Dagur - 26.06.1999, Blaðsíða 7

Dagur - 26.06.1999, Blaðsíða 7
I RITS TJÓRNARSPJALL LAUGARDAGUR 2 6. JÚNÍ 1999 - 7 Að stíga ofan í ný- 1 egan hundasldt Ég lenti í því í íyrrakvöld, þegar ég fór út að ganga með hundinn minn, að stíga ofan í nýlegan hundaskít. Slíkt er óþolandi, ekki síst þegar maður er í götu- skóm, með frekar grófriffluðum botni. Það er svo mikið vesen að hreinsa þetta. Einna helst að haegt sé að nota einhverja litla spítu eða kalkvist úr nálægum runna. Og allan tímann er manns eigin hundur óður og uppvægur út af lyktinni, rykkir í ólina til að komast til að míga utan í næsta ljósastaur og helga sér umráðasvæði. Hún er merki- leg þessi hundasálfræði. Annars er hundaeigendasálfræðin eigin- lega enn merkilegri. Það er vel skiljanlegt að fólk hafi áhuga á að hafa hunda á heimili sínu þó það búi í þéttbýli. Krakkar hafa gaman af hundum og fullorðnir líka, enda eru hundar yfirleitt skemmtileg dýr, gáfuð, vinaleg og trygglynd. Hundurinn verður yfirleitt hluti af fjölskyldunni. Yf- irgnæfandi meirihluti hundaeig- enda hugsar líka vel um hundinn sinn, leikur við hann og hreyfir og gefur honum hollan og góðan mat. Annað væri vart við hæfi þegar um fjölskyldumeðlim er að ræða. Sífellt á óvart Þess vegna kemur það sífellt á óvart að sjá hversu algengt það er, bæði í Reykjavík og á Akureyri (sem eru þeir staðir þar sem ég þekki sæmilega til), að hundaeig- endur telja sig ekki þurfa að hreinsa upp skítinn eftir þessa fjölskyldumeðlimi sína. Þetta óhapp mitt í fyrrakvöld er síður en svo einstakt í sinni röð og varð auðvitað til þess að herða enn á þeirri dagskipun á mínu heimili, að enginn megi fara út fyrir húss- ins dyr með hundinn án þess að hafa þar til gerðan plastpoka með í för. Ekki ég, ekki konan og ekki krakkarnir. Sé fólk með hundana sína úti í sveit eða á víðavangi getur svosem verið fyrirgefanlegt að skilja stykkin eftir, en inni í bæjunum er það beinlínis glæp- samlegt! Hugsunarleysi Nú er ég viss um að þetta er fyrst og fremst hugsunarleysi þegar fólk þrífur ekki upp eftir skepn- urnar, sem það hefur þó tekið ábyrgð á. Það er eins og ábyrðin einskorðist við skepnuna sjálfa - að vilja tryggja að það sé í lagi með hana - en huga síðan ekkert að þeim áhrifum sem hún kann að hafa á umhverfið. Þetta er eins og þegar maður horfir upp á fólk þrífa hjá sér bílinn að innan með því að henda dósum út um glugg- ann og tæma úr öskubökkunum á götuna. Slíkar tiltektir eru þó orðnar fátíðari nú en þær voru - sem betur fer. En þetta hugsunarleysis- eða kæruleysislega viðhorf til nátt- úrulegs og félagslegs umhverfis er engu að síður ótrúlega lífseigt hjá okkur og birtist í hinum fjöl- breytilegustu myndum. Raunar má segja að siðvæðing nútíma Is- lendingsins snúist að meira eða minna leyti um að vinna bug á þessum sauðshætti og þeim lífs- máta sem honum fylgir. Þannig eru menn til dæmis að reyna að umgangast fiskimiðin af meiri virðingu vitandi að fleiri munu þurfa á þeim að halda í framtíð- inni. Menn veiða ekki Iengur bara til að veiða og láta helming- inn af aflanum skemmast. Eins eru reykingar á almannafæri á undanhaldi og menn gera sér nú grein fyrir áhrifum óbeinna reyk- inga og þeirri ábyrgð sem reyk- ingamaðurinn hefur gagnvart