Dagur - 26.03.1999, Síða 2

Dagur - 26.03.1999, Síða 2
18-FÖSTUDAGUR 26. MARS 1999 Tfc^íur LÍFIÐ í LANDINU ÞAD ER KOMIN HELGI Hrað ætlar þú að gera? Árni Hjartarson: Fer norður í Svarfaðardal. Ég ætti að... „Það slær öllu saman hjá mér um helgina og ég þyrfti helst að vera á mörgum stöðum í einu. A laugardagskvöldið ætti ég að vera á árshátíð Orkustofnunar. Eg ætti að vera í fimmtugsafmæli herbergisfélaga míns og bekkjarbróður úr skóla. Ég ætti líka að vera á samkomu herstöðvaandstæðinga þar sem flutt verður dagskrá sem ég tók saman og ég ætti að vera í Kaffileikhúsinu þar sem félagar mínir úr Hugleik frumflytja merldlega söng- dagskrá. Þetta leysi ég með því að fara með fjölskylduna norður í Svarfaðardal, burt úr erli borgarinnar þar sem ég ætla að vera í góðu yfirlæti yfir páskana og standa af mér páskahretið," segir Árni Hjartarson jarðfræð- ingur. Ingunn Ásdísardóttir: Reyni að finna tíma fyrir göngutúr. Menningardagar „Á föstudagskvöldið þarf ég að vera á tveimur stöðum, á dagskrá herstöðvaandstæðinga í kaffihúsinu að Vatnsstíg 10 og £ fertugsaf- mæli. Ég þarf því aðeins að skipuleggja mig,“ segir Ingunn Ásdísardóttir, framkvæmdastjóri menningardaga Samtaka herstöðvaandstæð- inga. „Á laugardaginn geri ég ráð fyrir að hvíla mig fram undir ellefu. Þá þarf ég að fara yfir þýðingu sem ég er að ganga frá. Klukkan fjög- ur hefst svo áframhaldandi dagskrá menning- ardaga með pallborðsumræðum, kvikmynda- sýningu og ofbeldisannál. Á sunnudaginn er leiksmiðja fyrir börn og djasstónleikar um kvöldið. Kannski reyni ég að finna mér tíma til að fara í göngutúr ef veðrið er gott.“ „Pabbahelgi og frítt spii, “ segir Erna Kaaber. Á tveimur stöðum í einu „Á laugardagskvöldið þarf ég að vera á tveim- ur stöðum á sama tíma. Annars vegar í kveðjupartíi tveggja gamalla vinnufélaga minna á Stöð 2 og á sama tíma er ég Ifka boð- in í matarboð. Þetta er snúið dæmi en ég hlýt að finna út úr þessu. Það er pabbahelgi hjá mér um helgina þannig að ég hef nokkuð frítt spil að þessu sinni og ætli ég nýti mér það þá ekki með því að fara eitthvað út á lífið. Eitt- hvað þyrfti ég líka að fara í húsverkin og sömuleiðis þarf ég að undirbúa útgáfu næsta Stúdentablaðs, sem á að koma út þann 21. apríl,“ segir Erna Kaaber, ritstjóri Stúdenta- blaðsins. Um langt skeið hefur Friðrik Pálsson verið I framvarðarsveit íslenskra kaup- sýslumanna. Gamla myndin af Friðriki er tekin fyrir 28 árum þegar hann var nemi i viðskiptafræði við Háskóia íslands. Eftir að námi lauk hefur leið Friðriks sífellt verið upp á við, eða þar til nú að hallarbylting hefur verið gerð I Sölumið- stöð hraðfrystihúsanna og sögu Friðriks I framhaldinu þekkja allir... ■ LÍF OG LIST Sögu- bækur fyrri tíma dæmis við sögu Egyptalands, Rómverja hina fornu og frönsku stjórnarbyltinguna 1789. Með því að lesa svona bækur finnst mér ég líka skilja nútímann um margt betur og sum tímabil liðinna alda hefði verið gaman að lifa. Til dæmis tímabili Júlíusar Sesars í Rómaveldi og Charlestontím- ann í Bretlandi í byrjun aldar- innar, sakir þeirrar glæsilegu tísku sem þá var ríkjandi á fjöl- mörgum sviðum,“ segir Júlíanna Jónsdóttir, hót- elstjóri á Lykilhótelunum. „Núna er ég að Iesa Hefndina eftir Sidney Sheldon, sem er spennu- bók og afþreying. Annars ligg ég mest núna yfir námsbókum vegna náms til löggildingar í fast- eignasölu, það er nám sem þarf að leggja miklu vinnu £.