Dagur - 22.04.1999, Side 9
Xk^Mi-
Tfc^wr
FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 1999 - 9
-4
8
FJMMTUDAGUR 22. APRIL 1999
FRÉTTASKÝRING
Ólafsfjarðar töluvert verið í um-
ræðunni, en eitthvað hefur dreg-
ið úr mikilvægi hennar að undan-
förnu. Ekki eru allir frambjóð-
endur sammála um forgangsröð-
un, m.a. telur Valgerður Sverris-
dóttir, efsti maður á lista Fram-
sóknarflokks í kjördæminu, að
jarðgöng á Austfjörðum hljóti að
koma næst, t.d. jarðgöng milli Fá-
skrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar.
Valgerður og Halldór Blöndal
samgönguráðherra, efsti maður á
Iista Sjálfstæðisflokks, eru ósam-
mála um hvort fyrir liggi sam-
þykkt Alþingis þar að Iútandi.
Meirihluti kjósenda í austurhluta
kjördæmisins, t.d. á Raufarhöfn
og Þórshöfn, vill að byggður verði
varanlegur vegur frá Tjörnesi og
austur á Þórshöfn áður en ráðist
verði í það að grafa jarðgöng milli
SigluQarðar og Ólafsljarðar um
Héðinsljörð.
Eyjafjörður miðstöð mennt-
unai í sjávarútvegi
Svanfríður Jónasdóttir, efsti mað-
ur á framboðslista Samfylkingar,
segir að kosningabaráttan snúist í
Norðurlandskjördæmi eystra um
lífskjör eins og annars staðar á
landinu og möguleika fólks til
þess að hafa fjölbreytta atvinnu,
góða þjónustu og menntun. „Hér
í kjördæminu hljótum við að
horfa til bættra samgangna og
jarðganga sem lið í stækkun á at-
vinnu- og athafnasvæðum. Eg
minni þó á að jarðgöng verða
aldrei byggð á kostnað vegagerð-
ar, þau eru sérstök framkvæmd,"
