Dagur - 27.03.1999, Side 5
LAUGARDAGUR 27. MARS 1999 - S
FRETTIR
Framtíd tónlistar-
skólans í hættu
Stórfelldiir atgervis-
flótti blasir við í kenn-
araliði Tónlistarskól-
ans á Akureyri að sögn
kennara vegna óá-
nægju með kjaramál.
Bæjarstjóri segir
grunnskólasamning-
inn ekki hafa neitt
fordæmisgildi.
Einn hæst skrifaði kennari Tón-
listarskólans á Akureyri, Michael
Jón Clarke, íhugar að flytjast burt
frá Akureyri vegna óánægju með
kjaramál og sömu sögu er að
segja um ýmsa aðra kennara skól-
ans. Eins og fram kom í Degi í
gær eru kennarar Tónlistarskól-
ans á Akureyri langþreyttir vegna
lítilla viðbragða Akureyrarbæjar
við kröfu þeirra um að þeir fái
sömu kjarabætur og grunnskóla-
kennarar fengu í fyrra. Hvorki
gengur né rekur og segir Michael
að mikið los sé innan skólans.
Kennarar fái fjölda símhringinga
þar sem mun betur launuð störf
séu í boði. Skólastjórinn hefur
sagt upp vegna óánægju og flyst
hann úr bænum innan skamms.
„Akureyrarbær felur sig alltaf á
bak við það að kjarasamningar
séu ekki lausir.
Þeir vonast til
þess að samstað-
an bresti hjá okk-
ur og reyna að
stinga þessu til
hliðar. Okkur
finnst þeir hafa
sýnt okkur al-
gjört virðingar-
leysi. Tilfinning-
in er að við,
kennarar Tón-
listarskólans,
séum óþarfir og
engum til
gagns,“ segir
Michael Jón
Clarke.
Kjarasamningar voru heldur
ekki lausir þegar grunnskóla-
kennarar fengu sínar úrbætur í
fyrra og Michael bendir á sem
dæmi um þversögnina, að margir
grunnskólakennarar kenni tón-
mennt eða nákvæmlega sömu
störf og kennarar tónlistarskól-
ans. Kjörin séu hins vegar ólík,
kennurum tónlistarskólans í
óhag.
Margir að gefast upp
gefist upp og fari
héðan. Það verður erfitt að halda
úti fjölbreyttri starfsemi tónlistar-
skólans ef við missum marga
kennara og það er ekki gaman að
horfa upp á þessa upplausn. Ég
er búinn að starfa hér um langa
hríð og hef sterkar taugar til
þessa skóla. Eg neyðist samt til
að hugsa minn gang og það er
ekki Ioku fyrir það skotið að ég
muni flytjast á brott,“ segir Mich-
ael Clarke.
Ekkert fordæmi
Kristján Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri á Akureyri segist ekki geta
svarað fyrir kjaranefnd, en hann
segir ekkert einsdæmi að ekki
hafi um samist á milli tónlistar-
kennara og sveitarfélaga á Akur-
eyri. Sama staða sé t.d. uppi á
Akranesi og það sé Ijóst að kjara-
samningar séu ekki lausir. Krist-
ján Þór mótmælir því að bæjar-
fulltrúar sýni ekki störfum tón-
listarkennara sömu virðingu og
öðrum starfshópum. Þessi mál
snúist ekki um það.
En af hveiju er ekki samið við
tónlistarkennara á sömu nótum
og samið var við grunnskólakenn-
arana? „Þegar samið var við
grunnskólakennarana var undir-
strikað að sá samningur hefði
ekkert fordæmisgildi. Bærinn
hefur hafnað óskum annarra
starfshópa sem sótt hafa fordæmi
í grunnskólasamninginn. Þar af
leiðandi er ekki hægt að semja við
tónlistarskólakennara með vísan
til þess fordæmis sem þeir ræða
um,“ segir Kristján Þór. — bþ
Ólafur Ólafsson, nýr stjórnarfor-
maður ÍS.
