Dagur - 30.03.1999, Blaðsíða 12
II11 ■■■■» ■ ■ 1111IIII ■ ■ I......
12 - ÞRIDJUDAG U R 30. MARS 1999
LAVITA
ÉBELLA
Simi 462 3500 • Hólabraut 12 • www.nett.is/borgarbio
ÞRENN OSKARSVERÐLAUN! BESTA
ERLENDA MYNDIN, BESTI LEIKARI NYJASTA STORMYND OLIVER
I KARLHLUTVERKI OG BESTA
DRAf.TATISKA MYNDIN. MYNDIN
^HEFÚR HLOTIÐ YFIR 40
, VERÐLAUN Á KVIKMYNDA-
HÁTIÐUM VÍÐS VEGAR UM
'"fH HEIMINN.
f
Þnðjud. kl. 21.
□□ [00157]
O I G I T A L Æ""
STONES. EIN MIKILVÆGASTA
MYND ARSINS OG EIN HRIK'ALEG-
ASTA OG RAUNSÆJASTÁ MY;ND
UM STRIÐ SÍÐAN „PLATOQgí'.
AÐALHLUTVERK DENNIS QUAID
OG NASTASJA KINSIÍI. •
Þriðjud. hi. 23.10,^1
V. Œ3Í™]
■íi* D I G I T A L
MuLan
Sýnd kl. 17, 21 og 23. - B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 17 með
ensku tali.
Sýnd kl. 19. - B.i. 16 ára.
PAVBACK
Búðu þig undir að
halda með vonda
gæjanum! Svona
hefur þú aldrei séð
Mel Gibson áður.
Meiriháttar mynd eftir
Óskarsverðlauna-
hafann Brian
Helgeland.
ÍÞRÓTTIR
Grindavík
vann í Keflavík
Fyrstu leikirnir í fjögurra liða úr-
slitum DHL-deildarinnar í körfu-
knattleik fóru fram um helgina.
Keflvíkingar fengu Grindvíkinga í
heimsókn og þar gerðist það
óvænta að Grindvíkingar unnu
85-88 sigur á útivelli. I upphafi
leiks leit út fyrir stórsigur Kefl-
víkinga. Þeir röðuðu niður þrigg-
ja stiga körfum og um miðjan
hálfleikinn voru þær orðnar ell-
efu. En Grindvíkingar neituðu að
gefast upp og tókst að minnka
muninn í fjögur stig í hálfleik,
56-52. Fljótlega f seinni hálfleik
náðu Grindvíkingar svo að kom-
ast yfir í leiknum og héldu for-
skotinu til loka leiksins.
Spennandi í Njarðvík
I Njarðvík fór fram leikur heima-
manna gegn Isfirðingum, þar
sem heimamenn sigruðu 70-61.
Njarðvfkingar byijuðu betur, en
Isfirðingar spiluðu grimma vörn
sem kom Njarðvíkingum virki-
lega á óvart. Staðan í hálfleik var
36-30, en fljótlega höfðu ísfirð-
ingar náð yfirhöndinni og höfðu
sjö stiga forskot þegar um sex
mínútur voru til Ieiksloka. Þá
hrukku Njarðvíkingar aftur í
gang og náðu að tryggja sér sigur-
inn á lokamínútunum.
Úrslit leikja í
gærkvöla
Handbolti
Nissandeildin - 8-liða úrslit
Afturelding-HK 22:21
IBV-Haukar (Ieiknum lauk með
sigri Hauka, úrslit höfðu ekki
borist þegar blaðið fór í prentun.
Afturelding, Haukar og Fram eru
komin áfram í 4-liða úrslit.
Körfubolti
- 1. deild
ÍR-Hamar 73:90
Hvergerðingar í Urvalsdeild.
rD^tr
Varnarjaxlarnir Eyjótfur Sverrisson og Steinar Adolfsson skoruðu mörkin
gegn Andorra.
Heppmssigur
Islenska knattspymu-
landsliðið sigraði um
helgina lið Andorra 0-
2 í riðlakeppni Evr-
ópumótsins og er þar
með komið í 3. sæti
4. riðils.
Það er ekki nema von að Guðjón
Þórðarson, landsliðsþjálfari ís-
lands f knattspyrnu, hafi verið á
suðumarki eftir skelfílega slakan
fyrri hálfleik gegn Andorra á
laugardaginn. Það var fyrir al-
gjöra heppni að leikmönnum
Andorra tókst ekki að skora úr
tveimur upplögðum færum, eftir
ótrúlegan klaufaskap íslensku
varnarinnar og að staðan skildi
ekki vera orðin 2-0 í hálfleik var
algjört glópalán. Það var auðséð
að þarna voru mætt tvö varnar-
lið, sem bæði voru föst í bakkgír.
Fimm manna vörn íslenska Iiðs-
ins gegn næstmesta varnarliði
riðilsins var eitthvað sem menn
áttu ekki von á, enda búið að
lofa beittum sóknarleik.
Þau hafa eflaust verið ófögur
orðin sem Guðjón þjálfari lét
falla í búningsklefanum eftir
allslausan fyrri hálfleik, allavega
höfðu þau tilætluð áhrif. Allt
annað var að sjá til liðsins í
seinni hálfleik og það var eins og
sumir leikmenn liðsins hefðu
fengið vítamínsprautu hjá þjálf-
aranum. Menn sem varla höfðu
sést í fyrri hálfleik voru nú
skyndilega vaknaðir til Iífsins og
liðið tók hægt og sígandi öll
völdin á vellinum.
Mörkin létu heldur ekki á sér
standa og þegar um það bil tólf
mínútur voru liðnar af hálfleikn-
um skoraði Eyjólfur Sverrisson
gott mark með hörkuskalla eftir
hornspyrnu frá Arnari Gunn-
laugssyni. Níu mínútum síðar
kom svo seinna markið og aftur
eftir hornspyrnu Arnars. Boltinn
barst fyrir markið og þar sópaði
Steinar Adolfsson boltanum í
netið.
Nú bíður íslenska landsliðsins
hörkuleikur á morgun, miðviku-
dag, gegn Ukraínumönnum og
það er víst að þar dugar ekkert
droll. Þeir eru með geysisterkt
lið og eru í efsta sæti riðilsins.
ALLIR SUZUKI BlLAR ERU MEÐ:
• vökvastýri • 2 loftpúða •
• aflmiklar vélar • samlæsingar •
• rafmagn í rúðum og speglum •
• styrktarbita I hurðum •
• samlitaða stuðara •
• Sérstaklega röskur og snúningslipur
• Ein sparneytnasta vélin á markaðnum
Lægsta bilanatíðni nýrra smábíla, aðeins 1,6%
• Óvenju ríkulegur staðalbúnaður fyrir
bíl í þessum verðflokki
TEGUND: VERÐ:
GLS 3d 980.000 KR.
GLX 5d 1.020.000 KR
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is
Auto Reporf. 98 fró TUV,
Technischer Uberwathungs
Verein, byggt ó meira en
3 milljónum bilo.