segir Svanfríður. Hún segist hins
vegar skilja mæta vel að fólk í
Norður-Þingeyjarsýslu óttist að
jarðgangagerð tefji vegagerð enda
séu vegirnir frá Öxarfirði og aust-
ur í Þistilfjörð þannig að þeir eru
Frjálslyndi flokkurinn
1. Halldór Hermannsson, skipstjóri ísafirði
2. Hermann B. Haraldsson, sjómaður Akureyri
3. Bára Siguróladóttir, bóndi Kelduhverfi
4. Asgeir Yngvason, framleiðslustjóri Akureyri
5. Jóhannes Björnsson, sjómaður Raufarhöfn
6. Helgi Sigfússon, búfræðingur Hrísey
Framsóknarflokkur
1. Valgerður Sverrisdóttir, alþingismaður Eyjafirði
2. Daníel Arnason, framkvæmdastjóri Akureyri
3. Elsa Friðfinnsdóttir, lektor Akureyri
4. Jakob Björnsson, fv. bæjarstjóri Akureyri
5. Sveinn Aðalgeírsson, sölumaður Húsavík
6. Bjöm Snæbjörnsson, formaður Einingar Akureyri
H úmanis tafl okkurin n
1. Jón Eyjólfsson, trésmiður
2. Ragnheiður Sigurðardóttír, tölvunarfræðingur
3. Guðrún Róbertsdóttir, húsmóðir
4. Anna Egilsdóttir, húsmóðir
5. Guðlaugur Agnar Pálmason, verkamaður
6. Jón Kjartansson frá Pálmholti
Samfylking
1. Svanfríður Jónasdóttir, alþingismaður Dalvík
2. Örlygur Hnefill Jónsson, lögmaður Húsavík
3. Kristín Sigursveinsdóttir, formaður Iðjuþálfafélags Isl.
4. Pétur Bjarnason, framkvæmdastjóri
5. Hadda Hreiðarsdóttir, nemi
6. Heimir Ingimarsson, framkvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokkur
1. Halldór Blöndal, alþingismaður Akureyri
2. Tómas Ingi Olrich, alþingismaður Akureyri
3. Soffía Gísladóttir, félagsmálastjóri Húsavík
4. Asgeir Logi Asgeirsson, útgerðarmaður Ólafsfirði
5. Baldvin Kr. Baldvinsson, bóndi Tjörnesi
6. Anna María Elíasdóttir, bæjarfulltrúi Ólafsfirði
Vinstri hreyfingin - grænt framboð
1. Steingrímur J. Sigfússon, alþingismaður Svalbarðshreppi
2. Árni Steinar Jóhannsson, umhverfisstjóri Akureyri
3. Helga Arnaheiður Erlingsdóttir, oddviti Ljósavatnshreppi
4. Valgerður Jónsdóttir, garðyrkjutæknifræðingur Akureyri
5. Helgi Kristjánsson, framkvæmdastjóri Húsavík
6. Anna Helgadóttir, kennari Eyjaíjarðarsveit
Byggðamál, sam-
göngumál og fjöl-
skyldu- og velferðar-
mál eru í brenuidepli
kosniugabaráttuuuar
á Norðurlandi eystra.
Kosið verður um byggðamál og
fjölskyldu- og velferðarmál á
Norðurlandi eystra en í kosninga-
bárattunni eru stjórnmálaflokk-
arnir nokkuð sammála um áfram-
haldandi uppbyggingu Háskólans
á Akureyri og Fjórðungssjúkra-
hússins. Greina má hjá öllum
frambjóðendum þann sldlning að
þessar tvær stofnanir séu ákveðin
þungamiðja í því að gera Akureyri
og Norðurland eystra að ákveðnu
mótvægi við höfuðborgarsvæðið.
Undanfarin misseri hefur gerð
jarðganga milli Siglufjarðar og
eins og vegakerfið í þróunarríki.
„Við frambjóðendur Samfylk-
ingarinnar viljum að það verði
stóraukið fjárframlag til mennta-
mála í kjördæminu. Það á að nýta
í þágu Háskólans á Akureyri til
þess að efla starfsemi hans og
þær rannsóknarstofnanir sem
honum tengjast," segir Svanfríð-
ur. Hún segir að það þurfi Iíka
að efla framhaldsskólanámið en
smærri skólarnir þurfi að fá að
þroskast og standa verði við fyrir-
heit um það að Eyjaljörðurinn
verði miðstöð menntunar á sviði
sjávarútvegs. Það markmið segir
Svanfríður í mikilli hættu sér-
staklega hvað varðar skipstjórnar-
og fiskvinnslunám, og ráðamenn
þjóðarinnar verði að sýna því
skilning hverjar aðstæðurnar eru.
„Okkar barátta snýst um það að
Samfylkingin verði það öfluga
mótvægi við Sjálfstæðisflokkinn
hér í kjördæminu eins og hún er
orðin á Iandsvísu, og þarf í ís-
Ienska pólitík. Það er stærsta
hagsmunamálið í bili fyrir íbúa
Norðurlandskjördæmis eystra, og
við treystum því að Norðlending-
ar séu okkur sammála um það,“
segir Svanfríður Jónasdóttir.
Lítil mnræða tun utanríMs-
mál
Jón Eyjólfsson, efsti maður á
framboðslista Húmanistaflokks-
ins, segist telja að kosningabar-
áttan snúist um það að enginn
þurfi að horfa upp á foreldra eða
aðra ættingja leita sér matar og
vera þannig undir fátækramörk-
um. Jón Eyjólfsson býr í Keflavík
en er fæddur og uppalínn í kjör-
dæminu, bjó í 15 ár á Akureyri.
