Dagur - 26.06.1999, Blaðsíða 5
Ð^ur
FRÉTTIR
'iv«r 1 /'ö \ . ð k ii\j í) i\u h i\V) u í. i
LAUGARDAGVR 26. J Ú N í 1999
Uppþafið að samnma
við Islandssíma M. ?
Mikiö gekk á í höfuðstöðvum Landssímans í gær þegar gengið var frá mannaskiptum í fyrirtækinu. Hér ganga
Þórarinn V. Þórarinsson, nýr forstjóri, og arftaki hans í stóli stjórnarformanns, Friðrik Pálsson, til fundar við hand-
hafa hlutabréfs Landssímans, Sturlu Böðvarsson. - mynd: jak
Það gekk eftir í gær
að Þórariim V. Þórar-
insson tók við starfi
forstjóra Landssím-
ans í stað Guðmundar
Bjömssonar. Friðrik
Pálsson er nýr stjóm-
arformaður.
Samkvæmt heimildum Dags
ríkti ekki um það eining innan
stjórnarflokkanna hvernig staðið
var að mannaskiptum á toppi
Landssímans. Það gekk eftir sem
fjölmiðlar höfðu greint frá að
Þórarinn V. Þórarinsson verður
forstjóri í stað Guðmundar
Björnssonar og Friðrik Pálsson,
stjórnarformaður SIF og fyrrum
forstjóri SH, verður stjórnarfor-
maður Landssímans. Frá þessu
var gengið á stjórnarfundi í gær
og síðar hluthafafundi með
Sturlu Böðvarssyni samgöngu-
ráðherra. Sturla harðneitaði því í
samtali við Dag að óeining hefði
ríkt innan stjórnarflokkanna um
málið og vísaði þar, máli sínu til
stuðnings, til samhljóða sam-
þykktar stjórnar Landssímans.
Einn stjórnarmaður sagði hins
vegar við Dag að stjórnin hefði
engu getað breytt, málið hefði
verið afgreitt fyrirfram og aldrei
áður verið til umfjöllunar í
stjórninni. Agreiningur stjórnar-
flokkanna hefði því ekki komið
inn á þennan stjórnarfund í gær.
Þórarinn V. og Sturla hefðu ver-
ið búnir að leggja málið upp.
„Eflaust geta verið skiptar
skoðanir milli manna en um
þetta ríkti algjör eining. Eg bind
miklar vonir við störf þeirra Þór-
arins og Friðriks. Framundan
eru spennandi tfmar í fjarskipt-
um sem kalla á breyttar áhersl-
ur,“ sagði Sturla við Dag. Um
brotthvarf Guðmundar sagði
Sturla á blaðamannafundinum
að hann hefði sjálfur kosið að
hætta og hefði ekki verið rekinn
eins og Iátið hafi verið í veðri
vaka.
Guðmundur Björnsson er
sagður starfa áfram að sérverk-
efnum og ráðgjöf fyrir Landssím-
ann. Þegar arftaki hans var
spurður á blaðamannafundi í
gær í hverju þessi verkefni fælust
sagði Þórarinn það ekki frágeng-
ið. Guðmundur myndi taka sér
nokkurra vikna sumarfrí og störf
hans yrðu ákveðin nánar með
haustinu.
„Fyrir fáiun dögum“
Friðrik Pálsson sagðist aðspurð-
ur í samtali við Dag hafa verið
beðinn um það fyrir „fáum dög-
um“ að koma til stjórnarstarfa
hjá Landssímanum. Hann hefði
átt „ágæt viðtöl“ við ráðherra og
Þórarin og eftir að hafa kynnt sér
málið betur ákveðið að slá til.
Hann sagði ný verkefni leggjast
vel í sig. Fjarskipti væru vissu-
lega nýr vettvangur eftir áralöng
viðskipti með fiskafurðir en
hann hefði mikla reynslu af
stjórnun fyrirtækja og erlendum
samskiptum. Hann væri að auki
mikill áhugamaður um fjarskipti,
fastengdur með síma við eyrun á
sér og nettengdur. Friðrik er
stjórnarformaður SIF og sagðist
hann gegna áfram því starfi með
formennsku í Landssímanum.
