Dagur - 15.04.1999, Blaðsíða 9

Dagur - 15.04.1999, Blaðsíða 9
8- FIMMTVDAGVR 1S. APRÍL 1999 T>gpu- FIMMTUDAGUR 1S. APRÍL 1999 - 9 FRÉTTASKÝRING Tkyftr Andstætt venju tengist stjómmálabaráttan á Vestfjörðum nú fremur byggðamálum og sam- göngumálum en sjávar- útvegsmálum. Benda má á að um 600 útlend- ingar starfa í fisk- vinnslu á Vestíjörðum og stærstur hluti þeirra er ekki á kjörskrá. íbúatala Vestfjarða var 8.590 manns 1. desember sl. og hafði fækkað um 858 frá 1. desember 1994, en þá voru þeir 9.448. íbú- ar á Vestfjörðum 18 ára og eldri voru 6.051 þann 1. desember 1998 og hafði þá fækkað um 362 frá 1. desember 1994. Þessa þró- un telja margir vera geigvænlega. Kosið er um 5 þingmenn á Vest- fjörðum. 1 kosningunum 1995 fengu flokkarnir sem standa að Samfylkingunni 1.899 atkvæði eða 34,6% og 2 þingmenn, Sjálf- stæðisflokkurinn 1.787 atkvæði eða 32,5% og 2 þingmenn og Framsóknarflokkurinn fékk 1.086 atkvæði eða 19,8% og einn þing- mann. Vestfjarðalistinn með Pétur Bjamason í fararbroddi fékk 717 atkvæði eða 13,1 % og var nærri því að koma að manni. Þá fékk fram- boð Péturs nokkum meðbyr þar sem margir töldu að forysta Fram- sóknarflokksins hefði stillt upp Gunnlaugi Sigmundssyni í 1. sæti B-lista og það vildu margir fram- sóknarmenn á Vestfjörðum ekki sætta sig við. Þessi skoðun hefur enn fengið byr undir báða vængi þar sem er skipan Kristins Gunnarssonar í 1. sæti B-lista, og telja sumir að skoðanir Kristins séu nokkuð til vinstri við Framsóknarflokkinn, enda fyrrum alþýðubandalagsmað- ur. Pétur Bjarnason skipar 2. sæt- ið á lista Ftjálslynda flokksins, en ekki er talið að „samúðarfylgi" fylgi honum þangað né dugi efsta manninum, Guðjóni Amari Krist- jánssyni, sem tapaði keppni um 3. sætið á lista sjálfstæðismanna í kjördæminu. Guðjón Amar er þó talinn eiga nokkuð fylgi meðal vestfirskra sjómanna. Þó er talið að eina von Ftjálslynda flokksins til að ná kjördæmakjörnum þing- manni sé á Vestfjörðum, fjöregg hans sé þar. Magnús Reynir Guð- mundsson, fyrrum varaþingmaður Framsóknarflokksins, sem tapaði kapphlaupinu um 1. sæti B-lista við Kristin Gunnarsson, sagði ný- verið að framboð Frjálslynda flokksins væri mjög álitlegur kost- ur og gott innlegg í pólitíkina á Vestfjörðum. Magnús Reynir segir gríðarlega óánægju ríkjandi í kjör- dæminu og það mundi nýtast Frjálslynda flokknum vel. Ekki vildi Magnús Reynir þó lýsa yfir fylgi við F-listann fremur en B-list- ann, sagðist vilja sjá hverju fram vindur í kosningabaráttunni, sem væri varla komin af stað þrátt fyrir að aðeins væru liðlega 3 vikur til kjördags. Byggðamál Andstætt venju tengist stjórnmála- baráttan á Vestfjörðum nú fremur byggðamálum og samgöngumálum en sjávarútvegsmálum. Benda má á að um 600 útlendingar starfa í fiskvinnslu á Vestfjörðum og stærstur hluti þeirra er ekki á kjör- skrá. Baráttan gegn fólksflótta úr kjördæminu byggist ekki síst á aukinni menntun í kjördæminu og auknum atvinnumöguleikum menntaðs fólks og þar er fjar- menntun i tengslum við Háskól- ann á Akureyri talin hafa mikil áhrif, þar sem ekki geti allir tekið sig upp með fjölskyldu til að sækja nám. Menntamálunum tengist einnig einsetning grunnskóla og að hlutfall kennara við skólana aukist, en óvíða er hlutfall leið- beinenda jafn hátt