Dagur - 26.06.1999, Síða 2

Dagur - 26.06.1999, Síða 2
2 - LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1999 FRÉTTIR Skoða hátft land- ið á sólarhriitg Von er á alls 3 Concorde- þotum til íslands í sumar þar sem moldríldr ferða- nieim fara vítt og breitt um landið á örfáum dög- um. Farið er eldsnemma á morgnana frá Bretlandi og lent í Keflavík í morg- unsárið. Þaðan er flogið með Flugfé- lagi Islands til Hafnar í Hornafirði og þá liggur leiðin að Jökullóninu auk þess sem farið er á vélsleða á Vatnajök- ul. Síðan er flogið norður yfir heim- skautsbaug og lent á Húsavík. Há- punktur ferðarinnar er svo sjávarrétta- hlaðborð á Gamla Bauk á Húsavík og í kjölfarið hvalaskoðunarferð með Norð- ursiglingu. Þetta gerist allt á sama sól- arhringnum en næstu dagar fara svo í ferðir um Reykjavfk, Gullfoss, Geysi og aðrar náttúruperlur í nágrenni höfuð- borgarinnar. 11 hópar Allý Ólafsdóttir, aðstoðarsölustjóri hjá FÍ, segir að flugfélagið þjónusti alls 11 hópa í sumar í svona hraðferð. Fyrsta Concorde vélin kom um helgina en einnig eiga „venjulegir" farþegar, í millilandaflugi með Flugleiðum, kost á hraðferðinni. Concorde tekur 113 manns í sæti og þarf að greiða skilding- inn til að ferðast með þessari hrað- skreiðustu farþegaþotu heims. Þeir þurfa einnig að búa yfir nokkuð góðu úthaldi. „Þetta gefur þeim í hnotskurn það ólíka sem landið hefur upp á að bjóða en ég held að þetta sé dálítið Iýj- andi ferðalag. Fyrir þá sem hafa stutt- an tíma er þetta hins vegar stórsnið- ugt,“ segir Allý. Hörður Sigurbjarnarson hjá Norður- siglingu á Húsavík segir lítinn mun á að þjónusta Concorde-farþegana og aðra. Fyrirtækið hefur þó örlítið meira við enda kostar hvalaskoðunarferðin meira en eila þegar þessi hópur á í hlut. Þannig fær þotuliðið harðfisk, hákarl og brennivínssnafs um borð og líkar vel. Hörður segir sjávarréttahlað- borð Gamla Bauks vera nýjung sem hafi algjörlega slegið í gegn að undan- förnu. — bi> Jón Baldvin Hannibalsson gaf því undir fótiiui í DV í vikimni að koma heim til að stýra Sam- fylMngumii. Að minnsta kosti komi hann heim með margfalda orku og reynslunni ríkari. Pott- verjar heyrðu af því að samtök væru jafnvel í burðarliðnuin undir heitinu „Jón heim“, eða ekki ósvipað og þegar Keikó var fenginn heim með viðeigandi brambolti. Spumingin er bara hvort bein út- sending verður frá heimkomu Jóns. CNN væri það reyndar ekki ofrausn að senda hingað tökulið í ljósi þeirrar gífurlegu og jákvæðu at- hygli sem Jón Baldvin og Biyndís hafa vakið vestanhafs. Helgarblað Dags birtir cinmitt einn anga þeirrar uinfjöllunar í blaðinu í dag. Ef CNN mætir ekki þá gæti Anna Mjöll a.m.k. verið á bakkanum og sungið „Jón er koininn hcim...“ Jón Baldvin. Strætóinn góði. Góðvinur pottverja úr röðum hafnfirskra broddborgara fór al- varlega að íhuga að hvíla forstjórajepp- ann sinn einhverja morgna þegar hann sá forsíðumynd Dags í gær af almerktum strætis vagni Almenningsvagna frá toppi til táar. Vagn- inn er nefnilega þeirrar gerðar að ekki sést inn í hann en farþegar sjá umlieimiim berurn augum. Forstjórinn hugsaði með sér að nú gæti ekki sést til hans ferðast með strætó í vinnuna og gladdist hann enn meir þegar hann heyrði af áformum Almenningsvagna að bjóða upp á móttöku greiðslukorta í strætó... í pottinum telja menn augljóst að sviptingamar í Landssímanum nú séu undirbúningur midir að kolkrabbinn fái fyrirtækið eins og raunar áður hefur verið haldið fram á þessum vettvangi. Ver- ið sé að raða réttu mönnunum inn og þannig undirbúa