Dagur - 28.07.1999, Blaðsíða 9

Dagur - 28.07.1999, Blaðsíða 9
8 -MIÐVIKVDAGVR 28. JÚLÍ 1999 MIDVIKVDAGVR 28. JÚLÍ 1999 - 9 FRÉTTASKÝRING Xkypur FRÉTTIR HugtaMð hópuppsagnir endurskoðað? GEIRA. GUÐSTEINS- SON SKRIFAR Þróimin í kjarabar- áttu kennara táknar ekki að mati formanns Kennarasambandsins að kjarasamningar kennara sáu orðnir markleysa. Samningi borgarinnar er al- mennt fagnað en vinnuveitendur telja aðgerðir kennara ólög- legar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri í Reykjavík, hefur ákveðið að verja 170 milljónum króna til grunnskóla Reykjavíkur á skólaárinu 1999/2000 til efling- ar skólastarfs. Hliðstæð íjárveit- ing kemur haustið 2000 til þess að innleiða nýja starfshætti í skól- unum, efla samvinnu kennara, foreldrasamstarf og sjálfstæð vinnubrögð nemenda. Veija á allt að 65 milljónum króna á árinu 2000 til launagreiðslna til kenn- ara vegna vinnu sem tengist und- irbúningi og breytingum á skóla- starfi. Viðbrögð kennara í kjara- hópi kennara eru þau að þeir hafa ákveðið að draga uppsagnir sínar til baka og hvetja aðra grunnskólakennara í Reykjavík að gera slíkt hið sama. I óefni stefndi í kennslumálum í Reykja- vík að öllu óbreyttu. Það vekur nokkra athygli að þessar ráðstaf- anir koma eftir viðræður Ingi- bjargar Sólrúnar Gísladóttir, borgarstjóra, við kjarahóp kennnara, sjö manna hóp, en ekki stéttarfélög kennara, Kenn- arasamband Islands og Hið ís- lenska kennarafélag. Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Islands, segist ekki eiga von á að innlegg borgar- stjóra í kjarabaráttu kennara muni koma inn á borð Kennara- sambandsins. Kennarasambandið hafi ekki haft áhrif á samninga annara sveitarfélaga við kennara svipaðs eðlis. „Mörg sveitarfélög hafa gert samninga við kennara þar sem til- greindur er t.d. sá tímafjöldi á mánuði sem kennarar í viðkom- andi sveitarfélagi fái greiddan en í þessu tilfelli er sett ákveðin fjár- upphæð í hvern skóla sem útfærð verður síðan á hverjum stað. Reykjavíkurborg var á eftir öðrum sveitarfélögum hvað varðar auka- greiðslur til kennara. Þessi þróun táknar ekki að mínu mati að kjarasamningar kennara séu orðnir markleysa. Þegar gerður er jafn langur samningur eins og við gerðum síðast, þ.e. til þriggja ára, sem að mínu mati er hæpið, tek- ur hann ekki tillit til breytinga sem ófrávíkjanlega verða á svo löngu samningstímabili,11 segir Eiríkur. Eiríkur bendir á að ný aðal- námskrá sé að koma út sem komi til framkvæmda á næstu árum. Til hennar hafi ekki verið hugsað við undirskrift núverandi kjara- samnings, eða hver áhrif hennar gætu orðið. Þannig væri einnig Mikið hefur gengið á frá því að kennarar í Reykjavík skiluðu inn uppsagnarbréfum. Eftir samkomulag við borgarstjóra er búist við því að flestir dragi umsóknirnar til baka. með aðrar breytingar í vinnuum- hverfinu. „Það hefur verið rætt í viðræð- um okkar við fulltrúa f Iauna- nefnd sveitarfélaga að í framtíð- inni væri skynsamlegt að gera miðlægan samning um stærri mál, og skilja eftir ákveðnar upp- hæðir sem yrði ráðstafað heima í sveitarfélögunum eða skólunum þar sem þarfirnar væru mismun- andi. Við erum enn að læra á þær breytingar sem urðu við það að viðsemjendur urðu sveitarfélög Iandsins í stað ríkisvaldsins," seg- ir Eiríkur Jónsson. Kennarar fagna yfirlýsingu borgarstjóra Einn