og á Vestfjörð- um. Lífeyrismál aldraðra munu einnig fá nokkuð rými, en margir úr þeirra hópi hafa sagt að þeir muni kjósa þá frambjóðendur sem bjóði þeim bestu trygginguna á ævikvöldinu. Utanríkismál, Evr- ópumál og skattamál verða mun minna í umræðunni á Vestfjörðum en t.d. í Reykjavíkur- eða Reykja- neskjördæmum enda eðlilegt þar sem umræðan snýst um það að viðhalda byggð og skapa fjölbreytt- ara atvinnulíf. Kvóti þarf að vera óframseljanlegur Sighvatur Björgvinsson, efsti mað- ur á lista Samfylkingar, segir að áherslurnar verði aðrar á Vest- fjörðum en í öðrum kjördæmum. Byggðamál og kvótamál hafi mesta þýðingu fyrir íbúana og hvað eigi að gera í málefnum þeirra byggð- arlaga sem misst hafi í burtu mest- allan sinn kvóta, eins og t.d. hafi gerst í Bolungarvík. „Þetta er miklu meira en vamar- barátta, þetta er barátta um tilveru vegna þess að ef ekki er hér sjávar- útvegur þá er hér ekkert. Onnur mál munu verða í skugganum, eins og t.d. Evrópumál. Við Djúp voru öflugustu sjávarútvegsfyrir- tæki landsins en nú er tíðin önnur. Vestfirðingar hafa aldrei stutt þetta kvótakerfi og það má að ein- hveiju leyti liggja þeim á hálsi fyr- ir að hafa ekki aðlagað sig að stjórnkerfinu, en það er svo fjarri þeim hugsanahætti sem hér hefur rfkt í nábýli við auðugustu þorsk- mið landsins. Það er fjarri vest- firskum hugsanahætti að ekki megi fara og draga fisk úr sjó nema samkvæmt boði. Undirstaða sjáv- arútvegsins hér hefur verið þorsk- og rækjuveiði en ekki loðna eða síld, enda Iiggja Vestfirðir ekki vel við slíkum veiðiskap. Það er ekki nóg að kvóti sé bundinn við byggð- arlög, það hafa Vestfirðingar lært af biturri reynslu, því kvóta er út- hlutað á skip og það er hægur vandi að Ieigja hann burtu. Það sama gildir um jöfnunarkvóta, sem á að standa undir atvinnulífi í byggðarlagi. Ég vil ekki sjá í því geðþóttaákvörðun sveitarstjórnar- manna við úthlutun og tryggja þarf að fiskinum sé Iandað á viðkom- andi stað og hann nýttur þar. Kvót- inn þarf líka að vera óframseljan- legur þannig að ekki verði hægt að gera eins og á Bíldudal þar sem jöfnunarkvóti var seldur í annað byggðarlag. Ég vil líka að sveitarfé- lögin njóti einhvers hluta tekn- anna sem út úr honum fæst. Fjórir af fimm þingmönnum eru kjördæmakjörnir en fimmta þing- sætið er jöfnunarsæti sem er þó bundið kjördæminu. Það sæti fell- ur aðeins til okkar í Samfylking- unni eða til Sjálfstæðisflokksins, og ég tel að Samfylkingin standi því nær. Við fáum þá tvo þing- menn, Sjálfstæðisflokkur tvo og Framsókn einn,“ segir Sighvatur Björgvinsson. Auka þarf árangur í fískvinnslu Kristinn H. Gunnarsson, efsti maður á lista Framsóknarflokks, telur að kosningarnar muni snúast um byggðamál en sjávarútvegsmál fái þó töluvert vægi. Verið sé að leita leiða í framsókn og snúa ríkj- andi óheillaþróun í byggðamálum við, og það gerist kannski ekki hratt. „Stjórnvöld eru meðvitaðri en áður um þetta vandamál og tilbún- ari að grípa til aðgerða. Byggða- stofnun gegnir lykilhlutverki í því að kanna orsakirnar og hefur þar notið aðstoðar Háskóla Islands og Háskólans á Akureyri. Deila má um það hvort aðgerðirnar eru nægjanlega afgerandi. Fólksfækk- un á Vestfjörðum endurspeglar stöðu fiskvinnslunnar, væri hún kröftug værum við að horfa á