Dagur - 15.04.1999, Blaðsíða 7
TWa~_
ÞJÓÐMÁL
~ r - . - . « miTv ^
FIMMTUDAGUR 1S. APRÍL 1 999 - 7
Raimveruleg
fj ölskyldustema
GUÐRUN
ÖGMUNDS
DÓTTIR
félagsráðgjafi
skrífar
Á hátíðarstundum er gjarnan tal-
að um fjölskylduna sem hornstein
samfélagsins. Reyndin er hins
vegar sú að grunnur þessa horn-
steins er alls ekki nógu traustur.
Þrátt fyrir fögur orð er margt sem
betur má fara í fjölskyldumálum
hér á landi, ekki síst hvað varðar
ytri aðstæður fjölskyldunnar.
Raunveruleg og sýnileg fjöl-
skyldustefna er nauðsynleg og
það er ekki nægjanlegt að hampa
fjölskyldunni á hátíðarstundum.
Raunhæfar aðgerðir er það sem
þarf.
Ef litið er til hinna Norðurland-
anna, þá kemur Island verst út
hvað varðar það fjármagn vegna
stuðnings við börn og fjölskyldur.
Við Islendingar eignumst mun
fleiri börn en aðrir Norðurlanda-
búar, en þrátt fyrir það eru útgjöld
hins opinbera vegna barnafjöl-
skyldna lægst hér. Við höfum
styttra fæðingarorlof og lægri
greiðslur í fæðingarorlofi, lægri
barnabætur og meiri skerðingu
vegna þeirra tekna foreldra, svo
fátt eitt sé nefnt.
Aíiiám tckjutengingar
Island er eina landið á Norður-
Iöndunum sem hefur tekjutengd-
ar barnabætur, enda kom nýlega
fram í íjölmiðlum að þegar ríkis-
stjórnin fór að tekjutengja barna-
bætur sparaði íslenska ríkið
hvorki meira né minna en 2,2
milljarða króna. Þeir sem Ienda
hvað mest i þessum tekjutenging-
um eru ungt barnafólk sem hefur
þokkalegar tekjur, sem oft er aflað
með mikilli vinnu, en þetta unga
fólk hefur jafnframt mikla
greiðslubyrði. Þetta unga fjöl-
skyldufólk er að kaupa húsnæði,
borga af námslánum, greiða fyrir
dagvistun o.s.frv. Það hefur í raun
ekki svo mikið á milli handanna,
þrátt fyrir tekjurnar, eftir að
reikningarnir eru greiddir. Þetta
er sá hópur sem
lendir í vítahring
tekjutenginga.
Samfylkingin vill
afnema þessa
tekjutengingu til
þess að tryggja að-
stæður barna og
fjölskyldna þeirra.
Þetta er aðeins eitt
af því sem Sam-
fylkingin ætlar að
breyta í óréttlátu
bótakerfi samtím-
ans. Skerðing
barnabóta, vaxta-
bóta og greiðslna
frá Tryggingastofn-
un vegna tekna
þýðir að hér á landi
gildir í raun og
veru margra þrepa
skattkerfi. Skatt-
kerfi sem er hag-
stætt þeim tekju-
hæstu, en refsar millitekjufólki
sem reynir að auka tekjur sínar til
þess að geta greitt af húsnæðis-
og námslánum. Þessu þarf að
breyta.
Lengra fæðingarorlof
Það er fleira í hinu íslenska vel-
ferðarkerfi sem er andstætt
barnafjölskyldum. Hvergi á Norð-
urlöndum er fæðingarorlof styttra
en hér. Það lætur nærri að fæð-
ingarorlofið í Finnlandi, sem
kemst næst okkar að lengd, sé
tvöfalt lengra en okkar. Hér er
fæðingarorlofið 26 vikur, en í
Danmörku þar sem það er lengst
er orlofið 69 vikur eftir fæðingu
barns. Þessu verður líka að brey-
ta og það fyrr en seinna! Krafan er
því 12 mánaða fæðingarorlof sem
Foreldrar geti skipt á milli sín.
En það er ekki bara lengd fæð-
ingarorlofsins sem skiptir máli.
Nú er málum svo háttað hér á
landi að það eru aðeins konur í
opinberri þjónustu og nokkrum
öðrum stéttum sem halda fullum
launum í fæðingarorlofi. Aðrar
konur, því enn eru það nær ein-
göngu konur sem taka fæðingar-
orlof, fá fasta mánaðargreiðslu frá
Tryggingastofnun. Núna nemur
upphæðin um 72.265 kr. sem er
mun minna en meðallaun.
