Dagur - 15.04.1999, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 1S. APRÍL 1999 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Næsta föstudagskvöld,
allan laugardaginn og
sunnudaginn.
Ljúfen,
'gir mexikanskir réttir
Gestakokkur frá Amigos,
veitingastaðnum sem siær í gegn í Reykiavík
FORRETTUR
MUCHOS NACHOS
Heimabakaðar tortilla flögur með pinto
baunum, osti, ásamt salsa, pico de gallo,
salati, guacamole, sýrðum rjóma og jalapeno
piparsneiðum.
AÐALRETTUR
EL CORÞO COMBO
Fjórir af vinsælustu réttunum í Mexíkóskri
matargerð. Encluiada með kjúkling og
sýrður rjómi, chili relleno, taco með
nautakjöti og grillaður kjúklingur ásamt
mexíkóskum hrísgrjónum og pinto baunum.
EFTIRRETTUR
BANANA ÞHIMICHANCA
með súkkulaði og rjóma.
LINDIN
SOL
MEXIKANSKUR BIÓR
KR. 300,-
Lindin við Leiruveg • Sími 461 3008
Opið frá kl. I 1.00 til 22.00
HEIMURINN
PaMstanar prófa líka flugskeyti
PAKISTAN - í gær, þremur dögum eftir að Indveijar skutu upp með-
aldrægu flutskeyti í tilraunaskyni, gerðu Pakistanar slíkt hið sama.
Pakistanska flugskeytið dregur jafnlangt og hið indverska, eða 2300
kílómetra og bæði geta þau borið kjarnorkusprengju.
Þjódverjar leggja til málamiðlim
ÞÝSKALAND - Þýska ríkisstjórnin hefur komið með málamiðlunar-
tillögu til lausnar Kosovostríðinu, og hefur hún verið lögð fram hjá
Evrópusambandinu og Atlantshafsbandalaginu. Samkvæmt tillögun-
um, sem Joschka Fischer utanríkisráðherra Þýskalands hefur unnið
að, er gert ráð fyrir að alþjóðlegar eftirlitssveitir í Kosovohéraði verði
undir stjórn Sameinuðu þjóðanna en ekki Atlantshafsbandalagsins,
eins og upphaflega hugmyndin var. Serbar hafa þverneitað að fallast
á hersveitir undir stjórn NATO í Kosovo. Sömuleiðis er gert ráð fyr-
ir að serbneskar sveitir yfirgefi Kosovo, bæði sveitir júgóslavneska
hersins sem og vopnaðir hópar serbneskra þjóðernissinna.
Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna telur ekki fyrirsjáanlegt að
lát verði á flóttamannastraumnum frá Kosovo. Stofnunin telur að
a.m.k. 400.000 manns séu á flótta innan héraðsins.
Indverska stjómin missir meirihluta
INijLAND - Samsteypustjórnin á Indlandi hefur ekki lengur meiri-
hluta á þingi eftir að næststærsti stjórnarflokkurinn sagði sig úr sam-
starfinu. Jayaram Jayalalitha, leiðtogi AIADMK, tilkynnti ákvörðun
flokksins í gær og sagðist stefna á að leggja fram vantrauststillögu á
stjórnina í dag. Þó er engan veginn víst að sú tillaga verði samþykkt
og stjórnin verði að fara frá, þar eð fjölmargir litlir flokkar gætu veitt
stjórninni óbeinan stuðning í eiginhagsmunaskyni.
Kevorkian hlýtur laugan fangelsis-
dóm
BANDARÍKIN - Doktor Kevorkian, sem hlotið hefur viðurnefnið
„doktor dauði“ vegna þeirrar iðju sinnar að hjálpa fársjúku fólki við
að fremja sjálfsvíg, hefur verið dæmdur fyrir morð og þarf að dúsa í
fangelsi í 10 til 25 ár, verði dómnum ekki áfrýjað. Kevorkian, sem er
70 ára, var kærður eftir að mynd birtist af honum í bandarísku sjón-
varpi þar sem hann sést gefa manni lyf sem ollu hjartastoppi. Hann
sóttist sjálfur eftir að fá myndina birta í því skyni að þvinga dóms-
valdið til þess að fara með málið fyrir dómstól. Hann hefur að eigin
sögn „hjálpað" a.m.k. 130 manns að deyja.
iiin valdi ýmsum
breytingum á stjóm-
málalífi Malasíu.
