð stytt.
Hvað þennan föstudag varðar þá var
ég ásamt fleira fólki á Ieið til London á
ráðstefnu með flugi nr. 450. Ohætt er
að segja að góður andi hafi verið í hópn-
um enda verið að fljúga með flugfélagi
sem auglýsir sig upp með að hafa bestu
þjónustuna og yngsta og öruggasta flug-
flota sem eitt flugfélag getur státað af
(aumingja hin flugfélögin). ...
Frekari seinkun
Ekki er nú hægt að tala um að ferðin
hafi byrjað glæsilega því þegar heila-
þvottateipið var rétt hálfnað að dásama
félagið þá var tilkynnt að vélin væri ekki
alveg í standi til ferðarinnar og fólk beð-
ið að ganga aftur frá borði. Fljótlega var
tilkynnt að töfin yrði um tveir tímar og
úr því sem komið var tók fólk þessu með
jafnaðargeði. En þegar leið að brottför
með öruggasta flugflota sem völ er á hjá
einu flugfélagi var tilkynnt um frekari
seinkun og að farið yrði í loftið um kl.
tólf, var fólk farið að bölva í hljóði.
... Rétt um kl. 11.30 var það búið að
Strandgötu 31, 600, Akureyri
Þverholti 14,105 Reykjavík
Sími umsjónarmanns
lesendasíðu:
460 6122
Netfang: ritstjori@dagur.is
Símbréf: 460 6171/551 6270
Óskað er eftir að bréf til
blaðsins séu að jafnaði hálf til
ein vélrituð blaðsíða, 1000-1200
tölvuslög. Dagur áskilur sér rétt
til að stytta lengri bréf.
kvisast út að flugvélin færi í fyrsta lagi í
loftið kl. 14.00 ef hún færi þá bara
nokkuð af stað þennan daginn. Um
12.30 var farþegum í flugi nr. 450 hjá
öruggasta flugfélagi heimsins boðið til
hádegisverðar og fljótlega mátti sjá
breytingar á brottfararskjánum að flug-
tíma hefði verið breytt, enda ekki furða,
ldukkan var orðin tólf, farþegarnir að
borða og ein af öruggustu flugvélum
heimsins ennþá biluð. Þegar nálgaðist
brottfarartíma kom tilkynning á brott-
fararskjá að flugið hefði verið fellt niður
og ekki leið á löngu þar til óskað var eft-
ir 35 sjálboðaliðum til að skjótast til
Kaupmannahafnar og síðan myndu þeir
fá að sitja í hjá SAS til
London þegar líða tæki á
kvöldið og þá væri hægt að
koma restinni af farþegunum
á flug nr. 452 til London
sem áætlað hafði verið um
Id. 16.30 að mig minnir.
Siunir sneru heim
Þessir áður morgunglöðu
farþegar voru nú komnir í
síðdegisþunglyndi og voru
ekkert ginkeyptir til að skjót-
ast til Kaupmannahafnar,
enda höfðu þeir ekkert þang-
að að gera. Með þrautseigju
tókst þó að þvæla nokkrum farþegum til
að bíta á agnið og leit þetta nú bara vel
út hjá þessu „heimsklassa þjónustufyrir-
tæki“ með yngstu og bestu flugvélar í
heimi, já það gleymdist í upphafi að
nefna það að þær heita Boeing. En
aumingja starfsfólkið, flugfarþegar til
Kaupmannahafnar og 35 manna sjál-
boðaliðar fóru ekki Iangt því ein af ör-
uggustu flugvélum heimsins bilaði, en
skrítið og klukkan bara að verða 16.00.
Þetta var ekkert mál hjá leikfangadeild
Flugleiða, Kaupmannahafnarflugið var
sett í salt, morgunflug nr. 450 var aftur
komið á dagskrá og síðdegisflug nr. 452
var enn í fullum undirbúningi. Þegar
hér var komið voru sumir alveg búnir að
fá nóg og voru að undirbúa Reykjavíkur-
ferð, en þá gall við í hátalarakerfinu að
flug nr. 450 væri að verða tilbúið aðeins
átta tímum á eftir áætlun og farþegar
vinsamlega beðnir að ganga um borð. ...
Flugferðin hófst eftir að búið var að
dásama Flugleiðir með heilaþvottavíd-
eóspólunni og yfirfara helstu öryggisat-
riði, sem virðist nú ekki vera vanþörf á, í
nýjustu og öruggustu flugvélum sem eitt
flugfélag hefur yfir að ráða. En Adam
var ekki lengi í paradís, flugstjórinn til-
kynnti að öruggasta flugvél heimsins
sem var að koma úr níu tíma skoðun
væri BILUÐ og að hann yrði að lenda
vélinni aftur, „við fengum þó kortérs
flug“.