ann- að ástand. Kjörin í fiskvinnslunni eru það lág að Islendingar leita annað þrátt fyrir að aðbúnaður hafi batnað og þvi eru svo margir útlendingar hér við þessi störf og raun ber vitni. Ekki hefur náðst eins góður árangur í fiskvinnsl- unni og í mörgum öðrum atvinnu- greinum, en þingmenn bera ekki ábyrgð á rekstri fiskvinnslufyrir- tækjanna en þingmenn geta haft þar áhrif. Það er almenn lína í þjóðfélaginu í dag að þingmenn hafi sem minnst afskipti af at- vinnulífinu. Við framsóknarmenn stefnum að því að fá tvo menn kjöma og þar með endurheimta fyrri styrk flokksins í kjördæminu. Síðan fengi Sjálfstæðisflokkur tvo menn og Samfylkingin einn mann. Fijálslyndir höfða stíft til sjálf- stæðismanna og fá varla mann,“ segir Kristinn H. Gunnarsson. Mikill áhugi á mótun landbúnaðarstefnu Einar Kristinn Guðfinnsson, efsti maður á lista Sjálfstæðisflokks á Vestfjörðum, segir það ekki lausn- arorðið í atvinnumálum lands- byggðarinnar að flytja fyrirtæki úr þéttbýlinu út á land. Það beri hins vegar að leggja áherslu á að skapa fyrirtækjum á landsbyggðinni nægilega góð rekstrarskilyrði til að þau gætu þrifist og dafnað. „Höfuðviðfangsefnið hér á Vest- fjörðum verða byggðamál í breið- um skilningi þess orðs, en ég verð mjög var við það að áhugi fólks á því sem ríkisstjórnin er að gera við mörkun og mótun nýrrar byggða- stefnu er mjög mikill enda er verið að taka þessi mál öðrum tökum en verið hefur. Það er hins vegar ekk- ert nýtt að sjávarútvegsmálin verði mjög stór þáttur í stjórnmálaum- ræðunni. Hyggja þarf að ýmsum fleiri þáttum og t.d. skín í gegn í umræðunni mikill áhugi fólks á menntamálum, endurmenntun og símenntun og hvernig hægt er að standa sem best að menntun barn- anna og hvernig verður siðan hægt að bjóða þessu fólki störf á Vest- fjörðum að loknu langskólanámi. Tengsl við Háskólann á Akureyri og möguleikar á fjarnámi hafa stuðlað að því að fleiri fá tækifæri enda er alltaf hætta á því að þeir sem halda burtu til náms komi ekki aftur. Einnig þarf að hyggja að öðrum atvinnugreinum og hér er ríkjandi mikill áhugi á mótun landbúnaðarstefnu sem skiptir margar vestfirskar byggðir máli. Vestfirðingar leggja mikla áherslu á að sérstaða landbúnaðarins í kjördæminu er sú að hún fer fram á svæðum þar sem hvergi er ofbeit og mjög vel fallin til sauðfjárrækt- ar. Hana þarf að auka en hér þarf einnig að viðhalda mjólkurfram- leiðslu þó hún hafi verið á undan- haldi. Við sjálfstæðismenn viljum Iíka hyggja að nýsköpun í atvinnu- lífinu og það eru hér fyrirtæki sem hafa vakið athygli á því sviði, eins og t.d. Póls og 3xStáI. Evrópumál og utanríkismál eru ekki mjög of- arlega í sinni Vestfirðinga en hins vegar. er mönnum Ijóst efnahags- legt samhengi hlutanna, þ.e. ef ekki er staðið vel að uppbyggingu Úrslit 1995 Alþýðuflokkur 13,7%-lmann Framsóknarfl. 19,8%-lmann Sjálfstæðisfl. 32,5% - 2 menn Álþýðubandal. 