Dagur - 21.05.1999, Qupperneq 3

Dagur - 21.05.1999, Qupperneq 3
FÖSTUDAGVR 21. MAÍ 1999 - 19 Vnptr LÍFIÐ í LANDINU Húmor er afar einstakl- ingsbundinn. Hann er tilfinningalegtfyrir- bæri og smekksatriði fyrst ogfremst. Solveig Thorlacius hefurkann- að íslenskan húmorog hún á hreint ekki auð- veltmeð að segja til um það hvemig ís- lenskurhúmorer. „Húmor er í rauninni sú merk- ing sem maður leggur í hlutina. Einn túlkar eitthvað sem drep- íyndið sem öðrum finnst ekki baun fyndið. I það heila má segja að Islendingar hafi ekki húmor fyrir sjálfum sér heldur óförum annarra. Það er eitthvað sem mörgum þykir sammerkt með íslendingum og ég get al- veg tekið undir það. En Islend- ingar hafa örugglega Iíka mikinn húmor fyrir sjálfum sér sam- kvæmt því sem grínistarnir sögðu. Þeirra reynsla er sú að þetta velti á því í hvernig skapi maður er, hvort maður er fullur, í hvaða hópi maður er og svo framvegis," segir Solveig Thor- lacius mannfræðingur. Hlæja að óförum annarra Solveig gerði rannsókn á ís- lenskum húmor fyrir BA-ritgerð- ina sína í mannfræði við Há- skóla Islands og leitaðist við að svara því hvort íslenskur húmor væri til í rituðu og mæltu máli. Hún fjallaði meðal annars um húmorinn út frá mannfræðinni og skrifum Apte, bresks húmor- fræðings, rakti nálgun Jakobs Jónssonar guðfræðings á kímni og skopi í biblíunni og leitaði svara hjá þremur einstaklingum úr landsliðshópi íslenskra grínista en hún vitnar einmitt í þá hér að ofan. Markmið henn- ar var að skilja umhverfi húmorsins, það hvernig hann verður til og berst á milli. „Upphaflega gerði ég rann- sókn, sem byggir á djúpviðtöl- um. Þetta voru tveggja til þriggja tíma viðtöl hvert við atvinnu- grínista. Ég lagði upp með spurninguna hvort það væri til íslenskur húmor að þeirra mati. Samkvæmt þessum þremur ein- staklingum, sem eru allir sitt úr hvorum hópnum, þá er ekki til nein skilgreining yfir íslenskan húmor. Það er gjarnan talað um að Islendingar hlægi að óförum annarra en séu frekar grunn- þenkjandi, þeir hlægi almennt ekki að því sem getur haft marg- ar merkingar," segir hún. Sami húmorinn Solveig hafnar því að til sé eitt- hvað sem sé breskur húmor, sænskur húmor eða íslenskur húmor. Hún vitnar í mannfræð- inginn og húmorfræðinginn Apte sem segir að það að skil- greina húmor sé eins og dæmi- Klámið eródýrastagrínið „Það að standa uppi á sviði hlýtur að vera rosaleg kúnst, að ná athygli allra og höfða til allra þannig að það hitti í mark. Grínistinn þarfað geta skynjað mjög vel hvað áheyrendum líkar og þarfað vera mjög klár og félagslega hæfur, “ segir Solveig Thorlacius. mynd: hilmar þór saga Esóps þar sem sex menn voru Iátnir skilgreina fíl. Menn- irnir snertu fílinn, einn kom við ranann, annar við bakhlutann, sá þriðji fæturna. Allir voru þeir að skilgreina fílinn og hver og einn sá hann frá sínu sjónar- horni. Þar af leiðandi var enginn með sömu skilgreininguna. „Þetta er samlíking við það að skilgreina húmor, sami flöturinn hefur svo rosalega margar hlið- ar,“ segir hún. Solveig bendir á að húmor sé afar menningarbundinn og geti jafnvel verið bundinn við hópa eða svæði. Þannig sé ekki hægt að ætlast til þess að Islendingur á faraldsfæti skilji húmorinn á Samoa-eyju eða að Kosovo-Al- banar skilji íslenskan húmor eft- ir stutta dvöl hér á Iandi. Það er ekki fyrr en viðkomandi er kom- inn það vel inn í menninguna á viðkomandi svæði að hann er farinn að geta hlegið með inn- fæddum. Til þess að geta gert það þarf hann að þekkja um- hverfi húmorsins vel, skilja sam- hengið í heild sinni. Islenskur húmor hefur í raun haldist sá sami í áranna rás, að mati grínistanna, sem tóku þátt í rannsókn Solveigar. Það