Dagur - 10.03.1999, Page 13

Dagur - 10.03.1999, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 10. MARS 1999 - 13 ÍÞRÓTTIR Frægðin getur verið dýru verði keypt David Beckham gengur brátt í þaö heilaga með sinni heitt elskuðu Spice drottningu, Victoriu Adams. Fjórar milljóiiir í vikulaun. Bestu bílar að eigin vali. Sægur af kvenfólM á hverju strái. Ný heimildarmynd um líf og starf atvinnuknattspyrnumanna verð- ur frumsýnd á enskri sjónvarps- stöð í þessum mánuði. Þar kem- ur fram að mörgum knattspyrnu- manninum finnst nóg um frægð- ina og hún stundum dýru verði keypt. Ríkidæmið, ljúfa lífið og heimsfrægðin er ekki lykillinn að hamingjunni hjá bestu knatt- spyrnumönnum heims. Þeir eru einfaldlega bara menn, rétt eins og ég og þú, og eiga fáar óskir heitari en að fá að lifa sínu eigin Iffi í friði, fyrir mér, þér og öllum öðrum sem truflað geta einkalíf þeirra. Fyrrum fyrirliði Liverpool, Skotinn Alan Hansen, sá um gerð myndarinnar sem er um 50 mínútur að lengd. Margir af þekktustu knattspyrnumönnum Englands segja þar frá hvað þeim finnst um frægðina og átroðning almennings sem henni fylgir. David Beckham, sem brátt geng- ur í það heilaga með sinni heitt Clunara Nýbakaður heimsmeistari í sjö- þraut karla, Pólverjinn Sebastian Chmara, mun verða meðal þátt- takenda í hástökki á Stökkmóti ÍR sem fram fer í Laugardalshöll þann 16. mars nk. Chmara sem einnig er núverandi Evrópu- meistari í sjöþraut, hefur hæst elskuðu Spice drottningu, Vict- oriu Adams, segir frá sinni reynslu. Viðtalið við Beckham var það fyrsta þar sem hann tal- aði við sjónvarpsfréttamenn eftir söguleg endalok sín í HM keppn- inni síðastliðið sumar. Hann seg- ir að hann þurfi nánast að berjast gegn frægðinni á hverjum einasta degi. Ágangurinn sé alltof mikill. stokkið 2,17 m, en stökk 2,11 m í sjöþrautinni á HM í Japan. Hann mun á mótinu etja kappi við Islandsmeistarann Einar Karl Hjartarson, sem hefur stokkið 2,16 m innanhúss og einnig mun Ólafur Símon Ólafsson verða meðal keppenda, en hann hefur Höndlaði ekki frægðina Tony Adams, fyrirliði Arsenal og Englands, viðurkennir í mynd- inni að hann hafi glatað hjóna- bandi sínu og að óhófleg áfengis- neysla sín hafi verið bein afleið- ing af frægðinni. „Eg einfaldlega stóðst ekki álagið sem fylgdi frægðinni af því að leika með Arsenal og landsliðinu." hæst stokkið 2,05 m. Auk þess mun íslandsvinurinn og einn efnilegasti hástökkvari Norð- manna, Vegard Hansen, mæta til keppninnar, en hann hefur hæst stokkið 2,17 m. Þetta er í þriðja sinn sem Hansen keppir í Höllinni, sem hann segir mjög Michael Owen, undrabarnið í Liverpool, segist vera búinn að fá alveg nóg af ágengni fólks. „Það er alveg sama hvar maður kemur í Liverpool, allstaðar er fólk sem kemur og vill fá eiginhandarárit- anir. Það getur verið afskaplega þreytandi því auðvitað vill mað- ur líka eiga sitt einkalíf eins og allur almenningur. Þá sýnir myndin m.a. frá því þegar Liverpool Ieikmaðurinn Jamie Redknap yfirgefur Anfield Road eftir heimaleik Iiðsins. Þar sést hvernig leikmanninum er hrint fram og til baka, togað í hann og kallað á hann allt í þeim tilgangi að vekja athygli á sjálfum sér og fá áritun. Her öryggisvarða getur lítið gert gegn ágangi aðdá- enda