Jón segir það öðru fremur ástæðu
þess að hann leiði lista Húman-
ista á Norðurlandi eystra. „Það
hefur h'tið komið mér á óvart í
þessari kosningabaráttu en það er
dálítið sérstakt að vera að kljást
við fólk sem hefur sumt hvert set-
ið lengi á Alþingi, og það er
stundum erfitt að spila með. Ég
er mjög ánægður með að geta
komið til baka og sagt Norðlend-
ingum frá þeim möguleika sem
þeim gefst með því að kjósa
Húmanistaflokkinn," segir Jón.
Jón segist hafa átt von á að um-
ræðan mundi snúast meira um
utanríkismál en raunin hefur orð-
ið á, ekki síst í Ijósi þess að Is-
Iendingar séu orðnir þátttakend-
ur í stríði í Evrópu með þátttöku
okkar í NATO. Hugmyndafræði
húmanismans byggist upp á
andofbeldi í andstöðu við það að
nota ofbeldi gegn ofbeldi eins og
gerist í Júgóslavíu. „Við erum
mótfallnir veru í hernaðarbanda-
Iögum. Mér sýnist að Sjálfstæðis-
flokkurinn verði stærsti flokkur-
inn í kjördæminu eftir kosning-
arnar 8. maí með tvo menn,
framsóknarmenn fái bara einn
vegna þess að þeir eru að spila
vitlaust úr sínum spilum með t.d.
auglýsingum, Steingrímur J. Sig-
Úrslit 1995
Alþýðuflokkur 7,4%
Framsóknarflokkur 2 menn 36,8%
Sjálfstæðisflokkur 2 menn 28,2%
Alþýðubandalagið 1 mann 16,8%
Þjóðvaki 1 mann 8,7%
Kvennalisti 2,1%
fússon kemst örugglega inn og
við fáum auðvitað þann sjötta,"
sagði Jón Eyjólfsson.
Snýst um stöðugleikann
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra, efsti maður á lista sjálf-
stæðismanna, segir að kosning-
arnar snúist um það hvort takist
að halda þeim stöðugleika sem
verið hafi í þjóðfélaginu. „Það er
forsenda þess að við getum áfram
haldið að bæta lífskjörin og treyst
þjóðfélagið á breiðum grundvelli.
I Norðurlandskjördæmi eystra er
nauðsynlegt að efla þær þjón-
ustu- og menntastofnanir sem
þar eru, s.s. Háskólann á Akur-
eyri, Fjórðungssjúkrahúsið og
samvinnu þessara stofnana við
hliðstæðar stofnanir bæði hér á
Norðurlandi og Austurlandi. Við
hljótum að einbeita okkur að því
að stækka markaðssvæðið og
bæta samgöngur i kjördæminu og
þar horfi ég sérstaklega til jarð-
ganga frá Olafsfirði til Sigluíjarð-
ar sem ég tel að geti ráðið úrslit-
um um framtíð Siglufjarðar og
með gagnkvæmum samskiptum
mundi slík samgöngubót styrkja
Eyjafjarðarsvæðið í heild sinni,“
segir Haildór. Hann kveðst
leggja áherslu á að Iokið verði
Iagningu hringvegarins til Egils-
staða sem hafi gífurlega þýðingu
fyrir mannlff á þessum svæðum
og til þess að atvinnufyrirtæki á
þessum svæðum geti betur unnið
saman.
Samgöngiunál
Steingrímur J. Sigfússon, alþing-
ismaður og formaður Vinstri
hreyfingarinnar - græns fram-
boðs, er í I. sæti listans á Norð-
urlandi eystra. Hann segir að öll-
um komi utanríkismál við og sér
þyki miður hversu litla athygli
þau hafið fengið í kosningabar-
áttunni í ljósi þeirra stóratburða
sem eru f gangi og einnig vegna
Evrópusambandsmála. Þó um-
ræðan sé meira og minna á lands-
vísu blandist einnig inn í umræð-
una staðbundin mál, en byggða-
málin og byggðaröskun vegi
þungt sem og stefnan í sjávarút-
vegs- og landbúnaðarmálum.