eina sem hefur breyst að þeirra mati er það hvernig húmornum er komið á framfæri og sú breyting hefur átt sér stað í takt við þjóð- félagsþróunina. „Aður var hægt að koma húmornum á framfæri á sveitaböllum og ýmsum sam- komum sem voru vinsælar þeim tíma,“ segir hún og bendir á að það hafi verið munur á húmor á milli staða á landinu. Grínisti sagði kannski brandara á Dalvík og fékk litlar viðtökur þar en sagði svo sömu brandarana á Akureyri og þar veinaði allt lið- ið. „Núna er útvarp og sjónvarp og allt í beinni útsendingu og meiri hraði. Húmorinn er sams konar og það eru ekki svona skörp skil á milli Drangsness og Breiðholts. Núna er til dæmis komið uppistand inn á grammið, sem var ekki nokkrum árum síðan,“ hún. Púðrið fór í lýsingar Islendingar hafa ekki átt mikinn húmor í rituðu máli en þó má finna bókina Is- lenska fyndni með bröndur- um, sem var safnað saman fyrir nokkrum áratugum. Sol- veig segir að húmorinn í þessum bókum hafi gengið út á lýsingar á þjóð- kunnum ein- staldingum og litríkum karakterum. Alltaf hafi verið byrjað á nákvæmri lýsingu á háttum þeirra, klæðaburði og Léttara að græta fólk Eitt það erfiðasta sem skemmti- kraftur gerir er að fá áheyrendur til að hlæja. „Einn, sem er leik- aramenntaður, sagði að það væri minna mál að græta fólk en að fá það til að hlæja,“ segir hún. Góður grínisti þarf að hafa mikla tilfinningu á umhverfinu og vera fljótur að átta sig á því hvemig landið liggur meðal áheyrenda og aðlagast því. „Einn grínistinn sagði að það erfiðasta sem hann lenti í væri að skemmta starfsfólki Stjórnar- ráðsins. „Hann sagði að það væri oft erfiðara að skemmta því en alþingismönnum. Það tækju sig allir svo rosalega alvarlega í Stjórnarráðinu," segir Solveig. Klámbrandarar eru ódýrasta og auðveldasta leið til að skemmta fólki að mati grínist- anna, sem Solveig tók viðtal við. „Það að standa uppi á sviði hlýt- ur að vera rosaleg kúnst, að ná athygli allra og höfða til allra þannig að það hitti í mark. Grínistinn þarf að geta skynjað mjög vel hvað áheyrendum líkar og þarf að vera mjög klár og fé- lagslega hæfur því að þetta reyn- ir á svo rosalega marga þætti hjá honurn," segir hún. Þumalfingursregla grínista er að segja klámbrandara þegar þeir finna að þeir eru að missa athygli áheyrendanna og klám- brandarinn þarf ekki einu sinni að vera fyndinn til að virka. „Þetta er bara efnafræði. Með- an grfnisti segir klámsögur þá virkar það á hormónin í lík- gmnnþenkjandi, þeir amanum, það " * ‘ UPP pró- f)TÍr segir „Það ergjaman talað um að íslendingar hlægi að ófomm ann- arra en séufrekar hleðst hlægi almenntekki að spenna meðan sagan er sögð. því sem geturhaft margar merkingar. ‘ er Punkturinn í brandaranum þarf ekkert endilega að vera fyndinn vegna þess að það á sér stað spennu- losun sem brýst út í hlátri,“ seg- ir hún að lokum. GHS ættum og er það kannski lýsandi fyrir það hve vel menn þurfa að þekkja til umhverfis og staðhátta til að geta skilið húmorinn. „Að- alpúðrið fór í lýsingarnar á ein- staklingunum," segir hún. Einnig má finna húmor í Is- lendingasögunum og nefnir Sol- veig sem dæmi „Eigi skal höggva", þar sem blóðugur og deyjandi maður með innyflin út úr sér stendur upp og kveður hringhendu áður en hann dettur niður dauður. Þetta segir Sol- veig að erlendir fræðimenn hafi túlkað sem húmor þó að Islend- ingar fari sennilega ekki að hlæja, ekki í dag að minnsta kosti. Þá hefur hún rekist á ferðabækur á erlendu tungumáli þar sem bæjarnöfn í Skagafirði eru nefnd sem dæmi um ís- lenskan húmor. „Þetta voru bæir sem voru hlið við hlið. Annar hét Gröf, hinn hét Grafarbakki,“ segir hún.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.