11,9%- 1 mann Þjóðvaki 3,3% Vestfjarðalistinn 13,1% Kvennalisti 5,7% efnahagslífins þá er allt atvinnulíf í hættu. Ég óttast útgjaldakröfu- stefnu Samfylkingarinnar, sem gæti stefnt stöðugleikanum í voða. Hér er horft með vonaraugum til þeirra miklu áfanga sem eru framundan í vegamálum Vest- fjarða, sem eru tií þess fallnir að ijúfa vetrareinangrun og bæta bú- setuskilyrði bæði íbúa og fyrir- tækja, m.a. með lækkandi vöru- verði. Lækkandi orkuverð hefur einnig áhrif á það að tryggja byggð á Vestfjörðum. Markmið okkar sjálfstæðis- manna er að hér verði áfram tveir kjördæmakjörnir þingmenn en fimmta sætið er fullkominn vonar- peningur sem ómögulegt er að segja til um hvar lendir og því vilj- um við tryggja tvo kjördæmakjörna menn. Ætli Framsókn og Samfylk- ing fái ekki sitt hvorn manninn," segir Einar Kristinn Guðfinnsson. Barátta um að viðhalda byggð Lilja Rafney Magnúsdóttir, efsti maður á lista Vinstrihreyfingarinn- ar - græns framboðs, telur að kosn- ingabaráttan muni snúast um að halda byggð á Vestfjörðum. Það verði að gera með því að treysta atvinnu og byggðatengja fiskveiði- stjórnunarkerfið og breyta undir- stöðu sjávarútvegsins, sem alls ekki sé ásættanleg í dag. „Þetta er ekki bara varnarbarátta heldur einnig sókn til þess að við missum ekki þetta unga fólk f burtu sem er að vaxa úr grasi og mun sækja sér menntun. Við verðum að fá það sem flest til baka til að vinna að uppbyggingu á svæðinu. Það er hrikalegt ef stór hluti ungs fólks milli tvítugs og þrítugs flytur burtu á næstu fimm árum. Vestfirðingar þurfa að geta framfleitt sér af und- irstöðuatvinnugreinunum. Vestfirð- ingar eru mjög meðvitaðir um utan- ríkismál og málefni efnahagsbanda- laga og hvernig þau spila saman. Valdið er að færast stöðugt meira frá landsbyggðinni til Reykjavíkur en það má ekki gerast að það færist úr landi til Evrópusambandsins, það væri framsal á fullveldinu. Nógu langt frá okkur Vestfirðingum er valdið komið í dag en færa þyrfti verkefni heim í hérað eins og kost- ur er. Það þarf að bjóða upp á sí- menntun heima í héraði og auka möguleika á fjarmenntun. Samstarf við Háskólann á Akureyri er aðeins byijunin. Við teljum okkur hafa möguleika að ná jöfnunarþingmanninum en erum ekki svo brött að álíta að við náum kjördæmakjörnum þing- manni. Það er mikið umrót hér á Vestfjörðum og margir eru óá- kveðnir. Sjálfstæðisflokkur heldur sínum tveimur þingmönnum og kratarnir og framsókn fá einn hvor,“ segir Lilja Rafney Magnús- dóttir. Fiskveiðiun verði sóknarstýrt Guðjón Arnar Kristjánsson, efsti maður á framboðslista Frjálynda flokksins, segir að kosningabarátt- an á Vestfjörðum muni og eigi að snúast um sjávarútvegsstefnu þjóð- arinnar og byggðamál. Þetta sé varnarbarátta vegna þéss að fólki hafi verið áð fækka alveg geigvæn- Iega á Veslfjörðum. „Sé ékki hægt að hafa meiri festu í stjórnkerfinu og meira fijálsræði til þess að stunda sjóinn þá mun ganga á rétt fólksins því byggðirnar hér á Vestfjörðum urðu til vegna sjósóknar. Ef ekki er hægt að hafa lifibrauð af sjónum þá er þetta allt í voða, því miður. Utgerð og fisk- vinnsla er undirstaðan sem verður að treysta og efla. Ég hugsa veið- arnar ekki endilega í kvóta heldur að veiðunum sé sóknarstýrt og við komumst út úr kvótabraskinu. Það er engin framtíð í því að geta selt gefnar veiðiheimildir úr byggð, hvort sem um togara- eða smábata- útgerð er að ræða. Byggðamálin tengjast þessu öllu, s.s. sjávarút- vegi, samgöngum og Iandbúnaðar- stefnunni en hér er t.d. ekki eitt einasta sláturhús starfandi nema í Strandasýslu. Ef við höfum ekki kjarna að byggja á þýðir ekki að byggja hér upp t.d. ferðaþjónustu. Ég er