Dagur - 26.06.1999, Page 8

Dagur - 26.06.1999, Page 8
8- LAUGARDAGVR 26. JÚNÍ 1999 Tkyptr FRÉTTA SKÝRING Deilt imi Vatnsfells Deilur hafa vaJknað niilli Landsvirkjimar og uinboðsmaniis kín- versk stórfydrtækis um hver hafi átt hag- stæðasta tilhoðið í hyggingarhluta Vatns- fellsvirkjunar. Virkjanaframkvæmdir hafa ein- kennt mjög íslenska þjóðfélags- umræðu undanfarin misseri og yfirleitt er barist fyrir því að virkj- anir rísi ekki. I vikunni var hins vegar barist um það hverjir ættu að fá að reisa virkjun en stjórn Landsvirkjunar hefur ákveðið að ganga til lokasamninga annars vegar við Islenska aðalverktaka hf. um byggingu stöðvarhúss Vatnsfellsvirkjunar og stíflu vegna inntakslóns og hins vegar við Arnarfell ehf. um gröft á frá- rennslisskurði við virkjunina. Vatnsfellsvirkjun er fyrirhuguð í veituskurði úr Þórisvatni í inn- takslón Sigölduvirkjunar. Þóris- vatn er mitt á milli Hofsjökuls og Mýrdalsjökuls. Stærð Vatnsfells- virkjunar verður 90 MW en til samanburðar má nefna að Búr- fellsvirkjun er 270 MW, Sultar- tangavirkjun er 120 MW, Sig- ölduvirkjun er 150 MW og Blönduvirkjun er 150 MW. Vatnsfellsvirkjunin á meðal ann- ars að anna almennri orkuþörf og hugsanlegri stækkun álversins á Grundartanga. Heildarkostnaður virkjunarinnar er áætlaður um átta milljarðar króna en að sögn Þorsteins Hilmarssonar, upplýs- ingafulltrúa Landsvirkjunar, stefnir kostnaðurinn í að verða nær sex milljörðum. Alls bárust sex tilboð í alla þrjá áfanga byggingarhluta virkjunar- innar en tvö tilboð bárust í tvo áfanga verksins. Meðal tilboða var tilboð frá kínverska stórfyrir- tækinu China National Water Resources and Hydropower Engineering Corporation sem telur sig hafa boðið Landsvirkjun besta tilboðið. A.m.k. 270 millljónum króna ódýrari Tilboð kínverska fyrirtækisins hljóðaði upp á 3.250 milljónir króna fyrir alla áfanga byggingar- hlutans en tilboðið sem Lands- virkjun tók hljóðaði upp á 3.520 milljónir króna. Inni í því eru 3.050 milljónir króna fyrir verk íslenskra aðalverktaka hf. og svo 470 milljónir króna fyrir verk Arnarfells ehf. Miðað við þessi tilboð er kínverska tilboðið 270 milljónum króna lægra en tilboð- ið sem var tekið. En sé miðað við að kfnverska fyrirtækið tæki tvo hluta verksins og Islenskir aðal- verktakar hf. tækju frárennslis- skurðsverkefnið verður það tilboð tæplega 500 milljónum króna ódýrara en tilboðið sem var tekið að sögn Magnúsar Arnasonar, umboðsmanns kínverska fyrir- tækisins. Landsvirkjun mótmælir þess- Þaö eru miklir fjármunir í húfi þegar vinna við virkjanaframkvæmdir er annars vegar eins og deilan um tilboðin í Vatnsfellsvirkjun ber mei um seinni samanburði þar sem tilboð Islenskra aðalverktaka hf. í frárennslisskurðsverkefnið byggðist á tækni sem Landsvirkj- un hefði ekki getað sætt sig við. Magnús segir að aðalatriðið sé að það er mikill verðmunur á tilboð- unum og allt tal Landsvirkjunar um að það hafi ekki í raun verið svo mikill munur sé bara rugl. „Tölurnar tala sínu máli,“ segir Magnús. Hann segir Kínverjana vera afar hissa á þessum vinnu- brögðum Landsvirkjunar þvf þeir hafi aldrei lent í því áður að vera ódýrastir en vera samt hafnað. Þetta kínverska stórfyrirtæki er í eigu kínverska ríkisins og hefur mikla reynslu af byggingu virkj- ana og hyfur það byggt 90 virkj- anir sem eru að meðatali 440 MW. Hins vegar hefur þetta fyrir- tæki aldrei byggt virkjun í Evrópu en fyrirtældð stefnir á þann markað, að sögn Magnúsar. Líklega ekki málaferli Aðspurður um næstu skref Kín- veijanna, sagði Magnús að þau væru óljós og ekki sé búið að kanna málið til hlítar. „Almennt séð hefur kínverska fyrirtækið engan áhuga á að standa í mála- ferlum eða þrasi við Landsvirkj- un. Það er auðvitað Landsvirkj- unar að ákveða við hverja þeir hafa viðskipti. Maður neyðir eng- an til að hafa viðskipti við sig. Það kemur fram í útboðsgögnun- um að Landsvirkjun áskilji sér þann rétt að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum og því er þetta e.t.v. meira siðferðis- Ieg spurning hvort það sé réttlæt- anlegt að taka ekki miklu lægra tilboði frá fyrirtæki sem var full- fært um að vinna verkið. Þetta er ekki eins og gengur og gerist í al- þjóðaviðskiptum með svona út- boð að miklu hærra boði sé tekið. En þetta er ekki einsdæmi hjá Landsvirkjun. Þeir hafa hafnað kínversku fyrirtæki áður en það var árið 1989 og var í tengslum við vélbúnað. Þá munaði svipuð- um upphæðum og nú en þá voru gefnar þær skýringar að stjórn- málaástandið í Kína hefði verið ótryggt á þeim tíma,“ segir Magn- ús. Hann sagði það hins vegar vera alveg Ijóst að kínverska fyrirtækið hafi orðið fyrir einhverju tjóni og að því finnist að það hafi verið brotið á sér. Magnús sagðist ekki geta fullyrt hve mikið tjón kín- verska fyrirtækisins væri en um tíu manns í Kína hafa unnið dag og nótt í mánuð að þessu máli og kostnaður væri við flugferðir fram og til baka og svo auðvitað annar kostnaður sem hlýst af því að taka þátt í svona útboði. „Að auki hef ég og mitt fyrirtæki unn- ið að þessu alveg síðan í mars,“ segir Magnús. Hann sagði að þrátt fyrir að það væri stefna Kín- verjanna að standa ekki í mála- ferlum við einn eða neinn hefðu þeir ábuga á að vita sina réttar- GUST I4FUR GUSTSSON

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.