Dagur - 26.06.1999, Side 4
4- LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1999
ro^tr
FRÉTTIR
BúnaðarbanMim styrkir 12
námsmeim
Búnaðarbankinn hefur
í 9. sinn veitt 12 náms-
styrki til félaga í Náms-
mannalínu bankans.
Hver styrkur nemur
150 þúsund krónum.
Fimm styrkir fóru til
stúdenta við Háskóla
Islands, tveir til nem-
enda í íslenskum sér-
skólum og fimm til
námsmanna erlendis.
Styrkþegarnir eru Haf-
steinn Gunnar Haf-
steinsson, Hrefna María Gunnarsdóttir, Katrín Jakobsdóttir, Kári Sig-
urðsson, Þórkatla Þórisdóttir, Nanna Kristín Magnúsdóttir, Sonja Sif
Jóhannsdóttir, Andri Stefánsson, Birna Hafstein, Davíð Bjarnarson,
Elín Díana Gunnarsdóttir og Rannveig Sverrisdóttir.
Á fulltrúaráðsfundi
Barnaheilla nýlega
úthlutaði stjórn
Rannsóknarsjóðs
Barnaheilla Ijórum
styrkjum til aðila er
sinna rannsóknum
á högum barna á
Islandi. Guðbjörg
Vilhjálmsdóttir,
lektor við Háskóla
íslands, hlaut 200
þúsund krónur
vegna rannsóknar á
lífsháttum og
starfshugmyndum
unglinga, rannsókn sem Rannveig Traustadóttir, dósent við Háskól-
ann, stýrir um fjölskyldulíf asískra innflytjendakvenna fékk einnig
200 þúsund króna styrk og sömuleiðis rannsóknin „Sameiginleg for-
sjá. Umfang og reynsla" sem Sigrún Júlíusdóttir, dósent við HÍ, og
Nanna K. Sigurðardóttir félagsráðgjafi stýra. Þá hlaut Evald Sæ-
mundsen, sálfræðingur og sviðsstjóri frá Greiningar- og ráðgjafarstöð
ríkisins, 150 þúsund króna styrk til að rannsaka áhrif mismunandi
þjónustu á börn með einhverfu og fjölskyldur þeirra.
Bamaheill styrkir fjögur
rannsóknaverkefni
Styrkþegar Barnaheilla ásamt aðstandenum sam-
takanna.
Tillögur Ingibjargar samþykktar
Tvær tillögur sem Ingibjörg Pálma-
dóttir, heilbrigðis- og tryggingaráð-
herra, lagði fram á sameiginlegum
fundi norrænna heilbrigðis- og fé-
lagsmálaráðherra í Noregi í vik-
unni voru samþykktar. En Islend-
ingar gegna sem kunnugt er for-
mennsku í Norrænu ráðherra-
nefndinni í ár. Önnur tillaga gekk
út á að stofna vinnuhóp sem með-
al annars myndi koma með tillögur
um lækkun lyfjakostnaðar, hvernig
mætti hafa áhrif á markaðssetn-
ingu lyfja og hvernig stuðla ætti að
skynsamlegri lyfjanotkun á Norð-
urlöndunum. Hin tillagan fjallaði
meðal annars um að Norðurlöndin
skiptust á upplýsingum um áfeng-
isneyslu ungmenna og viðleitni Iandanna til að greina á milli áfengis
og íþróttaiðkunar. Nokkuð var rætt um áfengisauglýsingar og íþróttir
á fundinum.
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis-
ráðherra.
Bamagátur fyrir
byrjendur
ÓP-útgáfan hefur gefið út nýtt krossgátu-
blað er nefnist Barnagátur, krossgátur fyrir
byrjendur. Blaðið er ætlað yngri kynslóðinni
og eru lausnir í blaðinu sem hjálpa til ef
menn lerida í vandræðum. Ef vel tekst til
með blaðið kemur næsta tölublað út í októ-
ber, að sögn Ólafs Pálssonar, sem hefur gef-
ið út krossgátublöð og bækur til Ijölda ára.
Má þar nefna Heimiliskrossgátur og Kross-
gátubók ársins sem stytt hafa mörgum
stundirnar í sumarbústaðnum eða uppi í
rúminu heima.
Svavar A. Jónsson skipaöur
Séra Svavar A. Jónsson hefur verið skipaður sóknarprestur við Akur-
eyrarkirkju frá og með 1. september en séra Birgir Snæbjörnsson
mun þá láta af störfum sökum aldurs.
.nbiolf
Katrín Rós Baldursdóttir náði að sofa í fyrrinótt þrátt fyrir sprengjuregnið.
Stelpumar
eru nræddar
Katrín Rós Baldurs-
dóttir af Akranesi,
fegurdardrottning ís-
lands, var í Beirút í
Líbanon ásamt systur
sinni þegar loftárásir
ísraela dundu yfir
borgina í fyrrinótt.
„Mér líður ails ekki vel, það er
búið að vera mjög erfitt alveg frá
því þær fóru. Ég hef verið mjög
ósátt við að senda hana út í þetta
land. Mér finnst ægilega skrítið
að þetta skuli vera Evrópukeppni
en haldin f Asíulandi. Sjálfsagt er
þetta allt spurningin um pen-
inga. Mér finnst líka skrítið að
forráðamenn fegurðarsam-
keppninnar hafa ekki einu sinni
hringt hingað til okkar,“ sagði
Erna Kristjánsdóttir móðir þeirra
þegar rætt var við hana í gær.
Hún hafði þá nýlokið við að
ræða við Huldu Birnu, eldri syst-
ur Katrínar Rósar sem fór með
henni til Beirút.