Lögreglan í Kuala Lumpur, höf-
uðborg Malasíu, notaði í gær
táragas og vatnsþrýstibyssur á
mótmælendur, sem safnast
höfðu saman eftir að Anwar
Ibrahim, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Iandsins, var dæmdur í
sex ára fangelsi fyrir spillingu.
Búist er við að dómurinn geti
haft ýmsar breytingar í för með
sér á stjórnmálum í Malasíu.
Sjálfur sagði Anwar dóminn
vera hneisu og sakaði Mahathir
Mohamad forsætisráðherra um
pólitískar ofsóknir á hendur sér.
Hann sagðist þó ekki hissa á
dómsniðurstöðunni.
Dómari hæstaréttar landsins
komst að þeirri niðurstöðu að
Anwar væri sekur um öll ij'ögur
ákæruatriðin, sem öll varða spill-
ingarmál, en enn er eftir að fella
dóm í einu spillingarmáli í við-
bót ásamt fjórum ákærum fyrir
saurlifnað.
Anwar er 51 árs, en hann var
fjármálaráðherra Malasíu frá
1991-93 og síðan forsætisráð-
herra þar til í september á síð-
asta ári, en þá var hann sviptur
ráðherrastólnum vegna hneyksl-
Hópur manna safnaðist saman til að mótmæla dóminum í gær.
ismála sem þá komu upp. Var
hann sakaður um ýmis hneyksl-
ismál tengd kynlífi og kynferðis-
legri misnotkun. M.a. fullyrti
fyrrverandi bílstjóri Anwars að
hann hafi um langt skeið verið
„kynlífsþræir hans.
Anwar hefur stöðugt haldið
fram sakleysi sínu. Sömuleiðis
hefur hann sagt að hann hafi
aldrei reiknað með því að réttar-
höldin gætu orðið sanngjörn, þar
eð saksóknaraembætti, lögreglan
og dómsvaldið allt væru undir
forsætisráðherrann seld.
Joseph Estrada, forseti Filipps-
eyja, sagðist vera dapur vegna
þessarar dómsniðurstöðu, en
hann olli töluverðum usla í sam-
skiptum Malasíu og Filippseyja í
fyrra þegar hann lýsti yfir stuðn-
ingi við Anwar.
Lögfræðingar Anwars sögðust
myndu áfrýja dómnum. Margir
telja líklegt að fangavist Anwars
verði til þess að efla stjórnarand-
stöðu landsins, sem muni sam-
einast um að berjast fyrir því að
honum verði sleppt úr haldi.
Aðalfundur
Aðalfundur Almenna hlutabréfasjóðsins hf. verður
haldinn mánudaginn 26. apríl nk. í húsakynnum
Fjárvangs við Laugaveg 170 og hefst klukkan 17:00.
Dagskrá:
c : n
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvœmt 9. grein
samþykkta félagsins.
2. Breytingar á samþykktum félagsins.
3. Tillaga um heimild handa stjórn félagsins til kaupa
á hlutum ífélaginu skv. 55. gr. laga nr. 2/1995 um
hlutafélög.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
\________________________________J
Reikningar félagsins liggja frammi hjá Fjárvangi
hf. Laugavegi 170, en dagskrá fundarins og
endanlegar tillögur verða hluthöfum til sýnis viku
fyrir aðalfund. Fundargögn verða afhent á
fundarstað.
Almeruii hlutabréfasjóðurirm
Anwar dæmdur í
sex ára fangelsi
Líklegt er að dómur-