Dagur - 28.07.1999, Page 6

Dagur - 28.07.1999, Page 6
6 - MIDVIKUDAGU R 2 8. J ÚLÍ 1 9 9 9 ÞJÓÐMÁL Útgáfufélag: Útgáfustjóri: Ritstjóri: Aðstoðarritstjóri: Framkvæmdastjóri: Skrifstofur: Sfmar: Netfang ritstjórnar: Áskriftargjald m. vsk.: Lausasötuverð: Grænt númer: Netfang auglýsingadeildar: Símar auglýsingadeildar: Simbréf auglýsingadeildar: Simbréf ritstjórnar: DAGSPRENT EYJÓLFUR SVEiNSSON ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON BIRGIR GUÐMUNDSSON MARTEINN JÓNASSON STRANDGÖTU 31, AKUREYRI, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK 460 6100 OG 800 7080 ritstjori@dagur.is 1.800 KR. Á MÁNUÐI 150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ 800 7080 omar@dagur.is (REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason (AKUREYR 1)460-6191 G. Ómar Pétursson OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir 460 6161 460 6171(AKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK) Arangur hópuppsagna í fyrsta lagi Enn á ný hefur tekist með hópuppsögnum að knýja viðsemj- endur til að borga meira í laun en gildandi kjarasamingar gera ráð fyrir. Að þessu sinni eru það grunnskólakennarar í höfuð- borginni. Allmargir þeirra höfðu sagt starfi sínu lausu svo nokkur óvissa ríkti um skólastarf. Borgaryfirvöld fylgdu í kjöl- far margra sveitastjórna og létu undan þrýstingnum. Til við- bótar við þær 170 milljónir króna sem borgin samþykkti í vor að veita skólunum á komandi skólaári til að greiða kennurum launauppbót, kemur nú sama upphæð haustið 2000, auk þess sem kennarar fá til viðbótar á næsta ári 65 milljónir. í öðru lagi Grunnskólakennarar í Reykjavík fá því 405 milljónir króna aukalega á þeim tíma sem eftir er af gildistíma kjarasamnings þeirra - nema sú upphæð hækki enn að ári vegna nýrra hóp- uppsagna. Þetta er dágóð búbót og sýnir enn einu sinni hversu miklum árangri hópuppsagnir opinberra starfsmanna sem gegna „viðkvæmum" störfum í heilbrigðiskerfi, skólum og víð- ar, geta skilað í vasann. Enda hafa ráðamenn ríkis og bæja val- ið þá leið að kaupa sér frið. Með því er að sjálfsögðu verið að hvetja enn fíeiri hópa, sem gegna lykilhlutverki í opinberum rekstri, til að nýta þá aðstöðu til að knýja fram hækkanir um- fram aðra, og umfram gildandi samninga. í þriója lagi Þessi leið til að knýja fram kjarabætur er hins vegar afar órétt- lát gagnvart mjög fjölmennum hópum láglaunafólks - þeim sem fá yfirleitt minnstu hækkanirnar út úr almennum kjara- samningum og hafa auk þess enga stöðu til að knýja fram frek- ari kjarabætur á samningstímanum. Það hversu mikinn árang- ur hópuppsagnir lykilstétta hjá hinu opinbera bera ætti því að vera alvarlegt áhyggjuefni verkalýðshreyfingarinnar sem fer með samningsumboð láglaunastéttanna. Það er orðið brýnt að finna nýjar leiðir til að koma í veg fyrir að láglaunafólkið haldi endalaust áfram að sitja við skarðan hlut og sífellt aukinn launamun. Elias Snæland Jónsson Ekki í hdpuin Að segja eða að segja ekki upp. Þar Iiggur vafinn. Það er svo skrýtið að þegar Garri kennari var Ioksins búinn að fá sig fullsaddan af lökum kjörum og ákvað að skipta um starfsgrein þá virtist eins og eitthvað lægi hreinlega í loftinu. Daginn sem Garri kennari skrifaði uppsagnarbréfið er eins og himintunglin hafi dregið hundruð kennara spangólandi út í nóttina með uppsagnar- bréf alveg eins og það sem Garri skrifaði. Reyndar er ekki rétt að segja „sem Garri skrif- aði“ því það eina sem hann gerði var að setja nafnið sitt inn £ form uppsagnarbréfs sem hann hafði einhverra hluta vegna undir höndum en man þó ekki hvernig rataði í hans hans hendur. Lát- um það kyrrt liggja. Emn og óstuddur Garri var sumsé búinn að fá nóg. Eftir að