Dagur - 26.06.1999, Side 11
LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1999 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
N etanyahu kveður
með árás á Líbanon
Þessi brú 40 km suður af Beirút gjöreyðiiagðist eftir sprengju frá ísraeiska
hernum.
Ehud Barak hraðar
stjómarniyndun í
ísrael eftir að frá-
farandi ríkisstjóm lét
gera loftárásir á
Líbanon.
A.m.k. tíu manns létust og nærri
60 manns særðust í loftárásum
sem Isralsher gerði á Líbanon í
gærmorgun. Israelsmenn segja
árásirnar svar við eldflaugaárás-
um skæruliðasamtakanna Hez-
boilah í norðurhluta Israels síðla
kvölds á fimmtudag, en þar létu
tveir óbreyttir borgarar lífið og á
annan tug særðust.
Loftárásirnar í gær beindust
að orkuverum í útjaðri Beirút,
tveimur mikilvægum brúm í suð-
urhluta Líbanons og bækistöðv-
um Hizbollah í Baalbek í austur-
hluta Líbanons. Þetta eru alvar-
Iegustu átök sem orðið hafa milli
ísraels og Líbanons frá því 1996
þegar ísraelski herinn varð 175
manns að bana í Líbanon.
Skæruliðar Hezbollah og ísra-
elskir hermenn hafa undanfarna
daga og vikur skipst á skotum í
Suður-Líbanon, og þrisvar í
þessari viku hafa óbreyttir borg-
arar særst af völdum ísraelskra
vopna. Eldflaugaárásir Hez-
bollah á fimmtudag voru gerðar í
hefndarskyni vegna þess, og
svöruðu Israelsmenn svo í gær-
morgun með loftárásunum.
Barak reiður
Ehud Barak, sem taka átti við
forsætisráðherraembættinu eftir
tvær vikur, hraðaði í gær stjórn-
armvndu nar\'iðræðu m og undir-
ritaði stjórnarsáttmála með
tveimur hægriflokkum. Hann á
þó enn eftir að semja um stjórn-
arþátttöku við um það bil tíu
flokka, til þess að geta lokið
stjórnarmyndun, en árásirnar á
Líbanon hafa orðið til þess að
ýta mjög á eftir því starfi. Barak
hefur frest til 8. júlí til þess að
ljúka stjórnarmyndun, en sjálfur
sagðist hann vonast til þess að
geta kynnt nýja ríkisstjórn í
næstu viku.
Barak var ekki skýrt frá loft-
árásunum fyrr eftir að ákvörðun
um þær hafði þegar verið tekin.
Talsmaður Baraks sagði ríkis-
stjórn Benjamins Netanyahus
bera fulla ábyrgð á árásunum.
Haft var eftir aðstoðarmönnum
Baraks að hann væri reiður og
afar ósáttur við þessa ákvörðun.
Ehud Barak hefur sagst ætla
að draga ísraelska herinn frá
Líbanon og ná samningum við
Líbanon og Sýrland innan árs.
Þessar yfirlýsingar hafa vakið
vonir í brjóstum Líbanonsbúa,
Sýrlendinga og annarra araba-
þjóða um að Barak verði þeim
ekki jafn erfiður ljár í þúfu og
Netanyahu.
Erfiðar stjómarmyndunar-
vidræður
í kosningunum 17. maí síðast-
liðinn vann Barak ótvíræðan sig-
ur á Netanyahu. Stjórnarmynd-
unarviðræðurnar hafa dregist
nokkuð á langinn, en Barak hef-
ur m.a. verið að kanna mögu-
leika á samsteypustjórn tveggja
höfuðandstæðinganna í ísraelsk-
um stjórnmálum, Verkamanna-
flokksins og Likuds.