af forsvarsmönnum kjara- hóps kennara, sem er þrýstihópur kennara sem myndaðist úr þeim hópi sem sagði upp í vor vegna óánægju með kaup og kjör, er Ei- ríkur Brynjólfsson. Hann segist mjög ánægður með að inn í skóla- starfið í Reykjavík náist 325 mill- jónir króna á því eina og hálfa ári sem eftir er af samningstímabil- inu til að kaupa af kennurum vinnu með tveimur eingreiðslum. Þriggja manna nefnd innan hvers skóla sem skipuð verður skóla- stjóra og tveimur kennurum mun síðan gera tillögur um nýtingu þess fjármagns sem til viðkom- andi skóla berst. Eiríkur segir að kennarar álíti að verið sé að greiða fyrir störf sem kennarar vinnu nú þegar en hafi ekki verið metin í síðasta kjarasamningi. Með yfirlýsingu borgarstjóra sé verið viðurkenna gildi þessara starfa kennara í skólunum. „Við fögnum yfirlýsingu borgar- stjóra þess efnis að hafin verði undirbúningur að þróun og breyt- ingu í skólastarfi á vegum Fræðslumiðstöðvarinnar í sam- ráði við stéttarfélög og Skóla- stjórafélag Reykjavíkur áður en gildandi kjarasamningar renna út í árslok ársins 2000. Ég hef haft afskipti af kjarapólitík í 20 ár en aldrei kynnst svipuðu ástandi og nú hefur ríkt. Kennarar í Reykja- vík settu fram kröfur fyrir hart- nær ári síðan en því var ekki svar- að. Það leiddi til þess að kennar- ar fóru að segja upp í vor. Það voru alls ekki skipulagðar hóp- uppsagnir og alls engin samráð milli kennara, óánægjan ein og sér var nægjanleg ástæða til þess að kennarar sögðu upp störfum. Það var eftir uppsagnir sem við hittumst og stofnuðum m.a. kjarahópinn, fullyrðingar um annað eru einfaldlega rangar. Auðvitað tala kennarar saman eins og aðrar vinnandi stéttir. Kennarar í Reykjavík voru ein- faldlega orðnir á eftir kennurum á landsbyggðinni. Uti á landi hafa menn t.d. fengið húsnæðishlunn- indi og á síðustu árum hafa verið gerðir samningar við kennara um hlunnindi umfram kjarasamn- inga. Reykjavík og Kópavogur voru einu sveitarfélögin sem áttu eftir að semja við kennara. A fundi sem haldinn var í Kennara- húsinu á mánudagskvöld voru allflestir kennarar ánægðir með yfirlýsingu borgarstjóra og al- mennt muni kennarar draga sínar uppsagnir til baka, en einhverjir eru komnir í aðra vinnu og aðrir sætta sig ekki við þetta tilboð. Óánægja kennara hefur verið mikil og staðið lengi svo það var nauðsynlegt að koma á einhverri sátt til tveggja eða þriggja ára. I framtíðinni þurfa þessar ráðstaf- anir sem við sjáum nú að vera hluti af kjarasamningum við kennara, þ.e. byrjað verður í næstu kjarasmningum að tala út frá gamla samningnum og síðan a.m.k. 20% álag,“ segir Eiríkur Brynjólfsson. Nokkrir höfðu í gær dregið sín- ar uppsagnir til baka en ekki er búist við neinni „skriðu“ fyrr en eftir verslunarmannahelgina. Sátt um sainning á Akureyri Kennarar á Akureyri gerðu sér- stakan samning við bæjafyfifvöTd á Akureyri fyrir síðasta skólaár. Stefnt var að því að reyna að ná nýjum samningum um vinnutíma fyrir komandi skólaár. Náist það ekki mun samningurinn fram- lengjast næsta skólaár, eða þar til samningar hafa náðst. Gunnar Gíslason, skólafulltrúi, segir að sátt sé um þennan samning í skólunum en það sé viðtekin regla að erfiðara reynist að fá kennara til starfa þegar þensla sé í þjóðfélaginu. Ástæðan sé ein- faldlega sú að laun kennara séu of lág, ekki síst í