Dagur - 21.05.1999, Blaðsíða 6
22 - FÖSTUDAGUK 2 1. MAÍ 19 9 9
-----------------------------------------------Xfc^wr
■ iffrv___________________________________________
nasiá
ffo r
Frá oq med 17. maí hefst sumartiminn hjá okkur.
t>á opnum vid kl. 8.00 oq lokum kl. 16:00.
Gledileqtsumar.
SP-FJÁRMÖGNUN HF
Veqmúli 3, sími 588 7200, iax 588 7250, www.sp.is
Lífæðar til
Akureyrar
Þá er farandsýningin Líf-
æöar, sem inniheldur
bæði myndlist og ijóð,
komin til Akureyrar, nánar
tiltekið á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri.
Hún verður opnuð þar í
dag kl. 15 og er Akureyri
fimmti viðkomustaður sýningarinnar en hún verður þar
um kyrrt til 22. júní. Að venju sýna 12 myndlistarmenn
samtals 34 myndverk og 12 Ijóðskáld birta 18 Ijóð og
þykja þessir listamenn endurspegla helstu strauma og
stefnur í myndlist og Ijóðagerð frá síðari heimsstyrjöld
til dagsins í dag.
Dönsku augun
kveðja
Myndlistarsýning danska myndlist-
armannsins Carsten Lyngdrup
Madsen í Gallerí Svartfugl á Akur-
eyri framlengist um eina viku og
lýkur henni um hvítasunnuna.
' Þema sýningarinnar er (sland séð
með dönskum augum. Carsten
flutti til íslands með fjölskyldu sína
K7 fyrir tveimur árum, vildi komast frá
^ ^ erlinum og þéttbýlinu ytra og nær
náttúru og menningu Islands. Sýning
Carstens er tvennt í senn, áhrifin sem ísland
hafði á hann og nokkurskonar kveðja til landsins en fjölskyldan er á
leið aftur til Danmerkur. Svartfugl er opið alla daga nema mánudaga
frá kl. 14-18.
■ HVAD ER Á SEYDI?
TÓNLIST
Niels-Henning prsted Pedersen
íslandsvinurinn Niels-Henning hcim-
sækir Island í 11. sinn í lok maí og
heldur tvenna tónleika, fyrst í Vest-
mannaeyjum svo f Reykjavík. Niels
kom síðast með tríó til lslands á
RúRek djasshátíðina 1994 og voru þá
með honum Ole Kock Hanscn ogAIex
Ricl. 1 þetta skipti kemur hann með
tríó sitt, er leikur með honum á nýjasta
diski hans: „This is all I ask“. Þar leik-
ur á gítar Ulf Wakenius og á trommur
JonasJohanssen. Þetta er í lyrsta skipti
sem Niels-Henning leikur utan
Reykjavíkur. Tónleikarnir í Reykjavtk
verða í Þjóðleikhúsinu og heljast kl.
21. Kvöldið áður leikur tríóið í Agóges-
húsinu í Vestmannaeyjum og eru þeir
tónleikar í samvinnu við Listvinafélag-
ið og tileinkaðir minningu Eyjólfs Páls-
sonar, er fór fyrir djasshátíð Eyja-
manna til dauðadags. Miðaverð á tón-
leika Niels er kr. 2.300. Miðasala er
hafin í Þjóðleikhúsinu.
Rúdolf í Salnum
Söngkvartettinn Rúdolf heldur tón-
leika í Salnum, Tónlistarhúsi Kópa-
vogs, þriðjudaginn 25. maí kl. 20:30. A
efnisskrá eru íslensk og erlend lög
bæði klassísk og af léttara taginu. A
fyrri hluta tónleikanna verður frum-
flutt lagið „Frændi þegar fiðlan þegir“
eftir Atla Heimi Sveinsson við ljóð
Halldórs Kiljan Laxness í útsetningu
Skarphéðins Hjartarsonar. Einnig
verða flutt 3 lög eftir Benjamin Britten
úr Iagaflokknum „Five Flower Songs“
og ástarvalsar eftir Johannes Brahms. I
völsunum munu feðginin Marteinn H.
Friðriksson og Þóra Marteinsdóttir
leika undir íjórhent á píanó. Seinni
hluti tónleikanna verður að mestu
helgaður Iéttari tónlist. Sungin verða
Iög eftir Sigfús Halldórsson, Jón Múla
Arnason, Stuðmenn, ABBA o.fl. Kvart-
ettinn Rúdolf skipa: Sigrún Þorgeirs-
dóttir, sópran, Soffía Stefánsdóttir, alt,
Skarphéðinn Hjartarson, tenór og Þór
Asgeirsson, bassi. Miðasala í Salnum,
Tónlistarhúsi Kópavogs frá kl. 17:00
tónleikadaginn.
Tena Palmer syngur Billie
Holiday
Hljómlistarhátíð til heiðurs BiIIie Holi-
day verður haldin í Iðnó þriðjudaginn
25. og 26. maí kl. 20:30. En 25. maí
1959 íyrir 40 árum söng Billie Holiday
sinn svanasöng í New York Citys
Phoenix Theatre. Næstkomandi
þriðjudags- og miðvikudagskvöld er svo
komið að kanadíska söngfuglinum
Tenu Palmer að túlka tíð Billie Holiday
í söng í Iðnó. En þar koma fram valin-
kunnir hljóðfæraleikarar, þeir: Oskar
Guðjónson - tenor saxófónn, Samúel
Samúelsson - básúna, Kjartan Valde-
marsson - píanó, Thórður Högnasson -
kontrabassi og Pétur Grétarsson
trommur. Ætlunin er að teygja og toga
tóna jassins til hins ítrasta en á laga-
listanum er m.a. að finna: God Bless
the Child, Sophisticated Lady, What A
Little Moonlight Can Do, YouVe
Changed, Get Out Of Town, Billies
Blues; Now Or Never.