söluna... FRÉTTAVIÐTALIÐ Þómrinn V. Þómrinsson tiýrforstjóri Landssímatis Georg Ólafsson,forstjóri Samkeppnisstofnumr, fer hörðum orðum um ,Jyrrum einkaleyfishafa“ í ársskýrslu stofnunarinmr. Leitaðvarvið- bragðaÞórarins V. „Ununæli Georgs dapurleg“ - Hver eru þtn viðbrögó við grein Georgs? „Það er ekki skilgreint sem eitt af mark- miðum samkeppninnar að tryggja neytend- um sem lægst verð. Með því að starfsmenn Samkeppnisstofnunar virðast lesa sam- keppnislögin á afar sérstakan máta þá kem- ur þetta niður á störfum þeirra. Ummæli forstjórans eru dapurleg ef hann er þar að vísa til Landssímans, því að það er jú ekki um marga einkaleyfishafa að ræða. Stað- reyndin er þvert á móti sú að margt er í úr- skurðum og ályktunum Samkeppnisstofn- unar sem ekki hefur staðist gagnrýna athug- un. Það er einnig dapurlegt að Samkeppnis- stofnun og samkeppnisráð, sem stundum virðast vera einn og sami aðilinn, skuli Iíta þannig á hlutverk sitt og stöðu að þegar þau hafa fellt úrskurð í deilu tveggja aðila á markaðnum, þá sé þessum aðilum óheimilt að tjá sig um málið. Raunar er það afskap- lega sérstætt að Samkeppnisstofnun, sem hefur að sumu leyti svipaða stöðu og sak- sóknari í glæpamálum, skuli ekki getað þol- að það að aðrir tjái sig um úrskurðina held- ur telji sig með einhveijum hætti eiga að eiga síðasta orðið. Mér er sem ég sæi sak- sóknara eða héraðsdómara úthella sér á síð- um dagblaðanna yfir þeim sem þeir hafa fjallað um í störfum sínum. Það kæmi auð- vitað aldrei til álita." - Teknr Landssíminn þessa grein til stn? „Forstjóri Samkeppnisstofnunar hlýtur að vita um hverja hann er að tala. Mér finnst hann gefa það til kynna að um okkur sé að ræða. Samkeppnisstofnun hefur líka tekið miklu ástfóstri við Landssímann og fjaliað mikið um starfsemi hans, raunar á afskap- lega sérstakan máta. Sýn stofnunarinnar virðist vera sú að Landssíminn sé tröll, hann verði tröll og það sé alveg sama við hvern hann er að eiga. Ef að British Tel- ecom myndi opna útibú á íslandi þá sýnist mér samt að Samkeppnisstofnun myndi álykta sem svo að Landssíminn værí tröllið í þeim samskiptum. Þannig er öll þeirra um- fjöllun. Miklu stærra fyrirtæki hefur stofnað hér til rekstrar, sem er Western Wireless, helmingseigandi að Tali, og með þátttöku innlendra aðila, m.a. Stöðvar 2. Western Wireless er miklu stærri en Landssíminn. Samt sem áður talar Samkeppnisstofnun um Landssímann sem tröll í því samhengi." - Georg talaði um að atvinnultfið og Satnkeppnisstofnun þyrftu að ræða þessi tnál opinskátt. Ertu satnmála þvt? „Ég get alveg tekið undir það. Því miður hefur atvinnulífið borið takmarkaða virð- ingu fyrir úrskurðum Samkeppnisstofnun- ar.“ - Hvemig ntá bæta þar úr? „Fyrir það fyrsta er mikilvægt að stofnun- in hætti að vera í áróðursstríði við einstök fyrirtæki. Að hún skynji það og skilji að hún og samkeppnisráð birti ákvarðanir sínar og álit með sama hætti og umboðsmaður Al- þingis gerir og með sama hætti og dómstól- ar. Það hljómar mjög skringilega, að þegar tveir aðilar á markaðnum eru að deila skuli Samkeppnisstofnun standa galandi með öðrum þeirra eftir að hún hefur tjáð sig. Samkeppnisráð á ekki að tjá sig öðruvísi en í úrskurðum. Ef úrskurðirnir eru það illa skrifaðir eða gallaðir, að þeir tjái ekki fulla hugsun, þá verða þeir að sitja uppi með það. Úrskurðirnir þurfa að vera þeim hætti að ekki þurfi að fylgja þeim eftir með blaða- skrifum og upphrópunum að hálfu sam- keppnisyfirvalda." - bjb

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.