Dagur - 26.06.1999, Page 9

Dagur - 26.06.1999, Page 9
LAUGARDAGVR 26. JÚNÍ 1999 - 9 FRÉTTIR virkjim stöðu og þeir væru í sambandi við íslenskan lögfræðing. Þorsteinn hjá Landsvirkjun seg- ir að telji menn að á sér hafi verið brotið þá sé ekkert nema sjálfsagt að menn leiti réttar síns en að sínu mati teldi hann ekki að réttur hafi verið brotinn á einum eða nein- um. Ódýrasta er ekki endilega það hagstæðasta Magnús segir hluta skýringar á því hvers vegna tilboði Kínverjanna var ekki tekið liggja í því að um er- lent fyrirtæki er að ræða. Einnig telur Magnús að það væri viss hræðsla um að fyrirtækið myndi lenda í útistöðum við verkalýðsfé- lögin og vísar þá til deilunnar með Teknóprómexport. Þorsteinn er ósammála þessu og segir að Landsvirkjun hafi um 30 ára reynslu af alþjóðlegum útboð- um og það sé engin útlendinga- hræðsla hjá Landsvirkjun hvað það varðaði. Hann segir að aðalat- riðið í þessu máli sé að hagstæð- asta tilboðinu hafi verið tekið. „Hagstæðasta tilboðið er ekki alltaf Iægst í krónum talið. Lands- virkjun hefur langa reynslu í al- þjóðlegum útboðum og er þetta ekkert einsdæmi að tilboði sé tek- ið frá aðila sem býður ekki lægstu krónutöluna. Eins og hugmyndir Kínverjanna um að ganga til loka- viðræðna við þá sem bjóða Iægstu krónutöluna þangað til eitthvað kemur upp, samsvara ekki okkur vinnubrögðum. Okkar vinnubrögð eru þau að við skoðum yfirleitt þijá aðila og tökum svo ákvörðun að ganga til Iokaviðræðna við þann sem við teljum hagstæðastan fyrir okkur,“ segir Þorsteinn og bendir á að það séu miklar skuldbindingar í húfi fyrir Landsvirkjun varðandi orkusölu og þá staðreynd að virkj- unin þurfi að vera tilbúin á mjög skömmum tfma. „Virkjunin þarf að rísa á 28 mánuðum og eru þetta ekki nema þrjú sumur og ef menn gætu ekki byrjað í sumar þá væru menn í raun að missa af heilu ári í bygg- ingartíma," segir Þorsteinn. Þar sem Kfnverjarnir ætluðu að flytja aðföng og hluta vinnuafls frá Kína hefði það tekið tíma og skapað óvissu að mati Þorsteins. „Við höf- um ekki fullt traust til þessara kín- versku aðila sem hæfra aðila í ljósi þessara þröngu tímamarka," segir Þorsteinn. 3 prósenta hækkun gjaldskrár á sama tima Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður Landsvirkjunar, tekur undir þetta og segir sumrin skipta öllu máli í þessu sambandi enda væri unnið í 600 metra hæð ofan sjávarmáls. „Við höfðum al- veg næg gögn sem sýndu okkur að Kínverjar væru fullfærir að byggja virkjanir en þetta var bara spurn- ing að meta áhættuna af því að ganga til samstarfs við Kínveij- ana,“ segir Jóhannes Geir og bendir á að fullvissan um að bygg- ingaráætlun virkjunarinnar stæð- ist væri meira virði en 270 milljón- ir króna. „Einnig má nefna að til- boð Kínveijanna var að hluta til í dollurum og þyrfti ekki mikla gengisbreytingu svo að krónumun- ur tilboðanna væri farinn,“ sagði Jóhannes Geir. Einnig hefur Landsvirkjun bent á reynsluleysi kínversku aðilanna í að vinna á Vesturlöndum sem ástæðu fyrir ákvörðun sinni. Margir hafa bent á að það sé afar sérkennilegt hjá Landsvirkjun að hafna tæplega 300 milljóna króna lægra tilboði á sama tíma og þeir ákveði 3% hækkun á gjaldskrá sinni sem hafði síðan keðjuverkun orkuhækkana út um allt land. Til- boðin lágu fyrir 11. maí en hækk- unin á gjaldskránni var ákveðin 20. maí. Um þetta segir Þorsteinn að engin tengsl séu þarna á miili og aðalatriðið með virkjunina sé að Landsvirkjun hafi tekið hag- stæðasta tilboðinu. Jóhannes Geir tekur undir þetta og segir að mjög erfitt sé að setja í samhengi 270 milljóna króna Ijárfestingu og 3% hækkun á gjaldskrá. Frá meðferðarheimilinu að Stuðlum, en ríkisstjórnin hefur samþykkt aukafjárveitingu til að stytta biðlista. Greinmgarrýmiun fjölgar a Stuðlum RíMsstjórnin liefur samþykkt aukafjár- veitingar til að síytta biðlista bama í vímu- efnameðferð og fjölga rýmum á bráðamót- töku. Ríkisstjórnin hefur, að tillögu fé- lagsmála- og heilbrigðisráðherra, samþykkt fjárveitingar til að fjölga rýmum í bráðamóttöku og greiningarmeðferð barna og unglinga sem ánetjast hafa fíkni- efnum. Jafnframt hefur verið ákveðið að stofnsetja 7. Iang- tímameðferðarheimilið á lands- byggðinni. Að sögn Páls Péturs- sonar félagsmálaráðherra verður 45 milljónum varið á þessu ári til að standa undir kostnaði við flutning neyðarmóttökunnar frá Stuðlum yfir á nýja bráðamótt- töku í samstarfi við unglingageð- deild, þar sem stefnt er að 8 