Dagur - 16.04.1999, Side 9
FÖSTUDAG UR 16. APRÍL 1999 - 25
X^HT
LÍFIÐ í LANDINU
Hvert ertu farinn,
Joe Di Maggio?
Joe Di Maggio,frægasti
homaboltaleikari aldarinnar,
léstJyrir nokkrum vikum og
varþá fyrirlöngu orðinn
þjóðhetja í Bandaríkjunum.
Joe Di Maggio fæddist árið 1914, sonur
ítalskra innflytjenda. Faðir hans,
Guiseppe, var fiskimaður frá Sikiley sem
eignaðist níu börn með konu sinni. Hjón-
in bjuggu við San Fransisco flóann þar
sem Guisppe stundaði fiskveiðar. Hann
vildi að synir sfnir gerðust fiskimenn og
tveir þeir elstu gerðu einmitt það. Sá
þriðji í röðinni, Vincent, \ildi syngja.
Hann þótti svo efnilegur söngmaður að
bankastjóri nokkur bauðst til að senda
hann í söngnám til Italíu. Efnalítil fjöl-
skylda hikaði við að taka boðinu og
Vincent fór aldrei. Joe aðstoðaði föður
sinn við fiskveiðar en honum leiddist
starfið og fannst skemmtilegra að leika
hornabolta. Þegar faðir hans gafst upp á
að nýta krafta Joes við fiskveiðar fór hann
að selja dagblöð. Faðir hans, sem taldi
son sinn latan, sagði að Ioks hefði hann
fundið starf við sitt hæfi enda fælist það
aðallega í því að standa kyrr og hrópa.
Sigurganga
Það var bróðir Joes, Vince, sem sagði
honum að hann væri sennilega nægilega
góður í hornabolta til að geta unnið fyrir
sér í íþróttinni. Arið 1936 gekk hann til
liðs við New York Yankees. A næstu tíu
árum vann liðið níu sinnum meistaratitil,
mest vegna hans tilstillis. Arið 1941
komst hann 56 sinnum í fyrstu höfn og
það met hans hefur ekki enn verið slegið.
Sama ár hljóðritaði hljómsveit Les Brown
lag um Di Maggio, Joltin’ Joe Di Maggio,
sem komst í tólfta sæti bandaríska vin-
sældalistans. Aratugum síðar minntust
Simon og Garfunkel hans í einu vin-
sælasta Iagi sínu, Mrs. Robinson með
orðunum: „Hvert ertu farinn Joe Di
Maggio...?“
Ferill Di Maggio var samfelld sigur-
ganga allt þar til hann dró sig í hlé árið
1951, þá orðinn þjóðhetja. Di Maggio
varð vellauðugur og keypti hús handa for-
eldrum sínum og systkinum. Fjölskyldan
stofnaði síðan veitingastað sem
hét í höf-
uð Joe Di
Maggio
°g
Guiseppe
gaf fisk-
veiðar upp
á bátinn
til að
verða mat-
reiðslu-
meistari.
Stóra ást-
in
Árið 1939
giftist Joe
kvikmynda-
leikkonunni
Dorothy
Arnold.
30.000
manns stóðu
fyrir utan kirkjuna til að fylgjast með
brúðhjónunum. Sumir klifruðu upp í tré
eða stóðu uppi á húsþökum til að sjá
brúðhjónin yfirgefa kirkjuna. Hjónaband-
inu lauk með skilnaði árið 1944. Hjónin
eignuðust einn son, Joe III, en feðgarnir
töluðust ekki við árum saman og di
Maggio lést án þess að þeir sættust. Di
hins vegar ástríkt samband
Di Maggio ásamt fyrri eiginkonujm
Joe Di Maggio við leikvöllinn, þar sem hann
vann sína frægustu sigra.
var
var
við sonardætur sínar og börn þeirra.
Joe Di Maggio giftist kvikmyndadísinni
Marilyn Monroe árið 1954. Þau bjuggu
skammt frá foreldrum Joe Di Maggio í
San Fransisco og lifðu
eins og ofur
venjuleg
hjón. Fljót-
lega fór þó
að bera á
ágreiningi.
Monroe
sagði Di
Maggio
vera mis-
lyndan
mann sem,
þegar hún
spyrði
hann hvað
amaði að,
hefði
hvæst:
„Láttu
mig í
friði."
Di
Maggio
þreyttur á sviðsljósinu en Monroe
rísandi stjarna og naut þess. Þegar Mon-
roe skemmti 10.000 hermönnum í Kóreu
og var gífurlega vel fagnað sneri hún sér
að Di Maggio og sagði: „Þú hefur aldrei
heyrt svona mikil fagnaðarlæti." Horna-
boltahetjan sneri sér að eiginkonu sinni
og sagði þurrlega: „Jú, það hef ég.“
Hjónabandinu lauk daginn sem Mon-
roe var ’fifc upptökur á mynd sinni Seven
f Dorothy, og syni þeirra.
Með stóru ástinni i lifí sínu, Marilyn Monroe.
Year Itch í atriði þar sem blástur frá járn-
brautarlest þeytir pilsinu upp um hana.
Fjömargir áhorfendur mættu á svæðið til
að fylgjast með upptökum. I þeim hópi
var Di Maggio sem gekk burt þegar hann
sá græðgissvipinn sem kom á karlmenn-
ina þegar þeir horfðu á eiginkonu hans.
Hjónin slitu sam\dstum eftir níu mán-
aða hjónaband en allt fram að Iáti hennar
sáust þau saman opinberlega. Di Maggio
giftist ckki aftur. Enginn er vafi er á að
Monroe var stóra ástin í lífi hans. Hann
lýsti henni sem hjartahlýrri stúlku sem
Hollywood hefði misnotað. Hann hafði
yfirumsjón með útför hennar og meinaði
bæði Frank Sinatra og Peter Lawford að
vera við útförina enda kenndi hann þeim
um að hafa stuðlað að ástarsambandi
Monroe við Robert Kennedy.
Di Maggio sendi rósir að gröf Monroe
þrisvar í viku í tvo áratugi. Minningin um
hana virðist hafa verið honum sársauka-
full og þeim vinum hans sem minntust á
Monroe í návist Di Maggio reyndist það
dýrkeypt því Di Maggio sleit samstundis
vináttu við þá.
Eftir að Di Maggio dró sig í hlé frá
hornabolta kom hann nokkrum sinnum
fram í sjónvarpsauglýsingum en einbeitti
sér að aðallega að því að vera Joe Di
Maggio, ein frægasta íþróttahetja aldar-
innar. Hann stofnaði barnaspítala og
heimsótti margoft börn sem þar dvöldust.
Hann átti við erfið veikindi að stríða
síðustu mánuðina sem hann lifði og Iést
að heimili sínu í Flórída þann 9. mars
síðastliðinn, 84 ára gamall.