Dagur - 12.05.1999, Síða 11
MlfíVlKVDAGVR 12. MAÍ 1999 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Samkomulagið
komið í rúst
Gerry Adams [t.h.J ásamt tveimur félögum sínum úr Sinn Fein.
Fátt virðist geta kom-
ið frið arunil eitimimi
á Norður-írlandi úr
sjálfheldimui.
Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein,
sagði í viðtali við fréttastofu
breska útvarpsins BBC að sam-
komulagið sem gert var á föstu-
daginn langa í fyrra sé rústir ein-
ar, en bætti því við að Tony Blair
forsætisráðherra Bretlands gæti
hugsanlega komið því saman á
ný.
David Trimble, leiðtogi sam-
bandssinna á Norður-írlandi, var
heldur ekki bjartsýnn að loknum
fundi sfnum með Tony Blair í
gær. „Það lítur út fyrir að okkur
bafi ekki tekist að ná þeim fram-
förum sem hefðu getað orðið,“
sagði hann. Hins vegar sagði
hann e.t.v. „óþarflega svartsýnt"
af Adams að segja samkomulagið
vera komið í rúst.
Trimble og Adams hittu Blair
hvor í sínu Iagi í gær. Friðarsam-
komulagið hefur verið í sjálf-
heldu mánuðum saman vegna
deilna um afvopnun Irska lýð-
veldishersins (IRA). Sambands-
sinnar vilja að afvopnun IRA
hefjist áður en mynduð verði
sameiginleg stjórn á Norður-Ir-
landi, en IRA vill ekki afvopnast
fyrr en síðar.
„Tony Blair hefur lykilinn í
höndum sér,“ sagði Adams, ef
hann gæti komið málunum í
„nýtt samhengi". Adams vill að
Tony Blair kalli báða deilendur
saman til nýrra samningavið-
ræðna til þess að koma málunum
úr þeirri sjálfheldu, sem afvopn-
unarviðræðurnar eru komnar í.
„Þessar viðræður gætu haldið
áfram endalaust," segir Adams.
„Það hefur engan tilgang að við
séum að þramma fram og til
baka inn og út úr Downing-
stræti að eilífu."
Samkvæmt samkomulaginu
sem gert var í apríl 1998 er gert
ráð fyrir að komið verði á fót tak-
markaðri heimastjórn á Norður-
Irlandi. Meiningin er að tveir
fulltrúar frá Sinn Fein verði í
héraðsstjórn Norður-írlands, en
David Trimble sitji í forsæti
þeirrar stjórnar. Trimble hefur
því vald til að samþykkja ráð-
herralistann, og hefur jafnan
haldið fast í að Sinn Fein geti
ekki setið í stjórninni fyrr en af-
vopnun IRA hefst. Sinn Fein
segir þetta sldlyrði hins vegar
ekki samrýmast samkomulaginu
sem gert var, og heldur því auk
þess fram að það sé ekki á valdi
forsvarsmanna Sinn Fein að
skipa IRA að afvopnast.
Óðum fer að styttast í þann
árstíma sem spenna milli kaþ-
ólskra og mótmælenda er í há-
marki á Norður-írlandi, þegar
mótmælendur fara í skrúðgöngur
sínar sem jafnan hafa farið í
taugarnar á kaþólskum. Þá er lík-
legt að spenna aukist vegna þess
að brátt verður gengið til kosn-
inga á þremur fulltrúum Norður-
Irlands á Evrópuþinginu. - GB
Jeltsín sætir kæru
RÚSSLAND - Neðri deild rúss-
neska þingsins samþykkti í gær að
taka fyrir á fimmtudag ákærur á
hendur Boris Jeltsín forseta sem
varða embættismissi. Málflutning-
urinn á að standa yfir í þijá daga,
en ákæruatriðin eru fimm talsins.
Jeltsín er kærður fyrir að hafa
stuðlað að hruni Sovétríkjanna
árið 1991, beitt ofbeldi gagnvart
þingmönnum árið 1993, hafið
stríð í Téténíu árið 1994, lagt her
landsins í rúst og sömuleiðis efna-
hag landsins, og þar með steypt
landsmönnum í fátækt, en sam-
kvæmt ákærunum er það sagt jafn-
ast á við þjóðarmorð.
Jafnvel þótt Jeltsín verði sakfelldur í neðri deildinni er talið ólíldegt
að hann þurfi að víkja úr embætti. Fyrst þyrfti efri deildin ásamt
hæstarétti landsins og stjórnarskrárdómstólnum að samþykkja niður-
stöðuna, sem litlar líkur eru á að gerist. Málaferlunum var frestað á
síðustu stundu í síðasta mánuði, og telja ýmsir að það geti gerst að
nýju.
Morðmgjar Gandhis hlióta dóm
INDLAND - Hæstiréttur Indlands staðfesti í gær dauðadóma yfir
fjórum sakborningum vegna morðsins á Rajiv Gandhi, fyrrverandi
forsætisráðherra Indlands árið 1991, en mildaði um leið dóm 22
annarra sakborninga. Þrír þeirra fengu lífstíðarfangelsi, tveir voru
sýknaðir og 17 var sleppt úr haldi þrátt fyrir fangelsisdóm þar eð þeir
höfðu þegar setið í fangelsi Iengur en dómurinn kvað á um, eða í
nærri átta ár. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að skæruliða-
hreyfing Tamíla á Srilanka hafi staðið að morðinu á Gandhi.
Hæstiréttiu kom í veg fyrir lokun
ISRAEL - Hæstiréttur Israels kom í gær í veg fyrir að stjómvöld þar
í landi létu loka miðstöð Palestínumanna í austurhluta Jerúsalem-
borgar, en það hefði getað valdið miklum uppþotum skömmu fyrir
kosningar. Benjamin Netanjahu forsætisráðherra hugðist láta loka
miðstöðinni ef ekki hefði tekist samkomulag milli ísraelsmanna og
Palestínumanna um framhald hennar, og rann frestur til þess að ná
því samkomulagi út á mánudag. Hæstiréttur krafðist þess að bæði
Palestínumenn og Israelsmenn skýrðu hvernig á því stæði að sam-
komulag hafi ekki tekist, og fengu þeir sjö daga frest til þess.
Aburður, yfirbreiðslur og öli verkfæri sem til þarf
I\V/
JRVORUR
VERSLUN SÖLUFÉLAGS GARÐYRKJUMANNA
SmiSjuvegi 5 • 200 Kópavogi • Sími: 554 321 1 • Fax: 554 2100
bjóðum úrvals
ÚTSÆÐI
'fj |_____| j L.