Einnig neíitir Stengrímur stöðu
hinnar opinberu þjónustu og
hinna sérhæfðu stofnana á Akur-
eyri, s.s. Háskólans á Akureyri,
sem sé gífurlega afdrifaríkt mál
fyrir íbúa Norðurlands eystra sem
og alla landsbyggðina.
„Við getum nefnt staðbundin
verkefni sem þarf að Ieysa eins og
t.d. atvinnumál á Kópaskeri vegna
sérstæðra aðstæðna þar nú vegna
rækjuvinnslu svo ekki sé gleymt að
nefna málefni Kísiliðjunnar við
Mývatn. Það er þó alltaf vandmeð-
farið að vera að keyra slík mál upp
sem kosningamál og engum til
góðs að blása þau upp. Málefni
Kísiliðjunnar brenna eðlilega helst
á Mývetningum en ég hef orðið
var við að það mál hefur vakið
mikla athygli í öðrum kjördæm-
um,“ segir Steingrímur. Hann
segir samgöngumálin brenna á
Norlendingum nú sem endranær,
þau sem eitt brýnasta hagsmuna-
mál byggðanna. Stærsta verkefnið
er að byggja upp norðausturleið-
ina frá Húsavík austur um til
Vopnaíjarðar sem stendur byggð-
unum mjög fyrir þrifum vegna
þess hve Iítt hefur þokast áfram.
Steingrímur segir árangur
Vinstri hreyfingarinnar - græns
framboðs á landsvísu eiga eftir að
koma á óvart. Með góðum úrslit-
um í Norðurlandskjördæmi eystra
gætu ráðist heilmikil pólitísk örlög
þar sem sé flokkakerfið á næstu
öld.
Glöggt er gests augað
Halldór Hermannsson, útgerðar-
maður á Isafirði, leiðir framboðs-
lista Frjálslynda flokksins í kjör-
dæminu. Hann segir kosningabar-
áttuna snúast um sjávarútvegsmál
og að skorin verði upp herör gegn
þessu miðstýrða og og ójafnræðis-
lega kvótakerfi. Halldór telur að
fái stjórnarflokkarnir sama kjör-
fylgi og þeir hafi, svo ekki sé talað
um meira, þá verði kerfinu því
miður ekki breytt.
„Menn verða að fá eitthvað
frjálsræði til að sækja sjóinn í
grennd við sína heimabyggð. Komi
aflaleysisár muni smábátaeigend-
ur selja stærri útgerðunum kvót-
an’n og þá verður bókstaflega
fiskalaust hjá strandveiðiflotanum
og kvótann þjappast á færri hend-
ur. Þótt flóttinn af landsbyggðinni
sé af fleiri orsökum þá er meginá-
stæðan samþjöppun kvótans.
Ég hef verið spurður að því
hvort ekki sé óeðlilegt að Vestfirð-
ingur sé í efsta sæti á framboðs-
lista á Norðurlandi eystra. Mér
finnst það ekkert óeðlilegt og
minni á að glöggt er gests augað,“
segir Halldór. Halldór segir þátt-
töku í Evrópusambandinu
vítamínsprauta fyrir hinar dreifðu
byggðir landsins því Evrópuríkin
hafa skuldbundið sig til að aðstoða
hvert annað innan sambandsins
og hingað kæmu t.d. þekkt fyrir-
tæki til að vinna fisk á manna-
markað, en ekki bara sem dýra-
fóður. „Gangi Norðmenn í Evr-
ópubandalagið eigum við skilyrðis-
laust að gera það líka, annars verð-
um við einfaldlega skildir eftir.
Svo eigum við að ganga í Alþjóða
hvalveiðiráðið og hefja hrefnu-
veiðar, fyrst á heimamarkað," seg-
ir Halldór.