ljósi menntunar kennara. Þess má geta að nýlega sendi Kennarasamband Islands og Hið íslenska kennarafélag öllum sveitarstjórnum landsins bréf með túlkun sinni á því hvers vegna slitnaði hafi upp úr viðræð- um milli kennarafélaga og Launanefndar um tilraunasamn- ing um breyttan vinnutíma, starfshætti og starfskjör í skólum. Ásgeir Magnússon formaður bæjarráðs Akureyrar, sem er for- maður viðræðunefndar Sam- bands íslenskra sveitarfélaga við kennara um breytt vinnutímafyr- irkomulag segir í bréfi til sveitar- stjórna að það sé rangt að upp úr viðræðum hafi slitnað þrátt fyrir að kennarafélögin hafi samþykkt tilboð launanefndarinnar með smáVægilegum breytingum. Hið rétta sé að breytingartillögur kennarafélaganna hafi eklu verið smávægilegar heldur var í raun einu af meginmarkmiðum samn- ingsins hafnað. Málið hafi snúist um það hvort kennarar hafi verið tilbúnir að gangast undir ger- breytta starfshætti skóla þar sem vinnuskylda kennara yrði ekki skilgreind í einstaka þætti eins og kennslu og að binding kennara á hverjum vinnudegi og á starfstíma skóla ykist til muna. Einnig sé röng sú fullyrðing að það kæmi í hlut sveitarfélaga vítt og breitt um landið að greiða nið- ur kostnað af kennsluafslætti fyrir Reykjavíkurborg. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga jafni kostnað milli einstaka sveitarfélaga og taki þá tillit til samningsbundins Iauna- kostnaðar, þ.m.t. kennsluafsláttar. ÖIl sveitarfélög landsins geti feng- ið framlag úr Jöfnunarsjóði sveit- arfélaga. Aðeins Reykjavíkurborg er samkvæmt Iögum utan við Jöfn- unarsjóðinn og því eina sveitarfé- lagið sem geti lögum samkvæmt sparað sér fjármuni með því að fækka kennurum með kennsluaf- slátt og fjölga 'ninum. Þrátt fyrir þaðær hæsta hlutfall kennara með kennsluafslátt í Reykjavík. Því er einnig hafnað í bréfi Ásgeirs Magnússonar að í tengslum við tilraunasamninginri muni ériginn keniia meira í nýju kerfi. I samn- ingnum segi orðrétt áð gert sé ráð fyrir þ\á að kennarar kenni að jafnaði hvorki meira né minna en kennari með hámarkskennslu- skyldu kenndri í eldra vinnutíma- kerfi. Engix samingar við kennara í Kópavogi Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi, segir að ekki standi fyr- ir dyrum neinir samningar við kennara í Kópavogi, en bæjaryfir- völd í Kópavogi séu tilbúin að skoða það. Kópavogur er nánast eina sveitarfélagið þar sem ekki hefur verið samið sérstaklega við kennara um aukagreiðslur. Bæjar- stjóri segist þó bjartsýnn á að skól- arnir verði vel mannaðir kennur- um í haust, annað væri nýlunda í skólastarfinu í Kópavogi. „Þó vitnað sé til þess hvað kenn- arar hafi fengið í Bessastaða- hreppi, á Raufarhöfn eða Isafirði, þá minni ég á að um helmingur allra kennara á landinu starfa í Reykjavík og Kópavogi. Við höfn- uðum kröfum kennara í fyrravetur þegar mest gekk á í samningum \ið þá víðs vegar um landið, en við gáfum þá í skin að við vildum greiða fyrir alla aukavinnu og koma á breyttu skólastarfi. Bæjar- stjórn vill koma á ákveðnum breýtingum í skólastarfi hér á nýrri öld og hefur til þess metnað en grunnskólastarfið er í ákveð- inni mótun eftir að sveitarfélögin tóku við rekstri skólanna," segir Sigurður Geirdal. Marka skýrari vinnulöggjöf Gunnar Bragi Sveinsson, aðstoð- armaður félagsmálaráðherra, segir að þessar aukagreiðslur