stjarnanna. Framleiðandi myndarinnar, Stuart Cabb, segir ágengnina vekja ugg með venju- legu fólki. David Ginola, Dwight Yorke, Gream Le Sauxe og Alan Shearer koma einnig fram f heimildar- myndinni og segja sínar sögur. Það er athyglivert að hlusta á Alan Shearer þegar hann segir það skoðun sína að knattspyrnu- menn í dag hafi alltof mikil áhrif og jafnvel völd í samfélaginu. - GÞÖ góðan keppnisstað, þar sem gólf- ið sé mjög gott til að stökkva á og einnig séu íslenskir áhorfendur frábærir og stemmningin mjög hvetjandi. væntanlegur á Stökkmót ÍR ÍÞRÓTTAVIÐTALIÐ SKODUN KRISTENSSON Einkavæðmg Nú líður senn að þvf að öll AI- þjóða Olympíunefndin mæti til fundar í aðalstöðvum sínum í Lusanne í Sviss, þar sem forset- inn sjálfur, Juan Antonio Samar- anch, mun fara fram á stuðning til áframhaldandi forsætis. Þar verða mættir allir einkavinir for- setans, 92 að tölu, sem hann hefur sjálfur persónulega valið til setu í nefndinni, auk þeirra 22 sem hafa komist þar inn eftir öðrum leiðum. Alls eru fulltrú- arnir í nefndinni því 114 talsins og Samaranch því með vísan stuðning meirihluta nefndar manna. Einnig mun Samaranch eiga vísan stuðning íslensku íþróttaforystunnar, sem gefið hefur forsetanum skriflegt sið- gæðisvottorð vegna meintra góðra starfa. Það er ekki ónýt fyrir Samaranch að geta veifaí' þessu siðgæðisvottorði frá landi víkinganna í norðri, sem horfa með augum sakleysingjanna á allt sukkið og svínaríið sem við- gengst í hreyfingunni. Enda hef- ur forsetinn séð sig knúinn til að þakka fyrir sig með grátklökku þakkarskeyti, sem eflaust hefur verið innsiglað konunglegu inn- sigli miðað við hirðsiði forsetans. Um fimmtungur þeirra manna sem sæti eiga í Alþjóða Olympíu- nefndinni, sem eflaust eru allir einkavinir forsetans, hefur þegar fengið á sig stimpil spillingar og eru jafnvel sakaðir um að vera með afbrigðum lausgirtir. Með slíka sveit jábræðra í kringum sig er ekki von á góðu og engar Iíkur á öðru en að menn kunni að þakka fyrir sig með stuðningsyf- irlýsingu við karlinn. Það er ljóst að æ fleiri hafa komist að þeirri niðurstöðu að Samaranch eigi að segja af sér og þar á meðal eru fulltrúar í þandarísku Olympíunefndinni. Það sama á íslenska íþróttafor- ystan einnig að gera. ERLINGUR HK og FH komast í úrslitakeppiiiiia Þorbjöm Jens- son landsliðsþjálfari í kvöld er kontíó að loka- umferð Nissandeildarinnar í handknattleik og enn óljóst hvaða átta lið kom- ast í úrslitakeppnina. Vð fengum Þorbjöm Jensson, landsliðsþjálfara, sem á sunnudaginn heldurmeð íslenska landsliðiðá World- Cup í Svíþjóð, til að spá í spilin. - Hverju viltu spú um úrslit- in í lokautnferðinni? „Ef við byrjum á þeim liðum sem eru að beijast um sæti í úr- slitunum, þá eru það FH, Valur, HK og IR. IR-ingarnir eiga að Ieika gegn Aftureldingu í Mos- fellsbæ og þar held ég að Aftur- elding hafi sigur. Þeir eiga að taka við deiidarmeistarabikarn- um eftir leikinn og þeir vilja ör- ugglega gera það með stæl eftir sigurleik gegn IR. Það verður því mjög harður róður fyrir IR-inga og þess vegna hallast ég að því að Afturelding vinni leikinn. Leikurinn á milli Vals og HK verður síðan algjör úrslitaleikur um það hvort liðið fer áfram. Eg sá HK vinna Hauka í síðustu umferð