Málefni N-Þingeyinga for-
gangsverkefni
Valgerður Sverrisdóttir þingmaður
skipar nú 1. sæti á Iista Framsókn-
arflokksins. Hún segir að þær um-
ræður sem séu staðbundnar séu
t.d. tengdar Kísiliðjunni og það sé
mjög mikilvægt fyrir atvinnulífið í
Mývatnssveit og á Húsavík að hún
verði rekin áfram og vinnsluleyfið
verði framlengt. Máíið sé hins veg-
ar f mjög erfiðri stöðu. Einnig sé
nauðsynlegt að taka ákvörðun um
virkjun í Bjarnarflagi sem hefur
verið heimiluð. Gagnvart Akureyr-
ingum séu málefni Slippstöðvar-
innar, Háskólans og Éjórðungs-
sjúkrahússins mikilvæg, en það
ráðist af afli stjórnmálaflokka
hvernig gangi að koma þeim mál-
um í höfn.
„Það sem Eyjafjarðarsvæðið
vantar er nýr vaxtarbroddur, það
vantar að allir finni að það sé
vissulega vöxtur í atvinnulífinu.
Það er auðvitað mjög ánægjulegt
þegar fyrirtæki flytja í bæinn frá
Reykjavíkursvæðinu en það mundi
skipta svo miklu sálarlega fyrir
íbúana hér ef hægt væri að fá ein-
hvern snefil af þenslu inn á svæð-
ið. Það er ekki verjandi að ráðast í
jarðgangagerð um Héðinsfjörð
meðan vegamál í Norður-Þingeyj-
arsýslu eru í Iamasessi. Það er for-
gangsverkefni í þessu kjördæmi að
leysa málefni Norður-Þingeyinga.
Þetta er ekkert einsdæmi því Vest-
firðingar búa einnig við slæmar
samgöngur. Þaðan eru þrjár leiðir
úr kjördæminu, og allar meira og
minna ófærar," segir Valgerður.
Hún segir að það séu aðeins
tveir frambjóðendur öryggir með
kosningu, þ.e. efstu menn Fram-
sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks.
Mér sýnist þó að efsti maður
Vinstri hreyfingarinnar sé að verða
nokkuð öruggur en ég legg áherslu
á að Framsóknarflokkurinn verði
stærsti flokkurinn í kjördæminu
hér eftir sem hingað til þannig að
við fáum tvo menn kjörna, og
tryggjum Daníel Árnasyni þing-
sæti því við eigum ekki mikla
möguleika á uppbótarþingsæti.
Það er stór spurning hvort Sam-
fylkingin nær þingmanni f þessu
kjördæmi. Ovissan er meiri nú en
tyrir margar síðustu þingkosning-
ar,“ segir Valgerður Sverrisdóttir.
Hvemigfara þingkosn-
ingamar 8. maí í Noiður-
landskjördæmi eystra?
Aðalheiður Jóhannesdóttir:
„Núverandi ríkisstjórn heldur
áfram. Ég held að Framsóknar-
flokkur fái tvo, Sjálfstæðisflokk-
ur tvo, Græningjar fá einn og
sennilega fær Samfylkingin einn
mann.“
Einar Jóhannsson:
„Ég hef ekki hugmynd um það,
og hef lítið pælt í því þó mér sé
ekki alveg sama hver úrslitin
verða. Ég ætla því að nota at-
kvæðisréttinn."
Sigurður Eiríksson:
„Veistu það, ég hef sáralítið velt
vöngum yfir því. En auðvitað
ætla ég að kjósa.“
Guðmundur Hjaltason:
„Ég reikna með að Sjálfstæðis-
flokkur fái tvo þingmenn og
Tómas Ingi verði uppbótaþing-
maður. Framsókn fær tvo og ég
held að Steingrímur komist inn.
Þvf miður eru líkur á að Sam-
fylkingin fái einn mann.“
Alfreð Pálsson:
„Það er alveg vonlaust að spá
einhverju um það og ég hef líka
litla skoðun á því. Sjálfstæðis-
menn verða áfram í ríkisstjórn og
stærstir í þessu kjördæmi. Stein-
grímur Sigfússon kemst líklega
að og bjargar sínum flokki."
Framsóknarflokkurinn kynnir
stefnumál sín á Aksjón í kvöld
kl. 21.00.
FRAMSÓKNARFLOKKURINN