til kenn- ara hafi ekki verið ræddar sérstak- Iega í félagsmálaráðuneytinu, en vissulega hafi þeir orðið varir við umræðuna úti í þjóðfélaginu. Gunnar segir að ekki sé ljóst hvernig beita eigi löggjöfinni til þess að koma í veg fyrir að kjara- samningar séu brotnir, t.d. með hópuppsögnum, en sé þetta eitt- hvað sem Iaunþegar ætli að fara að stunda verði að taka fast á mál- inu. „Mín persónulega skoðun er sú að endurskoða þurfi hugtakið hópuppsagnir og marka það skýr- ara í vinnulöggjöfinni," segir Gunnar Bragi Sveinsson. „Aðferðir kennara ólöglegar“ Hannes G. Sigurðsson, settur framkvæmdastjóri Vinnuveitenda- sambands tslands, segir að vinnu- veitendur hafi áður lýst yfir and- stöðu gegn svona samningum til hliðar við kjarasamninga eins og kennarar eru að ná hringinn í kringum landið og andúð á að- ferðum kennara við að ná þeim. „Það er ljóst að þessir samning- ar kennara munu gera samninga á hinum almenna vinnumarkaði erfiðari en ella og þessar aðferðir kennara við að ná þessum kjara- samningum eru algjörlega ólög- legar. Hópuppsagnir eru algjör- lega ólöglegar til þess að knýja fram frekari kjarabætur og gerir kjarasamninga í raun alveg ómerka og einskis virði. Það verð- ur mjög erfitt að endurnýja kjara- saminga við þessa hópa aftur. Það dylst ekki nokkrum manni að þeg- ar hópur segir upp nánast allur í einu og myndar samninganefndir, undirrita saminga, hefur sérstaka talsmenn, gengur í takt og talar einni röddu þá þarf ekki frekari sannanir fyrir þvf. I nágranna- löndunum er í gildi löggjöf þar sem skýrt er kveðið á um fébóta- ábyrgð í hliðstæðum málum. Hér er engin sérstök fébótaábyrgð gagnvart brotum af þessu tagi. Samkvæmt vinnulöggjöfinni er aðeins hægt að fara með svona mál fyrir félagsdóm og krefjast bóta af stéttarfélögunum. Þessi aðferð sem skilar þessum hópum svona mildum árangri eru til þess fallinn að bijóta niður þau sam- skipti sem hafa verið milli þessara aðila og annara ef fram heldur sem hingað til. Löggjafinn og rík- isstjórn hlýtur að skipa málum þannig að kjarasamningar séu virtir,“ segir Hannes. Hannes segir að aðrir bæjar- starfsmenn, ekki bara í Reykjavík, hljóti að horfa til þess hvort þeir nái ekki sambærilegum árangri, og síðan smiti þetta út í umhverfið. „Ég veit ekki til þess að aðilar á almennum vinnumarkaði hafi áhuga á að taka upp þessar starfs- aðferðir, enda hafa talsmenn þeirra gagnrýnt þær harðlega. Þetta hefur verið látið óátalið af sveitarfélögunum og öðrum opin- berum aðilum að þessum aðferð- um sé beitt, en breyting þyrfti að verða á því,“ segir Hannes G. Sig- urðsson. Þess má geta að Davíð Odds- son, forsætisráðherra, hefur boð- að að flutt verði á Alþingi laga- frumvarp til að spyrna gegn hóp- uppsögnum og öðrum ólöglegum þrýstiatriðum í kjarabaráttu, gerist þess þörf. Ekki er enn Ijóst hvort að röð áfalla hjá Coke í Evrópu hafi áhrifá sölu hér á landi. íslenskt kók án áhrífa ESB Eigandi Vífilfells, framleiðanda Coca Cola á íslandi, er í rannsókn hjá Evrópu- samhandinu, vegna meintra brota á sam- keppnislögum ESB. Aðgerðir Evrópusambandsins gegn Coca Cola framleiðendum í Þýskalandi, Austurríki, Dan- mörku og Bretlandi, munu ekki hafa áhrif á Vífilfell, framleið- anda Coke á Islandi, að sögn Þorsteins M. Jónssonar, forstjóra fyrirtækisins. Framkvæmda- stjórn ESB hefur