„Það er allt komið í fullan gang
og á að halda keppnina. Hún á
að byrja um hálf sjö. En stúlk-
urnar eru hræddar, það er ekkert
vafamál, og ekki bara íslensku
stúlkurnar, heldur hinar líka.“
Erna sagði að Katrín Rós hefði
sofið í íyrrinótt enda búin að
vera á tíu klukkutíma æfingu óg
komið seint heim á hótel. Hún
hefði þó orðið vör við hávaða og
sprengjulæti. En Hulda Birna
hefði ekkert sofið. Glugginn
hennar sneri í átt yfir borgina.
„Þetta voru læti og sprengingar
ogjörðin titraði."
Foreldrar Katrínar Rósar gátu
ekki hugsað sér að senda hana
eina úr Iandi. „Við vildum að ein-
hver færi með henni, en forráða-
menn keppninnar hafa engan
skilning á því og vilja senda þær
bara einar. Þess vegna á ég tvær
stúlkur þarna úti. Hulda Birna
er 25 ára og er veraldarvön. Hún
er búin að ferðast \áða um heim-
inn sem sölumaður. Þess vegna
kom það í hennar hlut að fara
með henni en það bjóst enginn
við þessum hildarleik."
Erna er ósátt við það hvernig
forráðamenn keppninnar hér-
lendis hafa staðið að málum: „Ég
er ekki sátt við forráðamenn
keppninnar. I fyrsta lagi að láta
stúlkurnar fara einar úr landi.
Mér finnst það skrítið, það er
ekki einu sinni sendur hestur
hér úr landi, eða alveg sama hver
það er sem er að keppa fyrir Is-
lands hönd, það er enginn send-
ur aleinn. Ef forráðamennirnir
sem standa að keppninni hafa
ekki áhuga á að fylgja stúlkunum
eftir þá skil ég ekki hvernig þær
eiga að hafa áhuga íyrir þessu.
Svo verður þetta kostnaður
fyrir foreldrana að útvega mann-
eskju með og borga undir allt
saman. Þetta var ekkert venju-
legt, 360 þúsund krónur, bara
flug og hótel, fyrir utan mat og
vinnutap. Það er ekkert á bak við
þetta. Ég hef ekki kynnt mér
þetta, ég verð að viðurkenna það,
ég veit ekki hver stendur á bak
við þetta nema ég hef talað við
Elínu Gestsdóttur.
Ég hef ekki verið sátt við þetta.
En mér skilst að þetta hafi alltaf
verið svona en mér finnst að
þetta eigi ekki að vera foreldra-
mál því ég er ekki að reka þessa
fegurðarsamkeppni. Hún sagðist
ekki eiga peninga. Þá spyr mað-
ur nú bara: Eiga foreldrar pen-
inga? Þetta á ekki að koma svona
inn um dyrnar hjá fólki. Það er
ekki nóg að taka bara allt út úr
þessu og gefa ekkert af sér. Og
þegar það er ráðist á Líbanon
eins og í gær finnst mér afar
skrítið að það skuli enginn
hringja til manns.“
Erna segir að Katrín Rós sé af-
skaplega elskuleg og góð stúlka
sem skynji ekki svona Iagað, það
sé frekar fullorðna fólkið. „Ég
hugsa að Katrín sé innst inni
hrædd. En hún vill standa sig,
hún er þannig stúlka og vill gera
vel fyrir landið sitt.
Ég er afskaplega hrædd að
hafa þær þarna úti, ég verð að
viðurkenna það. Mér finnst þær
eitthvað svo einar þó það séu
fleiri stúlkur þarna frá öðrum
þjóðum. Þær eru hræddar Iíka.
Ég er að vona að þær geti komist
sem fyrst úr Iandi. Maður er
voðalega aumur eitthvað hérna
heima.“ — OHR
Snertir ekki ráðuneytið
„Þetta snertir ráðuneytið ekki.
Bygging á kirkjum er mál ein-
stakra sókna. Að vísu ber ríkið
ábyrgð á stærri kirkjum sem hafa
sérstöðu, s.s. eins og Dómkirkj-
an, Skálholtskirkja, Hólakirkja
og Saurbæjarkirkja. I þessu máli
bendum við á að til er kirkja fyr-
ir að Ljósavatni þannig að þessi
kirkja er eiginlega byggð sem
minnisvarði lyrir tilstuðlan ein-
hverra sem fengu því framgengt
að sett var fé í bygginguna,“
sagði Hjalti Zóphóníasson, skrif-
stofustjóri í dóms- og kirkju-
málaráðuneytinu, sem varð fyrir
svörum í ráðuneytinu f stað ráð-
herrans, Sólveigar Pétursdóttur,
um umdeiida byggingu nýrrar
Ljósavatnskirkju, sem Dagur
hefur greint frá.
Hjalti sagði Kirkjuþing hafa á
sínum tíma fengið beiðni til um-
fjöllunar um rekstrarfé kirkjunni
íiiiú oé Jtimnio U'iy jí jQ .6ia
til handa. Því hafi verið vísað til
kirkjuráðs sem samþykkti að
veita 400-500 þúsund krónur til
reksturs kirkjunnar yfir sumar-
mánuðina. Aðspurður hvort ekki
hefði átt að bjóða út byggingu
kirkju fyrir 50 milljónir sagðist
Hjalti játa því fyrir sitt leyti. En
þetta væri alfarið mál heima-
manna. Ráðuneytið hefði ekkert
vald til að hafa afskipti af því.
- BJI!
£>nit>íl BflOV? IviÁ'J 'lÍlOJg ÓOlf'J^ÍO