Dagur - 10.03.1999, Qupperneq 1

Dagur - 10.03.1999, Qupperneq 1
V Miðvikudagur 10. mars 1999 82. og 83. árgangur - 47 tölublað Hallarbylting á aðalfundi SH Einar K. Guðfinnsson: Tæplega til betri fjárfestingarkostir fyrir hið opinbera. Fyrsta „sprengja“ að- alfundar SH féH þegar í ljós kom að Björgólf- ur Jóhannsson, nýr framk væmdastj óri Síldarvinnslunnar, hafði fengið flest at- kvæði í stjómarkjöri en haun var talinn vilhaHur Róhert Guð- finnssyni. Líkur á því að hafnar verði að nýju sameiningarviðræður milli sjávarafurðafyrirtækjanna Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna og Islenskra sjávarafurða eru taldar hafa aukist til muna eftir að Ró- bert Guðfinnsson, stjórnarfor- maður Þormóðs ramma-Sæbergs á Siglufirði, var kjörinn stjórnar- formaður SH í gær með naum- um meirihluta. Hann var mikill hvatamaður þess að fyrirtækin sameinuðust. Hann felldi þar með Jón Ingvarsson úr embætt- inu, en hann hefur gegnt því síð- ustu 15 ár. Kosning Róberts er talinn sigur þeirra sem börðust fyrir breytingum á starfsemi SH og um leið aukast líkur á því að til þess að fylgja þeim eftir verði ráðinn nýr forstjóri í stað Frið- riks Pálssonar, og er nafn Brynj- ólfs Bjarnasonar þar helst nefnt til sögunnar. Róbert segir að mjög skiptar skoðanir hafi verið um stefnu stjórnar, og um það hafi verið tekist. Ný stjórn muni á næstu vikum móta SH nýja stefnu sem sé í mun meiri takt við þá miklu markaðsvæðingu sem verið hafi í íslenskum sjávarútvegi á síðustu árum. Tími á breytingar Ekki náðist í stjórnendur IS í gær til að fá viðbrögð við þessari þróun, en skoðun Arnar Kristins- Arðbær fjárfesting Nefnd sem forsætisráðherra skipaði í haust til að gera tillög- ur um aðgerðir í byggðamálum leggur meðal annars til aukn- ingu fjármuna til vegagerðar, lækkun húshitunarkostnaðar og að framlög til jöfnunar á náms- kostnaði verði aukin um helm- ing á þremur árum. Einar K. Guðfinnsson er formaður nefndarinnar. „Auk þessa er síð- an mikið nýmæli, tillaga um að veitt sé ívilnun í endurgreiðslu námslána til fólks sem búið hef- ur að minnsta kosti í tvö ár á landsbyggðinni," segir Einar. „Þetta eru helstu beinu tillög- urnar en síðan eru þættir sem lúta að aukinni atvinnusköpun og aukinni fjölbreytni atvinnu- lífsins á landsbyggðinni, aðgerð- ir sem lúta að styrkingu á stöðu sveitarfélaga á Iandsbyggðinni þar sem orðið hefur alvarleg bú- seturöskun." Háskalegri þróun snúið við Að sögn Einars voru teknar sam- an upplýsingar fyrir nefndina þar sem fram kemur að kostnað- ur af þéttbýlismyndun fyrir þau sveitarfélög sem eru að taka við fólksfjölguninni sé um 3-5 millj- ónir á einstakling. „Við teljum að það sé mjög þjóðhagslega arðbært að snúa þessari háska- legu byggðaþróun við. Til við- bótar er þjóðfélagslegur kostn- aður sem felst í því að eftir standa fasteignir og fjárfestingar á landsbyggðinni sem engum nýtast eða kalla á erfiðleika í sveitarfélögunum, sem fyrr eða síðar mun birtast samfélaginu í einhverri mynd. Þannig að það er enginn vafi á þ\'í að tii lengri tíma litið er þetta óskaplega góð fjárfesting og tæplega til betri fjárfestingarkostir fyrir hið opin- bera en að reyna að bregðast þarna við,“ segir Einar K. Guð- finnsson. - HI Róbert Guðfinnsson (t.h.J og Jón ingvarsson (t.vj takast íhendur eftir að niðurstaða formannskjörsins lá fyrir. Friðrik Pálsson forstjóri fylgist með. Róbert segir að mjög skiptar skoðanir hafi verið um stefnu stjórnar. Ný stjórn muni á næstu vikum móta SH nýja stefnu sem sé í mun meiri takti við þá miklu markaðsvæðingu sem verið hafi í íslenskum sjávarútvegi á síðustu árum. mynd e.ól. sonar, eins stærri framleiðend- anna hjá IS, er skýr: „Þetta eru mikil tíðindi og ættu að vera framleiðendum innan SH hag- stæð. Það var kominn tími á breytingar og Iíkurnar á því að skipt verði um forstjóra hafa aukist. Róbert var í forystusveit þeirra sem vildu sameina SH og IS og hann hefur eflaust fengið fylgi út á það auk fylgis frá þeim sem vildu breytingar. Róbert er framsækinn maður og ég held að hann eigi eftir að gera góða hluti þarna." Kosningar Loft var lævi blandið á aðalfund- inum, ekki síst eftir að það kvis- aðist að Þormóður rammi-Sæ- berg hefði ásamt öðrum fjárfest- um keypt 7% hlut í SH af Har- aldi Böðvarssyni sem fyrir söluna átti 8% hlut í fyrirtældnu. Talið er að virði þessa hlutar gætiyer- ið um 450 milljónir króna. Áður hafði Róbert keypt hlut af Aðal- steini Jónssyni á Eskifirði. Kraf- ist var margfeldiskosningar í fyrsta skipti í sögu SH og gáfu 10 kost á sér í 9 manna stjórn. Þar féll fyrsta sprengjan þegar í ljós kom að Björgólfur Jóhannsson, nýr framkvæmdastjóri Síldar- vinnslunnar, hafði fengið flest atkvæði en hann var talinn vil- hallur Róbert. Næstflest atkvæði fékk Róbert Guðfinnsson, en síðan komu eftir atkvæðamagni Jón Ingvarsson, Guðmundur Kristjánsson frá Rifi, Kristján Jó- hannsson á Isafirði, Guðbrandur Sigurðsson á Akureyri, Rakel Ol- sen í Stykkishólmi, Ólafur Mart- einsson á Siglufirði og Brynjólf- ur Bjarnason í Reykjavík. Stjórn- armaðurinn Olafur B. Olafsson í Sandgerði féll út. Síðan var kos- ið milli Róberts og Jóns og vann Róbert þar mjög nauman sigur, hlaut 50,04% greiddra atkvæða. Einn viðmælanda Dags sagði í gær að þessi úrslit táknuðu að Kolkrabhinn hefði sofið á verðin- um og áhrif Eimskips á stjórn SH hefðu beðið skipbrot. - GG Afgreiddir samdægurs Venjulegir og demantsskomir trúlofunarhringar GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI - SÍMI 462 3524 E£. jjzI}, Gxpœss EITT NÚMER AÐ MUNA 5351100 TVÖFALDUR 1. VINNINGUR

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.