Störfin sköruðust eðlilega ekki.
Kolkrabbinn sagður á ferð-
irnii
Ymsar kenningar hafa verið um
ástæður forstjóraskiptanna og
innkomu Friðriks í stól stjórnar-
formanns. Ein er sú að Kol-
krabbinn sé að tryggja sér ítök í
Landssímanum áður en hann
verður seldur. Báðir séu Þórar-
inn og Friðrik tengdir Eimskips-
veldinu. Bent er á að Eimskip og
eignarhaldsfélag þess, Burðarás,
séu stórir eigendur í nýstofnuð-
um Islandssíma. Einn viðmæl-
anda Dags orðaði það svo að Is-
landssími væri ekkert annað en
„hrífa" til að raka saman hluta-
bréfunum í Landssímanum. Is-
landssími og Landssíminn
myndu síðan renna saman í eitt
fyrirtæki. Hvort þetta er svo rétt
kenning verður tíminn að leiða í
ljós.
- BJB
Tveir nýir í ynrstjóm
Stjórn Landssímans samþykkti í
gær nýtt skipurit í tengslum við
ráðningu Þórarins V. Þórarins-
sonar sem nýs forstjóra. Auk
þess var gengið frá ráðningu nýs
framkvæmdastjóra, Agnars Más
Jónssonar, tií viðbótar þeim
fimm sem fyrir eru. Þá hefur Páll
Asgrímsson verið ráðinn for-
stöðumaður nýrrar lögfræði-
deildar Landssímans. Megin-
markmið þessara breytinga er, að
sögn nýs forstjóra, að breyta
Landssímanum úr tæknidrifnu
fyrirtæki í markaðsdrifið þjón-
ustufyrirtæki „í fremstu röð“.
Að afloknum þessum breyting-
um skiptist Landssíminn í sjö
svið. Þór Jes Þórisson mun stýra
tal- og gagnaflutningaþjónustu,
Agnar Már Páll Ásgrímsson.
Jónsson.
Magnús Ögmundsson stýrir far-
símaþjónustu, Agnar Már mun
stýra stórnotendaþjónustu, Berg-
þór Halldórsson stýrir fjarskipta-
neti, Viðar Viðarsson mun stýra
bæði starfsmanna- og upplýs-
ingatæknisviðum og fjármála-
sviði fer Kristján Indriðason fyr-
ir.
Auk framkvæmdastjóranna sex
munu Qórir forstöðumenn heyra
beint undir forstjóra í nýju
skipuriti. Páll Ásgrímsson er eins
og áður sagði yfir nýrri lögfræði-
deild, Ólafur Þ. Stephensen stýr-
ir áfram upplýsinga- og kynning-
armálum sem og Sigurgeir H.
Sigurgeirsson sem forstöðumað-
ur stjórnunardeildar og Ólafur
Karlsson yfir innri endurskoðun.
Á næstu vikum verður gengið
endanlega frá skipulagi sviða fyr-
irtækisins og ráðningu forstöðu-
manna á hveiju sviði fyrir sig.
Búast má við einhveijum breyt-
ingum þar frá því sem verið hef-
ur. - BJB
Kom ekki á óvart
„Þessi tíðindi koma okkur ekki á
óvart. Það er nokkuð síðan við
fórum að skynja hvað var í bí-
gerð. Okkur þykir sérkennilegt
hvað hluthafinn skuli grípa
svona fljótt inn eftir að hann fer
að stýra þessu fyrirtæki. Ekkert
sérstakt hefur komið fram á síð-
ustu vikum sem gaf tilefni til
svona hastarlegra ákvarðana. I
spilunum er ekkert annað en
tvennt. Annað hvort hefur eitt-
hvað mjög alvarlegt komið fram
á síðustu 4-5 vikum eða þá að
þetta hafi verið löngu ákveðið.
