Dagur - 26.06.1999, Blaðsíða 4

Dagur - 26.06.1999, Blaðsíða 4
4- LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1999 ro^tr FRÉTTIR BúnaðarbanMim styrkir 12 námsmeim Búnaðarbankinn hefur í 9. sinn veitt 12 náms- styrki til félaga í Náms- mannalínu bankans. Hver styrkur nemur 150 þúsund krónum. Fimm styrkir fóru til stúdenta við Háskóla Islands, tveir til nem- enda í íslenskum sér- skólum og fimm til námsmanna erlendis. Styrkþegarnir eru Haf- steinn Gunnar Haf- steinsson, Hrefna María Gunnarsdóttir, Katrín Jakobsdóttir, Kári Sig- urðsson, Þórkatla Þórisdóttir, Nanna Kristín Magnúsdóttir, Sonja Sif Jóhannsdóttir, Andri Stefánsson, Birna Hafstein, Davíð Bjarnarson, Elín Díana Gunnarsdóttir og Rannveig Sverrisdóttir. Á fulltrúaráðsfundi Barnaheilla nýlega úthlutaði stjórn Rannsóknarsjóðs Barnaheilla Ijórum styrkjum til aðila er sinna rannsóknum á högum barna á Islandi. Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, lektor við Háskóla íslands, hlaut 200 þúsund krónur vegna rannsóknar á lífsháttum og starfshugmyndum unglinga, rannsókn sem Rannveig Traustadóttir, dósent við Háskól- ann, stýrir um fjölskyldulíf asískra innflytjendakvenna fékk einnig 200 þúsund króna styrk og sömuleiðis rannsóknin „Sameiginleg for- sjá. Umfang og reynsla" sem Sigrún Júlíusdóttir, dósent við HÍ, og Nanna K. Sigurðardóttir félagsráðgjafi stýra. Þá hlaut Evald Sæ- mundsen, sálfræðingur og sviðsstjóri frá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, 150 þúsund króna styrk til að rannsaka áhrif mismunandi þjónustu á börn með einhverfu og fjölskyldur þeirra. Bamaheill styrkir fjögur rannsóknaverkefni Styrkþegar Barnaheilla ásamt aðstandenum sam- takanna. Tillögur Ingibjargar samþykktar Tvær tillögur sem Ingibjörg Pálma- dóttir, heilbrigðis- og tryggingaráð- herra, lagði fram á sameiginlegum fundi norrænna heilbrigðis- og fé- lagsmálaráðherra í Noregi í vik- unni voru samþykktar. En Islend- ingar gegna sem kunnugt er for- mennsku í Norrænu ráðherra- nefndinni í ár. Önnur tillaga gekk út á að stofna vinnuhóp sem með- al annars myndi koma með tillögur um lækkun lyfjakostnaðar, hvernig mætti hafa áhrif á markaðssetn- ingu lyfja og hvernig stuðla ætti að skynsamlegri lyfjanotkun á Norð- urlöndunum. Hin tillagan fjallaði meðal annars um að Norðurlöndin skiptust á upplýsingum um áfeng- isneyslu ungmenna og viðleitni Iandanna til að greina á milli áfengis og íþróttaiðkunar. Nokkuð var rætt um áfengisauglýsingar og íþróttir á fundinum. Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis- ráðherra. Bamagátur fyrir byrjendur ÓP-útgáfan hefur gefið út nýtt krossgátu- blað er nefnist Barnagátur, krossgátur fyrir byrjendur. Blaðið er ætlað yngri kynslóðinni og eru lausnir í blaðinu sem hjálpa til ef menn lerida í vandræðum. Ef vel tekst til með blaðið kemur næsta tölublað út í októ- ber, að sögn Ólafs Pálssonar, sem hefur gef- ið út krossgátublöð og bækur til Ijölda ára. Má þar nefna Heimiliskrossgátur og Kross- gátubók ársins sem stytt hafa mörgum stundirnar í sumarbústaðnum eða uppi í rúminu heima. Svavar A. Jónsson skipaöur Séra Svavar A. Jónsson hefur verið skipaður sóknarprestur við Akur- eyrarkirkju frá og með 1. september en séra Birgir Snæbjörnsson mun þá láta af störfum sökum aldurs. .nbiolf Katrín Rós Baldursdóttir náði að sofa í fyrrinótt þrátt fyrir sprengjuregnið. Stelpumar eru nræddar Katrín Rós Baldurs- dóttir af Akranesi, fegurdardrottning ís- lands, var í Beirút í Líbanon ásamt systur sinni þegar loftárásir ísraela dundu yfir borgina í fyrrinótt. „Mér líður ails ekki vel, það er búið að vera mjög erfitt alveg frá því þær fóru. Ég hef verið mjög ósátt við að senda hana út í þetta land. Mér finnst ægilega skrítið að þetta skuli vera Evrópukeppni en haldin f Asíulandi. Sjálfsagt er þetta allt spurningin um pen- inga. Mér finnst líka skrítið að forráðamenn fegurðarsam- keppninnar hafa ekki einu sinni hringt hingað til okkar,“ sagði Erna Kristjánsdóttir móðir þeirra þegar rætt var við hana í gær. Hún hafði þá nýlokið við að ræða við Huldu Birnu, eldri syst- ur Katrínar Rósar sem fór með henni til Beirút. „Það er allt komið í fullan gang og á að halda keppnina. Hún á að byrja um hálf sjö. En stúlk- urnar eru hræddar, það er ekkert vafamál, og ekki bara íslensku stúlkurnar, heldur hinar líka.