Dagur - 27.03.1999, Blaðsíða 4

Dagur - 27.03.1999, Blaðsíða 4
n o |> * W ». V M >■» r v* « * ^ u 3 4 - LAUGARDAGVR 2 7. MARS 199 9 Fleiri konur í verk og raun Hvernig má fá fleiri konur í verkfræði og raunvísindi er viðfangsefni opins fundar á vegum Jafnréttisnefndar háskólans, sem haldinn verður á mánudaginn kemur í hátíðarsai skólans kl. 12.30-13.30. Fáar konur stunda nám í verkfræði- og raunvísindadeild og þær eru t.d. ekki nema 1 5 prósent verkfræðinema. Víða í nágrannalönd- unum er farið að grípa til aðgerða til að auka hlut kvenna í þessum greinum. Dr. Elvira Scheich, vísindafélagsfræðingur og eðlisfræð- ingur við Tækniháskólann í Berlín, heldur erindi á fundinum og mun þar kynna áætlun sem samin hefur verið til að fá fleiri konur í verk- fræði- og raungreinar við skólann. Erindið verður flutt á ensku og eru allir velkomnir. Er vatn á Mars? Hjálparstarf kirkjunnar Ieitar nú til landsmanna um stuðning við vatnsöflun í þriðja heiminum. Að mati Sameinuðu þjóðanna búa 40% jarðarbúa við vatnsskort og helmingur við alls ófullnægjandi hreinlætisaðstöðu. 900 milljónir manna eru þrúgaðar af niðurgangi, kóleru og taugaveiki, sem verða þúsundum að bana á degi hverjum, að Jw' er fram kemur í fréttatilkynningu frá Hjálparstarfinu. A gíróseðlum sem er verið að senda inn á hvert heimili er m.a. vak- in athygli á því að tugum milljarða er varið til að leita að vatni á Mars og að hefði sömu fjárhæð verið varið til vatnsöflunar í þriðja heimin- um hefðu milljónir manna fengið aðgang að hreinu vatni í sínu eig- in þorpi. Fénu sem safnast í páskasöfnuninni verður varið til þess að grafa brunna í Mósabík. Fjölbrautaskóli Suðurlands semur við Sjávarútvegsskólanu Nýlega voru undirritaðir samningar um samstarf Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Stýrimannaskólans í Reykjavík og Hafrannsóknastofn- unar vegna Sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóðanna. Samningurinn við Stýrimannaskólann er um samstarf um kennslu og þróun námsefnis í veiðarfærafræðum. Tveir nemendur Sjávarút- vegsskólans munu setjast á skólabekk í Fjölbrautaskólanum í haust og nema veiðarfæragerð, samkvæmt samningum við Hafrannsókna- stofnun. Fjölbrautaskóli Suðurnesja er eini skólinn á landinu sem býður upp á sveinspróf í veiðarfæragerð. I gær var jafnframt formlega opn- uð aðstaða skólans fyrir sérgreinar netagerðarbrautar. Sigurvegarar í bókmeimtagetraun verðlaunaðir Verðlaun í bók- mennagetraun Mjólkursamsöl- unnar voru afhent um síðustu helgi en þau fengu Aldís Hilmarsdóttir, Grétar Andri Rík- harðsson, Bjarni Páll Hauksson og Flafdís Hilmars- dóttir. Mjólkursamsal- an stóð fyrir bók- menntagetraun- inni í tilefni af endurnýjuðum samstarfssamningi fyrirtækisins og Islenskrar málnefndar og nýju útliti á mjólkurfernum og breyttum áherslum í íslenskuátaki þessara aðila. Nám á nýrri öld Nám á nýrri öld er yfirskrift ráðstefnu sem Prenttæknistofnun held- ur í dag um framtíðarskipulag náms á framhaldsskólastigi í upplýs- inga- og fjölmiðlagreinum, en þar verður kynnt nýtt skipulag náms í þessum greinum. Þörf er fyrir róttækar breytingar á námi í upplýsinga- og fjölmiðla- greinum vegna þeirra miklu breytinga sem hafa umbylt þessum iðn- aði undanfarin ár, segir í tilkynningu frá Prenttæknistofnun. Ráð- stefnan er haldin á Hótel Loftleiðum og hefst klukkan 13:00. Hún er ætluð öllum þeim sem vinna við upplýsingaiðnaðinn og láta sig menntamál varða, öllum opin og aðgangur ókeypis. Samfylkingin opnar kosningamiðstöð Samfylkingin í Reykjavík opnar kosninga- miðstöð að Ármúla 23 í dag ld. 15:00. Þar verður framboðslisti hreyfingarinnar kynntur og boðið upp á skemmtidagskrá fyrir alla aldurshópa. Einnig flytur Jó- hanna Sigurðardóttir ávarp og meðal þeir- ra sem fram koma eru dúettinn Súkatt og Geirfuglamir. I kosningamiðstöðinni verður opið hús fyrir alla horgarbúa alla kosningabarátt- Jóhanna Sigurðardóttir. una. FRÉTTIR Átök iim ÚA bréfin Kaldbakur og Burðar- ás kepptu um bréf í ÚA, en orðrómur iim huganleg kaup Kald- baks á bréfum Akur- eyrarbæjar talinn hafa ýtt við Burðarási. Kaldbakur, eignarhaldsfélag Samherja og Kaupfélags Eyfirð- inga, hefur ekki átt í viðræðum við Akureyrarbæ vegna kaupa á hlut Akureyrarbæjar í Utgerðar- félagi Akureyringa, þrátt fyrir sterkan orðróm þar um. Hlutur Akureyrarbæjar er 20% en nafn- virði hlutabréfa er 918 milljónir króna. Gengi hlutabréfa ÚA í gær á Verðbréfaþinginu var 6,50 þannig að verðmæti hlutabréfa Akureyrarbæjar er nær 1,2 millj- arðar króna. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir engar viðræður hafa átt sér stað við Ak- ureyrarbæ um kaup í ÚA. Einu hlutabréfakaup Kaldbaks hafi til þessa hafi verið 5% hlutur í Is- lenskum aðalverktökum. Sigurð- ur J. Sigurðsson, forseti bæjar- stjórnar Akureyrar, staðfesti orð Þorsteins Más en kannast váð þann orðróm að Akureyrarbær hyggist selja eignarhaldsfélaginu Kaldbak hlut bæjarins í ÚA. Sig- urður segir að nokkrir aðilar hafi falst eftir hlut Akureyrarbæjar f ÚA. Núverandi meirihluti bæjar- stjórnar hafi lýst því yfir í upp- hafi kjörtímabilsins að nauðsyn- legt kynni að vera að selja eignir til þess m.a. að fjármagna fram- kvæmdir við grunnskóla bæjar- ins, en engin ákvörðun verið tek- in þess efnis. Sigurður segir að það komi sér ekkert á óvart að Burðarás hafi í vikunni keypt 11% hlut Fjárfestingarbanka at- vinnulífsins og fleiri í ÚA fyrir um 656 milljónir króna. Kald- bakur sýndi 6% hlut Fjárfesting- arbankans áhuga en varð undir í samkeppninni við Burðarás. Orðrómur um að Kaldbakur væri að kaupa hlut Akureyrarbæjar í ÚA hefði aðeins hert Burðarás í þeim staðfasta ásetningi að tryggja sinn hlut og meirihluta- eign í ÚA, en ásamt SH er eign- arhluturinn nú er 42%. Engar breytingar Vegna sviptinga í stjórn Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna hefur að nýju verið fullyrt að meðal þeirra breytinga sem ný stjórn hafi á prjónunum sé að leggja niður skrifstofu SH á Akureyri. Skrifstofunni var komið á fót eft- ir átök sem urðu um meirihluta- yfirráð yfir ÚA milli ÍS og SH. Þáverandi stjórnarformaður SH lofaði 80 nýjum störfum til Akur- eyrar sem lið í áframhaldandi yf- irráðum SH yfir sölumálum ÚA, en benda má á með rökum að við það hefur ekki verið staðið. „Þessi orðrómur fær byr undir báða vængi þegar einhverjar hræringar eiga sér stað innan SH, en það hafa alls engar ákvarðanir verið teknar um breytingar á starfseminni innan- lands, hvorki í Reykjavík né á Ak- ureyri. Það að við séum að leggja niður skrifstofu SH á Akureyri eru algjörlega staðlausir stafir. Það kann að hafa dregið úr starf- seminni á Akureyri vegna þess að starfsemin í heild hefur verið að taka breytingum,“ segir Róbert Guðfinnsson, stjórnarformaður Sölumiðstöðvar hraðfrystihús- anna. - GG Um 30% vilja EUert í skoðanakönnim Hag- vangs sögðust 30,2% þeirra sem tóku af- stöðu tilbúnir til að styðja lista, sem EH- ert B. Schram leiddi. Eins og Dagur skýrði fyTstur fjöl- miðla frá hafa þeir Ellert B. Schram, fyrrverandi alþingismað- ur, Guðmundur G. Þórarinsson, fyrrverandi alþingismaður og Jón Magnússon lögmaður átt í við- ræðum við Sverri Hermannsson og Frjálslynda flokkinn um sam- starf í framboðsmálum. í tilkynn- ingu frá Frjálslynda flokknum segir að þær viðræður hafi ekki borðið árangur. Síðdegis í gær hélt svo Ellert B. Schram frétta- mannafund, þar sem hann stað- festi þetta. Samt sem áður er Ijóst af því sem hann sagði á fundinum og af samtölum við Sverri Her- mannson í gær að engum dyrum hefur verið lokað í þessu máli. Aðal ástæðan fyrir þvf að upp úr slitnaði hjá Ellert og félögum og Sverri og félögum var að Frjálslyndi flokkurinn vildi að þeir gengju í flokkinn. Hagstæö skoðaiiakuiinun Ellert sagði að ástæðan fyrir því að hann ljáði máls á að ræða framboðsmöguleika í samvinnu við Frjálslynda flokinn væri sú að í skoðanakönnun Hagvangs, sem gerð var fyrir nokkru, var ein spurningin sú hvort fólk gæti hugsað sér að kjósa nýjan lista í vor undir forystu Ellerts B. Schram með það að markmiði að berjast gegn ókeypis afhendingu fiskveiðikvótans. Niðurstaðan varð sú að af þeim sem tóku afstöðu sögðu 30,2% já en 69,8% nei. Og það sem er merkilegast að 48,6% af fólki sem vinn- ur við sjávarút- veg sagðist styðja slíkan lista. Ekki að íiillu ráðið „Þetta er ekki að fullu ráðið. Eins og staðan var í gær þótti okkur í mið- stjórninni rétt að taka þá af- stöðu að menn hefðu ekki haft erindi sem erfiði. Það er skítt ef rnenn ná ekki saman, sem eru að róa sama bátnum. En eins og sakir standa fór þetta í strand og í því Ijósi erum við nú að vinna,“ sagði Sverrir Hermannsson. Ef svo fer að ekki næst sam- komulag \áð Ellert B. Schram og félaga um framboðsmál í Reykja- vik gaf Sverrir í skyn að hann myndi sjálfur taka efsta sætið í Reykjavík. Talið er að Guðjón A. Kristjánsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, muni ekki afhuga því að taka efsta sætið á Vestfjörðum. - S.ÐÓR %

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.