Dagur - 30.03.1999, Side 9
8- ÞSIÐJUD AGU R 30. MARS 19 99
Xfc^MíT
ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 1999 - 9
FRÉTTA SKÝRING
UTBOÐ
15.000 m3
6.000 m3
400 m2
350 m2
150 m2
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með 31. mars 1999,
gegn 10.000 kr skilatryggingu.
Opnun tilboða: 21. apríl 1999 kl. 11:00 á sama stað.
gar 36/9
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Pósthólf 878 - 121 Reykjavík - Sími 552 5800
Bréfsími 562 2616/561 1120. Netfang: isr@rhus.rvk.is
Veffang: www.reykjavik.is/innkaupastofnun - 660169-4079
F.h. Slökkviliðs Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í einkennis-
fatnað 1999-2002.
Útboðsgögn fást afhent á skrifstofu okkar.
Opnun tilboða: 18. maí 1999 kl. 14:00 á sama stað.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
ssr 42/9
F.h. Garðyrkjustjóra Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í 1.
áfanga við gerð ylstrandar í Nauthólsvík.
Helstu magntölur eru:
Fylling og jöfnun á skeljaefni:
Grjótfylling:
Þéttiþil m/dúk:
Timburklæðning (Azobe):
Hleðslugrjót:
c;udj\jum)
URRUNAR
HEIÐARSSON
SKRIFAR
Samtðk um betri
byggð ásaka stjóm-
völd um blekkingar.
Eudurbætumar meiri
en fyrir innanlands-
flugið. Útúrsnúningar
að mati ráðherra.
Borgaryflrvöld hafna
blekkingum. Ný flug-
stöð.
„Við ætlum að sjálfsögðu að gera
athugasemdir við þetta umhverf-
ismat sem er til kynningar. Við
munum kæra það eins lengi og
hægt er,“ segir Orn Sigurðsson,
arkitekt og stjórnarmaður í Sam-
tökum um betri byggð á höfuð-
borgarsvæðinu. Hann boðar
einnig athugasemdir við skipulag
Reykjavíkurflugvallar, bæði f
aðalskipulagi og deiliskipulagi.
Asakaiiir uni blekktngar
Skiptar skoðanir eru um það
hvort ráðamenn í samgönguráðu-
neyti og flugmálastjóm séu að
fara á bak við borgaryfirvöld með
boðuðum endurbótum á Reykja-
víkurflugvelli. Samtökin um betri
byggð á höfuðborgarsvæðinu telja
að verið sé að blekkja borgaryfir-
völd og almenning í þessu máli.
Þau halda því fram að endurbæt-
urnar á vellinum séu gerðar til að
styrkja hann enn frekar sem
þotuflugvöll fyrir millilandaflug
en ekki einvörðungu með hags-
muni ,jnnanlandsflugs í huga.
Með því sé verið að festa flugvöll-
inn enn frekar í sessi í Vatnsmýr-
inni með þeirri „áþján T)g kvöf'
sem fylgir flugumferð í hjarta
borgarinnar. Máli sínu til stuðn-
ings benda samtökin m.a. á
áform um byggingu nýrrar flug-
stöðvar suður af Loftleiðahótel-
inu. Orn Sigurðsson segir að þar
sé gert ráð fyrir bílastæði fyrir
nokkur hundruð bíla og að braut-
irnar eigi að geta borið þotu allt
að 120 tonn að þyngd.
Útiíxsnúningur
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra hafnar því alfarið að verið
sé að blekkja borgaryfirvöld í
þessu máli og vísar ásökunum um
það til föðurhúsanna. Þá sé ekki
fótur fyrir því að hægt sé að ráð-
ast í endurbætur á Reykjavíkur-
flugvelli fyrir 220 milljónir króna
í staðinn fyrir 1,5 milljarða ef þær
séu aðeins hugsaðar fyrir innan-
Iandsflugið eins og Samtökin um
betri byggð á höfuðborgarsvæð-
inu halda fram. Ráðherra segir að
endurbæturnar á vellinum séu
hugsaðar til að endast að minns-
ta kosti út þann tfma sem gert sé
ráð fyrir honum á þessum stað,
eða til ársins 2016 samkvæmt að-
alskipulagi borgarinnar. I þeim
efnum sé ekki hægt að notast við
einhverjar „holufylIingar“ eins og
ráðherra orðar það. Þess í stað
séu áformaðar endurbætur til
þess að halda í við þær ítrustu ör-
yggiskröfur sem gerðar séu til
flugvallarins og þeirrar flugum-
ferðar sem um hann fer. I því
sambandi sé nauðsynlegt að full-
ur burður sé í flugbrautunum út
af öryggissjónarmiðum. I þeim
efnum sé ekki hægt að hætta á
neitt. Þá sé það hreinn og klár út-
úrsnúningur ef menn halda því
fram að með endurbótunum sé
ætlunin að gera Reykjavíkurflug-
völl að einhverjum þotuflugvelli
íyrir aðrar vélarstærðir en litlar
þotur.