Nýr stjómarfor-
maður hjá Is
Olafur Olafsson, forstjóri Sam-
skipa, var kjörinn í stjórn Is-
lenskra sjávarafurða á aðalfundi
fyrirtækisins í gær og síðan
stjórnarformaður á stjórnarfundi
félagsins strax að honum lokn-
um. Hann tekur við stjórnar-
taumunum af Hermanni Hans-
syni á Hornafirði sem ekki gaf
kost á sér til endurkjörs ásamt
Friðriki Má Guðmundssyni,
framkvæmdastjóra Tanga á
Vopnafirði. í hans stað kemur í
stjórn Knútur Hauksson, forstjóri
Olíudreifingar. Afram sitja í
stjórn Gunnar Birgisson, Magn-
ús Gauti Gautason, Guðmundur
S. Guðmundsson, Gfsli Jón-
atansson og Þórólfur Gíslason.
Það vakti athygli að hartnær
engar umræður urðu um afkomu
félagsins þrátt fyrir að það væri
rekið með bullandi tapi, 668
milljónum króna, á árinu 1998,
mest vegna nýrrar verksmiðju IS í
Virginia í Bandaríkjunum. - GG
Michael Jón Clarke, söng- og
fiðlukennari: Höfum þá tilfinningu
að bærinn telji okkur einskis virði.
,Það virðist engin löngun vera
fyrir hendi hjá
bænum til að
semja við okkur
nema þá ef
pressan yrði eitt-
hvað viðlíka og
hjá grunnskóla-
kennurunum í
fyrra. Astandið er
farið að spyijast
út og með sífelld-
um símhringing-
um, þar sem
kennarar fá ýmis
gylliboð miðað
við það sem þeir
hafa nú, er mikil
hætta á að menn
Slitgigtangenið
senmlega nmdið
Vísindamönnimi og
samstarfslæknum ís-
lenskrar erfðagrein-
ingar hefur tekist að
staðsetja á litningi
gen sem talið er valda
slitgigt.
„Þetta er mjög stórt skref í þá átt
að finna hvað veldur slitgigt,"
sagði Kári Stefánsson, forstjóri
Islenskrar erfðagreiningar, í gær
þegar kynntur var tímamótaá-
fangi í rannsóknum á slitgigt.
Vísindamönnum fyrirtækisins
hefur í samstarfi við gigtarlækn-
ana Þorvald Ingvarsson og Helga
Jónsson tekist að staðsetja á litn-
ingi genið sem talið er valda
sjúkdómnum.
Slitgigt er einn af algengustu
sjúkdómum í liðum og getur leitt
til alvarlegrar fötlunar. Þúsundir
manna hér á landi þjást af slit-
Fyrirtæki Kára Stefánssonar hefur
náð eftirtektarverðum árangri.
gigt og árlega gangast um 400
einstaklingar undir gerviliðaað-
gerðir vegna hennar.
Næst verður tekið til við að
einangra genið og greina virkni
þess og á grundvelli þeirrar
þekkingar ætlar svissneska lyfja-
fyrirtækið Hoffmann-La Roche,
samstarfsfyrirtæki íslenskrar
erfðagreiningar, að þróa tæki til
að greina slitgigt og reyna að
finna lyf og meðferð við henni.
Kári sagði þennan áfanga ekki
bara merkilegan vegna slitgigtar-
innar „heldur er þetta líka í okk-
ar huga dæmi um þá möguleika
sem hér eru til að búa til þann
skilning á flóknum erfðasjúk-
dómum sem ekki hefur tekist
annars staðar. Og ekki gleyma
því að allir algengustu sjúkdóm-
ar í okkar samfélagi eru flóknir
erfðasjúkdómar þannig að í
þessu felast miklir möguleikar“.
I ljósi þessa árangurs ætlar
Hofmann-La Roche að reiða
fram áfangagreiðslu til íslenskr-
ar erfðagreiningar. Kári sagðist
ekki mega gefa upp hve mikið
það væri en fram kom að upp-
hæðin gerði gott betur en að
standa undir kostnaði við slit-
gigtarrannsóknina. — VJ
Sex ár fyrir líkamsárás
Hæstiréttur hefur dæmt síbrota-
manninn Einar Sigurjónsson í 6
ára fangelsi fyrir þátttöku hans í
líkamsárás á öryrkja og fleiri af-
brot, en það er staðfesting á nið-
urstöðu undirréttar. Tveir aðrir
menn voru dæmdir fyrir líkams-
árásina, en þeir áfrýjuðu ekki til
Hæstaréttar.