hafa nýtt margar kennslustundir í að ræða sín kjaramál við börnin og ungling- ana - sem merkilegt nokk sýndu vanda Garra mikinn skilning, hvort sem það var af samúð vegna bágra kjara eða þá af létti yfir því að komast í kjaftatíma í stað þess að þurfa að reikna svolítið - þá var Garri orðinn svo sannfærður um að hann væri hafður að fífli af vinnuveitendum sínum í hvert einasta skipti sem laun voru greidd, að hið óumflýjanlega hlaut að gerast. Garri sagði upp - alveg einn, óstuddur, óhvattur og ekki undir neinum áhrifum frá kennaraforystunni, kjara- nefndum eða öðrum sem fram koma í fjölmiðlum og á fund- um til að rekja samviskusam- lega fyrir þjóðinni að neyðará- stand blasi við þar sem margir Garri sagði upp eirtn en ekki í hópum. kennarar muni snúa sér að öðru ef ekki verði bætt kjör þeirra. Furðulegt hve margir kennarar reyndust á svipaðri línu og Garri kennari. Hver fýr- ir sig, einn og einn, en ekki í hópum. Engiun hópur Garri var síðan kominn lang- leiðina á hausinn í framreikn- ingum sínum á heimilisbók- haldinu þar sem engar líkur voru á að hann fengi laun í ágúst - nema þá með því að ráða sig til vinnu á byggingamark- aði, þar sem menn þurfa að vinna fyrir kaupinu sínu. Vill þá ekki svo til að Ingi- björg Sólrún skellir trompinu út. Garri þurfti ekki að hugsa sig tvisvar um heldur sótti uppsagnarbréfið sitt. Reyndar kom það honum nokkuð spánskt fyrir sjónir að sjá í bunkanum svona rosalega mörg bréf sem litu eiginlega al- veg eins út og hans eigið. Og það kom Garra líka dálítið spánskt fyrir sjónir að forystu- menn í samtökum kennara skuli hafa Iagt öll þau ósköp af vinnu á sig sem raun ber vitni til að semja um kaup og kjör fólks sem sagt hefur upp störf- um eitt og eitt en ekki í hópum og það einmitt þegar kjara- samningur er í fullu gildi. Enn skondnara finnst Garra kenn- ara það að nú þegar borgar- stjórinn hefur loks gefið eftir í rifrildinu \ið óþekka barnið þá hvetur kennaraforystan þá kennara sem sögðu upp einn og einn (en ekki í hópum) til að draga uppsagnir sínar til baka... einn og einn, en ekki í hópum. GARRI. ODDUR ÓLAFSSON skrifar Uppskera óþekktariimar Neyðarástandi hefur verið aflýst í bamaskólum með því að borg- arstjórinn lofaði að þróa og breyta skólastarfi. Þar að auki munu kennarar fá kaup í næsta mánuði fyrir að vera stilltir og góðir og taka þátt í þróunar- og breytingastarfi í menntakerfi borgarinnar. Eftir að neyðin sneyddi hjá garði Ráðhússins í Tjörninni tilkynnti staðgengill borgarstjórans, að ekki hafi verið um kjaradeilu að ræða milli kennara og atvinnurekenda þeir- ra. Enda hafi ekkert vakað fyrir kennurum eða borginni, annað en að þróa kennsluna. Kennarar hafa staðið á torgum svo lengi sem elstu nemendur muna og borið sig illa vegna vinnuáþjánar og Iélegra launa- kjara. Ekki fóru þeir beinlínis dult með það, að hópuppsagnir þeirra væru kröfur um hærra kaup og að ekki yrði hlaðið á þá frekari störfum í vinnutímanum. Yfirvöldin hugsuðu til þess með hryllingi ef draga þyrfti úr slímsetum krakkana á skólabekk vegna hópuppsagna. Það gæti kostað að pabbi og mamma eða jafnvel afi og amma færu kenna krökkunum að stauta og draga til stafs. Slík ódæmi skulu aldrei henda íslenskan æsku- lýð, enda mundu börn aldrei bíða þess bætur að hafa lært eitt né neitt nema hjá réttindakenn- urum með uppeldis- fræðina á hreinu. Gegnsæx feluleikur Að hópuppsögnum og Neyðarástandi endurráðningum lokn- aflýst. um eru kennarar ósköp fegnir og draga enga dul á að þeir eru ánægðir með þær kjarabætur sem þeir fengu. Það er að segja þær launahækkanir sem aðstoðarborgarstjórinn segir að séu alls ekki kauphækkanir, heldur aurar til að innleiða nýja starfshætti í skólum. Þessi gegnsæi feluleikur er ekki sæmandi öllu því hámennt- aða fólki sem á hlut að máli og semur um að greiða og taka við launum sem sótt eru í vasa skattaborgaranna. Manni gæti dottið í hug að fyrirlitning þeirra á fávísi almúgans sem semur um sín kjör við sjálfstæða atvinnurek- endur sé á því plani, að hægt s.