í Kópavogi og ég hallast frekar að því að þeir haldi sigur- göngu sinni áfram og vinni Val að Hlíðarenda. Mér finnst leikur Vals hafa verið mjög ósannfær- andi að undanförnu og þess vegna á ég von á að þessi leikur verði þeim erfiður. HK-liðið hef- ur sýnt gífurlega baráttu í síð- ustu leikjum og sér nú þann möguleika að komast áfram í 8- liða úrslit í fyrsta skipti. í leik FH gegn Stjörnunni trúi ég að Stjarnan hafi sigur. Þeir eru þokkalega sterkir á heima- velli og þó sagan segi að FH-ing- ar hafi náð góðum árangri í Garðabænum, þá held ég að það dugi ekki til. Mér finnst Stjarnan vera með betra lið og svo hefur heimavöllurinn sitt að segja, þannig að ég tippa á Stjörnusig- ur.“ - Samkvæmt þessari spá verða það HK og FH setn kom- ast áfratn í 8-liða úrslitin, en hverju viltu spá um keppnina utn 4. sætið? „Keppnin um 4. sætið stendur á milli KA, IBV og Hauka og í innbyrðis leik Hauka og KA í Hafnarfirði hallast ég að sigri Haukanna. Þeir eru sterkir á heimavelli og þó þeim hafi geng- ið illa á móti HK í síðustu um- ferð, þá hygg ég að þeir ætli sér eitthvað meira og að sigurinn verði því þeirra. I Ieik Fram og IBV hef ég trú á sigri Framara. Eg held að Eyja- menn haldi áfram sinni „ósigur- göngu“ á útivelli. Þeir eru sterkir heima en hafa verið að spila illa í útileikjunum og ég held að þar verði engin breyting á.“ - Samkvæmt þessu ætti Fratn að ná þriðja sætinu og Haukar þvt jjórða. En hverju viltu spá uttt leik hotnliðanna, Gróttu/KR og Selfoss? „Leikur Gróttu/KR og Selfoss skiptir í raun engu máli í stöð- unni. Grótta/KR spilaði ágætan leik á móti IR-ingum í síðustu umferð og þeir hafa verið sterkir á heimavelli. Þeir ætla sér örugg- lega að falla með sæmd og þess vegna hallast ég að öruggum heimasigri þeirra gegn Selfossi.“ - Nú ertu á leiðinni með landsliðið á World-Cup i Svt- þjóð? „Eg mun tilkynna liðið á morg- un og síðan verður haldið til Sví- þjóðar á sunnudaginn. Þarna spila nokkurn veginn þau lið sem voru í fyrstu átta sætunum í Kumomoto, þannig að þetta er geysisterkt mót. Spilað er í tveimur riðlum og við eigum fyrsta Ieik gegn Svíum á mánu- dag, gegn Frökkum á þriðjudag og síðan Ungverjum á miðviku- dag. Tvö efstu liðin fara síðan f úrslitakeppnina þar sem spilað er einhvers konar krossspil. Þau lið sem ekki ná í úrslitakeppnina spila síðan innbyrðis, ekki um sérstök sæti, heldur nokkurs konar æfingakeppni. Ut úr þessu fáum við alis þrjá leiki í riðla- keppninni og auk þess tvo til þrjá í viðbót, hvort sem við Iendum í úrslitum eða ekki. Við förum með fjórtán leikmenn í ferðina og keppnin stendur í viku, eða fram á annan sunnudag. - Eigutn við von á tntklutn breytingum á landsliðshópn- um? „Það er alltaf verið að gera breytingar, en ég er að sjóða þetta saman og það verður Ijóst í dag hverjir fara.“ - Verður Duranona i hópn- utn? „Duranona er alveg inni í myndinni, eins og aðrir. Hann hefur átt ágæta leiki inn á milli í þýsku deildinni, en þetta hefur þó verið upp og ofan hjá honum. Aðrir sem spila í Þýskalandi, eins og Ólafur Stefánsson og Sigurð- ur Bjarnason, hafa verið að ná sér á strik og þeir þrír eru inni í myndinni ásamt strákunum sem spila hér heima.“

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.