Dagur - 30.03.1999, Síða 4
4 - ÞRIÐJUUAGU K 30. MARS 1999
FRÉTTIR
rD^ir
Fráleitur hraði
Sjö ökumenn voru grunaðir um ölvun við akstur um helgina og 42
um of hraðan akstur, að því er fram kemur í dagbók Reykjavíkurlög-
reglunnar. Þá eru skráð 58 umferðaróhöpp með eignatjóni um helg-
ina.
Lögreglan er alltaf öðru hvoru með hraðamælingar í Hvalfjarðar-
göngunum. Um helgina mældust þar bifreiðar á yfir 100 km hraða
sem er fráleitur hraði á þessum stað þar sem aðstæður eru svo sér-
stakar og hámarkshraði 70 km/klst.
Skömmu eftir hádegi á
föstudag slasaðist maður í
fyrirtæki á Funahöfða er
hann klemmdist á milli
lyftara og brettis sem féll á
hann. Meiðslin voru talin
minniháttar.
Kvartað var yfir hópi af
heiðargæsum sem trufl-
uðu umferð á Gnoðarvogi.
Reynt var að reka þær
burtu en þær flugu einn
hring og settust aftur því
fólk hafði verið að gefa
þeim brauð. Síðar um daginn var einnig kvartað yfir gæsum sem voru
á gangi á Miklubraut og trufluðu umferðina en létu umferðina ekki
trufla sig!
Stolið lir frystiMstunni
Síðdegis á föstudag var tilkynnt um innbrot í íbúð við Hraunbæ.
Stolið var myndbandstæki og myndum. Þá var einnig tilkynnt um
innbrot í geymslur við Laugarnesveg. Þar hafði verið stolið mynd-
bandstæki og matvöru úr frystikistu.
A föstudagskvöldið var nokkuð kvartað yfir unglingahópum víðs-
vegar um borgina. Þeir munu hafa verið að halda upp á það að vera
komnir í páskafrí. Olvun var ekki áberandi meðal unglinganna.
Kvartað yfir gæsiun
Gæsir geta verið til vandræða í umferðinni.
Brotist iim í bíla
Fremur fátt var í miðborginni eftir miðnætti á föstudaginn, almennt
ástand talið gott, ölvun miðlungi mikil, leigubifreiðar nægar og heim-
flutningur fólks gekk vel. Unglingar voru ekki áberandi. Tveir voru
handteknir vegna ölvunar og einn fluttur á slysadeild.
Stuttu eftir miðnætti var kvartað yfir stúlkum sem væru að fara inn
í bíla við Lindargötu. Stúlkurnar voru handteknar og voru þær með
dót úr bílunum í fórum sfnum. Þær gistu síðan fangageymslu.
Eigandajium alveg sama
Um kl. hálfíjögur á laugardag var tilkynnt um að nýlegri bifreið hafi
verið stolið við Hverfisgötu. I Ijós kom að bifreiðin hafði verið ólæst
og kveikjuláslyklar geymdir í veski eigandans í hanskahólfi. Svona
frágangur bifreiðar bendir helst til þess að eigandanum sé alveg sama
þó henni sé stolið.
Um morguninn var tilkynnt um innbrot í vinnuskúr við Norðurfell.
Litlu var stolið. Þá var tilkynnt um innbrot í fyrirtæki við Höfðatún.
Stolið var tölvubúnaði, fatnaði o. fl. Síðdegis var bifreið ekið á girð-
ingu við Miðtún og festist hún í girðingunni. Ökumaður var grunað-
ur um ölvun við akstur.
Réðist á lögregliina
Fátt fólk var í miðborginni
eftír aðfaranótt sunnudags-
ins, lítil ölvun og ástandið
gott. Ekki þurfti að hafa
nein afskipti af unglingum.
Einn maður var handtekinn
og annar fluttur á slysadeild.
Ekki varð vart við neinar
ryskingar á svæðinu eða
árásarmál.
Um kl. 03 hafði lögreglan
afskipti af bifreið sem var
með dökkar filmur á hliðar-
rúðum en slíkt er bannað.
Farþegi í bifreiðinni
Heldur friðsælt var í miðborg Reykjavíkur
um heigina.
var
ósáttur við þetta og réðst að lögreglumönnunum og reyndi að hindra
þá í starfinu. Maðurinn var fluttur á stöð og fékk síðan gistingu í
fangageymslu.
Átök í austurborginni
Nokkru síðar voru tveir menn í slagsmálum á Laugavegi. Annar var
fluttur í fangamóttöku en hinn á slysadeild en var lítið meiddur. Um
morguninn kom til átaka milli manns og konu í austurborginni og
hlaut maðurinn stungu í bijóst. Hann var fluttur á slysadeild en er
ekki hættulega slasaður.
Þá var tilkynnt um innbrot í fyrirtæki í Vogunum. Þar var stolið
myndbandstæki og fleiru.
Síðdegis á sunnudag var tilkynnt um innbrot í fyrirtæki og þrjár
íbúðir í austurhluta borgarinnar. Stolið var myndbandstækjum,
hljómtækjum og fleiru.
N áttunifræðinám
stóraukið í skólum
Ný aðalnámskrá
gnumskóla. Sveigjan-
legra nám. Fleiri
kennslustundir. Val-
frjáls samræmd próf.
