Dagur - 26.03.1999, Síða 5

Dagur - 26.03.1999, Síða 5
I X^nr------- LEIKHÚS KVIKMYNDIR TÓNLIST SKEMMTANIR Sýning með stórt hj arta kemursvo afturí sumar... Cirkus Cirkör er hópur ungra norrænna leikara sem tók sig saman árið 1994 og tók að æfa og sýna íjöllist í anda ný- sirkussins. Sex meðlimir hóps- ins eru nú staddir hér á landi til að kynna nýsirkusinn. Haldnar verða 3 sýningar, kl. 14 f Menntaskólanum á Akur- eyri í dag en á sunnudag og mánudag í Loftkastalanum kl. 20. Við hringdum í gemsa Kára Halldórs, milligöngu- manns hópsins hér á landi, og spurðum hann hvaða fyrirbæri þetta væri. Vinsælustu atriðiu „Þetta er eiginlega blanda af leiklist og sirkus. Nýsirkusinn fór að spretta upp úr götuleik- húsinu fyrir um 20 árum í Kanada og Frakklandi en Cirkus Cirkör er fyrsti ný- sirkusinn á Norðurlöndunum. Það sem skilur nýsirkusinn frá sirkus er að það er unnið með þema og þráð eins og f leikhúsi, það er leikstjóri sem samræmir at- riðin en ekki bara tínd til atriði héðan og þaðan úr heiminum eins og í sirkusnum." Kári segir að hópurinn hafi slegið í gegn árið 1996 í Svíþjóð og Skandinavíu og í þessari heimsókn verða sýningar Cirkus Cirkör samansafn nokkurra vinsælustu atriða hópsins. „Þetta er kallað Atvinnulausir leikarar og aðrir áhugasamir um nýsirkus stofnuðu hópinn Cirkus Cirkör árið 1994 og slógu í gegn í Skandinavíu tveimur árum síðar. Engin dýr eru notuð og Kári segir þetta ekki sirkus þar sem foretdrar geti plantað börnum sinum. Nýsirkusinn sé allt annað en Billy Smart í sjónvarpinu og fyrir breiðari aldurshóp. Tugþúsundir komu á nám- skeið Stór hluti af starfsemi hópsins er að halda námskeið í fjöl- listabrögðum. „Þau hafa eigin- lega rekið farandskóla, haldið námskeið þar sem þau eru með sýningar, og svo eru þau með fastan nýsirkusskóla í Stokkhólmi og eru núna að vinna að því að það verði kom- ið á fót norrænum nýsirkus- skóla, sem verður staðsettur í Málmey.“ Heimsóknin til Islands að þessu sinni er undanfari sýn- ingarferðar í sumar til Islands, Grænlands og Færeyja. Hóp- urinn fékk styrk frá Teater og Dans i Norden og frá Nor- ræna menningarsjóðnum til ferðalagsins og heldur einnig tvær námstefnur í þessari heimsókn. Annars vegar eftir sýninguna hjá MA í dag og hins vegar í Norræna húsinu kl. 16 á morgun. Fullvaxin námskeið verða svo haldin þegar hópurinn kemur aftur í _________________________ sumar. „Þau hafa stundum lent í vanda þegar þau hafa verið að halda þessi námskeið því það hafa komið þúsundir manna. I Stokkhólmi fyrir nokkrum árum komu tugir þúsunda á einni helgi! Þeir hafa náð mjög til ungs fólks, m.a. ungs fólks í tjáningarvanda, sem finnst það ekki geta tjáð sig gagnvart samtímanum. M.a.s. þeir sem eru frekar taldir óknyttaunglingar hafa allt í einu fengið útrás fyrir sinn kraft í gegnum svona nýsirkus," sagði Kári að lokum. Norrænnfjöllistahóp- ur afnýsirkusbylgj- unni, Cirkus Cirkör, sýnirlistirsínará Akureyri og íReykja- vík um helgina og Golden Hits. Þar verður m.a. þeirra frægasta atriði, blöðru- atriðið þar sem maðurinn fer inn í stóru blöðruna. Ný- sirkusinn virkar oft agressífur á eldra fólk en það skemmti- lega við hann er að sýningarn- ar eru með stórt hjarta. Það er mjög mikil umhyggja og mannhyggja og hlýja sem kemur frá sviðinu." Ljóðatónleíkar og Heine Ljóðatónleikar Finns Bjamason- ar og Gerrit Schuil íkvöld.Lög Schumanns við Ijóð Heines og fleiri. Heine dag- skrá íDeiglunni á laugardagskvöld. Finnur Bjarnason. Heinrich Heine. Arthúr Björgvin