Ný flugstöð
Ráðherra segir að rætt hafi verið
um að byggja nýja flugstöð suður
af Loftleiðahótelinu. Hann segir
að hugmyndin sé að sú stöð muni
einnig nýtast hópferðabílum,
enda einatt verið gagnrýnt að
hópferðabílar skuli ekki vera
staðsettir nálægt komustað flug-
farþega á Reykjavíkurflugvelli.
Ráðherra segir að byrjað sé að
huga að undirbúningi fyrir bygg-
ingu þessarar flugstöðvar. Hins
vegar hafa engar ákvarðanir verið
teknar né Ijármagn fyrir hendi.
Hann áréttar þá skoðun sína til
Samtaka um betri byggð að þótt
menn vilji færa flugvöllinn, þá
mega þeir ekki ganga of Iangt í
gagnrýni sinni. Ráðherra minnir
einnig á að Reykjavíkurflugvöllur
sé alþjóðlegur flugvöllur og verði
því áfram sem einn af þremur
varaflugvöllum íyrir Keflavíkur-
flugvöll. Hann telur þó að það
komi ekki oft fyrir að fært sé á
Reykjavíkurflugvöll en ekki í
Keflavík. Af þeim sökum sé það í
mjög fáum tilvikum sem sú staða
kemur upp.
Fráleitt
Guðrún Ágústsdóttir, forseti
borgarstjórnar og formaður
skipulags- og umferðamefndar,
telur að ekki sé verið að blekkja
borgaiyfirvöld í þessu máli. Þá
telur hún að
af hálfu samgönguyfirvalda að
millilandaflug færist yfir til
Reykjavíkurflugvallar í einhveij-
um mæli. Sé það hins vegar
reyndin sé verið að fara mjög
gróflega á bak við borgaryfirvöld.
Sjálf segist hún ekki hafa neina
trú á að svo sé. Enda væri það
fráleitt af flugmálayfirvöldum að
láta sér detta það í hug að fara á
bak við höfuðborgina. Hún er
engu að síður á því að borgaryfir-
völd verði að halda vöku sinni í
þessu sem öðru. Hins vegar sé
það rétt að áform hafa verið uppi
um byggingu nýrrar flugstöðvar
við Reykjavíkurflugvöll, enda hef-
ur byggingin verið á skipulagi
árum saman. Aftur á móti hafa
engar ákvarðanir verið teknar um
byggingu hennar né fjármögnun
af hálfu samgönguráðuneytisins.
Það eina sem sé nýtt í þessu máli
séu endurbæturnar á flugbraut-
unum og hækkun á enda norður-
suður brautar.
Áhrif í skoðun
Hún segir flugmálayfirvöld hafa
fullyrt það við sig að þessi 1,5
metra hækkun á brautarendan-
um muni hafa jákvæða þýðingu
fyrir byggðina vegna þess að þá
munu flugvélar koma hærra inn
Árlega eru veitt úr Menningarsjóði Akureyrar, starfslaun lis-
tamanna eða listamanns. Menningarmálanefnd velur lista-
mennina sem starfslaun hljóta.
Hér með er auglýst eftir rökstuddum ábendingum frá ein-
staklingum, samtökum listamanna eða öðrum, um hverjir
skuli hljóta starfslaun á árinu 1999.
Menningarmálanefnd er ekki bundin af ábendingunum.
Ábendingar skulu sendar til menningarskrifstofu Akureyrar,
Glerárgötu 26, fyrir 8. apríl nk.
