Dagur - 15.04.1999, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 15. apríl 1999
Verð ílausasölu 150 kr.
82. og 83. árgangur - 70. tölublað
Sprenging lána
og fasteignaverðs
Elstu in c ini inuiia
ekki eftir öðnun eins
fasteignaviðskiptum -
nema helst fyrir kosn-
ingar. Metárið í fyrra
verður slegið um 50
til 70% að líkindum.
Verðið hefur stigið
um 10-15% á skömm-
umtíma.
„Við höfum svo sannarlega orðið
vör við þessa sprengingu á hús-
næðismarkaðinum, sem hófst
um áramótin og hefur verið
stöðugt vaxandi. Elstu menn í
faginu muna vart eftir öðru eins,
nema helst fyrir stöku kosningar,
en þá ríkir gjarnan bjartsýni og
framkvæmdir aukast, ekki síst í
miklum hagvexti," segir Guðrún
Arnadóttir, formaður Félags fast-
eignasala, í samtali við Dag. Eins
og komið hefur fram í Degi hef-
ur umsóknum til íbúðalánasjóðs
fjölgað um nær 70% frá ársbyrj-
un í fyrra á sama tíma og tölu-
verð ásókn er í ný húsnæðislán
Landsbankans.
Guðrún segir að meðalverð á
íbúð hvað kaup á eldra húsnæði
varðar hafi hækkað frá áramót-
um um 10 til 15
prósent, en þá
megi reyndar ekki
gleyma því að fast-
eignaverð var fyrir
í botni öldudals.
„Nú ríkir endalaus
eftirspurn sem
ekkert hægir á.
Það má kannski
segja að nú sé að
koma fram upp-
safnað ástand, því góðærið kem-
ur síðast til okkar. Fyrst birtist
góðærið í aukinni sölu á neyslu-
vörum, utanlandsferðum, bílum,
húsgögnum og slíku, en hús-
næðisskiptin koma síðast. Inn í
þetta spila lækkandi vextir og
auðveldari aðgangur að lánsfé.
Stór Iiður í þessu eru síðan fólks-
flutningarnir af landsbyggðinni á
höfuðborgarsvæðið," segir Guð-
rún.
Stefnir í 10 þúsund
umsóknir
Þóranna Jónsdóttir, yfirmaður
gæða- og mark-
aðsmála íbúða-
lánasjóðs, segir
aðspurð að ekki
verði séð að mikil
aukning lána hafi
riðlað hefðbund-
inni skiptingu
lánanna, þar sem
um 80% eru
vegna kaupa á
eldra húsnæði,
um 15% vegna nýbygginga og
uppundir 5% vegna endurbóta.
„1998 var stærsta árið síðan
húsbréfakerfið tók til starfa, en á
því ári voru ríflega 6000 um-
sóknir afgreiddar. Ef svo heldur
fram sem horfir núna erum við
að horfa fram á 9-10 þúsund
umsóknir í ár,“ segir Þóranna, en
það þýðir aukningu á ársgrund-
velli frá einu metári til annars
um 50 til 70 prósent. Miðað við
að kjarnafjölskylda sé á bak við
hverja umsókn að meðaltali sam-
svarar þetta því að skjólstæðing-
ar íbúðalánasjóðs verði 35 til 40
þúsund manns í ár og bætist
Landsbankinn þar við. „Þetta er
mikill uppgangur á öllum sviðum
og verðið hefur farið uppúr öllu
valdi. Margt hjálpar þarna til,
meðal annars vaxtastigið í land-
inu, mikið fjármagn í umferð,
auðveldur aðgangur að lánsfé og
sú staðreynd að húsbréfin eru á
yfirverði," segir Þóranna. Að-
spurð um hvort hún gæti stað-
fest áætlun Guðrúnar Arnadótt-
ur, um stórhækkun íbúðaverðs
að undanförnu, sagði Þóranna
að þó að þessar upplýsingar séu
skráðar þá sé tölvukerfið, enn
sem komið er, ekki hannað til
þess að taka út slíka samanburð-
artölfræði. - FÞG
ingaframkvæmdir aukast.
