Dagur - 27.03.1999, Síða 6
6 - LAVGARDAGUR 2 7. MARS 1999
ÞJÓÐMÁL
Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson
Ritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Aðstoðarritstjóri: BIRGIR GUÐMUNDSSON
Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson
Skrifstofur: STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
Símar: 460 6ioo OG 800 7080
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk.: 1.800 KR. Á MÁNUÐi
Lausasöluverð: 150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
Grænt númer: 800 7080
Simbréf auglýsingadeildar: 460 6161
Símar auglýsingadeildar: (reykjavík)563-1615 Ámundi Ámundason
(AKUREYRI)460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
Netfang auglýsingadeildar: omar@dagur.is
Símbréf ritstjórnar: 460 6171(akureyrí) 551 6270 (reykjavíK)
Vísindasigur
í fyrsta lagi
I gær tilkynnti Islensk erfðagreining og læknarnir Þorvaldur
Ingvarsson og Helgi Jónsson um áfangasigur í viðvarandi bar-
áttu mannkyns gegn sjúkdómum. Tekist hefur að staðsetja gen
á litningi sem veldur slitgigt og mun þetta stórauka líkurnar á
því að hægt sé að finna lyf við slitgigt og jafnvel lækna sjúk-
dóminn. Þau markmið munu þó enn ekki innan seilingar þó
þessi nýja uppgvötun veki miklar vonir. Þó öll skref séu mikil-
væg í erfiðri göngu geta sum verið mikilvægari en önnur. Þetta
mun vera eitt slíkt. Það er því full ástæða til hamingjuóska og
fagnaðar.
í öðru lagi
Vegna þess að vísindapólitíkin í landinu hefur hitnað mikið síð-
ustu misserin, einkum fyrir tilstuðlan Islenskrar erfðagreining-
ar, er rétt að halda nokkrum grundvallaratriðum til skila. Þeir
sigrar sem hér er verið að tala um hafa unnist án hins umdeilda
gagnagrunns. Hann er enn ekki kominn í gangið. Það minnir á
tvennt. Annars vegar að Islensk erfðagreining og samstarfs-
menn hennar standa í stórmerkilegum rannsóknarstarfi óháð
gagnagrunninum umdeilda. Hins vegar að hinn miðlægi
gangagrunnur er síður en svo forsenda fyrir vel heppnuðu
rannsóknarstarfi.
í þriðja lagi
Sigur gærdagsins, sem ber í skauti sér vonir morgundagsins,
mun kasta verðskulduðum frægðarljóma á íslenska erfðagrein-
ingu og á þá lækna sem þarna voru að vinna. Það er hið besta
mál. Hins vegar er varasamt að yfirfæra þann frægðarljóma
sjálfkrafa á umræðuna um miðlægan gagnagrunn á heilbrigð-
issviði. Það er einfaldlega annað mál. Hins vegar væri eðlilegra
að þessi frægðarljómi yfirfærðist að einhverju leyti a.m.k. á
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, þar sem annar læknanna er
lækningaforstjóri. Það minnir á, að þar eru menn að vinna
störf á heimsmælikvarða og hlutirnir gerast víðar en á stóru
sjúkrahúsunum í Reykjavík eða í útlöndum.
Birgir Guðmundsson
Rassglímutök
Þegar Garri var lítill þá safnaði
hann frímerkjum eins og Iög
gerðu ráð fyrir með unga drengi
fyrir tíma sjónvarps og tölvu-
leikja. Uppáhaldsfrímerki
Garra var „glímufrímerkið". A
því var mynd af fræknum
glímumönnum og var annar að
Ieggja hinn á afskaplega krteis-
Iega útfærðu bragði, að öllum
líkindum sniðglímu á lofti.
Neðst á frímerkinu var prentuð
þessi yfirlýs-
ing: „Góð
íþrótt - GuIIi
betri.“ I mörg
ár stóð Garri í
þeirri mein-
ingu að þarna
væri í raun
verið að upp-
lýsa frímerkja-
safnara um
úrslit
glímunnar,
það er að ann-
ar glímumað-
urinn héti Guðlaugur, kallaður
Gulli, og hann væri að Ieggja
andstæðing sinn á myndinni.
Þjóðleg hreinstefna
A síðustu áratugum hefur ís-
lenska glíman verið síðasta vígi
háttprýði, heiðarleika og
drengilegrar framkomu í heimi
íþróttanna þar sem ótugtar-
skapur og ofbeldi hefur farið
vaxandi í flestum greinum eins
og allir vita. Á meðan þessi
ruddaskapur hefur viðgengist á
flestum sviðum íþróttanna,
hafa glímumenn ávallt haldið
sig á mottunni, stigið, tekist á
af drengskap en festu og tekist
f hendur af fullri vinsemd að
glímu lokinni (sem Sigtryggur
vann að sjálfsögðu). Þannig
hefur þetta verið alla þessa öld.