Tekjur flestra kvenna lækka því
töluvert þegar þær fara í fæðing-
arorlof. Séu þær £ sambúð þarf
maki þeirra því að vinna enn
meira en venjulega til þess að
mæta minnkandi tekjum, því að
ekki minnka útgjöldin þegar tjölg-
ar á heimilinu. Þegar fjölskyldan
þarf mest á því að halda að vera
saman, læra á nýja einstaklinginn
og njóta návista hvers annars,
neyðist faðirinn til þess að vinna
æ meira til þess að endar nái sam-
an.
Og guð hjálpi einstæðu móður-
inni sem allt í einu
hefur mun lægri
tekjur en venjulega
og hefur eiiga leið
til þess að afla við-
bótartekna.
Tryggjiun rétt
feðra
Einn af grundvöll-
unum að farsælli
fjölskyldustefnu er
jafnrétti karla og
kvenna og sameig-
inleg ábyrgð þeirra
á verkefnum fjöl-
skyldunnar. Vel-
ferð barnanna
byggir á því að for-
eldrar geti báðir
annast þau, borið
sameiginlega
ábyrgð á velferð
þeirra. Fjölgun
feðra sem taka
fæðingarorlof veitir bömum auk-
in tækifæri á samskiptum við feð-
ur sína og stuðlar að jafnrétti
kynjanna bæði innan veggja
heimilanna og á vinnumarkaði.
Allir stjórnmálaflokkarnir hafa
talað fyrir auknum rétti feðra til
fæðingarorlofs, en efndir stjórn-
arflokkanna hafa verið litlar. Nú
eiga feður rétt á tveggja vikna
fæðingarorlofi, auk þess sem þeir
geta tekið hluta af fæðingarorlofi
móður. Mismununin er sú sama
og hjá mæðrum að því Ieyti að
feður á almennum vinnumarkaði
fá mun lægri greiðslur en feður
sem vinna hjá opinberum aðilum,
enda taka þeir fyrrnefndu sjaldn-
ar fæðingarorlof.
Treystum uudirstöðiina
Samfylkingin hefur lagt fram
heildstæðar hugmyndir um leng-
ingu á fæðingarorlofi á fullum
launum £12 mánuði, þannig að
foreldrar geti skipt þvf með sér.
Jafnframt verði feðrum tryggður
sjálfstæður réttur til þriggja mán-
aða fæðingarorlofs, og að þeir geti
tekið allt að sex mánaða fæðing-
arorlof á móti sex mánaða orlofi
móður. Kostnaðinum verði mætt
með stofnun fæðingarorlofssjóðs
sem greitt verði £ af trygginga-
gjaldi.
Lengi býr að fyrstu gerð og þvf
vill Samfylkingin Ieggja sérstaka
áherslu á að treysta stöðu barna-
fjölskyldna. Við viljum hverfa frá
þeirri braut núverandi stjórnar-
flokka að hygla fjármagnseigcnd-
um og sérhagsmunahópum, en
beina þess £ stað kröftum okkar að
undirstöðu þjóðfélagsins, fjöl-
skyldunni.
Krafa dagsins £ dag er sú að fyr-
irtæki jafnt einkarekin sem opin-
ber hafi fjölskyldustefnu, sem
miðist að jafnri ábyrgð foreldra
gagnvart börnum sinum. Ef vilji
væri fyrir hendi, þá á rikið auðvit-
að að hafa forgöngu i slfkum mál-
um, en það hefur ekki gerst enn-
þá þvf miður. Stefna Samfylldng-
arinnar felur ekki í sér aukin út-
gjöld, heldur nýja forgangsröðun
og nýja hugsun. Við viljum breyta
áherslum og skapa manneskju-
legra og fjölskyiduvænna um-
hverfi, öllum til góðs, fáum við til
þess umboð kjósenda.
Kjósið Samfylkinguna 8. maí
nk.
Guðrún ski'par 4. sæti Samfylk-
ingarinnar í Reykjavtk.
„ísland er eina landið á Norðuriöndunum sem hefur tekjutengdar
barnabætur, enda kom nýlega fram í fjölmiðlum að þegar ríkisstjórnin
fór að tekjutengja barnabætur sparaði íslenska ríkið hvorki meira né
minna en 2,2 miljarða króna," segir Guðrún m.a. í grein sinni.
Framtíðin er okkar
PERCY B.
STEFÁNS-
SON
fv. formaður Sam-
takanna '78 og í 10.
sæti VG í Reykjavík
skrifar
Kosningar eru í nánd og umræð-
ur um landsmálin eru komnar í
gang. En byrjunin lofar ekki
góðu. Daufleg og hefðbundin
umræða gjörsneydd tilfinningum
og draumum um framtíðina er
það sem ég hef þurft að hlusta á.
