Dagur - 30.03.1999, Qupperneq 5
ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 1999 - 21
LÍFIÐ í LANDINU
Kóramót í Noregi
Háttáannað hundrað
söngmennísexís-
lenskum kðrum sungu-
saman í Ósló á dögun-
um. Frábærsöng-
skemmtun og þjóð-
söngurinn hápunktur-
inn.
Islenskir kórar í útlöndum,
héldu árlegt kóramót sitt laugar-
daginn 13. mars. Að þessu sinni
var íslenski kórinn í Osló gest-
gjafi og bauð til ógleymanlegrar
söngskemmtunar í Frogner-
kirkju í Osló. Fyrir utan gest-
gjafana mættu fimm kórar á
svæðið. íslenski kórinn í Bergen
ætlaði sér að vera með en varð
að hætta við vegna veikinda í
hópnum.
Fyrrum höfuðborg íslands,
Kaupmannahöfn í Danmörku,
átti að sjálfsögðu sinn kór á
svæðinu. Landar vorir frá Ála-
borg, í danska heimsveldinu,
létu sitt ekki eftir liggja þó hóp-
urinn sé enn blautur á bak við
bæði eyrun. Þau mættu með
sinn sönghóp sem skemmti
áheyrendum með léttum ís-
lenskum dægurflugum.
Finnur Bjarnason og enski kórinn sungu einstaklega vet í Frognerkirkju.
Tveir kórar frá Svíþjóö
íslendingar í Svíþjóð eru einnig
afar söngelskir og mættu með
tvo kóra, frá Lundi og Gauta-
borg. Þá mætti íslendingakórinn
í London. Sá kór er miklu betri
en í meðallagi enda skipaður
snillingum sem eru í söngnámi í
heimsborginni eða hafa lokið
slíku námi. Finnur Bjarnason
söng einsöng með enska kórn-
um og sló rækilega um sig í
hjörtum áheyrenda. Þar er frá-
bær söngvari á ferðinni enda
orðinn vinsæll og eftirsóttur
söngvari í London.
Upphaf og endir kóramótsins
var samsöngur kóranna. Hver
Kór gestgjafanna í Úsló var með
skemmtilega söngskrá.
Ánægðir kórfélagar að lokinni góðri söngskemmtun. Kórarnir sex í lokin eftir
að hafa sungið íslenska þjóðsönginn.
kór valdi eitt Iag sem stjórnandi
viðkomandi kórs stjórnaði. Há-
punktur tónleikanna var lokalag-
ið, íslenski þjóðsöngurinn, sem
Brynhildur Auðbjargardóttir,
líka hæst ánægð með mótið og
heimtaði myndatöku í Iokin.
GÞÖ
stjórnandi gestgjafanna frá Ósló,
stjórnaði. Flutningurinn var
hreint frábær enda skein gleðin
úr hverju andliti söngfólksins.
Og þó íslenski þjóðsöngurinn sé
bara sálmur þjappaði hann þeim
Ijölmörgu íslendingum sem
mættu í Frognerkirkju vel sam-
an. Við vorum einfaldlega stolt
af okkar fólki. Brynhildur var
Slysavamafélagið
gefurhjálma
SVOJMA
ER LIFIÐ
Pjetur St.
Arason
skrifar
Pjetur
svarar
í símann!
Ertu með ráð,
þarftu að spyrja,
viltu gefa eða
skipta?
Pjetur svarar í
símann kl. 9—12.
Síminn er
563 1626 (beint)
eða 800 7080.
Póstfang:
Þverholt 14 Rvk.
eða Strandgötu 31
Akureyri.
Netfang:
ritstjori@dagur.is
Umræðan um óhöpp á skíðasvæðum hefur verið óvenju mikil í
vetur. Á dögunum gáfu Slysavarfélag íslands og Tryggingamið-
stöðin 50 hjálma á skíðasvæðin í Bláfjöllum og Skálafelli.
Hjálmarnir verða þar lánaðir börnum og unglingum.
í fréttatilkynningu segir að markmiðið sé að skíðasvæðin
geti boðið gestum sínum upp á viðurkenndan öryggsbúnað og
rannsóknir hafi leitt í ljós ótvírætt gildi hjálma við skíðaiðkanir.
Valgerður Sigurðardóttir kynningarfulltrúi Slysavarnafélags-
ins segir að félagið stefni að því að gefa hjálma á öll skíðasvæði
Iandsins. Þannig að þau geti lánað gestum sínum, en borið hafi
við að hjálmar sem hafðir væru til útláns væru gamlir og slitin-
ir.
Valgerður
segir að meira
beri á því nú
en áður að
fullorðið fólk
noti hjálma
við skíðaiðkun
sína. Fullorð-
inir lenda líka
í slysum og þá
skiptir hjálm-
urinn oft máli.
Þeir eru fyrir-
mynd og hjálmanotkun þeira sem eldri eru leiðir til þess að
börnum Iíði betur með hjálm á höfðinu
Það eru ekki bara skíðamenn sem þurfa hjálma brettamenn
nota þá einnig. Valgerður segist vilja sjá hjálma á höfðum
hj ólabrettafólks.
Páskarnir eru ein mesta skíðahelgi ársins, skíðum varlega og
með hjálm á höfðinu.