Nýjar námsgreinar.
„Það er víðtæk pólitísk samstaða
um þetta mál og því enginn
stjórnmálalegur ágreiningur um
það,“ segir Björn Bjarnason
menntamálaráðherra um nýja að-
alnámskrá grunnskóla. Hún tek-
ur gildi frá með 1. júní nk. en
verður að fullu komin til fram-
kvæmda að þremur árum liðnum.
Enskan fyrst
Helstu breytingarnar í nýju nám-
skránni eru m.a. þær að kennsla
í náttúrufræðigreinum hefst þeg-
ar í sex ára bekk og tími til nátt-
úrufræðináms eykst um allt að
60%. Þá er tími í stærðfræði-
kennslu aukinn um allt að 12%.
Samtals fá íslenska og stærð-
fræði um 40% alls kennslutím-
ans. I tungumálum verður enska
fyrsta málið sem nemendur læra.
Tími til enskukennslu er aukinn
og kennsla hefst mun fyrr, eða
við tíu ára aldur í stað tólf ára.
Lögð verður sama áhersla á
dönsku og áður en kennsla
hennar hefst nú í 7. bekk. Með
námskránni koma formlega inn
nýjar kennslugreinar í upplýs-
ingatækni og tölvunotkun. Ný
námsgrein, lífsleikni, verður tek-
in upp sem á að efla alhliða
þroska nemandans. Þá verður
um umtalsverða lengingu að
ræða á kennslutíma. Eftir þrjú
ár, eða árið 2001, verður vinnu-
vika allra nemenda, tíu ára og
eldri, orðin 35-37 stundir að Iág-
marki. Með því hefur heildartími
til kennslu í grunnskólum verið
aukinn um 15% frá skólaárinu
1994-1995.
Valírjáls samræmd próf
Nýja námskráin eykur einnig
sveigjanleika náms og valfrelsi
nemenda í efstu bekkjum grunn-
skóla. Þá verður samræmdum
prófum í 10. bekk fjölgað úr fjór-
um í sex ef Alþingi samþykkir
breytingar á grunnskólalögun-
um. Auk íslensku, stærðfræði,
ensku og dönsku geta nemendur
þá þreytt samræmd lokapróf í
náttúrufræði og samfélagsgrein-
um. Aukið valfrelsi þýðir líka að
nemendur geta lokið námi í
grunnskóla með mismunandi
áherslum og einnig á skemmri
tíma en áður, eða á níu árum í
stað tíu. Um leið er horfið frá því
að skylda alla að gangast undir
samræmd próf í lok 10. bekkjar.
Mismunandi inntökuskilyrði í
framhaldsskóla og val í 9. og 10.
bekk eykur ábyrgð nemandans.
Þá verður skólagangan samfelld
frá fyrstu árum leikskóla til
framhaldsskóla með nýjum nám-
skrám fyrir þessi skólastig sem
unnar hafa verið samhliða.
- GRH
Samfylkmg vestra
Listi SainfýlMiigariim
ar á Vesturlandi vegna
kosningaima í vor var
einróma samþykktur.
Fjögur efstu sætin eru í sam-
ræmi við niðurstöður prófkjörs-
ins sem haldið var á dögunum. I
1. sæti er Jóhann .Ársælsson,
skipasmiður og fyrrverandi þing-
maður Alþýðubandalagsins,
Akranesi og í 2. sæti Gísli S. Ein-
arsson, alþingismaður Akranesi.
I næstu sætum eru Dóra Líndal
Hjartardóttir, kennari, Vestri-
Leirárgörðum, Hólmfríður
Sveinsdóttir deildarstjóri Borgar-
nesi, Eggert Herbertsson rekstr-
arfræðinemi
Ólafsvík, Kol-
brún Reynis-
dóttir húsmóðir
Grundarfirði,
Erling Garðar
Jónasson um-
dæmisstjóri,
Stylddshólmi,
Guðrún Konný
Pálmadóttir,
húsmóðir Búð-
ardal, Eiríkur
Jónsson, lög-
fræðinemi Akra-
nesi og í 10. sæti
Klara Bragadótt-
ir, sálfræðingur
Staðarstað.
Fjórir efstu menn á lista Samfyikingar á Vesturiandi.
Sennilega ekkert páskabret
Samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofu Islands eru engar lík-
ur á neinu „alvöru páskahreti"
nú um páskana. I gær var þó
illviðri víða um land, ófært á
Vestfjörðum um Steingrímsfjarð-
arheiði sem og frá Blönduósi til
Skagastrandar. Líkurnar á stór-
hríðarbyl næstu daga eru hins
vegar litlar eða engar og ætti að
ganga þokkalega að halda sam-
göngum opnum ef svo fer sem
horfir.
Samkvæmt langtímaspánni
verður hæg breytileg átt á morg-
un og víðast bjart yfir. A skírdag
og föstudaginn langa er spáð
suðvestan golu eða kalda með
éljum vestast en annars staðar
bjartviðri. A laugardag er spáð
éljum austanlands og austan
kalda en á páskadag gæti orðið
snjókoma á Austur- og Norður-
landi með stífri austanátt. Frost-
laust verður á Suður- og Vestur-
Iandi að mestu en vægt frost
norðanlands og austan.