Dagur - 06.08.1999, Page 2
18-FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍÁGÚST
fD^wr
LÍFIÐ í LANDINU
ÞAD ER KOMIN HELGI
Hvað
ætlarþúað
gera?
Skógræktarfundur á
Þingvöllum. Siguröur
G. Tómssson.
Á skógræktarfundi
„Um helgina verð ég á aðalfundi Skógræktar-
félags Islands austur á Laugarvatni. Þetta er
fyrsti fundur félagsins sem ég sæki, en hann
verður með hátíðlegum blæ þar sem nú eru
Iiðin hundrað ár síðan skipulögð skógrækt
hófst hér á landi, það er á ÞingvöIIum,“ segir
Sigurður G. Tómasson, framkvæmdastjóri
Skógræktarfélags Reykjavíkur. „Eg veit svo
sem ekki annað og meira um þennan fund en
ég hlakka til þess að sækja hann og hitta þar
Ijöldann allan af skemmtilegu fólki. A leið-
inni í bæinn aftur á sunnudaginn ætla ég svo
að koma við £ Þingvallasveit og vökva plönt-
urnar mínar sem eru á landsvæði mínu við
Kárastaði. Ekki veitir af því að planta í þessari
blíðu sem ríkt hefur síðustu daga.“
Heyskapur og sumar-
gestir. Halldóra
Jónsdóttir.
Góðir sumargestir
„Eg reikna með að ég verði að sinna búverk-
unum um helgina, rétt einsog gerist á virkum
dögum. Það þarf að eitthvað að sinna hey-
skap, enda þó við séum hér á bæ komin nokk-
uð langt með hann. Síðan þarf að mjólka
kýrnar og hver veit nema að hingað komi líka
einhverjir góðir sumargestir, einsog oft er í
sveitum á sumrin," segir Halldóra Jónsdóttir í
Grímshúsum í Aðaldal, formaður Kaupfélags
Þingeyinga. „Talsverður tími hefur að undan-
förnu farið hjá okkur í að innleiða hér hina
nýju stórbaggatækni við heyskapinn, við erum
að læra tökin á henni núna. - Um helgar
koma barnabörnin gjarnan í heimsókn og
hver veit nema þau verði hér á ferð um helg-
ina.“
Með þingforsetum á
Svalbarða. Halldór
Blöndal.
Norður til Svalbarða
„A föstudagsmorgun fer ég út til Noregs og
þaðan svo norður til Svalbarða þar sem ég
verð á vikulöngum fundi með þingforsetum
hinna Norðurlandanna," segir Halldór Blön-
dal, forseti Alþingis. „Aldrei áður hef ég kom-
ið þarna norður, en ég geri ráð fyrir því að
ferðin verði bæði forvitnileg og skemmtileg og
ég hlakka til að fara. Með mér fer Friðrik
Olafsson, skrifstofustjóri Alþingis, og þó ég
geri ekki ráð fyrir því að við teflum saman í
þessu ferðalagi þá finnst mér ekki ólíklegt að
Friðrik hafi skákbækur með sér og leggist yfir
skákir svo hann verði sem best undirbúinn
fyrir einvígi sitt við Larsen, síðar í þessum
mánuði."
/
Vestur á ísafirði er aðdáandi Rollings Stones nr. 1 á íslandi, sýslumaðurinn
Ólafur Helgi Kjartanasson. Og fjallið kom til Múhameðs um sl. helgi þegar
söngvari Rollinganna, Mick Jagger, sást óvænt á ferð vestra og I spássitúr um
götur bæjarins. Sýslumaður tók nýjasta vini Vestfjarða fagnandi. Þessi mynd af
Ólafi Helga var tekin fýrir um hálfum öðrum áratug, en þá var hann löngu
orðinn aðdáandi Rollinganna, aðdáunin er í raun barnatrú hans.
■ LÍF OG LIST
Teiknmiynda-
Kalli
„Síðast var ég að lesa bók-
ina um Teiknmynda-Kalla
eftir Gene Walz, en hann hélt einmitt fyrirlestur
um efni bókarinnar hér í safninu í fyTrakvöId.
Karl Þórsson var af íslenskum ættum en bjó alla
sína tíð fyrir vestan haf, þar sem hann starfaði
við gerð teiknimynda hjá helstu fyrirtækjunum á
þeim vettvangi. Þessi bók varð mér mikil opin-
berun, enda um hornstein fjöldamenningar 20.
aldar að ræða,“ segir Hannes Sigurðsson, sem er
nýlega tekinn við starfi forstöðumanns Lista-
safhsins á Akureyri. „Þá er ég einnig að lesa bók-
ina „Path to the Future", sem fjallar um framtíð-
arsýn og hugmyndir Bill Gates. Satt best að
segja varð ég fyrir mildum vonbrigðum með
þessa bók, mér finnst í hana vanta allan brodd og
svo virðist sem ritstjórar bókarinnar hafi fyrst og
fremst haft að markmiði að halda hlífiskildi yfir
Bill Gates."