Bollason. Finnur Bjarnason og Gerrit Schuil flytja söngva Schumanns í Safnaðarheimili Akur- eyrarkirkju á vegum Tónlistarfélags Akureyr- ar í kvöld klukkan 20.30. A efnisskránni eru söngvar eftir Robert Schumann við ljóð Justinus Kerner og Heinrich Heine, en Schumann var án efa mesta sönglagaskáld tónlistarsögunanr við hlið Schuberts. Finnur Bjarnason baritónsöngvari er ung- ur að árum en hefur unnið til margfaldra verðlauna fyrir ljóðasöng og komið fram sem einsöngvari hér heima og á Englandi. Gerrit Schuil píanóleikari hefur tekið virk- an þátt í íslensku tónlistarlífi frá 1993 sem píanóleikari og hljómsveitarstjóri auk þess sem hann hefur skipulagt tónlistarhátíðir og leikið inn á hljómplötur. Fyrir síðustu jól kom út geisladiskur þar sem þeir Finnur og Gerrit flytja söngljóð eftir Schumann, þau hin sömu og þeir munu flytja á tónleikunum í kvöld. Heine í Deigluimi „Djúpt á mjúkum mararbotni - Heinrich Heine í tali og tónum" er heiti á dagskrá sem flutt verður í Deiglunni í Listagilinu á Akureyri á laugardagskvöld klukkan 20.30. Arthúr Björgvin BoIIason hefur sett saman dagskrána og haft til fyrirmyndar hina rómuðu Heine dagskrá sem flutt var í Gerðarsafni í Kópavogi í nóvember 1997 í til- efni af 200 ára ártíð Heines. Dagskráin verður fjölbreytt og mun skiptast á söngur og lestur á ljóðum skáldsins og völdum köflum úr endurminningum þess. Arthúr Björgvin er í aðalhlutverki og fer með hlutverk skáldsins en með honum les Ólöf Ása Benediktsdóttir. Tónlistin verður flutt af þeim Sigrúnu Örnu Arngrímsdóttur, Sveini Arnari Sæmunds- syni, Þuriði Baldursdóttur og Elvý Guðríði Hreinsdóttur, sem munu syngja við undir- Ieik Richards Simm. Sungin verða lög við Ijóð Heines eftir Schumann, Schubert, Mendelsohn og fleiri. ■UM HELGINA) Páskar í Listagili Siggi Björns verður í Deiglunni á annan í páskum. Gallerí Svartfugl: Sýning á textílverkum Gerðar Guð- mundsdóttur verður opnuð á morgun klukkan 16.00 og stendur til 11. apríl. Aðgang- ur ókeypis. Deiglan: Miðvikudaginn 31. mars verður páskadjass í Deiglunni. Laugardaginn 3. apríl verð- ur opnuð myndlistarsýning Aðalsteins Svans Sigfússonar og Erlings Valgarðssonar. Stendur til 11. apríl. Aðgang- ur ókeypis. Annar í páskum: Siggi Björns trúbador ásamt Keith Hopcroft frá Englandi, sem spilar á gítar og Roy Pascal frá Trinidad og Tobago. Létt blanda af nýútkomnum diski og fleiru. Ketilhús: Málverkasýning Gunnars Kr. Jónassonar opn- uð laugardaginn 3. apríl klukkan 16.00. Stendur til 5. apríl. Aðgangur ókeypis. Samlagið Iisthús: Kynning í apríl: Textíllist Grétu Arn- grímsdóttur. Opið klukkan 14.00-18.00 daglega. Lokað skírdag, föstudaginn langa og páskadag. Aðgangur ókeypis. Café Karólína: Þórarinn Blöndal. Aðgangur ókeypis. Listasafnið á Akureyri: Draumurinn um hreint form. SeUóeinleikur Sigurður Halldórs- son selló- leikari heldur einleiks- tónleika í Akureyr- arkirkju á morgun kl. 17. Þar hyggst hann flytja verk sem spanna alla öldina, með- al annars Solitaire eftir Haf- liða Hallgrímsson frá 1970 (endurskrifað 1991), Ego is Emptiness eftir Svein Lúðvík Björnsson (1997) og Sónatan op. 8 eftir Zoltán Kodály (1915). Einnig spilar hann Klingende Buchstaben eftir Alfred Schnittke frá árinu 1988 en verkið var samið í tilefni af 40 ára afmæli Alex- anders Ivshkins, sóló-sellista Boshoi Ensemble í Moskvu. Schnittke notaði þá bókstafi úr nafni afmælisbarnsins, sem einnig tákna nótur, til að semja stef verksins...

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.