é að bjóða honum rök, sem uppeldisfræð- ingarnir munu vonandi ekki bjóða nemendum sínum í dag\ástun og grunnskólum. Hinir ábyrgu Opinberu launin hækka nánast sjálfkrafa og ganga kjörn- ir fulltrúar þar á undan með for- dæmi, sem þeir líða engum öðr- um. Kjaraaðallinn hreiðrar betur og betur um sig og er laginn að ljúga upp launum á aðrar stéttir, eða velja úr einstaka hálauna- menn til að bera sig saman við. Þessi óheiðarlegu vinnubrögð hafa tíðkast lengi og byggjast á því að enginn er til andsvara þeg- ar opinbera sovétið er að hygla sér og sínum af almannafé. Framkvæmdastjóri ASI segir í Degi gærdagsins, að eðlilegt væri að almennir Iaunþegar fengju 30% kauphækkun eins og ráð- herrar. En það er borin von að slíkri kröfu verði sinnt, því það mun kollvarpa efnahagslífi þjóð- arinnar. Niðurstaðan verður krafa um 4-5% kjarabætur í næstu samningalotu. Alþýðan skal sjá um þjóðar- sáttina og stöðugleikann til að kjaraaðall hins opinbera fái not- ið góðærisins með kvótaeigend- um og fjármagnsbröskurum. Kennarar! Til hamingju með vinnuveitendur sem skilja þarfir ykkar og forvaltra gullgæsina, skattborgarana. svarað Muti verða kmfistráð- herraprósentu í hjara- samningum næsta vetur? Signý Jóhanneesdóttir formaðurVerkalýðsfélagsins Vöku í SigluflrðL „Eg vil miklu frekar ráðherra- krónur. Forsætis- ráðherra fékk 130 þúsund kr. í Iaunabætur skv. úrskurð Kjara- dóms og það væri ekki galin krafa að slík væru lág- markslaun í landinu. Þessa upp- hæð fékk Davíð af því hann fékk ekki greidda yfirvinnu og mér þætti ekki slæmt að til þessarar krónutölu væri lægstu dagvinnu- laun metin. Við höfum ekkert að gera með 30% liækkun á ekki neitt." Hannes G. Sigurösson statfaudiframkvæmdastjóri VSÍ. „Mér sýnist stefna í að mörg félög muni halda uppi slíkum kröf- um- En því fer fjarri að slík kröfugerð muni hafa áhrif á nið- urstöður samninga, því vinnu- veitendur munu aldrei fallast á slíkt. Það er ábyrgðarhluti að setja slíkar kröfur fram og ætla að beita sér fyrir því að þær náist því það hefur strax áhrif á stöðugleik- ann. Ég býst við að þá muni ótti við verðbólgu vaxa og fjármagn streyma út úr Iandinu. I kjölfarið munu vextir hækka, m.a. fyrir til- stilli Seðlabankans til að viðhalda stöðugu gengi. Þá munu fyrirtæk- in hvert fyrir sig reyna að verjast verðbólgu með því að hækka verð á vöru og þjónustu. Ábyrgðarlaus kröfugerð af þessu tagi mun því í sjálfu sér auka verðbólgu." Eirikur Stefánsson formaður Verkalýðs- og sjómannafé- lags Fáslovðsjjatðar. „Ef ráðherrapró- sentunnar verður krafist og hún næst í gegn koma hinir gömlu fylgi- fiskar; þar sem öllu er velt út í verðlagið. Verð á lífsnauðsynjum stórhækkar, opin- ber þjónusta hækkar einnig, verð- bólga fer yfir 10% og vextir hækka. Því væri það eina rétta í stöðunni að ráðamenn segðu sig frá launahækkununum sem þeir fengu skv. úrskurði Kjaradóms og myndu lúta í kjörum sínum sömu lögmálum og gerist á almennum markaði." össur Skarphéðinsson alþingismaður. „Ég tel líklegt að Iaunahækkanir sem stjórnmála- menn og topp- embætismenn fengu muni setja sterkt svipmót á kjarasamninga- gerð næstu vetur. Samningagerð- in mun verða mjög erfið, enda hefur ríkisstjórnin nuddað því inn í vit almennings að nóg sé til af peningum. Ríkisstjórnin hefur því sjálf lagt drög að mjög hörð- um kjaraátökum."

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.