Glímumenn hafa allir verið
drengir góðir og sómasveinar
eins lesa má um í íslands-
kappatali Lárusar Salómons-
sonar sem m.a. kvað svo um
Sigurjón Pétursson, Grettis-
beltishafa 1910-1913:
Bragðmargur brá og sótti,
byltan fór engum leynt.
Almælt samt öllum þótti
átak hans mjúkt og hreint.
Og:
Mikilhæfur og merkur
maður í hverri grein,
fríður, stæltur og sterkur;
stefnan þjóðleg og hrein.
Krosstré
En svo bregð-
ast krosstré
sem önnur og
ofbeldið ryður
sér allstaðar til
rúms, jafnvel
inn í hin helgu
vé glímunnar.
Því á dögun-
um gerðist sá
fáheyrði at-
burður að
glímumaður
missti stjórn á skapi sínu og gaf
dómara gríðarlegt drag í aftur-
endann eða öllu heldur í ofan-
og aftanvert lærið, svo við séum
nú alveg nákvæmir í anatómí-
unni.
Gjörvallur glímurheimurinn
leikur á reiðiskjálfi yfir þessum
tíðindum, enda enginn for-
dæmi fyrir slíkri hegðan í sögu
glímunnar hér á Iandi. Hér var
sem sé fram komið nýtt og
heldur óvelkomið bragð f fjöl-
breytt safn íslenskra glímu-
bragða, nefnilega „hægri ristar
drag í vinstri þjóhnapp."
Og í fyrsta skipti í sögu
glímunnar er nú hægt að nota
máltækið sem hingað til hefur
eingöngu þótt viðeigandi að
brúka í yfirfærði merkingu í
flestum þáttum mannlegra
samskipta öðrum en glímunni:
„Ragur er sá sem við rassinn
glímir.“ GARRl
ELÍAS
SNÆLAND
JÓNSSON
SKRIFAR
Harðstjónun refsað?
Úrskurður æðsta dómsstóls
Breta í máli gamla harðstjórans í
Chile, Augusto Pinochets, er að
einu leyti merkilegur. Hann er
vísbending um að það kunni
fljótlega að vera Iiðin tíð í hinum
vestræna heimi að einræðisherr-
ar séu friðhelgir.
Á tímum kalda stríðsins hefði
dómur af því tagi sem lávarða-
deildin breska felldi í Pinochet-
málinu verið óhugsandi. Þá eins
og nú héldu harðstjórar og ein-
ræðisherrar víða völdum í skjóli
stórvelda með því að beita her og
leynilögreglu gegn óbreyttum
borgurum og pólitískum and-
stæðingum. Margir þeirra nutu
líka verndar stórveldanna eftir að
þeir höfðu hrökklast úr landi.
Dæmigerður fyrir slíka þrjóta var
íjöldamorðinginn og mannætan
Bokassa, sem mergsaug þjóð
sína í Afríku um langt árabil en
eyddi síðan elliárunum í vellyst-
ingum í Frakklandi.
Tvöfeldni
Stórveldin áttu marga slíka skjól-
stæðinga sem þau
héldu verndar-
hendi yfir. Lýð-
ræðisríkin voru
auðvitað gagnrýnd
sértaklega fyrir
slíkan tvískinn-
ung; að boða opin-
berlega verndun
frelsis, lýðræðis og
mannréttinda en
styðja í reynd hina
verstu harðstjóra
og jafnvel hjálpa
þeim við grimmd-
arverkin, eins og
dæmin sanna.
Fleyg voru um-
mæli eins Banda-
ríkjamanns af slíku tilefni, er
hann sagði efnislega um einn
harðstjórann; við vitum að hann
er skepna, en hann er okkar
skepna! Henry Kissinger, utan-
ríkisráðherra Nixons, varð í
margra augum táknmynd slíkrar
pólitískrar tvö-
feldni, enda eng-
inn honum fremri
í makkíavellískri
utanríkisstefnu.
Erfið spuming
Ekkert Iiggur fyrir
um það ennþá
hvort Pinochet
verður nokkru
sinni dreginn fyrir
rétt vegna glæpa
sinna í Chile. Hitt
er Ijóst að smám
saman er að verða
gleðileg hugarfars-
breyting hjá leið-
togum vestrænna
ríkja. Spurningin er aðeins
hversu langt hún gengur.