Menningarmálanefnd Akureyrarbæjar
H arónandi stríð 11111 flugvöllinn
Starfslaun lista-
manna
til Iendingar. Guðrún segist hins
vegar ætla að láta skoða þessa
fullyrðingu í ljósi þess að Sam-
tökin um betri byggð telja að það
muni hafa þveröfug áhrif. Hún
bendir einnig á að breytingin á
deiliskipulagi vegna flugvallarins
sé sáralítil. Þá finnst henni það
fráleitt ef ætlunin sé að halda
áfram að nýta Reykjavíkurflugvöll
sem varaflugvöll fyrir millilanda-
flugið. Sérstaklega í ljósi þeirra
miklu fjármuna sem fóru í að
gera Egilsstaðaflugvöll að vara-
flugvelli. Auk þess sé varaflug-
völiur einnig á Akureyri.
Hindrar ekki flutning
Formaður umferðar- og skipu-
lagsnefndar bendir einnig á að
samkvæmt ákvörðun R-listans í
aðalskipulagi borgarinnar til árs-
ins 2016 sé ekki gert ráð fyrir því
að flytja flugvöllinn úr Vatnsmýr-
inni á skipulagstímanum. Hún
leggur áherslu á að áformaðar
endurbætur á flugvellinum eigi
ekki að hindra það að hann verði
fluttur, þegar og ef ákvörðun um
það verður tekin. Enda ekki mik-
ið mál að breyta aðalskipulagi ef
þröf krefur. Hún áréttar einnig þá
skoðun sína að endurbæturnar
séu afleiðing af margra áratuga
vanrækslu í viðhaldi vallarins.
Guðrún telur líka að ef fram
kemur skynsamleg tillaga um
flugvöllinn á öðrum stað, þá verði
einfaldlega ráðist í það verk. Sjálf
segist hún vera áfram hörð í þeirri
afstöðu sinni að vilja völlinn burt
úr Vatnsmýrinni. Sú skoðun hafi
hins vegar orðið undir í meðför-
um málsins hjá R-listanum þar
sem Guðrún varð að beygja sig
fyrir meirihlutanum sem var á
öndverðri skoðun við hana í
þessu máli.
Opið bréf
I opnu bréfi frá Samtökunum um
betri byggð á höfuðborgarsvæð-
inu til Ingibjargar Sólrúnar Gísla-
dóttur borgarstjóra og Ingu Jónu
Þórðardóttur, oddvita sjálfstæðis-
manna í borgarstjórn, kemur m.a.
fram að í lauslegu mati sérfræð-
inga sé talið að hægt sé að koma
ástandi Reykjavíkurflugvallar í
viðunandi horf fyrir 220 milljónir
króna. Þetta verk sé hægt að
vinna á sex mánuðum. Af þeim
sökum þarf ekki að ráðast í íjög-
urra ára verk fyrir 1,5 milljarða
króna nema eitthvað meira liggi
að baki þeim framkvæmdum en
látið hefur verið í veðri vaka. I
það minnsta virðist bráðavandi
Reykjavíkurflugvallar ekki brýnni
en svo að leysa megi hann á fjór-
um árum, samkvæmt áætlun
Flugmálastjórnar. Samtökin
benda einnig á að í aðalskipulagi
Reykjavíkur til ársins 2016 sé
miðað við að innanlandsflug
verði á vellinum en annað flug
flytjist þaðan á brott. Samtökin
telja jafnframt að þar sem núver-
andi flugvélar í innanlandsflugi
séu þær stærstu sem reikna þarf
með f framtíðinni sé eðlilegt að
kannað verði hvort ekki megi
komast af með styttri og færri
brautir.
Nýr flugvSUur
Samtökin telja enn fremur að í
tillögum Flugmálastjórnar blasi
við mjög svo ólík mynd um fram-
tíð flugvallarins, sé miðað við þá
forsögn sem Iiggur til grundvallar
aðalskipulagi borgarinnar til árs-
ins 2016. Samtökin fullyrða að í
boðuðum framkvæmdum virðist
sem ekki sé verið að ræða um
endurbætur eða viðhald. Nái þau
áform fram að ganga sé hreinlega
verið að fjarlægja þann völl sem
tekinn var í notkun árið 1942.
