Dagur - 26.06.1999, Blaðsíða 8
8- LAUGARDAGVR 26. JÚNÍ 1999
Tkyptr
FRÉTTA SKÝRING
Deilt imi Vatnsfells
Deilur hafa vaJknað
niilli Landsvirkjimar
og uinboðsmaniis kín-
versk stórfydrtækis
um hver hafi átt hag-
stæðasta tilhoðið í
hyggingarhluta Vatns-
fellsvirkjunar.
Virkjanaframkvæmdir hafa ein-
kennt mjög íslenska þjóðfélags-
umræðu undanfarin misseri og
yfirleitt er barist fyrir því að virkj-
anir rísi ekki. I vikunni var hins
vegar barist um það hverjir ættu
að fá að reisa virkjun en stjórn
Landsvirkjunar hefur ákveðið að
ganga til lokasamninga annars
vegar við Islenska aðalverktaka
hf. um byggingu stöðvarhúss
Vatnsfellsvirkjunar og stíflu
vegna inntakslóns og hins vegar
við Arnarfell ehf. um gröft á frá-
rennslisskurði við virkjunina.
Vatnsfellsvirkjun er fyrirhuguð
í veituskurði úr Þórisvatni í inn-
takslón Sigölduvirkjunar. Þóris-
vatn er mitt á milli Hofsjökuls og
Mýrdalsjökuls. Stærð Vatnsfells-
virkjunar verður 90 MW en til
samanburðar má nefna að Búr-
fellsvirkjun er 270 MW, Sultar-
tangavirkjun er 120 MW, Sig-
ölduvirkjun er 150 MW og
Blönduvirkjun er 150 MW.
Vatnsfellsvirkjunin á meðal ann-
ars að anna almennri orkuþörf og
hugsanlegri stækkun álversins á
Grundartanga. Heildarkostnaður
virkjunarinnar er áætlaður um
átta milljarðar króna en að sögn
Þorsteins Hilmarssonar, upplýs-
ingafulltrúa Landsvirkjunar,
stefnir kostnaðurinn í að verða
nær sex milljörðum.
Alls bárust sex tilboð í alla þrjá
áfanga byggingarhluta virkjunar-
innar en tvö tilboð bárust í tvo
áfanga verksins. Meðal tilboða
var tilboð frá kínverska stórfyrir-
tækinu China National Water
Resources and Hydropower
Engineering Corporation sem
telur sig hafa boðið Landsvirkjun
besta tilboðið.
A.m.k. 270 millljónum
króna ódýrari
Tilboð kínverska fyrirtækisins
hljóðaði upp á 3.250 milljónir
króna fyrir alla áfanga byggingar-
hlutans en tilboðið sem Lands-
virkjun tók hljóðaði upp á 3.520
milljónir króna. Inni í því eru
3.050 milljónir króna fyrir verk
íslenskra aðalverktaka hf. og svo
470 milljónir króna fyrir verk
Arnarfells ehf. Miðað við þessi
tilboð er kínverska tilboðið 270
milljónum króna lægra en tilboð-
ið sem var tekið. En sé miðað við
að kfnverska fyrirtækið tæki tvo
hluta verksins og Islenskir aðal-
verktakar hf. tækju frárennslis-
skurðsverkefnið verður það tilboð
tæplega 500 milljónum króna
ódýrara en tilboðið sem var tekið
að sögn Magnúsar Arnasonar,
umboðsmanns kínverska fyrir-
tækisins.
Landsvirkjun mótmælir þess-
Þaö eru miklir fjármunir í húfi þegar vinna við virkjanaframkvæmdir er annars vegar eins og deilan um tilboðin í Vatnsfellsvirkjun ber mei
um seinni samanburði þar sem
tilboð Islenskra aðalverktaka hf. í
frárennslisskurðsverkefnið
byggðist á tækni sem Landsvirkj-
un hefði ekki getað sætt sig við.
Magnús segir að aðalatriðið sé að
það er mikill verðmunur á tilboð-
unum og allt tal Landsvirkjunar
um að það hafi ekki í raun verið
svo mikill munur sé bara rugl.
„Tölurnar tala sínu máli,“ segir
Magnús. Hann segir Kínverjana
vera afar hissa á þessum vinnu-
brögðum Landsvirkjunar þvf þeir
hafi aldrei lent í því áður að vera
ódýrastir en vera samt hafnað.
Þetta kínverska stórfyrirtæki er í
eigu kínverska ríkisins og hefur
mikla reynslu af byggingu virkj-
ana og hyfur það byggt 90 virkj-
anir sem eru að meðatali 440
MW. Hins vegar hefur þetta fyrir-
tæki aldrei byggt virkjun í Evrópu
en fyrirtældð stefnir á þann
markað, að sögn Magnúsar.
Líklega ekki málaferli
Aðspurður um næstu skref Kín-
veijanna, sagði Magnús að þau
væru óljós og ekki sé búið að
kanna málið til hlítar. „Almennt
séð hefur kínverska fyrirtækið
engan áhuga á að standa í mála-
ferlum eða þrasi við Landsvirkj-
un. Það er auðvitað Landsvirkj-
unar að ákveða við hverja þeir
hafa viðskipti. Maður neyðir eng-
an til að hafa viðskipti við sig.
Það kemur fram í útboðsgögnun-
um að Landsvirkjun áskilji sér
þann rétt að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna þeim öllum og
því er þetta e.t.v. meira siðferðis-
Ieg spurning hvort það sé réttlæt-
anlegt að taka ekki miklu lægra
tilboði frá fyrirtæki sem var full-
fært um að vinna verkið. Þetta er
ekki eins og gengur og gerist í al-
þjóðaviðskiptum með svona út-
boð að miklu hærra boði sé tekið.
En þetta er ekki einsdæmi hjá
Landsvirkjun. Þeir hafa hafnað
kínversku fyrirtæki áður en það
var árið 1989 og var í tengslum
við vélbúnað. Þá munaði svipuð-
um upphæðum og nú en þá voru
gefnar þær skýringar að stjórn-
málaástandið í Kína hefði verið
ótryggt á þeim tíma,“ segir Magn-
ús.
Hann sagði það hins vegar vera
alveg Ijóst að kínverska fyrirtækið
hafi orðið fyrir einhverju tjóni og
að því finnist að það hafi verið
brotið á sér. Magnús sagðist ekki
geta fullyrt hve mikið tjón kín-
verska fyrirtækisins væri en um
tíu manns í Kína hafa unnið dag
og nótt í mánuð að þessu máli og
kostnaður væri við flugferðir
fram og til baka og svo auðvitað
annar kostnaður sem hlýst af því
að taka þátt í svona útboði. „Að
auki hef ég og mitt fyrirtæki unn-
ið að þessu alveg síðan í mars,“
segir Magnús. Hann sagði að
þrátt fyrir að það væri stefna Kín-
verjanna að standa ekki í mála-
ferlum við einn eða neinn hefðu
þeir ábuga á að vita sina réttar-
GUST
I4FUR
GUSTSSON