Dagur - 17.04.1999, Page 2
2 - LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1999
Tkyptr
FRÉTTIR
Fyrsta fiskiskipid
fyrir Evrópubua
Útgerðarmaður í Keflavík
lætur Kínverja smíða fyrs-
ta fiskiskipið sem notað
verður í Evrópn. Fleiri ís-
lenskir aðila hugsa sér til
hreyfings.
fslendingar eiga fyrsta fískiskipið sem
smíðað er fyrir Evrópubúa í Kína. Ut-
gerðarmaðurinn Orn Erlingsson, sem
gerir út frá Keflavík, er eigandi fjölnota
fiskiskips sem nú er í smíðum í Huang
Pu skipasmíðastöðinni í suðurhluta
Kína. Þriggja manna sendinefnd fór að
líta á aðstæður hjá Kínverjunum fyrir
skömmu og gefa þeir Kínverjum góða
einkunn. Matarmenningin er hins veg-
ar fjarlæg Evrópubúum.
Vandaðasta handbragðið
Sendinefndin samanstóð af Hallgrími
Ingólfssyni innanhússarkitekt hjá Stíl
á Akureyri, Hirti Emilssyni verkefnis-
stjóra og Einari A. Kristinssyni. Hinir
tveir síðarnefndu koma frá Skipatækni
hf. en hönnun skipsins er alíslensk.
Svið Hallgríms snýr að innréttingun-
um og var hann ánægður með útfærslu
Kínveijanna. Reyndar svo að hann seg-
ist ekki hafa séð vandaðra handbragð.
Mest segir Hallgrímur að sér hafí kom-
ið á óvart hve háþróað ríki þessi fyrrum
landbúnaðarþjóð sé orðin.
pÉífíwrwí
iSnÍ
Hallgrímur Ingólfsson smakkar snákakjötið. 1/ið hlið hans situr EinarA. Kristinsson.
Framsóknarmaðurinn í pottin-
um var svo lítið hræddur um að
hið óvenjulega kosninga „trix“
Halldórs formanns og efstu
inanna á lista Framsóknar-
flokksins í Reykjanesi að koma
ríðandi í heimsókn til verslan-
anna í Smáratorgi í Kópavogi sl.
miðvikudag og bjóða bömum á
hestbak, hafi verið misheppnað. Ástæðan er sú
að allt varð útvaðandi í hrossaskít á svæðinu
enda er það svo að hestar skíta miklu meira ef
þeir era órólegir en ef þeir eru rólegir. Það var
því þung brúnin á starfsmönnum Smáratorgsins
þegar þeir voru að moka upp hrossaskítinn.
Einn þeirra heyrðist tauta að það væri „helvlti
hart að þurfa að vera að moka upp framsóknar-
ijós við Smáratorgl!!....“
Halldór
Ásgrímsson.
í heita pottinum í Sundlaug Ak-
ureyrar í gærmorgun fór fram
fjörug kappræða milli þeirra Val-
gerðar Sverrisdótur og Stein-
grfms J. Sigfússonar. Framboðs-
fjörið var svo mikið að haft var á
orði að ekki einasta hefðu marg-
ir viðstaddra gleymt sér og orðið
of seinir í vinnuna heldur hafi
þeir uppgvötað að kjötið á þeim var orðió laust
frá beinunuin....
I/algerður
Sverrisdóttir.
Kaldhæðið
Kínverjar eru geysilega samviskusamir
og umfangsmiklir í skipasmíði. Sem
dæmi um stærðargráðurnar má nefna
að Hallgrímur og félagar skoðuðu
skipasmíðastöð sem rúmar fjögur her-
skip í einu. Því er spáð að vesturlönd
muni í stórauknum mæli leita til Kín-
verja hvað varðar fiskiskipasmíði í
framtíðinni og hefur þessi þróun hafist
hér á landi. Þórshafnarbúar eiga von á
skelfisksskipi að austan og Vestmanna-
eyingar eru næstir í röðinni. „Það er í
raun kaldhæðnislegt að þrátt fyrir
þessa óravegu sé ódýrast að snúa sér
þangað," segir Hallgrímur.
Rottur og sporðdrekar
Kínversku skipasmiðirnir tóku Islend-
ingunum einstaklega ljúfmannlega að
sögn Hallgríms og ekki spillti fyrir hve
Islendingarnir voru fúsir til að kynna
sér menningu þeirra. I mat og drykk
kenndi forvitnilegra grasa. Þannig
fengust Islendingarnir t.d. til að gæða
sér á snákakjöti. Fyrst var þeim sýnd
gallblaðran úr snáknum og gallið síðan
innbyrt, blandað kínversku brennivíni.
Snákakjötið sjálft var afar lítið steikt að
sögn Hallgríms og létu menn staðar
numið eftir einn til tvo bita. Þá voru
rottur og sporðdrekar á matseðlum
hinnar fornu þjóðar en Islendingarnir
létu þær afurðir eiga sig!