Lengi hef ég óskað þess að eitt-
hvað nýtt og öðruvísi gerðist í
kosningabaráttunni. Að vottur af
hugsjón og framtíðarsýn Iíti dags-
ins Ijós. Að eitthvað eða einhver
kveikti Iöngun hjá mér til þess að
vera með. Að einhver talaði af til-
finningahita um málefni sem
snerta mig og aðra kjósendur.
Mér finnst lítið varið í stjórn-
málamenn sem flýja inn í hjúp
meðaltalsins. Og tala endalaust
við okkur um að allt sé svo gott
og vilja endalaust sannfæra okk-
ur um að við séum hamingjusöm
þjóð. Stjórnmálamenn sem vilja
ekki viðurkenna að stórir hópar
Islendinga misstu af „góðærinu11
eru utan við þennan meðaltals-
hóp. Meira að segja forsætisráð-
herra talar um öryrkja sem hafa
það að meðaltali gott. Það er lít-
ið rætt um hina. Þau okkar sem
ná ekki að vera á meðaltalslaun-
um og vera meðaltals heilbrigðir
íslendingar.
Eg á við þann hóp sem var fyr-
ir „góðæri“ á lágum launum. Or-
yrkja, atvinnulausa og alltof
marga aldraða með um 60.000
kr. eða jafnvel minni sporslur frá
því opinbera, sem nægir ekki
fyrir daglegu brauði hvað þá ein-
hverju skemmtilegu. Hópana,
sem eru fastir í endalausri fjöl-
skyldu- og tekjutengingarflækju
ríkisstofnana. Því enginn virðir í
dag einstaldinginn sem sjálfstæð-
an aðila, t.d. eru makar og börn
endalaust tengdir við afkomuþörf
hans sem einstaklings. Er Iausn
þessa hóps ef til vill sú, að Iáta
skrá sig á lóðsbát viðkomandi
heimahafnar og fá endurgreidd-
an virðisaukaskatt af „fatnaði"
auk sjómannaafsláttar?
I dag sýnist mér hamingja
alltof margra felast í ótæmandi
fjársjóðum hinna ótrúlegustu
lánastofnana - því að allir vilja
lána okkur pening. Og alls kon-
ar kort veltast um þjóðfélagið.
í dag sýnist mér ham-
ingja alltof margra
felast í ótæmandi
fjársjóðum hinna
ótrúlegustu lána-
stofnana - því að allir
vilja lána okkur
pening.
Kaupið í dag, greiðið á morgun
og vextir ná svo sem um 16% en
alls ekki meir.
Við vinnum of mikið því við
verðum að eiga allt. En einnig
vegna þess að á grunnkaupi fyrir
40 klst. vinnu er ekki hægt að
Iifa. Við byggjum endalaust sér-
dvalarstaði yfir börn og aldraða
m.a. vegna þess að fæstir hafa
tíma til að staldra við og njóta
dagsins í dag og tala saman. Við
erum sem sagt þjóð á miklum
hraða í leit að einhverjum lóttó-
vinningi, sem er alltaf rétt hinum
megin við hornið.
Ef þetta er framtíðarsýn og
hugsjón núverandi stjórnar-
flokka, fyrir mína hönd vil ég
ekki lengur leika með.
Ég vil ekki taka þátt í stríði en
ég er ekki spurður. En ég sé held-
ur ekki hvernig á að leysa það
mál. Bara ekki auga fyrir auga,
það er lausn þess sem engin úr-
ræði á eftir. Er gjaldþrota og ger-
ir bara eins og hinir. Allt í einu er
ég orðinn herstöðvarandstæðing-
ur. Eg vil herinn burt. Og hvað
erum við að gera f varnarbanda-
lagi, sem er orðið að heimslög-
reglu?
Ég vil setja einstaklinginn í fyr-
irrúm. Miða líf hans út frá hon-
um sjálfum og tryggja jafnan rétt
allra til mannsæmandi lífs. Ég vil
brjótast út úr þessu innantóma
tali um tölur og misskiptu góð-
æri. Ég vil réttláta tekjuskiptingu
og að aðstæður landsmanna
verði sem jafnastar óháð búsetu
og félagslegri stöðu.
Ég vil líf í reisn og öryggi og
það án tillits til kynferðis, aldurs
eða örorku. Ég vil að lesbfur og
hommar hafi sömu mannréttindi
og aðrir í þessu samfélagi.
Og ég vil heyra hjartað slá í
stjórnmálaumræðunni, skynja
tilfinningahita og heyra um
drauma og þrár.
Og mér er ljóst að ég vil kjósa
Vinstrihreyfinguna grænt fram-
boð. Þar slær hjartað og þar á
bæ vill fólk sjá drauma sína og
hugsjónir rætast. Gott fólk valið
virðist auðvelt. Beygjum til
vinstri á grænu og kjósum
Vinstrihreyfinguna grænt fram-
boð fyrir framtíðina.