Erfitt að sitja
aðgerðalaus
„í hjarta mínu er ég friðarsinni
og hef óbeit á allri valdbeitingu.
Eg veit hins vegar að þeir atburð-
ir sem hafa gerst á þessu svæði
eru skefjalaus grimmdarverk og
lýsa algjöru skeytingarleysi á
grundvallarreglum mannúðar,
það er erfitt að sitja undir þeim
án aðgerða," segir biskup ís-
lands, Karl Sigurbjörnsson, um
Ioftárásir NATO og aðrar aðgerð-
ir varnarbandalagsins á Balkan-
skaga.
Gagnrýni hefur komið fram á
afstöðuleysi kirkjunnar vegna
aðgerða í Kosovo. Þegar Dagur
spurði Karl í gær hvort hann
tæki afstöðu með eða gegn að-
gerðum NATO, sagði hann: „Eg
get ekki svarað þessu öðruvási en
svo að ég hef ekki forsendur til
að meta það en ég þakka guði
fyrir að vera ekki í sporum þeirra
sem þurfa að taka ákvarðanir um
þetta mál.“ - BÞ
-Sjá einnig viðbrögð á bls. 5
Krakkarnir í Melaskóla í Reykjavík voru síður en svo óhress með snjóinn í gær og brostu sínu breiðasta. í dag er
hins vegar spáð norðan- eða norðaustanátt og þótt ekki eigi að snjóa á Suðvesturhorninu mun víða verða snjó-
koma eða él.
Hvarf tíkurinnar Tínu vakti gríðar-
lega athygli á dögunum, en hún er
enn ekki komin fram. Aðstandend-
ur telja þó enn ekki tímabært að
telja hana af.
TíMnTína
eimekki
afskrifuð
Þótt liðinn sé einn og hálfur
mánuður frá því að tíkin Tína
sást síðast með berum augum í
Mosfellsbæ hafa eigendur og að-
dáendur tíkarinnar ekki afskrif-
að hana sem látna. Eigandi tík-
arinnar vill ekki að nafn sitt sé
gefið upp, að sögn Elvars Jó-
steinssonar, formanns Yorkshire-
Terrier deildar Hundaræktarfé-
lags Islands, vegna þess „fjöl-
miðlafárs sem varð“ og vegna
„áfallsins sem hún hefur orðið
fyrir“.
Elvar, sem jafnframt rekur
gæludýrabúðina Trítlu við Net-
hyl og hefur flutt inn þessa
hundategund, segir að eigandi
Tínu hafi fengið nóg af hinni
miklu fjölmiðlauppákomu sem
varð eftir að tíkin týndist. Ekki
síst vegna frétta af meintu verð-
mæti tíkarinnar, sem sagt var frá
500 þúsund upp í milljón, en
slíkar tölur segir Elvar vera
„bull“.
Aðspurður hvort ekki sé
ástæða til að telja tíkina koma
yfir móðuna miklu segir Elvar
svo ekki vera. „Hún sýndi frá
upphafi meiri hörku en nokkur
gat trúað, úr því hún komst yfir
fyrstu og erfiðustu dagana. Eig-
andinn og við öll höldum því enn
f vonina og erum ekki tilbúin til
að afskrifa Tínu.“
Aðspurður um efasemda- og
samsærisraddir um að Tína hafi
nokkurn tímann verið til og að
málið hafi frá upphafi verið aug-
Iýsingatrix til að selja þesa
hundategund tekur Elvar slíku
fjarri. „Slíkar efasemdir eru
ástæðulausar. Það eru til gögn
um það að hún kom hingað til
landsins í gegnum gæludýra-
stöðina í Hrísey og var búin að
vera hér í ár áður en hún týndist.
Hún var til,“ segir Elvar. - FÞG
Afgreiddir samdægurs
flkjb Venjulegirog demantsskomir trúlofunarhringar GULLSMIÐIR KjtSJI SIGTRYGGUR & PÉTUR %=*/ AKUREYRI ■ SÍMI 482 3524 woRwwœ expreís EITT NÚMER AÐ MUNA 5351100