Lágmenningarborgin
Tónleikaröðin „Lágmenningarborgin
Reykjavík“ heldur áfram um helgina og
verða næstu tónleikar laugardaginn
22. maí á Kaffi Thomsen í Hafnarfirði.
Það eru sem íyrr Wiseguys og Les ryt-
hmes digitales sem troða upp og nú
ásamt PS Daða.
SÝNINGAR
Myndasögur í mýrinni
Sýning á myndasögum eftir 18 norræna
teiknara með Bjarna Hinriksson sem
fulltrúa Islands hefur staðið yfir í sýn-
ingarsölum Norræna hússins frá 27.
mars sl. Myndasöguhöfundarnir eru
allir í fremstu röð teiknara á Norður-
löndum og víðar. Sýningin er opin
þessa viku frá 14-18 og henni lýkur
laugardaginn 22. maí, en Norræna
húsið verður lokað á hvítasunnudag
23. maí. I anddyri Norræna hússins
hefur staðið yfir sýning á myndasögum
eftir íslenska höfunda sem hafa birst í
íslenskum dagblöðum og tímaritum.
Þessi sýning verður tekin niður mánu-
daginn 24. maí.
Nesstofusafn opnað aftur
Nesstofusafn hefur opnað aftur eftir
vetrarlokun. Eins og undanfarin ár
verður safnið opið yfir sumarmánuöina
á sunnudögum, þriðjudögum, fimmtu-
dögum og Iaugardögum, kl. 13.00 -
17.00. Nesstofusafn er læknaminja-
safn. Þar gefur að líta muni tengda
sögu heilbrigðismála á Islandi síðustu
aldirnar. Safnið er til húsa í Nesstofu á
Seltjanarnesi. Nesstofan var byggð fyr-
ir íýrsta Iandlækninn á Islandi á árun-
um 1760 - 1763. Húsið er því eitt af
elstu steinhúsum á Islandi, samtíða
Bessastaðastofu og Viðeyjarstofu. Nes-
stofa stendur í útjaðri byggðar vestast á
Seltjarnarnesi.
FUNDIR
OG MANNFAGNAÐIR
Málstofa efnafræðiskorar
Dr. Arvi Freiberg, eðlisfræðideild há-
skólans í Tartu, Eistlandi, flytur erindi
á málstofu efnafræðiskorar föstudag-
innn 21. maf kl. 13:15 f stofu 158, VR-
II, Hjarðarhaga 4-6. Erindið nefnist
Excitons in Photosynthesis. Þróuð
hafa verið einföld Iíkön sem hafa svip-
aða ljósefnafræðilega eiginleika og
Ijóstillífunarkerfi í bakteríum. Dr.
Freiberg hefur starfað lengi við eðlis-
fræðideild eistnesku vísindaakademí-
unnar og nú við háskólann í Tartu, en
hann hefur einnig verið gistivísinda-
maður í Bandaríkjunum, Hollandi og
Svíþjóð. Hann hefur einkum rannsak-
að ljósefnafræði mjög hraðra efna-
hvarfa, eins og í ljóstillífun. Allir eru
velkomnir að hlýða á erindið.
Yfírvald og ímynd þess
Þriðjudaginn 25. maí 1999 flytur Ein-
ar Hreinsson sagnfræðingur fyrirlestur
í boði Sagnfræðingafélags Islands sem
hann nefnir: „Vor ástkæri amtmaður.
Imynd æðri embættismanna og stjórn-
sýsla íslands 1770-1870. - Orðæða
um aðferð.“ Fundurinn verður haldinn
í Þjóðarbókhlöðu á 2. hæð í hádeginu
(12:05-13:00) og er hluti af íyrirlestr-
arröð Sagnfræðingafélagins sem nefnd
hefur verið: Hvað er félagssaga?
Málþing um kristna trú
Kjalarnessprófastdæmi efnir til mál-
þings um kristna trú og önnur trúar-
brögð laugardaginn 22. maí í Strand-
bergi, safnaðarheimili Hafnarfjarðar-
kirkju. Fyrirlesarar verða þrír: Sr.
Kristinn Jens Sigurþórsson, sr. Þór-
hallur Heimisson og dr. Pétur Péturs-
son. Málþingið hefst kl. 13.30, er öll-
um opið og aðgangur er ókeypis.
OG SVO HITT.,.
Sumardagskrá í Viðey
Sumardagskráin í Viðey hefst um helg-
ina. Gönguferð verður farin laugardag-
inn 22. maí kl. 14.15, gengið verður
um suðureyjuna. Viðeyjarferjan fer frá
Bjóðum úrvals
ÚTSÆÐI
Aburður, yfirbreiðslur og öll verkfæri sem til þarf
Ráðgjöf sérfræðinga um garS- og gróðurrækt
fl I? Ó I í O UA DTID
flxL ?LJP knL
VERSLUN SÖLUFÉLAGS GARÐYRKJUMANNA
Smiðjuvegi 5 • 200 Képovogl • Sími: 554 3211 • Fax: 554 2100
<r