Dagur - 26.03.1999, Side 11

Dagur - 26.03.1999, Side 11
FÖSTVDAGUR 26. MARS 1999 - 27 LÍFIÐ í LANDINU FÓLKSINS Karlakór eða þj ófar? Elsku lands- menn. Oft hefur manni nú verið mál að tjá sig um fréttaflutn- ing íslenskra fjölmiðla, en sjaldan meira en þegar eitthvað stendur manni nálægt, og manni er ekki sama um. Þannig er að búnaðarþingsins var um daginn, nánar tiltekið þann 28. febrúar og við setn- ingu þingsins sem var á Hótel Sögu, söng einn af betri karla- kórum á landinu, Karlakór Ból- staðarhlíðarhrepps, sem við eig- um hérna fyrir norðan. Hef ég haft af þvf spurnir að hann hafi sungið þar með mestu ágætum, sem reyndar endranær. Líka var tískusýning á umræddri setn- ingu búnaðarþings á vegum Eggerts feldskera, og segja þeir sem sáu að hafi verið glæsileg sýning. Auðvitað voru spjarirnar úr íslenskum skinnum og karla- kórinn flutti mjög íslensk lög. Það sem mér finnst fúli part- urinn af þessu öllu saman, er að ég lá yfir fréttatímum Stöðvar 2 og Ríkissjónvarpsins um kvöldið, ásamt líldega öllum þeim sem búa hér fyrir norðan og ætluðu sér að sjá hvað gerðist \dð setn- ingu 100. búnaðarþingsins! Ræður, söngur, tískusýning heyrðust hvorki né sáust í öllum þessum „fréttum" fjölmiðlanna, aðeins var talað við Ara Teitsson, sýndur heyskapur frá síðasta sumri, og merkilegt fólk sást stinga upp í sig snittum eða ein- hverju þvíumlíku. Þeir sem virkilega Iögðu sig fram gátu heyrt óm af kórsöng hérumbil 2 sekúndur og séð eitt grænt vesti skjótast út um dyr meðan ein- hver fréttahaukur otaði hljóð- nema að Ara Teitssyni! Neikvætt eða jákvætt Kæru fréttamenn, hvað eru fréttir? Er það bara eitthvað sem er neikvætt, einhverjir sem stela, drepa, nauðga eða fremja vopn- að rán? Af hverju færi þessi hlið mannlífsins svona mikla eftir- tekt og athygli hjá ykkur? Hafið þið nokkra hugmynd um hvað mikið af fólki í landinu er að gera góða hluti? Eða reynið þið kannski ekkert að finna þessa góðu hluti? Og bara svona til þess að minna ykkur á það einu sinni enn: Það er líka ýmislegt að gerast fyrir utan Stór-Reykja- víkursvæðið! I alvöru. I þessum sömu „fréttum“ þetta kvöld sem setning 100. búnaðarþings fór fram, var fullt af ömurlegum „fréttum", þessi keyrði á þennan, þessi stal þessu og hótaði hinu og þessu, úti í heimi var fullt af fólki drepið, jarðskjálftar og guð veit hvað, og jafnvel var einhver slatti af fólki að segja upp störfum einhvers- staðar. Er einhver furða þó setn- ing 100. búnaðarþings á Islandi hafi farið framhjá fréttahauk- um? Er einhver furða þó karla- kór og tískusýning kæmust ekki á blað, hvað þá mynd? Ekki einu sinni Bændablaðið hafði fyrir því að gera þessu skil, alla vega ekki ennþá. En fréttaflutningur hér á landi er ömurlegur, sér- staklega þegar kemur að land- búnaðarmálum. Hefði téður kór verið svo snjall að brjótast inn einhvers staðar á Ieið suður eða norður, hefðu vísast allar stöðv- ar alls staðar mætt á svæðið inn- an nokkurra sekúndna, þeir hefðu fengið fyrirsagnir í öllum blöðum og vitiði af hverju? Af því þeir hefðu þá gert eitthvað neikvætt, ekki jákvætt, og frétt- irnar íslensku snúast um það sem er neikvætt. Hvort er þá skynsamlegra, að brjótast inn og stela einhverju, ef maður vill fá athygli, eða að vera heiðarlegur og gera hlutina vel? Vitiði, ég get ekki svarað þessu, svo ég beini bara þessari spurningu til fjölmiðlanna okk- ar. En Karlakór Bólstaðarhlíðar- hrepps var frábær eins og venju- lega, og tískusýningin líka! BREF UR BLÖIMDU- BAL setning 100. Skógaskóll fmuntíu ára ____ ___ Bréftil BREF FRA J „ SELFOSSI gamalla nemenda. Helga R. Einarsdóttin skrifar Á þessu ári eru liðin fimmtíu ár frá stofnun Hér- aðsskólans í Skógum. Við erum orðin nokkuð mörg sem þangað höfum sótt menntun og félags- legan þroska. Ég er ekki viss um að við höfum öll á skólaárunum gert okkur