Dagur - 26.06.1999, Blaðsíða 2
2 - LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1999
FRÉTTIR
Skoða hátft land-
ið á sólarhriitg
Von er á alls 3 Concorde-
þotum til íslands í sumar
þar sem moldríldr ferða-
nieim fara vítt og breitt
um landið á örfáum dög-
um.
Farið er eldsnemma á morgnana frá
Bretlandi og lent í Keflavík í morg-
unsárið. Þaðan er flogið með Flugfé-
lagi Islands til Hafnar í Hornafirði og
þá liggur leiðin að Jökullóninu auk
þess sem farið er á vélsleða á Vatnajök-
ul. Síðan er flogið norður yfir heim-
skautsbaug og lent á Húsavík. Há-
punktur ferðarinnar er svo sjávarrétta-
hlaðborð á Gamla Bauk á Húsavík og í
kjölfarið hvalaskoðunarferð með Norð-
ursiglingu. Þetta gerist allt á sama sól-
arhringnum en næstu dagar fara svo í
ferðir um Reykjavfk, Gullfoss, Geysi og
aðrar náttúruperlur í nágrenni höfuð-
borgarinnar.
11 hópar
Allý Ólafsdóttir, aðstoðarsölustjóri hjá
FÍ, segir að flugfélagið þjónusti alls 11
hópa í sumar í svona hraðferð. Fyrsta
Concorde vélin kom um helgina en
einnig eiga „venjulegir" farþegar, í
millilandaflugi með Flugleiðum, kost á
hraðferðinni. Concorde tekur 113
manns í sæti og þarf að greiða skilding-
inn til að ferðast með þessari hrað-
skreiðustu farþegaþotu heims. Þeir
þurfa einnig að búa yfir nokkuð góðu
úthaldi. „Þetta gefur þeim í hnotskurn
það ólíka sem landið hefur upp á að
bjóða en ég held að þetta sé dálítið Iýj-
andi ferðalag. Fyrir þá sem hafa stutt-
an tíma er þetta hins vegar stórsnið-
ugt,“ segir Allý.
Hörður Sigurbjarnarson hjá Norður-
siglingu á Húsavík segir lítinn mun á
að þjónusta Concorde-farþegana og
aðra. Fyrirtækið hefur þó örlítið meira
við enda kostar hvalaskoðunarferðin
meira en eila þegar þessi hópur á í
hlut. Þannig fær þotuliðið harðfisk,
hákarl og brennivínssnafs um borð og
líkar vel. Hörður segir sjávarréttahlað-
borð Gamla Bauks vera nýjung sem
hafi algjörlega slegið í gegn að undan-
förnu. — bi>
Jón Baldvin Hannibalsson gaf
því undir fótiiui í DV í vikimni
að koma heim til að stýra Sam-
fylMngumii. Að minnsta kosti
komi hann heim með margfalda
orku og reynslunni ríkari. Pott-
verjar heyrðu af því að samtök
væru jafnvel í burðarliðnuin
undir heitinu „Jón heim“, eða ekki ósvipað og
þegar Keikó var fenginn heim með viðeigandi
brambolti. Spumingin er bara hvort bein út-
sending verður frá heimkomu Jóns. CNN væri
það reyndar ekki ofrausn að senda hingað
tökulið í ljósi þeirrar gífurlegu og jákvæðu at-
hygli sem Jón Baldvin og Biyndís hafa vakið
vestanhafs. Helgarblað Dags birtir cinmitt einn
anga þeirrar uinfjöllunar í blaðinu í dag. Ef CNN
mætir ekki þá gæti Anna Mjöll a.m.k. verið á
bakkanum og sungið „Jón er koininn hcim...“
Jón Baldvin.
Strætóinn góði.
Góðvinur pottverja úr
röðum hafnfirskra
broddborgara fór al-
varlega að íhuga að
hvíla forstjórajepp-
ann sinn einhverja
morgna þegar hann sá
forsíðumynd Dags í gær af almerktum strætis
vagni Almenningsvagna frá toppi til táar. Vagn-
inn er nefnilega þeirrar gerðar að ekki sést inn í
hann en farþegar sjá umlieimiim berurn augum.
Forstjórinn hugsaði með sér að nú gæti ekki sést
til hans ferðast með strætó í vinnuna og gladdist
hann enn meir þegar hann heyrði af áformum
Almenningsvagna að bjóða upp á móttöku
greiðslukorta í strætó...
í pottinum telja menn augljóst að sviptingamar
í Landssímanum nú séu undirbúningur midir að
kolkrabbinn fái fyrirtækið eins og raunar áður
hefur verið haldið fram á þessum vettvangi. Ver-
ið sé að raða réttu mönnunum inn og þannig
undirbúa söluna...