Sýrudjassinn
„Eg er alæta á tónlist, en
mest er ég fyrir klassík og
djass. Um þessar mundir er
ég að fikra mig áfram í sýrudjassinum, þar sem
blandað er saman rafmagnsgítar, rafmagns-
hljóðum og ýmsum fönkstefnum. En annars
stendur hinn gamli sígildi djass alltaf fyrir
sínu og ekki síst þá flytjendur og lagahöfundar
fjórða og fimmta áratugs aldarinnar, menn
eins og Oscar Peterson, Duke Ellington og
Gipsy Gelepsi. Þessir höfundar eru nánast sí-
gildir, líkt og Kalli kanína, sem okkar maður,
Karl Þórsson, hannaði."
„Ég hef mest lítinn tíma til að glápa á sjónvarp,
en gríp öðru hverju til bandarískra afþreyingar-
mynda einsog sönnum Islendingi sæmir. Þess
fyrir utan er forvitnilegt að fylgjast með doku-
menta-stefnu sem er að ryðja sér til rúms í kvik-
myndum Evrópu og kennd er við danska leik-
stjórann Lars Von Trier. í stuttum máli sagt
gengur hún út á að hafa hlutina sem eðlilegasta
hvað varðar handrit, leik og tökur. Það er
ánægjulegt til þess að vita að ný bylgja í kvik-
myndum eigi sér upphaf í Danmörku. Það gefur
fyrirheit um að norrænar þjóðir geti almennt
farið að láta meira að sér kveða.“
-SBS.
■ FRA DEGI TIL DflGS
“Sjálft hugvitið, þekkingin hjaðnar sem
blekking sé hjarta ei með sem undir
slær.“
Einar Benediktsson. „Aldamót.“
Þau fæddust 6. ágúst
• 1881 fæddist skáldkonan Hulda
(Unnur G. Bjarldind) sem m.a. orti:
Hver á sér fegra föðurland með fjöll
og dal og bláan sand...
• 1931 fæddist Matthías Á. Mathiesen,
fv. ráðherra.
• 1945 fæddist Ken Norton, hnefaleik-
ari.
• 1952 fæddist Sigurður L. Hall, mat-
reiðslumeistari.
• 1954 fæddist Jón Ólafsson, hljóm-
plötuútgefandi með meiru.
• 1959 fæddist Sigríður Hrönn Elías-
dóttir er mikið mæddi á þegar hún
var sveitarstjóri á Súðavík 1995 þegar
mannskæð snjóflóð féllu þar.
Þetta gerðist 6. ágúst
• 1809 Jörundur hundadagakonungur
efndi til dansleiks í Klúbbnum í
Reykjavík, þar sem nú er hús Hjálp-
ræðishersins.
• 1945 Sprengju var varpað á japönsku
borgina Hirosima frá bandarískri
sprengjuvél af gerðinni Boeing B29.
• 1960 Steingrímsstöð, virkjun við
Efra-Sog, var vígð við hátíðlega at-
höfn. Afl hennar er 26 megavött.
• 1962 Jamaica varð sjálfstætt ríki eftir
að hafa verið bresk nýlenda í 300 ár.
• 1992 Kvikmyndin Veggfóður var
frumsýnd. Leikstjóri var Júlíus Kemp.
Vísan
Kristjáni Stefánssyni frá Gilhaga eru
gæðingarnir hugleiknir en þeir geta verið
af ýmsum sortum.
Stnum ctugum silfrið lítur hver
sífellt meir ú ferðalög við stólum.
Gæðingur þá veit ég víst að er
, ,með vakvastýri.ogidrjfíéMlwnihjóhym
Afmælisbam dagsins
Geri Estelle Halliwell fæddist í
Watford á Englandi 6. ágúst 1972.
Hún er ein af Spice girls stúlkunum
vinsælu sem eiga aðdáendur út um
allan heim. Áður en hún varð fræg
söngkona starfaði Geri sem kynnir á
tyrkneskri sjónvarpsstöð, módel,
eróbikkennari og afgreiddi á bar.
Geri er mjög sjálfstæð í skoðunum
og er þekkt fyrir að fara eigin leiðir
í stíl og klæðaburði. Hún ku ganga
með hring í nafla og nokkur tattú á
hinum og þessum stöðum.
ti 6»>ii. < .utifc .cl ifiíi.t) »■IjíI í„
Brandarinn
Helgi í Birtingarholti var hefðarbóndi á
sínum tíma og framfaramaður. Hann hélt
mjög fram þeirri skoðun að bændur ættu
að fækka við sig hrossum. Nokkuð sem oft
hefur borið á góma á undanförnum miss-
erum. Síst af öllu fannst honum menn
ættu að hafa eins mikið af merum og al-
gengt væri.
Einhverju sinni bar svo til að hann sá
hjá sveitunga sínum fallegan fola sem
honum leist mjög vel á og lagði fölur á
hann.
„Já, en hann er stórgallaður, Helgi
minn,“ sagði sá er átti folann.
„Nú, hvernig þá?“ spurði Helgi.
„Hann er undan meri,“ svaraði hinn.
(Islensk fyndni)
Veffang
Ótal góða söngtexta úr flokki þjóð- og
dægurlaga er að finna á vefnum
*huD » •mgvuVr.wld