Með samningum við hægri-
flokkana tvo, sem eru annars
vegar flokkur rússneskra inn-
flytjenda og hins vegar flokkur
rétttrúaðra gyðinga, hefur Barak
tryggt sér stuðning 37 þing-
manna, og skortir því enn tölu-
vert á að hann hafi þann meiri-
hluta sem þarf á ísraelska þing-
inu, þar sem 120 þingmenn eiga
sæti.
ísraelsmenn hernámu suður-
hluta Líbanons árið 1985, en þá
stóð borgarastyijöldin í Líbanon
enn hvað hæst. Skæruliðasam-
tökin Hezbollah hófu baráttu
sína gegn hernáminu fljótlega
eftir að ísraelski herinn fór yfir
landamærin.
Að sögn Israelsmanna treysta
þeir sér ekki til þess að fara frá
Líbanon fyrr en öryggi á landa-
mærum ríkjanna hefur verið
tryggt. Skæruliðasamtökin Hez-
bollah segja þetta fráleit rök, því
þeir séu að beijast gegn hernámi
Israels og um Ieið og ísraelski
herinn fari sé engin þörf að beij-
ast gegn honum lengur. Oryggi
ísraelsmanna tryggist því af
sjálfu sér um leið og þeir fari frá
landinu. — GB
HEIMURINN
Stríðsástandi aflétt
JUGOSLAVIA - Stríðsástandi verður formlega aflétt í Júgóslavíu í
gær, en sambandsþingið tók ákvörðun þess efnis á fundi sínum í gær-
kvöld. Ríkisstjórn Júgóslavíu hafði áður numið úr gildi allar neyðar-
tilskipanir, að undanskildu verðlagseftirliti.
Fé til höfuðs Milosevic
BANDARÍKIN - Bandarísk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau muni
greiðá fimm milljónir dala fyrir ábendingar sem leiða til handtöku
Slobodans Milosevic eða annarra þeirra sem kærðir hafa verið fyrir
stríðsglæpi í fyrrverandi Júgóslav'íu.
Bjór eykur likur á hjartasjukdómum
BRETLAND - Breskir vfsindamenn komust að þeirri niðurstöðu, eft-
ir að hafa stundað rannsóknir á 5000 Skotum í 21 ár, að bjórdrykkja
auki líkur á hjartasjúkdómum. Þessi niðurstaða gaf vísindamönnun-
um jafnframt tilefni til að draga í efa kenningar um að hófleg drykkja
áfengis dragi úr líkum á hjartasjúkdómum.
ESB herðir reglur um erfðahreytt
matvæli
LUXEMBORG - Umhverfisráðherrar Evrópusambandsríkjanna
ákváðu í gærmorgun, á fundi sínum í Luxemborg, að reglur um
erfðabreyttar Iífverur verði hertar til muna. Jafnframt ákváðu þeir að
engin ný Ieyfi verði gefin út þar til nýju reglurnar taka gildi.
3.600 russneskir friðargæsluliðar
RUSSLAND - Rússneska sambandsráðið, sem er efri deild rússneska
þingsins, heimilaði í gær þátttöku rússneskra hermanna í friðar-
gæsluliðinu í Kosovo. Þar með er ekkert því til fyrirstöðu að Rússar
sendi 3.600 hermenn til Kosovo eins og ríkisstjórnin hefur lýst yfir.
Nokkur gagnrýni kom fram á þessa fyrirætlun, m.a. vegna þess að
Rússland skorti fé til þess að standa straum af dvöl hersveitanna í
Kosovo.
VIÐ KYNNUM
Flrst he fought for the Crown.
Now he’s fighting
for the Family Jeweis:
HEATHER GRAHAM y
Sýnd sunnud. kl. 15
Sýnd um helgina kl. 15
Sýnd laugard. kl. 9 að
morgni, 12 á hádegi, 14.30,
17,18.30, 21,23.40
Sýnd sunnud. kl. 17,18.30, 21
og 23.40
Sýnd mánud. kl. 17,18.30, 21
og 23
Sýnd laugard. og sunnud.
kl. 21 og 23
Sýnd mánud. kl. 21 og 23.40