Dagur - 28.07.1999, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ 1999 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Bretar óttast
hermdarverk IRA
Breska lögreglan er við öllu búin
ef hermdarverkamenn írska lýð-
veldishersins fara aftur að Iáta á
sér kræla. Vopnahlé hefur staðið í
nokkra mánuði á meðan á firðar-
viðræðum stóð og verið var að
undirbúa þing og heimastjóm á
Norður-Irlandi. En eftir að Sam-
bandsflokkur Ulster neitaði að
sitja í stjórninni með fulltrúum
Sinn Fein, stjórnmálaarms IRA,
nema herinn afvopnaðis þegar í
stað hafa herskáir Norður-Irar lát-
ið á sér skilja að þeir séu til alls
vísir.
Lýðveldisherinn kennir bresku
stjórninni, breska hernum og
mótmælendum á Norður-trlandi
einhliða um að ekki tókst að
mynda heimastjómina og segja
taísmenn hans, að þessir aðilar
hafi aldrei ætlað að semja um eitt
né neitt. Eru því málin komin aft-
ur á byrjunarreit, eða á þann stað
þar sem málin stóðu er friðarum-
leitanir, sem kenndar eru við
föstudaginn langa á síðast ári,
hófust.
Þeir sem mest létu til sín taka í
friðarumræðunum segjast samt
bjartsýnir á að viðræður verði
teknar upp á ný og að málin muni
taka friðsamlega stefnu áður en
Iangt um líður.
Trúarleiðtogi biður iim aðstoð
Leiðtogi Falun Gong hreyfingar-
innar, sem kommúnistastjórnin er
búin að banna, ákallar nú „al-
þjóðasamfélagið“ og biðst hjálpar.
Li Hongzhi, sem búið hefur í New
York í tvö ár, segir að aðrar þjóðir
eigi að grípa í taumana og reyna
að hafa áhrif á kínversku stjórnina
til að stöðva ofsóknir á hendur
áhangendum Falun Gong. Hann
segist enn ekki hafa orðið var við
nein viðbrögð Bandaríkjastjórnar
við þeim mannréttindabrotum
sem beitt er í Kína.
Hann heldur því fram, að aðför-
in gegn Falun Gong sé ekkert
skárri en hvernig farið var með
fólk í menningarbyltingunni. Þeir
kúga fólk og neyða það til að gera
ýmislegt á móti vilja sínum. En
þeir geta ekki breytt vilja og hjarta-
lagi fólks, sagði Li í viðtali við
breskt blað.
Kommúnistaflokkurinn hefur
viðurkennt, að samtökin hafi vald-
ið vissum óróa innan flokksins.
Nokkrir flokksmenn hafa gengið
Falun Gong á hönd og gerst leið-
togar söfnuða. Málgagn flokksins,
Dagblað alþýðunnar, hvetur til að
þegar verði tekið á agavandamál-
um sem farið er að bera á innan
raða flokksmanna.
Talsmenn flokksins segja að
Falun Gong eigi sér áhangendur
innan hersins og í stjórnarstofn-
unum. Blaðið spyr hvort eigi sér
meira í flokknum, Marx-Lenín-
ismi eða Falun Gong.
Kínverskir námsmenn erlendis
eru varaðir við villukenningum og
íbúar Hong Kong og Macao eru
sagðir afneita Falun Gong þegar
þeir kynnast hinu sanna innræti
kenninga Falun Gong.
Dýrasta málverk heims glatað?
Metropolitiansafnið í New York mun efna til sýningar á verkum Vincent
Van Gogh og átti málverk hans af lækninum Gachet, að vera eitt hels-
ta aðdráttarafl sýningarinnar, en læknirinn átti nokkrar myndir eftir
meistarann og verða þær á sýningunni. En myndin af lækninum finnst
ekki og óttast menn að hún sé glötuð að eilífu.
Þetta er það málverk sem hæst verð hefur verið greitt fyrir. Arið 1990
keypti japanskur viðskiptajöfur, Ryoei Saito, myndina fyrir 82 milljónir
dollara. Hann hótaði að myndin skyldi brennd fyrir dauða sinn. Hann
ætlaði að spara erfingjunum að borga himinháan erfðaskatt. Karlinn dó
sex árum síðar og síðan hefur ekkert til myndarinnar spurst.
Norðitr-Kóreu-
merni varaðir við
Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna,
Japans og Suður-Kóreu hafa varað
stjórn Norður-Kóreu við að skjóta
langdrægri eldflaug á loft. Þeir hafa
pata af því að í undirbúningi sé að
gera tilraun með eldflaug, sem bor-
ið getur sprengjuhleðslur allt til
Hawaieyja og Alaska. I fyrra skutu
Norður-Kóreumenn eldflaug sem
fór yfir Japan og lenti í hafinu
skammt frá ströndinni. Japanir
mótmæltu harðlega, en eldflauga-
skytturnar sögðust aðeins hafa ver-
ið að koma gerfihnetti á braut, sem
allir vita að er fjarstæða.
Dauðasveitir lög-
reglu í Pakistan
Lögmenn og mannréttindahópar
benda á að í Pakistan séu hundruð
manna teknir af lífi án dóma og að
Iögreglan standi fyrir hreinsunum á
glæpamönnum. Gögn liggja fyrir
um, að ekki færri en 850 grunaðir
afbrotamenn hafi verið myrtir af
lögreglumönnum, aðeins i Punjab-
héraði, síðan núverandi stjóm mús-
lima komst til valda 1997.
Ryðfríir
norskir hitakútar með sparnaðar-
einangrun og termóstýrðum
blöndunartækjum
Blandar 40-70" inn á kerfið
Stærðir: 5,30,50,80, 100, 120,
150,200, og 300 lítra
30 ára frábasr reynsla
Hagstaett verð
Einar Farestveit & Co. hf
Borgartúni 28, sími 562 2900
Sjáðu meistarbílinn við Esso Tryggvabraut í dag
milli kl. 15 og 16. Einnig verður 38“ MMC Pajero á svæðinu,
einn sá allra fallegasti.
HöUurehf.
SHI
HEKLA