“ Rólegt og rómantískt „Mest er ég fyrir rólega og rómantíska tónlist. Svo sem enga ákveðna tónlistarmenn, einfaldlega það góða af slíku sem býðst. Ég hef líka alltaf haft gaman af U2, vind kvæði mínu þannig algjörlega í kross með því að fara úr hinu rólega yfir í hið kraftmikla rokk, sem U2 er vel þekkt fyrir. Nú síðan er það Iíka diskóið - mér finnst alltaf gaman að því og þá hvað helst að Diönu Ross, þeirri fantagóðu söngkonu." Gullaldarenskan „Gamlar bíómyndir heilla mig ® og þess vegna horfi ég mikið á t ‘ÆmSWSm bresku sjónvarpsstöðina TNT, sem sýnir mikið bíómyndir sem framleiddar voru fram að miðri öldinni og Iítið eitt Iengur. Það eru myndir með góðum leikurum einsog Marilyn Monroe, John Wane og Audrey Hepburn. Bæði heilla þessar myndir mig sakir stórbrotinnar tísku á ýmsum sviðum, rétt einsog ég nefndi hvað mér þætti gera Charleston-tímabilið í Bretlandi heillandi, og síðan er það líka þessi gullaldarenska sem töluð er í myndunum sem gerir þær svo ágætar." -SBS. ■ fra degi til dags „Menn ferðast um víða veröld í leit að því, sem þeir finna, er þeir snúa heim aftur.“ George Moore Þau fæddust 26. mars • 1883 fæddist danski leikarinn Poul Reumert. • 1884 fæddist þýski pfanóleikarinn Wil- helm Backhaus. • 1904 fæddist bandaríski rithöfundur- inn Joseph Campbell. • 1911 fæddist bandarfska leikskáldið Tennessee Williams. • 1925 fæddist franska tónskáldið Pierre Boulez. • 1942 fæddist bandaríski rithöfundur- inn Erica Jong. • 1944 fæddist bandaríska söngkonan Diana Ross. • 1956 fæddist Kristján Kristjánsson tón- listarmaður. • 1957 fæddist Jónína Benediktsdóttir fþróttafræðingur. Þetta gerðist 26. mars • 1871 var Parísarkommúnan sett á lagg- irnar. • 1876 var stofnuð fyrsta hljómsveitin á Islandi, og nefndist hún Lúðurþeytara- félag Reykjavfkur. • 1971 lýsti Austur-Pakistan yfir sjálf- stæði og heitir upp frá því Bangladesh. • 1973 tók Anvar Sadat, forseti Egypta- lands, jafnframt að sér embætti forsæt- isráðherra. • 1979 undirrituðu Anvar Sadat og Menachem Begin Camp David-sam- komulagið. • 1991 var einræðisherranum á Mali varpað af stóli þegar herinn gerði blóð- uga byltingu. Vísan Vísa dagsins er eftir Vilhjálm frá Skáholti: Sértu göfga gædditr þeim að gleðja hrakta, smdða, þú muntför í himin heim hafa rósum stráða. Bandaríska beatskáldið Gregory Corso fæddist 26. mars árið 1930. Hann var í hópi með Allen Gins- berg, William S. Burroughs, Jack Kerouac og fleiri skáldum sem lögðu Ameríku að fótum sér á sjötta áratugnum og höfðu mikil áhrif á hippamenningu þess sjöunda. Corso lenti í fangelsi þegar hann var sext- án ára og byrjaði þar að yrkja. Dag- ur Sigurðarsson sagði um Corso eft- ir að hafa hitt hann á Krít að Corso væri svo orðljótur að hann hafi gengið fram af sér. Brandari Starfsmannastjóri fyrirtækis er að velja úr umsækjendum, og biður þá um að telja upp að tíu. Rafvirkinn byrjar, og telur: „0001, 0002, 0003, 0004 ..." Starfsmannastjórinn segir honum að fara og biður þann næsta að reyna. Sá er stærðfræðingur, og segir: „Skil- greina þarf röðina a(n) þar sem a(0)=0 og a(n+l)+l...“ „Þetta er nóg,“ segir starfsmannastjórinn. Næsti umsækjandi er tölvunarfræðing- ur: „1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, A, B, C...“ Starfsmannastjórinn segir honum að hætta og kallar á þann næsta, sem er há- skólanemi. Hann telur: „1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10...,, „Fínt!“ segir starfsmannastjórinn. „Þú ert ráðinn!" „Bíddu rólegur,“ segir þá háskólanem- inn, „ég kann lfka framhaldið: gosi, drottning kóngur!"

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.