hinum reyklausa. Menn eru í vax- andi mæli tilbúnir til að velta fyr- ir sér afleiðingum gerða sinna og til þess er ætlast að þeir taki ábyrgð á þeim. Þetta kemur víða fram og alls staðar má sjá þessa tilhneigingu skjóta upp kollinum - jafnt í umræðunni um stjórn- kerfið, efnahagskerfið, félagskerf- ið og umhverfið. Umhverfísmat Til dæmis kemur þetta greinilega fram í hugmyndinni að baki hinu umtalaða umhverfismati, sem nú vdrðist orðið upphaf og endir allr- ar umræðu um stóriðju og nátt- úruvernd ef marka má frétta- flutninginn síðustu daga. Með umhverfismati er beinlínis lögfest að menn reyni að sjá fyrir afleið- ingar gerða sinna og setja undir þá Ieka sem hugsanlega kunna að koma fram. Að fara ekki í slíkt umhverfismat er þá auðvitað meðvituð ákvörðun um að taka áhættuna á því að eitthvað óvænt komi fram síðar. A hundaeig- endamáli mætti kannski segja að með umhverfismatinu væri verið að tryggja að eigandinn tæki með sér poka þegar hann færi út að ganga með hundinn. Að fara ekki í umhverfismat væri því á sama hátt ákvörðun um að taka séns- inn á að hundurinn gerði ekkert stórt einmitt í þessari gönguferð. I fyrra tilfellinu væri samkvæmt kenningunni um siðvæddari að- gerð að ræða en í því síðara, enda áhættan misjöfn fyrir þá sem á eftir ganga, eftir því hvor leiðin er valin. Rauði herinn I fréttum síðustu viku hefur það komið í ljós að á Islandi á siðvæð- ingin enn talsvert í land, miðað við þá skilgreiningu sem hér hef- ur verið brúkuð. A annað hundr- að erlendir (og innlendir) verka- menn eru nú í tilvistarlegu tóma- rúmi eftir að fiskvinnslufyrirtæki Rauða hersins komust í þrot. Fjölmargir aðilar gerðu sitt til að fá þetta fólk til landsins. Það vantaði fólk í vinnu og fyrirtækið fékk félagsmálaráðuneytið til að skrifa upp á heimildir svo hægt væri að halda uppi atvinnustarf- semi í fyrirtækinu og til að eitt- hvað færi að gerast þarna í sveit- arfélaginu. En nú þegar menn eru komnir með allt niður um sig í rekstrinum, virðist enginn tilbú- inn til að þrífa upp skítinn. Fyrir- hyggjan í þessu máli brást því kerfið býður ekki upp á neinar lausnir fyrir þetta fólk á meðan vandinn er „peningaskortur" en ekki „hráefnisskortur" og á með- an fyrirtækið er í „greiðslustöðv- un“ en ekki „gjaldþroti". Tæplega er hægt að ætlast til að erlenda verkafólkið taki af skarið, sveitar- félagið telur sig ekki geta það, rík- isvaldið ekki heldur og fyrirtækið getur það augljóslega ekki. Þótt fáir virðist hafa áttað sig á því fyrr en nú, þá er greinilegt að í þess- ari gönguferð, sem við köllum innflutning á erlendu vinnuafli, var enginn plastpoki með til að hreinsa upp eftir fyrirtækið! Víða þðrf Það er því jafnt í smáu og stóru sem fyrirhyggju- og kæruleysið, samfara tilhneigingu til að vísa frá sér ábyrgð á því sem okkur er trúað fyrir, birtist. Þörfin fyrir sið- væðingu er augljós. Og þegar öllu er á botninn hvolft var ergelsi mitt frá því í fyrrakvöld þó kannski aðeins smámunir hjá því sem aðrir þurfa að þola þessa dagana. Þótt plastpoka sé víða þörf er þörfin þó hvergi eins að- kallandi og fyrir vestan þar sem ástandið beinlínis æpir á að tekið verði af skarið og einhver mæti á svæðið með poka.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.