Dagur - 30.03.1999, Síða 5
Xfc^MT'
o •> « > 7 v . o c > r r* \{ * . 4 | w «| _
I’RIÐJUDAGUR 3 0. MARS 1999 - S
FRÉTTIR
Magnus Reynir
stvður lista Sverris
Lýsir yfir ánægju með
þá Guðjón A. Krist-
jánsson og Pétur
Bjamason í tveimur
efstn sætum Frjáls-
lynda flokksins á
Vestfjörðum.
„Það má heita ákveðið að við
Guðjón A. Kristjánsson, forseti
FFSI og varaþingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, tökum efstu
sætin, Guðjón í fyrsta sætið og
ég í annað sæti á Iista Frjálslynda
flokksins hér á Vestfjörðum,"
sagði Pétur Bjarnason, fræðslu-
stjóri á ísafirði og fyrrum vara-
þingmaður Framsóknarflokks-
ins, í samtali við Dag í gær.
„Eg get staðfest þessi ummæli
Péturs Bjarnasonar og það eru
allar líkur á því að við verðum í
efstu sætunum þótt formlega
eigi eftir að tilkynna það,“ sagði
Guðjón A. Kristjánsson í gær.
Heimildir herma að Magnús
Reynir Guðmundsson, sem lengi
hefur verið í forystusveit Fram-
sóknarflokksins á Vestfjörðum,
muni styðja listann með þá fé-
verður í 1. sæti
laga í efstu sætunum og hafi
raunar verið með í ráðum um
þetta allt saman. Magnús tapaði
í prófkjöri fulltrúaráðs flokksins
í vetur um efsta sætið á lista
Framsóknarflokksins fyrir
Kristni H. Gunnarssyni alþingis-
manni. Hann lýsti því þá yfir í
hita leiksins að hann myndi ekki
taka sæti á öðrum Iistum og við
það segist hann ætla að standa.
Pétur Bjarnason
verður í 2. sæti.
Hins vegar getur hann stutt aðra
lista án þess að svíkja loforð.
„Eg hef engu lýst yfir opin-
berlega en mér líst mjög vel á
að þessir tveir vinir mínir taki
þarna efstu sætin. Þar með eru
loks komnir frambærilegir
kandidatar hér fyrir vestan og
það er ánægjulegt að þetta
skuli vera ákveðið," sagði
Magnús.
Breyttar forsendur
Pétur Bjarnason sagði í gær að
hann hefði neitað að taka sæti á
Iista Frjálslynda flokksins frá því
í haust er það var fyrst nefnt við
hann. En sfðan þegar tólfmenn-
ingarnir, áhugamenn um auð-
Iindir í almanna eigu, komu
fram og viðræður hófust milli
Guðmundar G. Þórarinssonar
og Ellerts B. Schram við Sverri
Hermannsson um framboð tóku
línur að skýrast og viðhorf að
breytast.
„Ég met það svo að Guðmund-
ur G. Þórarinsson muni styðja
Frjálslynda flokkinn í þessum
kosningum og þess vegna ákvað
ég að taka slaginn. Eg met það
svo að nú sé kominn sá styrkur
sem menn hafa verið að bíða eft-
ir og að Frjálslyndi flokkurinn
nái góðu flugi. Við Guðjón A.
erum búnir að kanna jarðveginn
vel hér fyrir vestan og mér virðist
hann vera nokkuð frjór," sagði
Pétur.
Þessi niðurstaða þýðir að
Sverrir Hermannsson tekur
efsta sæti listans í Reykjavík en
Valdimar Jóhannesson verður
oddviti listans á Reykjanesi.
- S.DÓR
Davíð Oddsson forsætisráðherra
opnaði i gær vefsíðu Þjóðmenning-
arhússins.
Þjóðmenn-
mgarhús
fær vefsíðu
Davíð Oddsson forsætisráðherra
opnaði í gær vefsíðu Þjóðmenn-
ingarhússins en það er nýtt nafn
á Safnahúsinu við Hverfisgötu.
Nafnið á að endurspegla þær
miklu breytingar sem verða á
starfseminni innandyra þegar
húsið verður opnað aftur í apríl
á næsta ári. „Framvegis verða
ekki söfn í húsinu heldur verður
það opinbert sýningar- og fund-
arhús, vettvangur ýmiss konar
funda, opinberra athafna og list-
viðburða en einkum þó kynning-
ar á íslenskri sögu og menning-
ararfi," segir í fréttatilkynningu
frá Þjóðmenningarhúsinu.
Upplýsingar um fyrirhugaða
starfsemi, sögu hússins og fram-
kvæmdirnar sem nú standa yfir
má fá á vefsíðunni sem forsætis-
ráðherra opnaði í gær. Slóðin er
www.kultur.is
Mjólkursamlag KEA fékk í gær
fyrst íslenskra matvælafram-
leiðslufyrirtækja ISO 9001 vott-
un fyrir gæðastjórnunarkerfi. Að
sögn Hólmgeirs Karlssonar
mjólkursamlagsstjóra KEA er
þetta stórt skref í framtíðarupp-
byggingu fyrirtækisins. „Þetta er
mikilvægur áfangi í að styrkja
stöðuna og gera frekari hug-
myndir um útflutning á íslensk-
um mjólkurvörum mögulegan,"
segir Hólmgeir.
Um árahil hefur verið unnið
markvisst að uppbyggingu innra
eftirlitskerfis og gæðastjórnunar-
kerfis hjá Mjólkursamlagi KEA.
