Dagur - 26.03.1999, Qupperneq 1

Dagur - 26.03.1999, Qupperneq 1
Ingi Þór Jónsson, fyrrum sundkappi, nú leikari og veitingamaður í London. „Ég er ekkert að taka þetta ofalvarlega. Þetta er bara eins og hver önnur vinna. Það er voða gaman þegar það gerist og svo bara nýtur maður þess.“ Ingi Þór Jónssonfór íprufu hjá Spielberg... ogkemurtil greina í næstu mynd. Skagamenn, gamlir sundáhugamenn og fleiri ráku upp stór augu á miðvikudags- kvöldið þegar Skagamaðurinn og sund- kappinn fyrrverandi, Ingi Þór Jónsson, birtist á skjánum í breska sakamálaþættin- um Illþýði (Touching Evil), í gervi rúss- nesks glæpamanns. Dagur sló á þráðinn til Inga Þórs í London, þar sem hann rek- ur Iítinn veitingastað og stundar Ieiklistina þegar verkefni fást. Leikur útlendinga - Hver eru helstu afrekin í leiklistinni? „Eg hef aðallega verið í sjónvarpi,“ og bætir svo við af stakri hógværð: „Ég fór í prufutöku fyrir nýjustu mynd Stevens Spi- elberg, var svo kallaður aftur í það f febrú- ar og ég er enn inni í myndinni varðandi hlutverk í þeirri mynd. Hann er framleið- andi að myndinni en Ridley Scott er leik- stjóri. Myndin heitir Gladiators og ég held að tökur eigi að byrja í ágúst eða septem- ber. En þeir eru enn að skrifa handritið og það er allt dálítið í lausu lofti. Þeir komu til Bretlands og völdu tuttugu leikara sem þeir vildu hitta og svo var ég valinn ásamt þremur öðrum og kem enn til greina.“ Hlutverkið sem um ræðir er eitt af mörg- um sem koma næst tveimur aðalhlutverk- um að umfangi. Ingi Þór hefur Ieikið í nokkrum sjón- varpsþáttum. „Það er yfirleitt þannig að þegar það eru útlendingar í þáttum þá er ég kallaður inn. Eg er kominn á þann ald- ur að ég get farið að leika þessa krimma. Eg leik held ég alla útlendinga í London, Rússa, Norðmenn, Svía, Þjóðverja og fleiri.“ - Þií hefur ekki verið mikið á skjánum hér heima. „Eg held ég hafi verið í einhverjum öðr- um þáttum sem sýndir hafa verið heima en ég hef alltaf haldið þessu dálítið leyndu. Þetta er bara mitt. Eg hef ékkert verið að auglýsa þetta sérstaklega." Allt í einu eða ekki neitt - Fórstu í leiklistina um leið og þú hættir i sundinu? „Eg vann heima í fjögur ár hjá Flugleið- um en svo fór ég í leiklistarskóla í Bret- landi, var þar í fjögur ár og er búinn að vera hérna í rúm tíu ár. Eg er búinn að vera að leika mér síðan þá og svo opnaði ég þennan stað fyrir tveimur árum síðan, bara til að hafa meira að gera. Ég ákvað að opna veitingastað áður en ég yrði rfkur og frægur," segir Ingi Þór. Hann segir únnuna við leiklistina vera gloppótta og því gott að hafa eitthvað ann- að að gera líka, auk þess sem hann er sinn eigin herra í veitingabransanum og getur því hagað sínum tíma nokkuð að vild. „Þetta er aldrei stabílt í leiklistinni. Það er annað hvort allt í einu eða ekki neitt, þannig að það er ágætt að hafa nóg að gera annað. Þetta er bara lítil búlla hérna í Vestur-London og gengur bara mjög vel,“ segir Ingi Þór um veitingastaðinn sinn. „Hann er einn af tuttugu veitingastöðum sem BBC valdi til auglýsingaherferðar hjá BBC World Service. Það var voða gaman og hefur haft góð áhrif á staðinn. En þetta er bara svona lítið og notalegt, fimmtíu manna staður og gengur þrusuvel." - Tekur veitingabransinn ekki tíma frá leitinni að hlutverkum? „Það er mjög hentugt að eiga sjálfur staðinn. Þá ræður maður sjálfur ferðinni þannig að ég bara finn tíma. Síðan er ég með mjög góðan umboðsmann. Það skipt- ir öllu máli og líka að halda samböndun- um sem maður nær, senda jólakort og svo- leiðis. Þú þarft að láta vita af þér og þeir biðja um það líka. Svo er það eins og til dæmis með þetta hjá Spielberg, þó ég fái ekki hlutverkið núna þá fer myndbandið um allt og verður geymt. Þeir fara alltaf yfir þetta öðru hverju þegar þeir leita að nýjum karakterum og annað, þannig að maður veit aldrei hvað gerist næst.“ Draumahlutverkið með Helgu Brögu - Er eitthvað inni í myndinni að leika hér heima? „Ekki nema ég fái að leika með Fóst- bræðrum. Þá kem ég heim. Það væri draumahlutverkið mitt að fá að leika með Helgu Brögu. Við erum góðir vinir frá því í gamla daga. Vorum saman í öllum skóla- leikritunum." - Stefnirðu á eitthvað ákveðið í þessum bransa? „Nei, bara taka því sem að höndum ber. Eg er ekkert að taka þetta of alvarlega. Þetta er bara eins og hver önnur vinna. Það er voða gaman þegar það gerist og svo bara nýtur maður þess.“ - HI 1 .1 1 ' 1 1 1 1 1 1 1 1

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.