Bent sé á að öllum jarðvegi eigi að
moka af föstu bergi og í stað nú-
verandi flugvallar verði gerður nýr
og rammbyggðari völlur á sama
stað. Þá sé reiknað með nýjum
akstursbrautum. Þær munu auka
afköst fyrirhugaðs vallar þótt í að-
alskipulagi borgarinnar sé gert
ráð fyrir minni flugstarfsemi á
vellinum. Enn fremur sé gert ráð
fyrir því að norðurendi norður-
suður-brautar verði 150 senti-
metrum hærri en á núverandi
velli. Samtökin telja einnig að svo
virðist sem Flugmálastjórn hafi
komist hjá lögformlégu mati á
umhverfisáhrifum með því að
kynna þessa nýframkvæmd sem
bráðaviðhald. Síðast en ekki síst
hafi verið gefin villandi mynd af
eðli framkvæmdanna og m.a. full-
yrt að fljótlega á nýrri öld megi
endurskoða framtíð flugrekstrar
og landnotkun í Vatnsmýrinni.
Samtökin telja þó að með því að
endurbyggja flugvöllinn eins og
kynnt hafi verið sé svo miklu
mannvirki ætlað að standa út 21.
öldina.
Margfaldur ábati
I bréfi sínu staðhæfa samtökin að
starfsmenn, gestir og gangandi í
miðborginni og í aðliggjandi
hverfum munu finna fyrir mikilli
loft- og hávaðamengun frá flug-
vallarsvæðinu á þessum fjögurra
ára framkvæmdartíma. Hins veg-
ar sé ábati borgarbúa margfaldur
af því að flugrekstri verði hætt í
Vatnsmýrinni og í staðinn verði
reist þar íbúða- og miðborgar-
byggð. Þá sé rétt að láta komandi
kynslóðum það eftir að ráðstafa á
eigin forsendum þeim fáu byggi-
legu jarðsvæðúm sem eftir séu.
Drep í byggð
Samtökin benda einnig á að flug-
völlurinn í Vatnsmýrinni hafi leitt
til óhagstæðrar byggðaþróunar frá
stríðslokum og sé skipulag borg-
arinnar og höfuðborgarsvæðisins
komið í ógöngur. Byggðin sé slitr-
ótt, umferðarkerfin gölluð og
miðborgarstarfsemin sé dreifð. Þá
sé byggin dýr í rekstri og óskilvirk.
Það bitnar á atvinnulífi, rekstri
sveitarfélaga, Ijárhag heimilanna
og Ieiðir til lakari efnahags og lífs-
gæða. Drep sé komið í byggðina
vestast í borginni sem breiðist til
austurs. Þá missir öll sú vinna
marks sem hafin sé við gerð svæð-
isskipulags höfuðborgarsvæðisins
ef lokað sé á þá möguleika sem
opnast í skipulagsmálum með
flutningi flugrekstrar til Keflavík-
ur, á nýjan flugvöll í Kapellu-
hrauni, á nýjan flugvöll á uppfyll-
ingu í Skerjafirði eða nýjan flug-
völl í Engey. Samtökin um betri
byggð fullyrða einnig í bréfi sínu
að að óbætanlegur skaði muni
hljótast af ef ekki Iiggur fyrir
ákvörðun um breytta landnotkun
í Vatnsmýrinni áður en svæðis-
skipulagið verður afgreitt í árs-
byrjun á næsta ári. Þá mundi fest-
ast í sessi gölluð forsögn um þró-
un byggðar í borginni og á höfuð-
Skiptar skoðanir eru um það hvort ráðamenn í samgönguráðuneyti og flugmálastjórn séu að fara á bak við borgaryfirvöld með boðuðum endurbótum á Reykjavíkurflugvelli.
Freyvangs-
leikhúsið
Hamingjuránið
- frábær gamansöngleikur
eftir Benght Alfors
Leikstjóri:
Jón Stefán Kristjánsson
Tónlistarstjóri:
Garðar Karlsson
10. sýning miðvikudaginn
31.3. kl. 20.30
11. sýning fimmtudaginn
1Á. (skírdag) kl. 20.30.
12. sýning laugardaginn
3.4. kl. 20.30.
Engin sýning annan páska-
dag.
Frábær skemmtun fyrir
alla aldurshópa.
Miðapantanir í síma
463-1195 kl. 16.00 -
19.00 alla daga
Fermingar
Prentum á
fermingarservíettur
Gyllum á sálmabækur
og kerti
Margar gerðir af
servíettum fyrirliggjandi
alprent
Glerárgötu 24-26
Akureyri
s: 462-2844