FRÉTTAVIÐTALIÐ
Þómrinn V.
Þómrinsson
tiýrforstjóri Landssímatis
Georg Ólafsson,forstjóri
Samkeppnisstofnumr, fer
hörðum orðum um ,Jyrrum
einkaleyfishafa“ í ársskýrslu
stofnunarinmr. Leitaðvarvið-
bragðaÞórarins V.
„Ununæli Georgs dapurleg“
- Hver eru þtn viðbrögó við grein Georgs?
„Það er ekki skilgreint sem eitt af mark-
miðum samkeppninnar að tryggja neytend-
um sem lægst verð. Með því að starfsmenn
Samkeppnisstofnunar virðast lesa sam-
keppnislögin á afar sérstakan máta þá kem-
ur þetta niður á störfum þeirra. Ummæli
forstjórans eru dapurleg ef hann er þar að
vísa til Landssímans, því að það er jú ekki
um marga einkaleyfishafa að ræða. Stað-
reyndin er þvert á móti sú að margt er í úr-
skurðum og ályktunum Samkeppnisstofn-
unar sem ekki hefur staðist gagnrýna athug-
un.
Það er einnig dapurlegt að Samkeppnis-
stofnun og samkeppnisráð, sem stundum
virðast vera einn og sami aðilinn, skuli Iíta
þannig á hlutverk sitt og stöðu að þegar þau
hafa fellt úrskurð í deilu tveggja aðila á
markaðnum, þá sé þessum aðilum óheimilt
að tjá sig um málið. Raunar er það afskap-
lega sérstætt að Samkeppnisstofnun, sem
hefur að sumu leyti svipaða stöðu og sak-
sóknari í glæpamálum, skuli ekki getað þol-
að það að aðrir tjái sig um úrskurðina held-
ur telji sig með einhveijum hætti eiga að
eiga síðasta orðið. Mér er sem ég sæi sak-
sóknara eða héraðsdómara úthella sér á síð-
um dagblaðanna yfir þeim sem þeir hafa
fjallað um í störfum sínum. Það kæmi auð-
vitað aldrei til álita."
- Teknr Landssíminn þessa grein til stn?
„Forstjóri Samkeppnisstofnunar hlýtur að
vita um hverja hann er að tala. Mér finnst
hann gefa það til kynna að um okkur sé að
ræða. Samkeppnisstofnun hefur líka tekið
miklu ástfóstri við Landssímann og fjaliað
mikið um starfsemi hans, raunar á afskap-
lega sérstakan máta. Sýn stofnunarinnar
virðist vera sú að Landssíminn sé tröll,
hann verði tröll og það sé alveg sama við
hvern hann er að eiga. Ef að British Tel-
ecom myndi opna útibú á íslandi þá sýnist
mér samt að Samkeppnisstofnun myndi
álykta sem svo að Landssíminn værí tröllið í
þeim samskiptum. Þannig er öll þeirra um-
fjöllun. Miklu stærra fyrirtæki hefur stofnað
hér til rekstrar, sem er Western Wireless,
helmingseigandi að Tali, og með þátttöku
innlendra aðila, m.a. Stöðvar 2. Western
Wireless er miklu stærri en Landssíminn.
Samt sem áður talar Samkeppnisstofnun
um Landssímann sem tröll í því samhengi."
- Georg talaði um að atvinnultfið og
Satnkeppnisstofnun þyrftu að ræða þessi
tnál opinskátt. Ertu satnmála þvt?
„Ég get alveg tekið undir það. Því miður
hefur atvinnulífið borið takmarkaða virð-
ingu fyrir úrskurðum Samkeppnisstofnun-
ar.“
- Hvemig ntá bæta þar úr?
„Fyrir það fyrsta er mikilvægt að stofnun-
in hætti að vera í áróðursstríði við einstök
fyrirtæki. Að hún skynji það og skilji að hún
og samkeppnisráð birti ákvarðanir sínar og
álit með sama hætti og umboðsmaður Al-
þingis gerir og með sama hætti og dómstól-
ar. Það hljómar mjög skringilega, að þegar
tveir aðilar á markaðnum eru að deila skuli
Samkeppnisstofnun standa galandi með
öðrum þeirra eftir að hún hefur tjáð sig.
Samkeppnisráð á ekki að tjá sig öðruvísi en
í úrskurðum. Ef úrskurðirnir eru það illa
skrifaðir eða gallaðir, að þeir tjái ekki fulla
hugsun, þá verða þeir að sitja uppi með það.
Úrskurðirnir þurfa að vera þeim hætti að
ekki þurfi að fylgja þeim eftir með blaða-
skrifum og upphrópunum að hálfu sam-
keppnisyfirvalda." - bjb