rýmum. Af fjárveitingunni eru 15 milljónir á vegum heilbrigðis- ráðuneytisins til að fjölga sér- hæfðu starfsfólki unglingageð- deildar um nær 5 stöðugildi. Við flutninginn Qölgar rýmum fyrir greiningarmeðferð á Stuðlum um 3-4 og verða þau 10-12. Ilálfur milljarðiir Kostnaður vegna viðbótarað- gerðanna verður 115 milljónir á næsta ári. Þar með segir ráð- herra kostnað við rekstur Barna- verndarstofu og heimili og stofn- anir sem undir hana heyra, hafa hækkað um 90% frá árinu 1997 til 2000, og verði 454 milljónir á næsta ári. Að sögn Páls hafa „mannmán- uðir“ í meðferð á vegum Barna- verndarstofu alls verið 658 á ári, sem samsvarar þá að jafnaði 54- 55 ungmennum í meðferð á hverjum tíma. Hann taldi því upphlaupið vegna lokunar 3ja rýma í 1 mánuð fremur tilefnis- lítið, þótt honum hefði raunar líka komið á óvart að til þess þyrfti að koma. Biðlistar eftir meðferð á Stuðlum séu hins veg- ar orðnir lengri en „við viljum búa við“, eins og ráðherra orðaði það. Og þeir myndu væntanlega styttast í kjölfar framangreindra aðgerða. Meðferðarpláss á veg- um Barnaverndarstofu hafa alls verið 54 að undanförnu en fara að nálgast 70 þegar öll áður- nefnd áform verða komin til framkvæmda. Byrgið og Virkið eiga rétt á sér I annan stað sagðist félagsmála- ráðherra hafa ákveðið að skipa tvo starfshópa: Annan til að íjalla um málefni og verkaskipt- ingu þeirra sem sýsla með börn og ungmenni í áfengis- og vímu- efnavanda og samhæfa meðferð þeirra. Og annan sem hefði víð- ara starfssvið, þ.e. þá sem sýsl- uðu með fullorðna; SAA, Byrgið og Virkið m.a. Meiningin væri að samhæfa starfsemina og opin- bera aðstoð til þessara meðferð- arstofnana. Að sögn Páls hefur Barnaverndarstofa haft samning um 2 meðferðarpláss hjá Mumma í Virkinu og meiningin að þau verði 4. Aðspurður sagði hann að kíkt hafi verið á árang- urinn hjá Byrginu, sem rekið er á kristilegum grundvelli, og Virk- inu „og okkur sýndist að bæði heimilin eigi fullan rétt á sér“. Bæði eigi þau í viðvarandi pen- ingavandræðum og ráðuneytið hafi ákveðið að styrkja þau nokk- uð til þess að komast yfir mán- aðamótin. — HEl Karlar eiga og ráða - konur vinna og hlýða Örfáar konur sitja í stjómum atvmnurek- endasamtakanna og finnast varla í stólum forstjóra eða stjómar- formanna stærstu fyr- irtækja landsins. Af rúmlega 80 manns í sam- bandsstjórn og framkvæmda- stjórn VSI eru aðeins 3 konur og engin kona í sjö manna samn- ingaráði samtakanna. Engin kona á sæti í stjórn og fram- kvæmdastjórn Samtaka iðnaðar- ins og aðeins ein meðal 28 karla í ráðgjafaráði samtakanna. Af nærri 20 manns í stjóm og fram- kvæmdastjórn Verslunarráðsins eru 2 konur. Skrifstofa jafnrétt- ismála bendir á þessi ójöfnu kynjaskipti meðal ráðamanna í stærstu atvinnurekendasamtök- um landsins í nýjum bæklingi: „Konur og völd“ - sem raunar virðast ósköp takmörkuð. Aðeins 1 af 50 forstjónun í pilsi Enda stýra karlar líka fýrirtækj- unum næstum einir. Hjá 50 stærstu fyrirtækjum landsins er aðeins 1 kona forstjóri og 1 kona stjórnarformaður. Engin kona er forstjóri eða stjórnarformaður í 10 stærstu fiskvinnslu- og út- gerðarfyrirtækjum landsins. í 10 stærstu fjármálafyrirtækjunum er heldur enga konu að finna sem bankastjóra, forstjóra né stjórnarformann. „Enda þótt ekki hafi verið gerð athugun á því hvernig eignahlutföll eru í þessum fyrirtækjum með tilliti til kynja þá má ætla að kyn stjórnarmanna endurspegli að verulegu leyti kyn eigenda. Það er því óhætt að segja að karlar eigi ísland eða a.m.k. að karlar fari með yfirráð yfir eignum á ís- landi," segir í bæklingnum. Kjósa konumar karlastjóm Spurningin er hvort konur vilja kannski heldur hafa þetta þann- igí í stéttarfélögum þar sem konur eru í yfirgnæfandi meiri- hluta virðast þær yfirleitt kjósa mun fleiri karla en konur til að stjórna þeim fyrir sig. Konur eru þannig 70% félagsmanna BSRB en formaðurinn og meirihluti stjórnarmanna karlar. Konur, sem eru 76% félaga í Sambandi bankamanna, hafa kosið sér karl sem formann og jafnframt 2 af 5 stjórnarmönnum. Og konur, sem eru 73% félagsmanna Kennara- sambandsins, hafa líka kosið sér karl til formennsku. í ASÍ eru konur rétt um helmingur félags- manna en forsetinn, sem vænta má, karl sem og 2/3 allra mið- stjórnarmannanna. BHM virðist hið eina þessara stóru laun- þegasamtaka sem hefur kosið konu til formennsku, en þær eru um 70% félagsmanna. — HEI

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.