Ekki þarf að fara mörg-
um orðum um það að allir
voru orðnir drullufúlir og
raunin varð sú að slangur
af mannskap hélt til
Reykjavíkur...
Aprílgabh?
Undirritaður ákvað að
reyna að þrauka og viti
menn, kallað var út í síð-
degisflug nr. 452 og fólk
beðið að hraða sér því flug-
vélin væri tilbúin og væri
farin að bíða, ekki stóð á
farþegunum að hendast út
enda fangar númer 452
löngu orðnir leiðir á þessu
rugli, en viti menn það var punkterað á
einni af öruggustu flugvélum heimsins,
það fréttist síðan af henni að hún hefði
komist í Ioftið.
Það er af fangaflugi nr. 450 að segja
að tilkynnt var að morgunflugið yrði
ekki tilbúið fyrr en upp úr kl. 20 og öll-
um farþegum boðið til kvöldverðar þeg-
ar kl. var 19.20. Agætlega gekk að koma
kvöldverðinum út og þegar fólk var rétt
að byrja að borða kom tilkynning kl.
19.35 að morgunflugvélin væri tilbúin
og fólk beðið að ganga um borð. Þvílík
upplýsingaþjónusta, enda héldu allir að
þetta væri 1. apríl gabb í febrúar og
héldu áfram að borða.
Flug nr. 450 fór í loftið kl. 20.10 og
kom ekki aftur niður fyrr en eftir tvo
tíma og tíu mínútur á Heathrow flug-
velli í London. Já! eitt af öruggustu flug-
vélaflökum heimsins hafði náð alla leið
án þess að bila og farþegar í flugi nr.
452 komnir á leiðarenda eftir 13 tíma.
Þar sem undirrituðum er runnin
mesta reiðin ætla ég ekki að hafa þetta
öllu lengra, en til að hnykkja á umfjöll-
un minni um upplýsingaþjónustu Flug-
leiða þá bíður undirritaður enn eftir
svari vegna kvörtunar sem hann sendi til
þeirra aðila sem um þau mál sjá hjá fé-
laginu og það var nú bara í maí 1998. ...
VEÐUR
Veðrið í dag...
Vaxandi suðaustanátt í fyrramálið og fer að snjóa um
landið suðvestan og vestanvert. Stinningskaldi eða
allhvasst víða um landið sídegis og þá með snjókomu um
mest allt land, en þó slyddu syðst. Dregur úr frosti á
morgun, iyrst sunnan- og vestantil.
mti 12 tu 0 stig
Blönduós
Akureyri
Egilsstaðir Bolungarvík
rc) mm rc) mm
-10 -6“
\1,- ■ ■ ■ 1 ■ -5 -10- -0 -15- -*■ r-——"r-™—™ i **—
\\\
Miö Fim Fös Lau M
Þri Mið Fim Fös
^ r
Fteykjavík
\ / ^ W /'/•//
Kirkjubæjarklaustur
Þrl Miö Fim Fös
^ ^ í [ •r'
_____Stykkishólmur
Mán Þri Miö Fim Fös Lau
-//
Stórhöfði
I ■ ■;
-15 5V
-10 ; o-
- -I l ■ i ,
Þri Mið Fim Fös
\ S. . / í s'Sf- f
VEÐURSTOFA
? ÍSLANDS
Veðurspárit
16.02.1999
Línurit: Lofthiti, spágildi fyrir miðnætti og hádegi.
Súlurit: Úrkoma, uppsöfnuð i 12 klst.
Vindörvar: Vindur blæs inn að punkti. Vindhraði táknaður með
skástrikum; heilt strik táknar 5 m/s en hálft 2.5 m/s.
Þríhyrningur táknar 25 m/s. er
. k
Dæmi: • táknar norðvestanátt, 7.5 m/s.
Færð á vegum
Á Norð-Austurlandi er víða skafrenningur og þungfært er
um Kísilveg og á Möðrudalsöræfum en þæfingsfærð er á
Mývatnsöræfum og á Vopnafjarðarheiði. Ófært er til
Borgaíjarðar eystri. Að öðru leyti er allgóð vetrarfærð á
vegum landsins.
66*N
SEXTIU
OG
SEX
NORÐUR