Árið 1996 fékk Mjólkursamlagið
vottað innra eftirlitskerfi sam-
kvæmt GÁMES gæðakerfi. í
kjölfar þess var lögð höfuðá-
hersla á uppbyggingu gæða-
stjórnunarkerfis með það að
markmiði að fá það vottað sam-
kvæmt hinum alþjóðlega ISO
9001 staðli. Sá áfangi er nú í
höfn og er Mjólkursamlag KEA
nú fyrst íslenskra matvælafram-
leiðslufyrirtækja til að fá ISO
Hólmgeir Karlsson mjólkurbússtjóri til vinstri er ánægður með áfangann
sem náðist með vottun ISO 9001 staðalsins í gær. - mynd: brink
9001 vottun og þar með fyrsta
mjólkursamlagið hérlendis. Vott-
unin tekur einnig til starfsemi
Safagerðar KEA og Smjörlíkis-
gerðar KEA.
Starfsmönniun að þakka
ISO 9001 er alþjóðlegur staðall
sem snýr að uppbyggingu gæða-
stjórnunarkerfis og innra eftirliti
fyrirtækja. Gæðastjórnun er
mun víðtækara hugtak en hefð-
bundið gæðaeftirlit og snýst í
raun um stjórnunarhætti fyrir-
tækja. Með þessum áfanga er
staðfest að gæðastjórnunarkerfi
KEA stenst alþjóðlegar kröfur og
viðskiptavinir fyrirtækisins geta
gengið að því vísu að gæði fram-
leiðsiunnar séu þau sem til er
ætlast. Hómgeir segir starfs-
menn eiga stóran þátt í viður-
kenningunni.
- BI>
Skarphéðinn nMslögmaður
Forsætisráðherra hefur skipað
Skarphéðin Þórisson hæstarétt-
arlögmann í emhætti ríkislög-
manns frá 1. maí næstkomandi.
Jón G. Tómasson, núverandi rík-
islögmaður, lætur þá af störfum
fyrir aldurs sakir.
Skarphéðinn er rúmlega
fimmtugur. Hann lauk embætt-
isprófi í lögfræði frá Háskóla Is-
lands 1973 og stundaði eftir það
framhaldsnám í Noregi. Hann
öðlaðist réttindi til málflutnings
fyrir Héraðsdómi 1975 og fyrir
Hæstarétti 1980.
Skarphéðinn hefur rekið eigin
lögmannsstofu í samvinnu við
aðra frá 1979. Þá hefur hann
setið í nokkrum nefndum, ráð-
um og stjórnum á vegum stjórn-
valda og lögmannafélagsins.
Fyrst íslenskra mjólk-
urbúa til aðfálSO
9001 vottun fyrir
gæðastjóruuuarkerfl.
MUdlvægt skref fyrir
Mjólkursamlag KEA
Flutti hótamál og tapaði
Hæstiréttur hefur staðfest sýknudóm gagnvart ríkinu í máli þar sem
Bjarni Jónasson krafðist skaða- og miskabóta vegna uppsagnar hans
sem framkvæmdastjóra verndaðs vinnustaðar, Kertaverksmiðjunnar
Heimaeyjar í Vestmannaeyjum.
Bjarni flutti mál sitt sjálfur og krafðist 2,8 milljóna króna bóta.
Hann hafði verið ráðinn tímabundið og átti ráðningu hans að ljúka
sjálfkrafa 31. desember 1987. Honum var sagt upp störfum 13. októ-
ber 1987 með þriggja mánaða fyrirvara, og var síðasti starfsdagur
hans 31. janúar 1988. Talið var að ekki hefði verið brotið gegn lög-
vörðum rétti Bjarna með uppsögninni og að ekki hefði verið sýnt fram
á að Bjarni ætti rétt á miskabótum. Þá þóttu ákvæði um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins ekki geta Ieitt til bótaskyldu ríkisins, eins
og starfslokum hans var háttað. Hins vegar þótti ástæða til að fella
málskostnað niður vegna þess háttar sem ríkið hafði á uppsögn
Bjarna. — FÞG
Slasaðist síðasta viimudagiiui
Steypufyrirtækið BM Vailá hefur í Hæstarétti verið sýknað af skaða-
bótakröfu manns sem varð fyrir slysi á síðasta \innudegi sínum hjá
fyrirtækinu. Hins vegar taldi Hæstiréttur að fyrirtækið ætti að greiða
manninum laun í slysaforföllum.
Slysið varð þegar maðurinn var að fara yfir steypumót vorið 1995.
Talið var að með þeirri aðgát, sem ætlast hefði mátt til af manninum,
hefði hann átt að geta komist klakklaust yfir steypumótið. Var það
ekki metið BM Vallá til sakar að ekki hafði verið komið fyrir tröppu
við mótið eins og vinnueftirlitið hafði gert athugasemd við. Var slysið
talið óhapp sem BM Vallá bæri ekki ábyrgð á og var fyrirtækið því
sýknað af viðurkenningarkröfu mannsins um skaðabætur. Laun
mannsins í slysaforföllum voru ákveðin 265.411 krónur, en ofan á
þau bætast dráttarvextir. Þá greiðir fyrirtækið málskostnaðinn. — FÞG
Georg í Útlend-
ingaeftMit
Georg Kr. Lárussyni hefur verið
falið að gegna embætti forstjóra
Utlendingaeftirlits frá 1. október
1999 og gildir sú skipan mála til
30. apríl 2003. í byrjun október
öðlast gildi ný Iög um eftirlit með
útlendingum og samkvæmt þeim
iögum skipar ráðherra forstjóra til
fimm ára í stað þess að ríkislög-
reglustjóri veiti stofnuninni for-
stöðu.
Georg Kr. Lárusson.