bjartsýnn á að við náum hér inn manni, en það er barist hart á móti okkur. Ég er hins vegar ekki spámannlega vaxinn, enda svo margt óljóst um úrslit. Kristinn fór t.d. úr Alþýðubandalaginu yfir í Framsókn og enginn veit hvað hann tekur með sér, ef eitthvað. Það er mikil óánægja ríkjandi innan Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks og það er ekkert flug á Samfylking- unni. Ég geri ráð fyrir að fá eitthvað fylgi frá Sjálfstæðisflokknum," seg- ir Guðjón Arnar Kristjánsson. EIli-, örorku- og atviimuleysis- bætur verði 90 þúsund krónur Stefán Bjargmundsson skipar efsta sæti Húmanistaflokksins. Hann segir að Húmanistaflokkurinn leggi höfuðáherslu á að afnema fátækt- ina, en einnig verði umræðan um sjávarútveg sterk. Fólkið sem hafi lífsviðurværi sitt af sjósókn og fisk- vinnslu verði að vera með í ráðum og fá aðild að ákvarðanatöku um breytingar og nýjar tillögur, jafnvel í þjóðaratkvæðagreiðslu. „Við höfum Iagt fram tillögur um 90 þúsund króna elli- og örorku- laun auk atvinnuleysisbóta. Besta leiðin til að tryggja það er að sam- eina alla landsmenn í einn gegn- umstreymislífeyrissjóð sem í rynnu þeir 30 milljarðar króna sem nú renna í lífeyrissjóðakerfið auk þeirra 16 milljarða króna sem Tryggingastofnunin greiðir í bætur í dag. 46 milljarðar tryggja öllum 90 þúsund króna bætur. Þetta eitt og sér er ekki nægjanlegt til að stöðva fólksflóttann frá Vestfjörðum því fólkið velur sér búsetu eftir því hvar því líður vel, en í dag hefur fólk lít- ið um sitt umhverfi að segja. Ef okkar tillögur ná fram að ganga fær fólkið að ráða sínu umhverfi. Von- andi verður þetta orðið stefna í byijun næstu aldar. Ég hvorki vil né get sagt um kosningaúrslit því Vestfirðingar eru alls óhræddir að skipta um skoðun ef þeir sjá hag sínum betur borgið í því að kjósa annan flokk en þeir hafa gert að undanförnu. Ég tel að við eigum möguleika á Vestfjörð- um,“ segir Stefán Bjargmundsson. Hvemigfara þ ingkosningamar? Gunhlaugur Finnsson bóndi „Það eru svo margir óvissu- þættir nú sem erfitt er að sjá fyrir hvaða áhrif hafa á lokanið- urstöðuna. Þannig er ég jafnvel í óvissu um hvernig ég nýti mitt atkvæði að þessu sinni. Ég held þó að Frjálslyndir nái inn manni og Framsókn, Sjálfstæðis- flokkur og Samfylking fái einn mann en uppbótarsætið kemur í hlut Sjálfstæðisflokks eða Sam- fylkingar." Bryndís Friðgeirsdóttir framkvæmdastjóri „Það hefur aldrei verið erf- iðara að spá í stöðuna. Ég gæti trúað að Samfylkingin fengi tvo menn vegna þess að þar er nýtt afl á ferðinni en Sjálf- stæðisflokkurinn fengi einnig tvo menn. Fimmta manninn fær Framsókn væntanlega. Frjáls- Iyndir koma ekki að manni vegna þess að þeir eru ekki með annan hvorn bróðurinn úr Ogurvíkinni, Halldór eða Sverri, á listanum en Frjálslyndir verða kannski ekki svo fjarri því að ná manni.