Dagur - 26.06.1999, Side 5

Dagur - 26.06.1999, Side 5
Ð^ur FRÉTTIR 'iv«r 1 /'ö \ . ð k ii\j í) i\u h i\V) u í. i LAUGARDAGVR 26. J Ú N í 1999 Uppþafið að samnma við Islandssíma M. ? Mikiö gekk á í höfuðstöðvum Landssímans í gær þegar gengið var frá mannaskiptum í fyrirtækinu. Hér ganga Þórarinn V. Þórarinsson, nýr forstjóri, og arftaki hans í stóli stjórnarformanns, Friðrik Pálsson, til fundar við hand- hafa hlutabréfs Landssímans, Sturlu Böðvarsson. - mynd: jak Það gekk eftir í gær að Þórariim V. Þórar- insson tók við starfi forstjóra Landssím- ans í stað Guðmundar Bjömssonar. Friðrik Pálsson er nýr stjóm- arformaður. Samkvæmt heimildum Dags ríkti ekki um það eining innan stjórnarflokkanna hvernig staðið var að mannaskiptum á toppi Landssímans. Það gekk eftir sem fjölmiðlar höfðu greint frá að Þórarinn V. Þórarinsson verður forstjóri í stað Guðmundar Björnssonar og Friðrik Pálsson, stjórnarformaður SIF og fyrrum forstjóri SH, verður stjórnarfor- maður Landssímans. Frá þessu var gengið á stjórnarfundi í gær og síðar hluthafafundi með Sturlu Böðvarssyni samgöngu- ráðherra. Sturla harðneitaði því í samtali við Dag að óeining hefði ríkt innan stjórnarflokkanna um málið og vísaði þar, máli sínu til stuðnings, til samhljóða sam- þykktar stjórnar Landssímans. Einn stjórnarmaður sagði hins vegar við Dag að stjórnin hefði engu getað breytt, málið hefði verið afgreitt fyrirfram og aldrei áður verið til umfjöllunar í stjórninni. Agreiningur stjórnar- flokkanna hefði því ekki komið inn á þennan stjórnarfund í gær. Þórarinn V. og Sturla hefðu ver- ið búnir að leggja málið upp. „Eflaust geta verið skiptar skoðanir milli manna en um þetta ríkti algjör eining. Eg bind miklar vonir við störf þeirra Þór- arins og Friðriks. Framundan eru spennandi tfmar í fjarskipt- um sem kalla á breyttar áhersl- ur,“ sagði Sturla við Dag. Um brotthvarf Guðmundar sagði Sturla á blaðamannafundinum að hann hefði sjálfur kosið að hætta og hefði ekki verið rekinn eins og Iátið hafi verið í veðri vaka. Guðmundur Björnsson er sagður starfa áfram að sérverk- efnum og ráðgjöf fyrir Landssím- ann. Þegar arftaki hans var spurður á blaðamannafundi í gær í hverju þessi verkefni fælust sagði Þórarinn það ekki frágeng- ið. Guðmundur myndi taka sér nokkurra vikna sumarfrí og störf hans yrðu ákveðin nánar með haustinu. „Fyrir fáiun dögum“ Friðrik Pálsson sagðist aðspurð- ur í samtali við Dag hafa verið beðinn um það fyrir „fáum dög- um“ að koma til stjórnarstarfa hjá Landssímanum. Hann hefði átt „ágæt viðtöl“ við ráðherra og Þórarin og eftir að hafa kynnt sér málið betur ákveðið að slá til. Hann sagði ný verkefni leggjast vel í sig. Fjarskipti væru vissu- lega nýr vettvangur eftir áralöng viðskipti með fiskafurðir en hann hefði mikla reynslu af stjórnun fyrirtækja og erlendum samskiptum. Hann væri að auki mikill áhugamaður um fjarskipti, fastengdur með síma við eyrun á sér og nettengdur. Friðrik er stjórnarformaður SIF og sagðist hann gegna áfram því starfi með formennsku í Landssímanum. Störfin sköruðust eðlilega ekki. Kolkrabbinn sagður á ferð- irnii Ymsar kenningar hafa verið um ástæður forstjóraskiptanna og innkomu Friðriks í stól stjórnar- formanns. Ein er sú að Kol- krabbinn sé að tryggja sér ítök í Landssímanum áður en hann verður seldur. Báðir séu Þórar- inn og Friðrik tengdir Eimskips- veldinu. Bent er á að Eimskip og eignarhaldsfélag þess, Burðarás, séu stórir eigendur í nýstofnuð- um Islandssíma. Einn viðmæl- anda Dags orðaði það svo að Is- landssími væri ekkert annað en „hrífa" til að raka saman hluta- bréfunum í Landssímanum. Is- landssími og Landssíminn myndu síðan renna saman í eitt fyrirtæki. Hvort þetta er svo rétt kenning verður tíminn að leiða í ljós. - BJB Tveir nýir í ynrstjóm Stjórn Landssímans samþykkti í gær nýtt skipurit í tengslum við ráðningu Þórarins V. Þórarins- sonar sem nýs forstjóra. Auk þess var gengið frá ráðningu nýs framkvæmdastjóra, Agnars Más Jónssonar, tií viðbótar þeim fimm sem fyrir eru. Þá hefur Páll Asgrímsson verið ráðinn for- stöðumaður nýrrar lögfræði- deildar Landssímans. Megin- markmið þessara breytinga er, að sögn nýs forstjóra, að breyta Landssímanum úr tæknidrifnu fyrirtæki í markaðsdrifið þjón- ustufyrirtæki „í fremstu röð“. Að afloknum þessum breyting- um