Dagur - 13.04.1999, Qupperneq 7

Dagur - 13.04.1999, Qupperneq 7
ÞRIDJUDAGUR 13. APRÍL 1999 - 23 Tkgttr. LÍFIÐ í LANDINU VEÐUR Egill Jóhannsson framkvæmdastjóri Brimborgar, í hinum nýju og glæsilegu húsakynnum fyrirtækisins. - mynd: ohr. í byrjun mars flutti Brimborg starfsemi sína í nýtt húsnæði fyrirtækisins við Bíldshöfða 6. Nýja húsið er 8.000 fermetrar að stærð og auk þess er verkstæðið 2.300 fermetrar og hjól- barðaverkstæði 200 fermetrar. Oll starfsemi fyr- irtækisins er því á 10.500 fermetrum og á tiltöiu- lega litlum bletti. Það verður ekki annað sagt en fyrirtækið sé á góðu flugi. Mars er metmánuður í sölu. Brim- borg seldi 186 bíla og tæki en 70 á sama tíma í fyrra. Veltan var 370 milljónir í mars. I fyrra var velta fyrirtækisins 3,2 milljarðar og stefnt er að því að veltan verði 4 milljarðar á þessu ári. Brimborg tók sér góðan tíma í byggingu nýja hússins. „Við byrjuðum að byggja 1991 og flutt- um í hluta af kjallaranum 1992. Varahlutaversl- unina flytjum við í bráðabirgðahúsnæði í nýja húsinu 1994. Sfðan héldum við áfram að byggja í rólegheitum og fluttum varahlutaverslunina í desember og janúar síðast liðnum, sýningarsal- inn 6. mars og skrifstofurnar um miðjan mars. Við reyndum að flytja þetta á löngum tíma til að við þyrftum ekki að loka,“ segir Egill Jóhannsson framkvæmdastjóri Brimborgar. Hann segir þetta stíl sem fyrirtækið hafi not- að. „Við höfum alltaf byggt okkar húsnæði sjálfir frá upphafi, byggðum fyrsta húsnæði 1971. Maður gerir þetta svipað og maður mundi byggja sitt eigið húsnæði, við byggjum eftir efnum og ástæðum. Það gefst líka meiri tími til að velta hlutunum fyrir sér. Þetta er líka minni áhætta,“ segir Egill. Hann segir fyrirtækið ekki hafa verið mikið skuldsett vegna byggarframkvæmdanna. „Við tókum lán núna í lokin þegar við sáum end- anlega hvað við þurftum mikið, um 30-35% af byggingarkostnaðinum og við borgum það mjög hratt upp.“ Grunnhönnun hússins byggir á því að við- skiptavinurinn kemur inn á einum stað, hvort sem hann er að fara í sýningarsal fyrir nýja eða notaða bíla, verkstæði eða varahlutaverslun. „Þannig fáum við meiri straum inn í sýningarsal- inn og getum e.t.v. selt meira.“ Brimborg rekur sögu sín aftur til ársins 1964 er verkstæðið Ventill var stofnað. Það gerði í bytjun mikið við leigubíla og sérhæfði sig í ventlaviðgerðum og tók að sér viðgerðir á Toyota- bílum fyrir Toyotaumboðið. Arið 1975-1976 tek- ur Toyotaumboðið yfir Hðgerðaþjónustuna og varahlutina. „Þá urðum við að finna einhverja aðra starfsemi og fundum Daihatsu umboðið og stofnuðum Brimborg yfir innflutning og sölu á Daihatsu," segir Egill. Daihatsu er lítið merki á heimsvísu og var Brimborg annar umboðsmaður framleiðandans í EtTÓpu. Fyrsta árið seldust 63 bílar, 90 bílar næsta árið en þriðja árið, 1979, seldust 900 bílar. „Þá keyptum við stóran lager í Hollandi en salan hafði stoppað þar vegna olíu- kreppunnar. Síðan kom Charade á sama ári. Þessir bílar voru á mjög fínu verði og mokuðust út. Þetta setti stoðirnar undir fyrirtækið og síðan hefur þetta verið vaxandi." Stóra stökkið kom 1988 þegar Brimborg keypti Volvo. „Þá var góðærið búið að vera á undan 1986-1987. Síðan, eins og alltaf á ís- Iandi, hrundi allt nokkrum árum seinna. Þá voru menn búnir að byggja of mikla yfirbyggingu hjá mörgum umboðum og farið að hrikta í stoðun- um. Volvo menn höfðu samband við okkur og spurðu hvort við hefðum áhuga. Þetta var mjög stórt dæmi því á þeim tíma veltum við 500 millj- ónum árlega en Veltir 700 milljónum. Þeir voru auk þess með vörubíla, en við höfðum bara verið að selja smábíla. Enda fengum við að heyra það hjá vörubílaköllunum. En okkur tókst þetta samt. Við yfirtókum hrikalegar skuldir þegar við keyptum Volvo og það gekk ótrúlega vel að ná þeim niður. Við vorum rétt búnir að ná þeim nið- ur þegar við keyptum Ford í janúar 1995,“ segir Egill. Brimborg hefur lagt mikla vinnu í að ná Ford- inum upp en merkið var komið í mikla lægð. Ný kynslóð af bílum hefur hjálpað mikið til. „Þegar við keyptum Ford sáum við fram á að það tæki fimm ár alveg lágmark að komast yfir núllið mið- að við reynsluna af Volvo. Við erum á fimmta ár- inu núna þannig að okkur sýnist að þetta ár eigi að fara að sýna betri sölu. Það byijar a.m.k. mjög vel.