Nýr maður sem gætir hagsmuna
eigenda gerir ekki svona nema
að vel ígrund-
uðu máli,“
sagði Þórólfur
Árnason, for-
stjóri Tals, við
Dag í gær um
forstjóraskiptin
hjá aðalkeppi-
nautnum,
Landssíman-
um.
„Ef þeir eru
að sýna með
þessu að áherslur Landssímans í
samkeppni hafi verið rangar þá
eru þeir ekki að taka nýjan mann
í það. Þeir eru einmitt að taka
manninn sem mest hefur um
áherslur Landssímans haft að
segja. Við erum að fá nákvæm-
lega þann sem verið hefur í for-
svari hvort eð er og breytingin er
því ekki mikil,“ sagði Þórólfur
þegar hann var spurður hvort álit
samkeppnisráðs hefði haft ein-
hver áhrif á þessa ákvörðun
Landssímamanna.
Hann sagðist sjá eftir Guð-
mundi úr forstjórastólnum því
samstarf þeirra hefði verið með
ágætum. „Guðmundur er góður
maður og ég met hann mikils,"
sagði Þórólfur. — BJB
Þórólfur Árna-
son, forstjóri
Tals.
Borgaramir borguðu brúsaun
Héraðsdómur Reykjavíkur herur sýknað íslenska ríkið af kröfum um
endurgreiðslu oftekinna gjalda af innfluttum frönskum kartöflum.
Árið 1996 komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að gjaldið hefði
verið ólögmætt. En þar sem innflytjendumir sýndu ekki fram á ann-
að mætti ætla að gjaldinu hafi verið velt út í verðlagið af innflytjend-
unum og hafa þeir því ekki orðið fyrir tjóni. Því væri um ólögmæta
auðgun innflytjendanna að ræða ef endurgreiðslukröfurnar yrðu
teknar til greina. Kröfurnar um endurgreiðslu gjaldanna í þremur
dómsmálum voru yfir 115 milljónir króna auk vaxta en ekki var gerð
krafa um skaðabætur af hálfu innflytjendanna. — ÁÁ
Bankamenn sainbykktu
Félagsmenn í Sambandi íslenskra bankamanna, SÍB, samþykktu ný-
gerðan kjarasamning með yfírgnæfandi meirihluta atkvæða, eða 72%.
Álíka meirihluti var einnig með því að hafa banka lokaða á aðfanga-
dag jóla.
Kjarasamningurinn gildir frá 1. júlí nk. til ársloka á næsta ári.
Helstu atriði hans eru þau að bankafólk fær 80 þúsund króna ein-
greiðslu um næstu mánaðamót, eða tæplega 50 þúsund krónur eftir
skatta. Frá sama tíma hækka laun um 0,3% og 1. janúar á næsta ári
hækka þau um 3,5%. Þá náðist einnig samkomulag um styrktarsjóð
bankamanna og fræðslumál þeirra. — GRH
Mótmæla vinnubrögðum
Fulltrúar stjórnarandstöðunnar í stjórn Landssímans lögðu fram sér-
staka bókun á stjórnarfundinum í gær. í bókuninni er lýst óánægju
með aðdraganda þess hvernig ákvarðanir um mannabreytingar og
rekstur Landssímans voru teknar „í „reykfylltum bakherbergjum", en
ekki á vettvangi stjórnar Landssímans". Segir í bókuninni að þetta sé
í anda helmingaskiptastjórnarinnar sem nú sitji við völd. Engu að síð-
ur lýsa fulltrúarnir yfír stuðningi við ráðningu Þórarins V. Þórarins-
sonar sem forstjóra. Fulltrúarnir sem þetta bókuðu eru þau Flosi Ei-
ríksson frá Alþýðubandalagi og Sigrún Benediktsdóttir frá Alþýðu-
flokki.