- BÞ
FRÉTTAVIÐTALIÐ
í pottinum er nú altalað að fram
sóknarflokkurinn sé að verða
eitt helsta vígi kvikmyndagerð-
armamia. Ekki nóg með að Frið-
rik Þór Friðriksson kvikmynda-
gerðarmaður sé kominn á lista
hjá flokknum í Reykajvík heldur
er fullyrt að einn helsti ímyndar-
fræðingur flokksins og Halldórs
Ásgrímssonar sé enginn annar en Þráinn
Bertelsson....
Þráinn
Bertelson.
Vaxtarmöguleikar
Baugs eru verulegir
Bjami
Ármannsson
forstjóri FBA
Tíund afBaugi (Hag-
kaup/Bónus) eralmenningi
til sölu á næstunni á genginu
9.9S ogsíðanferfélagiðáað-
allista Verðbréfaþings. Hag-
kaups-fjölskyldan selur megn-
ið afþví sem hún á enn eftir.
- Hvað er freistandi við oð eignast hlut í
Baugi « þessu gengi?
„Þetta er stærsta og vinsælasta matvöru-
dreifingarfyrirtæki landsins, þar sem í hverri
viku koma um 270 þúsund manns - öll þjóð-
in með öðrum orðum. Þetta er fýrirtæki í at-
vinnugrein sem er mjög stöðug og óháðari
efnahagssveiflum en flestar aðrar greinar - þó
menn herði ólina þarf fólkið að borða og
magnið breytist ekki svo mikið. I því sam-
bandi er athyglisvert að þetta er fyrsta félagið
í þessum geira sem verður skráð á almennum
markaði; almenningur hefur aldrei áður get-
að fjárfest í matvæladreifíngu og sérverslun.
Innan greinarinnar hefur félagið mjög sterka
stöðu og má áætla að markaðshlutdeild þess
eftir vörutegundum sé 40 til 50 prósent á
stór-höfuðborgarsvæðinu. Félagið hefur skipt
rekstrinum í nokkur viðskiptasvið eftir eðli
þeirra, verði og þjónustu og er í dag mjög vel
í stakk búið að láta þessi viðskiptasvið vaxa
mjög verulega."
- Getur þú nefnt dæmi um þetta síðast-
nefnda?
„Það má nefna kaupin á SMS í Færeyjum
sem dæmi um sókn út fyrir landsteinana. I
öðru lagi að í gegnum Reitangruppen í Nor-
egi gefst kostur á mjög hagstæðum vöruinn-
kaupum. Síðan hefur félagið verið að auka
umsvif sín á landsbyggðinni, til að mynda
með uppsetningu búðar á Egilsstöðum.
Nefna má samninginn vegna Smáralindar-
innar við Debenhams, þar sem félagið er að
fara meira út í sérvöru, þar sem álagningin er
meiri en í matvörunni. Þá má nefna samning-
inn um Hagkaupsverlun í Smáralindinni, þar
sem verður Iangstærsta matvöruverslun
landsins. Stjórnendur félagsins hafa sýnt það
að geta hagnast verulega á þátttöku sinni í
þessum geira og skapað verulega vaxtarmögu-
leika. Allt þetta ætti að vera þóknanlegt þeim
sem geta hugsað sér að kaupa hlutabréf í fé-
laginu sem fjárfestingavöru."
- 40% félagsins er í eigu Reitangruppen
frd Noregi og Compagnie Financiere frá
Luxemburg. Gæti þessi mikli hlutur út-
lendinga ekki stuðað einhverja þjóðemis-
sinnaða fjárfesta ?
„Það ætti frekar að hjálpa til. Þessi hlutur
kemur fram í lægra innkaupsverði fyrir Baug,
sem framkallar lægra verð fyrir neytendur og
meiri hagnað fyrir hluthafa. Að auki felur
þetta í sér ýmis tækifæri á útrás félagsins á
erlendum mörkuðum."
- Þií nefndir 40 til 50 prósent tnarkaðs-
hlutdeild. Jaðrar það ekki við að vera óeðli-
lega stór biti?
„Það var að minnsta kosti álit Samkeppnis-
stofnunar að samruninn sl. sumar bryti ekki
á nokkurn hátt í bága við samkeppnislög. Eft-
irlitið er mjög virkt með þessum geira, meira
en hjá flestum öðrum. Einhvers staðar Iiggja
mörkin, en það er mín skoðun að félagið sé
ekki komið að slíkum mörkum.“
-Afþeim 10% sem á að selja á Hagkaups-
fjölskyldan 2%. Er hún þá endanlega að
hverfa út úr gamla Hagkaups-dæminu?
„Fjölskyldan á nú 2,5% og er að selja 2% og
heldur því eftir 0,5%. Það er kannski ekki
stór hlutur í prósentum talið, en tæplega 50
milljónir að nafnvirði.“ — FÞG