I stríði vesturlanda við
Saddam Hussein og Slóbodan
Milosevic hefur mörgum þótt
sérkennilegt að heyra talsmenn
vestrænna ríkja sverja af sér
áhuga á að ráða þessa harðstjóra
af dögum. Samt leggja þessir
leiðtogar alltaf mikla áherslu á
það í boðskap sínum - til dæmis
Bill Clinton nú síðast í ávarpi
sínu til Serba - að það séu ein-
mitt þessir tilteknu einstaklingar
sem beri alla ábyrgð á hörmung-
unum.
Afstaðan til harðstjórans er í
senn pólitísk og siðferðisleg. Það
erfíða val, sem sérhver maður
stendur frammi fyrir, kristallast
einna helst í eftirfarandi spurn-
ingu: Hefði verið réttlætanlegt
að ráða Adolf Hitler af dögum til
að bjarga mannkyninu frá hörm-
ungum síðari heimsstyrjaldar-
innar?
Sá sem er reiðubúinn að svara
slíkri spurningu neitandi er um
leið að meta líf eins harðstjóra
meira en líf þeirra tugmilljóna
sem féllu í valinn.
Pinochet: verða harðstjórar
ekki lengur friðhelgir?
-Dmpr
snSS
svaurad
Hvada vísbendingar gef-
ur ný skoðanakönnun Fé-
lagsvísindastofnunar?
(Sjálfstæðisfl. = 41,3%, Fram-
sóknarfl.= 16,3%, Samfylking =
33,S%, = VG 6,3% ogFrjáls-
lyndifl. = 2,S%.)
Margrét Frímannsdóttir
tálsmaðurSamfylkingarimiar.
„Hún gefur mér
sömu vísbend-
ingar og aðrar
kannanir sem
hafa birst að
undanförnu.
Samfylkingin
nýtur vaxandi
fylgis í þjóðfélaginu. Nú erum við
að fara af stað með okkar kosn-
ingabaráttu og erum að kynna
stefnuskrá og því á ég von á því að
fylgið fari upp á við frekar en hitt.
Fólk vill breytingar, styrkja vel-
ferðarkerfið og jafna kjör.“
Ámi M. Mathiesen
þingmaðurSjálfstæðisflokks.
„Þetta gefur vís-
bendingu um
kosningaúrslit.
Miðað við könn-
un Félagsvís-
indastofnunar
sem birist á svip-
uðum tíma fyrir
kosningar 1995 urðu ekki miklar
breytingar frá henni og til kosn-
inga. Fijálslyndi flokkurinn nær
ekki fótfestu skv. þessari könnun
og öðrum, en það gerir Vinstri-
hreyfíng - græn framboð. Það sem
gerir stöðu VG í þessari könnun
athyglisverða er að það er með
meira fylgi í Reykjavík en úti á
landi, en í fyrri könnunum hefur
þessu verið öfugt farið. Sennileg
skýringin er sjálfsagt að hér gjaldi
Samfylkingin tvískinnungs í utan-
ríkismálum. Framsókn sækir sig
úti á Iandi, en þann flokk tel ég
vera Iíklegan til að sýna breyting-
ar á næstunni frá þessari könn-
ísólfur Gylfi Pálmason
þingmaðurFramsóknatflokks.
„Ef þetta væru
kosningaúrslit
væri ég auðvitað
óánægður með
hlut míns flokks.
Skoðanakönnun
sem þessi hleypir
krafti í kinnar
okkar framsóknarmanna og þar
bendum við á öll þau góðu mál
sem við höfum staðið að í ríkis-
stjórn. 70% þjóðarinnar vilja hafa
Framsóknarflokkinn áfram í ríkis-
stjórn og til þess að svo megi
verða þarf fólk auðvitað að kjósa
flokkinn.*'
Ögmundur Jónasson
þingmaðuróháðra.
„Fylgið vex með
hækkandi sól. Eg
hef þá trú að ef
okkur tekst það
ætlunarverk okk-
ar að fá fram
málefnalega um-
ræðu um þá
stefnu sem stjórnmálaflokkar
standa fyrir munum við f Vinstri-
hreyfingunni - grænu framboði
njóta góðs af. Lýðræðinu í land-
inu er mikilvægt að slík umræða
verði ekki kæfð með auglýsinga-
skrumi. Við höfum trausta og
ígrundaða stefnu og gott fólk sem
ber hana uppi. Eg er bjartsýnn á
framhaldið."