grein fyrir því hvað þessi skólavist gerði okkur gott, við vorum bara í skóla og þótti flestum gaman, enda á þeim aldri sem allt er svo óskaplega skemmtilegt. Auðvitað munum við kennar- ana okkar sem \ið bjuggum í nánu sambýli við stóran hluta ársins. Þá var ekki farið heim um helgar og gat jafnvel gengið á ýmsu að komast í jólafríið. Já, við munum kennarana en kannski ekki nákvæmlega allt sem þeir reyndu að kenna okkur en öll munum við skólann og umhverfið. Við munum fótbolta á túninu, gönguferðir í útitíma inn í Kvernugil eða út að fossi. Sól- baðslautirnar uppi á heiði og flangs bakvið hurðir og hóla. Flangs var reyndar stranglega bannað og er þetta líklega í frysta sinn sem ég voga mér að nefna það upphátt - hvað þá á prenti. Á seinni árum hefur orðið breyting á skólastarfinu, bygg- ingum hefur fjölgað og flangs er líklega ekki lengur ein af höfuð- syndunum. En skólinn okkar gamli er eins og áður, matsaiur- inn niðri og stelpugangurinn nokkrum þrepum ofar stráka- ganginum. Hátið Afmælishátíð verður haldin í skólanum í nóvember og þó ég eigi ekkert með að bjóða til þeirrar veislu, skal ég segja ykk- ur að þar var gaman í afmælis- veislu fyrir tíu árum. Eigum við að gefa skólanum afmælisgjöf? Eitt þúsund krónur frá hverjum einasta nemanda sem þar hefur gengið um ganga gæti orðið nokkuð myndarleg upphæð. Eg hef eftir áreiðanleg- um heimildarmanni að þeim aurum yrði varið til nútíma tæknivæðingar skólans. Opnaður hefur verið söfnun- arreikningur í Landsbankanum á Selfossi, Afmælissjóður Skóga- skóla, kt. 190344-3399, banka- númer 0152, reikningsnúmer 264471. Látið nafn og skólaár fylgja. Þið sem þetta lesið, verið svo væn að hjálpa mér að flytja þessi tilmæli til skólafélaganna. Skrif- ið númerin á miða til að hafa með næst þegar farið verður í bankann. Það verður spennandi að sjá hvaða árgangur nær best- um árangri. Minnumst skólaár- anna myndarlega, einnig þeirra kennara og félaga sem hafa kvatt þennan heim, ég veit þeir fylgjast með okkur eins og alltaf áður. VEÐUR Veðrið í dag... Austlæg eða breytileg átt, en norðaukaldl vestast. Gera má ráð fyrir slyddu eða snjókomu víðast vestan- og suðvestantil, en norðaustan- og austanlands verður bjart veður að mestu. Vægt frost norðan- og norðaustantil, en hiti annars um eða rétt yfir frostmarki. Blönduós rci mm - ■> a 11 5-1----------1-----------1------—i------------1-------—i---------—rc Fim Fös Lau Sun Mán Þri Md Villa í vindgögnum Akureyri Egilsstaðir sr./w— UU1U Bolungarvík 5_t-———-r—----—... — ——fo Rm F6* Lau Mán Þrt Mið / 1 \ / /T Reykjavík Kirkjubæjarklaustur CC) mn : _rc) mm ■ I 1 ■ 1 -10 5- -5 j 0- -0 I -5- —— i^ 8! 1 — i—— 5~l-“t--—™-r™---r™—™-r™—“-r™—; -5-f“—™r™—“t™—™t™—™r™—*BLi----------“ro Flm Fös Lau Mán Þri Mlö Fim Fös Lau Mán Þri Miö / I — j ^ •....! í Stykkishólmur Stórhöfði 1f| Vís!!m0FA Veðurspárit 25.03.1999 Línurit: Lofthiti, spágildi fyrir miðnætti og hádegi. Súlurit: Úrkoma, uppsöfnuð i 12 klst. Vindörvar: Vindur blæs inn að punkti. Vindhraði er táknaður með skástrikum; heilt strik táknar 5 m/s en hálft 2.5 m/s. Þríhyrningur táknar 25 m/s. Dæmi: • táknar norðvestanátt, 7.5 m/s. Færð á vegum I gærkvöld var allgóð vetrarfærð, þó var víða hálka og hálkublettir, en þó síst á Suðvestur, Suðm- og Suóausturlandi. Þungfært var á Breiðdalsheiði. Vestfirðiiigar! Við viljum koma á framfæri einlægu þakklæti til allra þeirra fjölmörgu sem unnu mikið og óeigin- gjarnt sjálboðaliðastarf við „Þjóðahátíð Vestfirð- inga“ sem haldin var á Flateyri 21. mars síðastlið- inn. Þó sendum við sérstakar þakkir til heima- manna á Flateyri sem fannst ekki tiltökumál að taka á móti um það bil fimmtán hundruð manns í heimsókn. Fyrir hönd áhugahóps um menningarfjölbreytni á Vestfjörðum. Mctgnús Ólafs Hansson.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.