Einar var sakfelldur fyrir hús-
brot, líkamsárás og fyrir að hafa
ruðst heimildarlaust inn í íbúð
manns ásamt tveimur öðrum
mönnum, veitt honum margs-
konar áverka og skilið hann eftir
bjargarlausan í íbúðinni. Akæru-
valdið vildi að refsing Einars yrði
þyngd, en undir það tók Hæsti-
réttur ekki. Sakborningarnir í
málinu veittust í sameiningu
með ofbeldi að manninum og
snéru hann í gólfið, spörkuðu í
andlit hans og Einar batt hann
með reipi á höndum og fótum og
vafði lykkju um háls hans og
stakk hann margsinnis með hnífi
í háls og hnakka. Hlaut maður-
inn m.a. fimm skurðsár á hnakka
og sár á báðum hnjám, marðist
og bólgnaði um vinstri þumal-
fingur og liðband þar slitnaði.
Einar hótaði jafnframt að drepa
hann, meðan á líkamsárásinni
stóð, ef hann kallaði á hjálp.
Sakborningarnir létu og greipar
sópa í íbúð öryrkjans og stálu
fjölmörgum munum. - FÞG
Besta rekstrarár VÍS frá upphafi
Vátryggingafélag íslands var
rekið með 311 milljóna króna
hagnaði á síðasta ári, en fyrir
skatta nam hagnaðurinn 433
milljónum króna. A síðasta ári
nam hagnaðurinn 305 milljón-
um króna. Þetta er besti árang-
ur félagsins frá stofnun þess.
Iðgjöld hafa lækkað á árinu
enda ríkir hörð samkeppni á
markaðinum.
Aðalfundur VÍS var haldinn á Akureyri , Eítí^tórtjón varð á árinu en í
! heild lækkuðu tjon arsms htil-
------------1------- lega miðað við fyrra ár. — GG
26 milljóna styrkrr Háskólasjóðs
Háskólasjóður úthlutaði 26,5 milljóna króna styrkjum á síðasta ári,
en tekjur sjóðsins eru einkum sóknargjöld fólks utan trúflokka, próf-
gjöld og gjafir. Styrkjunum er ætlað að efla menningarstarfsemi inn-
an Háskólans, en einnig er heimilt að leita til sjóðsins vegna óvæntra
fjárþarfa skólans.
Hæstu einstöku styrkirnir 1998 runnu til Hollvinasamtaka skólans
(4 milljónir), Styrktarsjóðs HÍ (3,5 milljónir) og Kennslumálasjóðs
(3,1 milljón). Þá má nefna að styrkt voru verkefni á borð við stærð-
fræðikeppni framhaldsskólanna, Olympíuleikana í eðlisfræði, Há-
skólakórinn, þing kennara í kynjafræðum, málþing um heimspeki
Brynjólfs Bjarnasonar og Félag guðfræðinema fékk 90 þúsund króna
ferðastyrk. — FÞG
Tvö prestsembætti laus
Biskup Islands hefur auglýst embætti sókn-
arprests í Akureyrarprestakalli laust til um-
sjónar. Sr. Birgir Snæbjörnsson, sem skip-
aður var sóknarprestur í kallinu árið 1960,
lætur af störfum þann 1. september, en um
síðustu áramót lét Birgir af embætti pró-
fasts í Eyjafjarðarprófastdæmi sem hann
hafði gegnt síðan 1986. Umsóknarfrestur
um þetta embætti er til 1. maí næstkom-
andi.
Þá er jafnframt auglýst laust til umsókn-
ar embætti héraðsprests í Reykjavíkurpró-
fastdæmi eystra. Þriggja ára skipunartími
sr. Sigurjóns Arna Eyjólfssonar rennur út
þann 1. apríl næstkomandi. — SBS.