Alþýðublaðið - 10.02.1967, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 10.02.1967, Blaðsíða 8
• JTÍ ’ rmnjí ILMIjÍlfl!! Á í'jórðu hæð hússins Hafnar stræti 81 á Akureyri er til húsa safn nokkurt, sem ber heitið Nátt úrugripasafnið á Akureyri. Þar er margt merkilegra gripa af mis- munandi stærðum, allt frá—smá skordýrum til hests. En til að fræð ast svolitið um þetta merkilega safn, átti ég viðtal við Helga Hall grímsson, safnvörð og spurði hann þá fyrst um upphaf safnsins. — Safnið á tilveru sína fyrst og fremst að þakka tveim mönn um, þeim Kristjáni Geirmunds- syni og Jakobi Karlssyni. Kristján var mikill áhugamaður um fuigla og hóf snemma aö stoppa upp og seldi m.a. sumt af því sem hann gerði. Jakob safnaði upp stoppuðum fuglum og keypti m.a. af Kristjáni. Jakob átti orðið mik ið safn fugla og eggja, þegar Dýra verndunarfélagið á Akureyri fékk safnið lánað og sýndi það í Barna skólanum veturinn 1951. Um 4000 manns sóttu sýninguna sem stóð stuttan tíma og þessi mikla að- sókn vakti menn til umhugsunar um stofnun náttúrugripasafns hér í bæ. Af þessu varð svo, er Jak ob igaf Akureyrarbæ safnið vorið 1951. — Hvað um starfsemina upp frá því? — Kristján Geirmundsson var ráðinn safnvörður 1951 og gegndi hann því starfi til 1960. er hann réðist til Náttúrugripasafnsins í Reykjavík. Hann bætti safnið hér mikið að magni og gæðum. Sér staka rækt lagði hann við fugla safnið, þannig að í því eru nú nær allar tegundir íslenzkra varp fugla, sem vitað er um hér, eða um 75 og af sumum bæði karl fugl og kvenfugl, ungi og egg. Auk þess eru í fuglasafninu margir slæðingsfuglar og nokkrir aðrir erlendir fuglar. — Haustið 1963 tók ég svo við starfi safnvarðar. Hefi ég reynt að auka fjölbreytni safnsins, svo sem Safnvörðurinn, Helgi Hallgrímsson, stendur hér við innganginn í safnið, en þar eru m.a. myndir af Surtseyjargosinu og bækur um náttúrufræöi. Þessi hluti safnsins er dálítið sérstakur, en engu að síður fróðlegur. g 110. febrúar 1367, ALÞÝÐUBLaDIÐ . ■ "•T)! if.uidef 01 með plöntusöfnum og steinasöfn um. Auk þess, sem ég hefi aflað á rannsóknarferðum mínum á sumrin, hafa farið fram skipti við önnur söfn og einnig verið keypt nokkuð, svo sem plöntusafn Stein dórs Steindórssonar og skordýra safn Hálfdáns Björnssonar á Kví átti að hafa hann í beitu! —Algera sérstöðu sem safn fgripud hefúir gieixfugl sá, sem Kr.istján Geirmundsson fyrrver- andi safnvörður, bjó til úr svart fuglahömum, en svo sem kunn ugt er, dó geirfúglinn út árið 18 44. Studdist Kristján við gamlar Grein og myndir: Jónas Ragnarsson skerjum í Öræfum. í skordýra safninu er um helminigur þekktra bjallna og fiðrilda ‘hérlendis. — Hver er fjöldi safngripa nú? —Það er erfitt að segja ná- kvæmlega um fjöldann. Dýrasöfn in telja um 700 eintök af um 450 tegundum. Allmikið er til af stein- um og bergtegundum, en mikið bættist þar við í söfnunar- og rann sóknarferð um Austurland síðast liðið sumar. Það er að mestu ó- skrásett, og því er ekki hægt að segja um fjöldann að svo stöddu. Um 20 þús. eintök eru í grasa söfnunum, en tegundafjöldinn er þó ekki nema um 1500. í sveppa- safninu sem er dálítið sérstætt, eru nú um 3500 eintök af æðri svepp um, þ. e. 'hattsveppum og Igorkúl um. — í sýningarsalnum er ekki nema lítill hluti af safngripum, þ. e.a.s. dýrasöfnin og nokkur hluti steina og bergtegundasafnsins. Eru það m. a. húsnæðisþrengsli sem valda því, að ekki er hægt#lð sýna meira, en auk þess er sumt þess eðlis, að ekki er hægt að sýna það, heldur er það ætlað til vísinda- legra athugana, og á ég þar eink um við plöntusöfnin. — Hverja telur þú merkustu sýningargriþina, Helgi? — Margt merkilegra gripa er í safninu og erfitt að gera upp á milli þeirra. Verðmætasta grip inn mætti telja hauskúpu af rost ungi, þar sem tennurnar eru mjög heillegar. Ekki er auðhlaupið að því að fá slíkan grip hér á landi, en þennari rostung rak í Axarfirði árið 1952 og . var ihann hálfur fimmti metri á lengd. Nokkuð er til af ýmsum vanskapningum, svo sem tvíhöfða lamb og tvíhöfða svín. Fólki þýkir þetta merkilegt, en þó eru slíkir vanskapningar tiltölu lega algengir meðal dýra. lýsingar og teikningar af fuglinum og óhætt er að fullyrða, að liér er um mjög mikið listaverk að ræða, og ber það vott um einstaka handlagni Kristjáns sem taxider- mist. — Hvenær er safnið opið og hvernig hefur aðsóknin verið? —Á sumrin er safnið opið dag lega kl. 2 — 3, en á vetrum aðeins á sunnudögum kl. 2—4. Þá er skrifstofa safnsins opin á vetrum frá mánudegi til föstudags kl. 4 — 7 fyrir 'áhugamenn um náttúrufræði svo og aðra, sem vilja ræða við safnvörð eða kynna sér eitthvað í i sambandi við safnið. Aðsókn hef ur verið góð. Á síðastliðnu ári komu um 2000 gestir í sýningar sal safnsins. — Hverjir kosta rekstur safns ins? — Akureyrarbær á safnið og hef- ur kostað það að miklu leyti. Rík ið hefur styrkt það síðan 1956, og er framlag þess nú 75 þús. kr. á ári. Einnig höfum við fengið úr Vísindasjóði, til kaupa á smásjá og fleiri optískum tækjum. — Að lokum Heligi, hver er til gangur svona safns? — Hlutverk safnsins er þrenns konar. í fyrsta lagi að sýna al- menningi. Þó að söfn verði að ver® meira en sýningarsalur, tel ég mik ilvægt að hafa viðunandi aðstöðu til að sýna almenningi safngrip ina. í öðru lagi á safnið að vera til fræðslu, t.d. í sambandi við náttúrufræðikennslu í skólum, en aðstriða til þeirrar kennslu er — Vegna ónógs skilnings fólks á gildi safnsins, höfúm við lík lega orðið af nokkrum sjaldgæfum gripum. Sem dæmi má nefna, að í fyrra rak hér risasmokkfisk, en þegar safnið ætlaði að reyna að fá hann, kom í ljós, að búið var að skera hann niður og salta, og Hundur eða skoffín? Þetta dýr barst safninu fyri • nokkrum árun Jökulsá á Flateyjardal. Telur Grímur sterkar líku * á, að hér sé afkvæmi réfs og tíkur, þar eð silfurrefur hafði sé t þarna hæfileí Grímur dýrið upp í 4—5 ár, og var það alla tíð af ír eir.keimilegit

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.