sett í gang rannsókn á samkeppnisháttum framleiðendanna í Evrópu, en enn hefur ekki verið farið í slíkar aðgerðir hér á landi. Þorsteinn segir að þessar að- gerðir ESB hafi ekki haft áhrif á Vífilfell, enn sem komið er, og að menn þar á bæ ættu síður von á því. Hann segir hins vegar að ef að til þess kæmi að samkeppnis- yfirvöld vildu skoða eitthvað hjá fyrirtækinu, þá myndi vera mjög vel tekið á móti þeim og þeim yrði sýnt allt, sem þeir myndu vilja sá. Eigandi Vífilfells í rannsókn Meðal þeirra framleiðenda, sem verið er að rannsaka í Evrópu, er fyrirtækið Coca Cola Nordic Beverages, sem framleiðir vörur Coca Cola fyrirtækisins og er dreifingaraðili þess á Norður- Iöndunum. Vífilfell er f eigu þessa fyrirtækis, en að sögn Þor- steins hefur það ekki haft áhrif hér eins og er. Þorsteinn segir að ef að raunin yrði sú að CCNB yrði fundið sekt um brot á samkeppnislög ESB, myndi það ekki hafa áhrif á Vífilfell. „Við höldum áfram að reka okkar fyrirtæki eins og ekk- ert hafi í skorist, enda er ekkert verið að skoða hér eins og ég segi. Það er hins vegar mjög ólík- Iegt að það komi eitthvað upp, sem ekki er f samræmi við eðli- lega viðskiptahætti," segir Þor- steinn. Hann bætti því við að Vífilfell væri rekið sem algjörlega sjálfstæð rekstrareining. Mðrg áföll hjá Coke í Evrópu Undanfarnar vikur hefur Coca Cola í Ewópu orðið fýrir mörg- um áföllum og ber þar kannski hæst gallaðir drykkir frá Coke í Belgíu. Þorsteinn segir að það sé ekki gott að segja til um hvort að þessi röð áfalla í Evrópu hafi áhrif á sölu drykksins hér á landi, þvf mjög erfitt sé að mæla það. „Okkar framleiðsla er þekkt í Coke-heiminum fyrir að vera góð. Ein ástæðan er eflaust sú að við eigum besta vatn í heimi en einnig að gæðastarf fyrirtækisins er einstaklega öflugt," sagði Þor- steinn að Iokum. - AÞM 650nýbílastædi í Laugardal Borgarráð hefur samþykkt breyt- ingar á skipulagi í Laugardal sem gerir ráð fyrir byggingum að gólf- fleti rúmlega 20.000 m2 (álíka og 3/4 Kringlunnar) ásamt 650 bílastæðum á tveim lóðum á milli Engjavegar og Suðurlands- brautar: Annars vegar er um að ræða 25.000 m2 lóð ætlaða Landssímanum undir 4 hæða hús, 14.000 m2 að gólffleti ásamt 445 bílastæðum. Og hins vegar 11.500 m2 lóð undir 6.440 m2 byggingu ásamt rösk- lega 200 bílastæðum. Áætlað er að fjórðungur bílastæðarina verði neðanjarðar. Bíó tæpast felumál Þótt tillaga hafi ekki verið kynnt um uppbyggingu á minni lóð- inni, sem gagnrýnt var í bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, „er það tæpast felumál sem bókað er í fundargerðir borgarráðs, en þann 13. apríl sl. var borgar- stjóra falið að taka upp viðræður \ið forsvarsmenn Bíós hf. um þarfir fyrirtækisins og hvernig þær hugmyndir, sem umsókn þeirra byggist á, falla að notkun og skipulagi Laugardalsins", sagði í bókun Reykja\ikurlistans. Tvær hallir til viðbótar Borgarráð hefur einnig samþykkt tíllögur um byggingu fjölnota íþrótta- og sýningarhúss og yfir- byggðs knattspyrnuvallar í Graf- arvogi. Áformað er að stofnað verði hlutafélag sem mundi byggja fjölpotahúsið við hiið Laugardalshallar, sem annaðist síðan rekstur beggja húsanna. Hlutafé er áætlað 75 milljónir, sem skiptist þannig að borgin eigi 40%, Samtök iðnaðarins 4Ö% og ÍBR 20%. - hei

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.