“ Eins og kunnugt er var Brimborg að kynna tvo nýja bíla frá Ford á dögunum, annars vegar Ford Focus fjölskyldubílinn glæsilega og hins vegar sportbílinn Ford Puma. „I millitíðinni, árið 1996, keyptum Hð um- boðsmanninn okkar á Akureyri, Þórshamar. Við erum eina umboðið með okkar eigin fyrirtæki þar. Það hefur tekið sinn tíma að rífa það upp, breyta því öllu, bæta þjónustu, opna sýningarsal og þess háttar. Það er farið að skila sér núna í betri þjónustu og sölu. Við vorum að selja 10-15 bíla á ári áður en seldum um 70 bíla á ári und- anfarin tvö ár og förum yfir 100 bíla á þessu ári.“ Egill segir miklar sviptingar í bílabransanum, það sé aldrei að vita hvernær búið sé að kaupa umboðin af manni og þau farin eitthvað annað. „Þegar við keyptum Ford var merkið ekkert sér- staklega beysið og salan á Islandi frekar döpur. En þetta er einu sinni annar stærsti bílaframleið- andi í heimi og við veðjuðum á að Ford mundi rífa sig upp úr lægðinni. Það væri þá líklegra að þeir myndu kaupa einhverja aðra en einhverjir aðrir myndu kaupa þá. Daihatsu og Volvo eru báðir mjög litlir framleiðendur. Það er nákvæm- lega þetta sem hefur gengið eftir. Ford keypti Volvo - það hefði getað verið einhver annar sem keypti Volvo og Toyota er í raun búin að kaupa Daihatsu. Ford er að gera þetta mjög skemmtilega núna. Við höfum fundið frá 1995 hvernig fyrirtækið hefur verið að bæta sig, alþjóðavæða fyrirtækið, bæta þjónustuna og koma með betri bíla. En þeir eru grimmir hjá Ford, maður fær ekkert gef- ins hjá þeim.“ Brimborg er einnig með umboðið fyrir franska bílaframleiðandann Citroen en innflutningur hefur enginn verið undanfarin ár. „Við höfum þjónustað merkið allan tímann. Við jiöfum nokkrum sinnum haft samband við framleiðand- ann og sagt hvaða verð við þyrftum að fá til að geta farið af stað. Þeir hafa ekki ljáð máls á því fyrr en núna að það er komið annað hljóð í strokkinn. Það er í bígerð en ekkert ákveðið enn- þá. Mér þykir ólíklegt að það gerist eitthvað á þessu ári. Það verður ekkert auðvelt að starta því í þessari hrikalegu samkeppni. Þetta er ekkert eins og að eignast gullnámu að hafa bílaumboð, sérstaklega ekki bílaumboð sem hefur ekki átt upp á pallborðið áður. Það getur jafnvel verið þveröfugt, sogað til sfn fé.“ Netfang umsjónarmanns bílasíðu er: olgeirhelgi@isIandia.is í dag... Norðiæg átt, allhvöss siuman- og austanlands en heldur hægari annars staðar. É1 norðan- og austanlands, en skýjað með köflum annars staðar. Afram kalt í veðri. Blönduós Akureyri m a m ■ I ■ Mán Þri Mið Rm Fös / n í i. Egilsstaðir ■ ■■ II Þrl Mið Flm Fös Reykjavík £3 Þri Miö Flm Fös ■15 ! 5- ■10 ! 0- n í í r i \ Stykkishólmur 5(C) mm 0- u “ ■f* -rr ■ ® I IV. Mán Þri Miö Fim Fös m m i Lau Sun í í í Bolungarvík 5(C) mm 3- 5- 'WT- .. ... 1 ■ Mán Þri Mið Fim Fös úu st í ís.^ ^r t1 r/ Kirkjubæjarklaustur ,CC) mm o-.. ._.y 5- B Mán Þri Mið Fim Fös m ní///[ Lau Sun í r s Stórhöfði Mán Þri r -10 I 5- 5 ! 0- 0 |-5 < Fim Fös ítíl í . . W" / Mán Þrl Mið Fim Fös Lau r í í i [ i r r i v sr Veðurspárit 12.04.1999 Línurit: Lofthiti, spágildi fyrir miðnætti og hádegi. Súlurit: Úrkoma, uppsöfnuð i 12 klst. Vindörvar: Vindur blæs inn að punkti. Vindhraði er táknaður með skástrikum; heilt strik táknar 5 m/s en hálft 2.5 m/s. Þríhyrningur táknar 25 m/s. Dæmi: • táknar norðvestanátt, 7.5 m/s. Færð á vegtun í gærkvöld var skafrenningur á Holtavörðuheiði og Steingrímsfjarðarheiði. Á Norðurlandi, Norðausturlandi og Austurlandi var skafrenningur. Ófært var á Sandvikurheiði. Þæfingsfærð frá Raufarhöfn til Þórshafnar, sunnan Þórshafnar var þungfært. Að öðru leyti var allgóð vetrarfærð á aðaHeiöum landsins.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.