“ Þór Öm Jónsson sveitarstjóri „Það getur orðið mikil sveifla í þessu kjördæmi. I síðustu kosn- ingum fékk Vestfjarðalistinn yfir 700 atkvæði og það munaði litlu að hann kæmi að manni. Kristinn Gunnarsson hefur farið úr Alþýðubandalaginu yfir i Framsóknarflokkinn og þetta tvennt kann að hafa áhrif. Þetta verða tveir sjálfstæðismenn, einn framsóknarmaður og einn frá Samfylkingunni en það er ómögulegt að segja til um það hver hreppir fimmta manninn." Ágúst Gíslason Juisasmíðameistari „Ég er svo lítið pólitískur en ég held að Sjálf- stæðisflokkur- inn haldi sínum tveimur körlum þó þeir hafi ekki farið í prófkjör. alveg að meta Framsóknarflokkinn eftir að Kristinn kom þar inn en ég held að flokkurinn hefði bætt við sig manni ef Kristinn væri ekki í efsta sætinu, þó þetta sé dugleg- asti þingmaðurinn. Þetta er ekki nógu hreinræktað fyrir suma. Framsókn fær einn og Samfylk- ing tvo en Addi kemst ekki að þó hér sé mikill hiti vegna kvótans.“ Konráð Eggertsson „Stóra spurn- ingin er hvað Samfylkingin fær. Annars verður þetta lík- lega sama ruglið áfram, ekki síst ef þeir ætla að koma með byggðakvóta og efna til slagsmála milli húsa í þorpun- um og fleiri flutningabíla til að flytja fiskinn suður. Það vill eng- inn banna framsal, og þá skiptir engu hver fer á þing.“ sjómaður Framsóknarílokkur 1. Kristinn H. Gunnarsson, alþingismaður, Bolungamk. 2. Olöf Guðný Valdimarsdóttir, arkitekt, Reykjavík. 3. Björgmundur Orn Guðmundsson, tækniskólanemi, Onundar- firði. 4. Anna Jensdóttir, umboðsmaður, Patreksfirði. 5. Svava Friðgeirsdóttir, bókasafnsfræðingur, Drangsnesi. Frjálslyndi ílokkuriim 1. Guðjón Arnar Kristjánsson, form. Farm. og fiskim.samb. ísa- firði 2. Pétur Bjarnason, fræðslustjóri Isafirði 3. Bergljót Halldórsdóttir, kennari ísafirði 4. Asthildur Cesil Þórðardóttir, garðyrkjustjóri Isafirði 5. Kristján Freyr Halldórsson, nemi Isafirði Húuianistaflokkuriim 1. Stefán Bjargmundsson, tollvörður 2. Olafur Þór Einarsson, beítningamaður 3. Þór Orn Víkingsson, nemj 4. Hrannar Jónsson, forritari 5. Halldór Amar Ulfarsson, stuðningsfulltrúi SamfyDdngin 1. Sighvatur Björgvinsson, alþingismaður 2. Karl V. Matthíasson, sóknarprestur Grundarfirði 3. Sigríður Ragnarsdóttir, skólastjóri Isafirði 4. Guðbrandur Stígur Agústsson, skólastjóri Patreksfirði 5. Arnlín Óladóttir vistfræðingur Bjarnarfirði Sj álfstæóisílokkur 1. Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður Bolungarvík 2. Einar Oddur Kristjánsson, alþingismaður Flateyri 3. Ragnheiður Hákonardóttir, forseti bæjarstj. Isafirði 4. Þórólfur Halldórsson, sýslumaður Patreksfirði 5. Eyrún Sigurþórsdóttir, húsfrú Tálknafirði Vinstri hreyfmgin - grænt framboð 1. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaforseti ASV Suðureyri 2. Gunnar Sigurðsson, vélsmiður Bolungarvík 3. Eva Sigurbjörnsdóttir, hótelstjóri Djúpuvík 4. Eiríkur Örn Norðdahl, nemi Isafirði 5. Indriði Aðalsteinsson, bóndi Hólmavík Árnað heilla Á morgun föstudaginn 16. apríl er Helgi Sigfússon, í Hrísey 50 ára. Hann og fjölskylda hans bjóða ættingjum og vinum til fagnaðar í húsi Frímúrara það kvöld kl. 20.30. Aukablað Miðvikudaginn 21. apríl nk. gefur Dagur út 16 síðna aukablað um Akureyri. Blaðinu, ásamt Degi, verður dreift inn á hvert heimili á Akureyri og auk þess til áskrifenda um land allt. í blaðinu fjöllum við um bæjarmál á Akureyri, spyrjum hvað stjórnmálamenn ætla að gera fyrir Akureyringa og skoðum ýmsa anga mann- lífsins í bænum. Við skoðum sögu Andrésar Andarleikanna og verðum í sumarskapi. Auglýsingapantanir í blaðið þurfa að berast fyrir kl. 12 föstudaginn 16. apríl nk. Símar auglýsingadeildar eru 460-6191 og 460-6192. ]

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.