Gamlar myndir
Kristín E. Sigurðardóttir er dóttir myndlistarmannsins Sigurð-
ar Benedikssonar. Hún hefur í fórum sínum gamlar myndir
sem faðir hennar málaði. Þetta eru olíumálverk og vatnslita-
myndir. Sigurður málaði mikið á ferli sínum en hann var kunn-
ingi Jóhannesar Sveinsonar Kjarvals. I safni Kristínar eru ma.
myndir úr Vestmannaeyjum, sem málaðar eru fyrir gos og
myndir af fiskibátum. Kristín vill losa sig við myndirnar og seg-
ir að verð þeirra sé samkomulagsatriði. Þeir sem áhuga hafa
geta haft samband við Kristínu í síma. 551 3768 eða 552
7712.
HVAD ER Á SEYfll?
GÍTARTÓNLEIKAR í SALNUM
I kvöld klukkan 20.30 verða verða tónleikar í „Tíbrá“,
en þá heldur Kristinn H. Árnason gítartónleika í SALN-
UM. Á tónleikunum verða ílutt verk eftir Fernando Sor,
J.S. Bach, Jón Ásgeirsson, Joaquin Turina og Isaac Al-
beniz.
Miðasalan verður opin tónleikadaginn frá kl. 17.00 í
anddyri Tónlistarhúss Kópavogs, s. 570-0404, og er
miðaverð kr. 1.200.
Kristinn H. Árnason.
LANDIÐ
My Fair Lady á Egilsstöðum
Leikfélag Fljótsdalshéraðs frumsýndi My
fair lady, eftir Alan J. Lerner & Frederick
Loewe í Valaskjálf, Egilsstöðum um helg-
ina. Leikstjóri: Oddur Bjarni Þorkelsson.
2. sýning miðvikudag 31. mars, 3. sýning
laugardag 3. apríl, 4. sýning 5. apríl, ann-
an í páskum. Sýningar hefjast ld. 20.30
Miðapantanir frá kl. 17 sýningardagana í
síma 471 1805. Einar Rafn Haraldsson
leikur hlutverk prófessors Henry Higgins
og Agnes Vogler leikur EIízu.
Fuglafjarðar Sangkór
Nú um páskana verður hér í söngferð
Fuglafjarðar Sangkór, sem er blandaður
kór frá Fuglafirði í Færeyjum. Kórinn er
gestur Vörðukórsins í Árnessýslu. Stjórn-
andi kórsins er Frits Jóhannesen og und-
irleikarar Eyðun á Lakjuni, Heðin
Kambsdal og Jóhan Hentze. Kórinn syng-
ur ásamt Vörðukórnum í Félagsheimilinu
Flúðum miðvikudaginn 31. mars kl.
21.00. Að loknum tónleikunum verður
stiginn dans jafnt að íslenskum sem fær-
eyskum sið. Kórinn syngur í Skálholts-
kirkju á skírdag kl. 14.00 og Selfosskirkju
kl. 17.00 sama dag, í Vinaminni á Akra-
nesi laugardaginn 3. apríl kl. 17.00 og
Hafnarfjarðarkirkju annan páskadag ld.
14.00. Eftir tónleikana í Hafnarfirði
munu félagar úr Færeyingafélaginu selja
kaffi í safnaðarheimilinu Strandbergi.
Söngferð kórsins lýkur með tónleikum í
Langholtskirkju þriðjudaginn 6. apríl
klukkan 20.30.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Söngdansar Jóns Múla í Salnum
Þann 31. mars nk. kl. 20.30 mun hljóm-
sveitin Delerað leika söngdansa Jóns
Múla í Salnum í Kópavogi. Hljómsveitina
skipa Óskar Guðjónsson á saxofón, Eð-
varð Lárusson og Hilmar Jensson á gít-
ara, Þórður Högnason á kontrabassa og
Birgir Baldursson, Matthías M. D. Hem-
stock og Pétur Grétarsson á slagverk.
Miðaverð kr. 1.200.
Stórfundur í Tjarnarbíói
I tilefni af því að 30. mars eru 50 ár liðin
frá því að ísland gekk í Atlantshafsbanda-
lagið (Nato) efna Samtök herstöðvarand-
stæðinga til stórfundar í Tjarnabíói í
kvöld ldukkan 20.30. Þar verða flutt
ávörp, leikin tónlist og lesin ljóð. Ávörp
flytja Drífa Snædal og Steingrímur J. Sig-
fússon, Baldvin Halldórsson les ljóð eftir
Snorra Hjartarson. Lesinn verður Of-
beldisannáll, brot úr sögu barsmíða og
meiðinga i herstöðvabaráttunni. Tónlista-
mennirnir Bubbi Mortens, Hörður Torfa,
Ingólfur Steinsson, Kolbeinn Bjarnason,
Einar Kristjánsson og fleiri. Fluttur verð-
ur Leikþáttur eftir Karl Ágúst Úlfson.
Kynnir verður Vernharður Linnet.
Frá félagi eldri borgara Reykjavík
Almenn handavinna þriðjudag og mið-
vikudag kl. 9.00 Skák kl. 13,00. Allra síð-
asta sýning á Maðkar í mysunni og
Ábrystir með kanel í Möguleikhúsinu við
Hlemm miðvikudaginn 31. mars kl.
16.00. Kaffistofan opin frá kl. 9.00 -
13.00 alla virka daga.