“ Erna sagði að Katrín Rós hefði sofið í íyrrinótt enda búin að vera á tíu klukkutíma æfingu óg komið seint heim á hótel. Hún hefði þó orðið vör við hávaða og sprengjulæti. En Hulda Birna hefði ekkert sofið. Glugginn hennar sneri í átt yfir borgina. „Þetta voru læti og sprengingar ogjörðin titraði." Foreldrar Katrínar Rósar gátu ekki hugsað sér að senda hana eina úr Iandi. „Við vildum að ein- hver færi með henni, en forráða- menn keppninnar hafa engan skilning á því og vilja senda þær bara einar. Þess vegna á ég tvær stúlkur þarna úti. Hulda Birna er 25 ára og er veraldarvön. Hún er búin að ferðast \áða um heim- inn sem sölumaður. Þess vegna kom það í hennar hlut að fara með henni en það bjóst enginn við þessum hildarleik." Erna er ósátt við það hvernig forráðamenn keppninnar hér- lendis hafa staðið að málum: „Ég er ekki sátt við forráðamenn keppninnar. I fyrsta lagi að láta stúlkurnar fara einar úr landi. Mér finnst það skrítið, það er ekki einu sinni sendur hestur hér úr landi, eða alveg sama hver það er sem er að keppa fyrir Is- lands hönd, það er enginn send- ur aleinn. Ef forráðamennirnir sem standa að keppninni hafa ekki áhuga á að fylgja stúlkunum eftir þá skil ég ekki hvernig þær eiga að hafa áhuga íyrir þessu. Svo verður þetta kostnaður fyrir foreldrana að útvega mann- eskju með og borga undir allt saman. Þetta var ekkert venju- legt, 360 þúsund krónur, bara flug og hótel, fyrir utan mat og vinnutap. Það er ekkert á bak við þetta. Ég hef ekki kynnt mér þetta, ég verð að viðurkenna það, ég veit ekki hver stendur á bak við þetta nema ég hef talað við Elínu Gestsdóttur. Ég hef ekki verið sátt við þetta. En mér skilst að þetta hafi alltaf verið svona en mér finnst að þetta eigi ekki að vera foreldra- mál því ég er ekki að reka þessa fegurðarsamkeppni. Hún sagðist ekki eiga peninga. Þá spyr mað- ur nú bara: Eiga foreldrar pen- inga? Þetta á ekki að koma svona inn um dyrnar hjá fólki. Það er ekki nóg að taka bara allt út úr þessu og gefa ekkert af sér. Og þegar það er ráðist á Líbanon eins og í gær finnst mér afar skrítið að það skuli enginn hringja til manns.“ Erna segir að Katrín Rós sé af- skaplega elskuleg og góð stúlka sem skynji ekki svona Iagað, það sé frekar fullorðna fólkið. „Ég hugsa að Katrín sé innst inni hrædd. En hún vill standa sig, hún er þannig stúlka og vill gera vel fyrir landið sitt. Ég er afskaplega hrædd að hafa þær þarna úti, ég verð að viðurkenna það. Mér finnst þær eitthvað svo einar þó það séu fleiri stúlkur þarna frá öðrum þjóðum. Þær eru hræddar Iíka. Ég er að vona að þær geti komist sem fyrst úr Iandi. Maður er voðalega aumur eitthvað hérna heima.“ — OHR Snertir ekki ráðuneytið „Þetta snertir ráðuneytið ekki. Bygging á kirkjum er mál ein- stakra sókna. Að vísu ber ríkið ábyrgð á stærri kirkjum sem hafa sérstöðu, s.s. eins og Dómkirkj- an, Skálholtskirkja, Hólakirkja og Saurbæjarkirkja. I þessu máli bendum við á að til er kirkja fyr- ir að Ljósavatni þannig að þessi kirkja er eiginlega byggð sem minnisvarði lyrir tilstuðlan ein- hverra sem fengu því framgengt að sett var fé í bygginguna,“ sagði Hjalti Zóphóníasson, skrif- stofustjóri í dóms- og kirkju- málaráðuneytinu, sem varð fyrir svörum í ráðuneytinu f stað ráð- herrans, Sólveigar Pétursdóttur, um umdeiida byggingu nýrrar Ljósavatnskirkju, sem Dagur hefur greint frá. Hjalti sagði Kirkjuþing hafa á sínum tíma fengið beiðni til um- fjöllunar um rekstrarfé kirkjunni íiiiú oé Jtimnio U'iy jí jQ .6ia til handa. Því hafi verið vísað til kirkjuráðs sem samþykkti að veita 400-500 þúsund krónur til reksturs kirkjunnar yfir sumar- mánuðina. Aðspurður hvort ekki hefði átt að bjóða út byggingu kirkju fyrir 50 milljónir sagðist Hjalti játa því fyrir sitt leyti. En þetta væri alfarið mál heima- manna. Ráðuneytið hefði ekkert vald til að hafa afskipti af því. - BJI! £>nit>íl BflOV? IviÁ'J 'lÍlOJg ÓOlf'J^ÍO

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.