Dagur - 26.06.1999, Síða 11

Dagur - 26.06.1999, Síða 11
 LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1999 - 11 ERLENDAR FRÉTTIR N etanyahu kveður með árás á Líbanon Þessi brú 40 km suður af Beirút gjöreyðiiagðist eftir sprengju frá ísraeiska hernum. Ehud Barak hraðar stjómarniyndun í ísrael eftir að frá- farandi ríkisstjóm lét gera loftárásir á Líbanon. A.m.k. tíu manns létust og nærri 60 manns særðust í loftárásum sem Isralsher gerði á Líbanon í gærmorgun. Israelsmenn segja árásirnar svar við eldflaugaárás- um skæruliðasamtakanna Hez- boilah í norðurhluta Israels síðla kvölds á fimmtudag, en þar létu tveir óbreyttir borgarar lífið og á annan tug særðust. Loftárásirnar í gær beindust að orkuverum í útjaðri Beirút, tveimur mikilvægum brúm í suð- urhluta Líbanons og bækistöðv- um Hizbollah í Baalbek í austur- hluta Líbanons. Þetta eru alvar- Iegustu átök sem orðið hafa milli ísraels og Líbanons frá því 1996 þegar ísraelski herinn varð 175 manns að bana í Líbanon. Skæruliðar Hezbollah og ísra- elskir hermenn hafa undanfarna daga og vikur skipst á skotum í Suður-Líbanon, og þrisvar í þessari viku hafa óbreyttir borg- arar særst af völdum ísraelskra vopna. Eldflaugaárásir Hez- bollah á fimmtudag voru gerðar í hefndarskyni vegna þess, og svöruðu Israelsmenn svo í gær- morgun með loftárásunum. Barak reiður Ehud Barak, sem taka átti við forsætisráðherraembættinu eftir tvær vikur, hraðaði í gær stjórn- armvndu nar\'iðræðu m og undir- ritaði stjórnarsáttmála með tveimur hægriflokkum. Hann á þó enn eftir að semja um stjórn- arþátttöku við um það bil tíu flokka, til þess að geta lokið stjórnarmyndun, en árásirnar á Líbanon hafa orðið til þess að ýta mjög á eftir því starfi. Barak hefur frest til 8. júlí til þess að ljúka stjórnarmyndun, en sjálfur sagðist hann vonast til þess að geta kynnt nýja ríkisstjórn í næstu viku. Barak var ekki skýrt frá loft- árásunum fyrr eftir að ákvörðun um þær hafði þegar verið tekin. Talsmaður Baraks sagði ríkis- stjórn Benjamins Netanyahus bera fulla ábyrgð á árásunum. Haft var eftir aðstoðarmönnum Baraks að hann væri reiður og afar ósáttur við þessa ákvörðun. Ehud Barak hefur sagst ætla að draga ísraelska herinn frá Líbanon og ná samningum við Líbanon og Sýrland innan árs. Þessar yfirlýsingar hafa vakið vonir í brjóstum Líbanonsbúa, Sýrlendinga og annarra araba- þjóða um að Barak verði þeim ekki jafn erfiður ljár í þúfu og Netanyahu. Erfiðar stjómarmyndunar- vidræður í kosningunum 17. maí síðast- liðinn vann Barak ótvíræðan sig- ur á Netanyahu. Stjórnarmynd- unarviðræðurnar hafa dregist nokkuð á langinn, en Barak hef- ur m.a. verið að kanna mögu- leika á samsteypustjórn tveggja höfuðandstæðinganna í ísraelsk- um stjórnmálum, Verkamanna- flokksins og Likuds. Með samningum við hægri- flokkana tvo, sem eru annars vegar flokkur rússneskra inn- flytjenda og hins vegar flokkur rétttrúaðra gyðinga, hefur Barak tryggt sér stuðning 37 þing- manna, og skortir því enn tölu- vert á að hann hafi þann meiri- hluta sem þarf á ísraelska þing- inu, þar sem 120 þingmenn eiga sæti. ísraelsmenn hernámu suður- hluta Líbanons árið 1985, en þá stóð borgarastyijöldin í Líbanon enn hvað hæst. Skæruliðasam- tökin Hezbollah hófu baráttu sína gegn hernáminu fljótlega eftir að ísraelski herinn fór yfir landamærin. Að sögn Israelsmanna treysta þeir sér ekki til þess að fara frá Líbanon fyrr en öryggi á landa- mærum ríkjanna hefur verið tryggt. Skæruliðasamtökin Hez- bollah segja þetta fráleit rök, því þeir séu að beijast gegn hernámi Israels og um Ieið og ísraelski herinn fari sé engin þörf að beij- ast gegn honum lengur. Oryggi ísraelsmanna tryggist því af sjálfu sér um leið og þeir fari frá landinu. — GB HEIMURINN Stríðsástandi aflétt JUGOSLAVIA - Stríðsástandi verður formlega aflétt í Júgóslavíu í gær, en sambandsþingið tók ákvörðun þess efnis á fundi sínum í gær- kvöld. Ríkisstjórn Júgóslavíu hafði áður numið úr gildi allar neyðar- tilskipanir, að undanskildu verðlagseftirliti. Fé til höfuðs Milosevic BANDARÍKIN - Bandarísk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau muni greiðá fimm milljónir dala fyrir ábendingar sem leiða til handtöku Slobodans Milosevic eða annarra þeirra sem kærðir hafa verið fyrir stríðsglæpi í fyrrverandi Júgóslav'íu. Bjór eykur likur á hjartasjukdómum BRETLAND - Breskir vfsindamenn komust að þeirri niðurstöðu, eft- ir að hafa stundað rannsóknir á 5000 Skotum í 21 ár, að bjórdrykkja auki líkur á hjartasjúkdómum. Þessi niðurstaða gaf vísindamönnun- um jafnframt tilefni til að draga í efa kenningar um að hófleg drykkja áfengis dragi úr líkum á hjartasjúkdómum. ESB herðir reglur um erfðahreytt matvæli LUXEMBORG - Umhverfisráðherrar Evrópusambandsríkjanna ákváðu í gærmorgun, á fundi sínum í Luxemborg, að reglur um erfðabreyttar Iífverur verði hertar til muna. Jafnframt ákváðu þeir að engin ný Ieyfi verði gefin út þar til nýju reglurnar taka gildi. 3.600 russneskir friðargæsluliðar RUSSLAND - Rússneska sambandsráðið, sem er efri deild rússneska þingsins, heimilaði í gær þátttöku rússneskra hermanna í friðar- gæsluliðinu í Kosovo. Þar með er ekkert því til fyrirstöðu að Rússar sendi 3.600 hermenn til Kosovo eins og ríkisstjórnin hefur lýst yfir. Nokkur gagnrýni kom fram á þessa fyrirætlun, m.a. vegna þess að Rússland skorti fé til þess að standa straum af dvöl hersveitanna í Kosovo. VIÐ KYNNUM Flrst he fought for the Crown. Now he’s fighting for the Family Jeweis: HEATHER GRAHAM y Sýnd sunnud. kl. 15 Sýnd um helgina kl. 15 Sýnd laugard. kl. 9 að morgni, 12 á hádegi, 14.30, 17,18.30, 21,23.40 Sýnd sunnud. kl. 17,18.30, 21 og 23.40 Sýnd mánud. kl. 17,18.30, 21 og 23 Sýnd laugard. og sunnud. kl. 21 og 23 Sýnd mánud. kl. 21 og 23.40

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.