skiptist Landssíminn í sjö svið. Þór Jes Þórisson mun stýra tal- og gagnaflutningaþjónustu, Agnar Már Páll Ásgrímsson. Jónsson. Magnús Ögmundsson stýrir far- símaþjónustu, Agnar Már mun stýra stórnotendaþjónustu, Berg- þór Halldórsson stýrir fjarskipta- neti, Viðar Viðarsson mun stýra bæði starfsmanna- og upplýs- ingatæknisviðum og fjármála- sviði fer Kristján Indriðason fyr- ir. Auk framkvæmdastjóranna sex munu Qórir forstöðumenn heyra beint undir forstjóra í nýju skipuriti. Páll Ásgrímsson er eins og áður sagði yfir nýrri lögfræði- deild, Ólafur Þ. Stephensen stýr- ir áfram upplýsinga- og kynning- armálum sem og Sigurgeir H. Sigurgeirsson sem forstöðumað- ur stjórnunardeildar og Ólafur Karlsson yfir innri endurskoðun. Á næstu vikum verður gengið endanlega frá skipulagi sviða fyr- irtækisins og ráðningu forstöðu- manna á hveiju sviði fyrir sig. Búast má við einhveijum breyt- ingum þar frá því sem verið hef- ur. - BJB Kom ekki á óvart „Þessi tíðindi koma okkur ekki á óvart. Það er nokkuð síðan við fórum að skynja hvað var í bí- gerð. Okkur þykir sérkennilegt hvað hluthafinn skuli grípa svona fljótt inn eftir að hann fer að stýra þessu fyrirtæki. Ekkert sérstakt hefur komið fram á síð- ustu vikum sem gaf tilefni til svona hastarlegra ákvarðana. I spilunum er ekkert annað en tvennt. Annað hvort hefur eitt- hvað mjög alvarlegt komið fram á síðustu 4-5 vikum eða þá að þetta hafi verið löngu ákveðið. Nýr maður sem gætir hagsmuna eigenda gerir ekki svona nema að vel ígrund- uðu máli,“ sagði Þórólfur Árnason, for- stjóri Tals, við Dag í gær um forstjóraskiptin hjá aðalkeppi- nautnum, Landssíman- um. „Ef þeir eru að sýna með þessu að áherslur Landssímans í samkeppni hafi verið rangar þá eru þeir ekki að taka nýjan mann í það. Þeir eru einmitt að taka manninn sem mest hefur um áherslur Landssímans haft að segja. Við erum að fá nákvæm- lega þann sem verið hefur í for- svari hvort eð er og breytingin er því ekki mikil,“ sagði Þórólfur þegar hann var spurður hvort álit samkeppnisráðs hefði haft ein- hver áhrif á þessa ákvörðun Landssímamanna. Hann sagðist sjá eftir Guð- mundi úr forstjórastólnum því samstarf þeirra hefði verið með ágætum. „Guðmundur er góður maður og ég met hann mikils," sagði Þórólfur. — BJB Þórólfur Árna- son, forstjóri Tals. Borgaramir borguðu brúsaun Héraðsdómur Reykjavíkur herur sýknað íslenska ríkið af kröfum um endurgreiðslu oftekinna gjalda af innfluttum frönskum kartöflum. Árið 1996 komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að gjaldið hefði verið ólögmætt. En þar sem innflytjendumir sýndu ekki fram á ann- að mætti ætla að gjaldinu hafi verið velt út í verðlagið af innflytjend- unum og hafa þeir því ekki orðið fyrir tjóni. Því væri um ólögmæta auðgun innflytjendanna að ræða ef endurgreiðslukröfurnar yrðu teknar til greina. Kröfurnar um endurgreiðslu gjaldanna í þremur dómsmálum voru yfir 115 milljónir króna auk vaxta en ekki var gerð krafa um skaðabætur af hálfu innflytjendanna. — ÁÁ Bankamenn sainbykktu Félagsmenn í Sambandi íslenskra bankamanna, SÍB, samþykktu ný- gerðan kjarasamning með yfírgnæfandi meirihluta atkvæða, eða 72%. Álíka meirihluti var einnig með því að hafa banka lokaða á aðfanga- dag jóla. Kjarasamningurinn gildir frá 1. júlí nk. til ársloka á næsta ári. Helstu atriði hans eru þau að bankafólk fær 80 þúsund króna ein- greiðslu um næstu mánaðamót, eða tæplega 50 þúsund krónur eftir skatta. Frá sama tíma hækka laun um 0,3% og 1. janúar á næsta ári hækka þau um 3,5%. Þá náðist einnig samkomulag um styrktarsjóð bankamanna og fræðslumál þeirra. — GRH Mótmæla vinnubrögðum Fulltrúar stjórnarandstöðunnar í stjórn Landssímans lögðu fram sér- staka bókun á stjórnarfundinum í gær. í bókuninni er lýst óánægju með aðdraganda þess hvernig ákvarðanir um mannabreytingar og rekstur Landssímans voru teknar „í „reykfylltum bakherbergjum", en ekki á vettvangi stjórnar Landssímans". Segir í bókuninni að þetta sé í anda helmingaskiptastjórnarinnar sem nú sitji við völd. Engu að síð- ur lýsa fulltrúarnir yfír stuðningi við ráðningu Þórarins V. Þórarins- sonar sem forstjóra. Fulltrúarnir sem þetta bókuðu eru þau Flosi Ei- ríksson frá Alþýðubandalagi og Sigrún Benediktsdóttir frá Alþýðu- flokki.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.