Dagur - 06.08.1999, Page 8
24- FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 1999
Szamosi í Hallgrímskirkju
Ungverski organistinn Szabolcs Szamosi leikur á tónleikum Kirkjulist-
arhátíðar í Hallgrímskirkju á sunnudaginn kl. 20.30. Á efnisskránni er
bæði ungversk tónlist og þekkt verk úr orgelbókmenntunum. Sza-
mosi er tæplega þrítugur, með próf í tónlist, stærðfræði og kennslu-
fræðum en
starfar sem
dómorganisti f
heimabæ sín-
um í Ungverja-
landi, Pécs.
Hann hefur
einnig spilað
víða í Mið-Evr-
ópu á org-
eltónleikum og
leikið inn á
geisladiska.
fjör
Þýskur kór á íslandi
Kammerkór Háskólans i Karlsruhe í Þýskalandi er í heimsókn og ætl-
ar að syngja fyrir landann á tónleíkum í sal Tónlistarskólans í Hafnar-
firði á sunnudaginn kl.17.00. Kammerkórinn var stofnaður árið 1989
og telur um 25 meðlimi en efnisskrá kórsins spannar iðulega verk frá
öllum tímabilum tónlistarsögunnar, mótettur, madrigala, kórverk og
samtímakórverk. Hér mun kórinn flytja kirkjulega tónlist frá siðustu
fimm öldum.
Hestamannamót á Einarsstöðum
Stórmót hestamannafélaganna Þjáifa og Grana hefst á laugardaginn
að Einarsstöðum í Reykjadal. Búist er við þátttakendum víða að, allt
frá Skagafirði að Vopnafirði. Dagskráin hefst kl. 11 með forkeppni í
öllum flokkum nema öldungaflokki. Síðdegis verður farið í reiðtúr, um
kvöldið er grillveisla og kvöldvaka og á sunnudag kl. 13 verður úrslita-
keppni. Að-
stæður fyrir
keppendur og
áhorfendur á
Einarsstöðum
þykja mjög
góðar frá nátt-
úrunnar hendi.
■ HVAB ER Á SEYBI?
■ Á DAGSKRÁNNI
14.-15. ágúst: Gönguferð í Hvalvatns-
fjörð yfir í Flateyjardal. Brottför kl.
09.00, ekið að morgni í Kaðalstaði í
Hvalvatnsfirði, gengið þaðan um
Bjarnarfjallsskriður á Flateyjardal og
gist þar. Daginn eftir verður gengið
Ytri-Brettingsstaðadal og Jökulbrekku í
Kaðalsstaði og ekið heim. Tjaldgisting.
16.-22. ágúst. Síðasta ferðin á Oskju-
veginn í sumar. Nokkur sæti laus. Ekið
í Herðubreiðarlindir og gist þar. Geng-
ið þaðan í Bræðrafell og gist. Þaðan er
gengið í Dreka. Næsta dag er Askja
skoðuð og gist í Dreka. Síðan er gengið
um Jónsskarð í Dyngjufell og gist. Síð-
an er gengið að Suðurárbotnum og gist
í Botna. Síðasta daginn er gengið í
Svartárkot og ekið heim.
Skráning í ferðir er á skrifstofu félags-
ins í s. 462-2720. Skrifstofan er opin
kl. 16.00-19.00 virka daga.
OG SVO HITT...
Minjasafiiið á Akureyri
Sunnudaginn 8. ágúst hcldur Þóra
Kristjánsdóttir, listfræðingur, fyrirlest-
urinn „Gullöld íslenskrar kirkjulistar“.
Fyrirlesturinn er haldinn í Zontasaln-
um, Aðalstræti 54 og hefst kl. 14. Til-
efnið er sýning í Minjasafninu á Akur-
eyri þar sem eru nokkrir dýrgripir úr
kirkjum í Eyjafirði, varðveittir í Þjóð-
minjasafni Islands.
Þóra mun fjalla um helstu gripi úr
kaþólskum sið sem varðveist hafa úr
norðlenskum kirkjum, og um kirkju-
listamenn fyrri alda. Aðgangur er
ókcypis og allir velkomnir.
Gjörningur í göngugötu
Eins og venjulega á föstudögum, flytur
Anna Richardsdóttir hreingjörninginn
sinn og spunadansinn í göngugötunni á
Akureyri. Að þessu sinni fær hún til liðs
við sig fjöllistahópinn New Remote en
meðlimir hans munu skapa stemmn-
ingshljóð með hljóðnemum og áslætti.
Uppákoman hefst klukkan 16:30.
Kaffisala að Hólavatni
Haffisala verður í sumarbúðum KFUM
og K sunnudaginn 8. ágúst frá kl.
14.30-18.00. í sumar hafa hópar
drengja og stúlkna dvalið á Hólavatni og
venjan er að starfinu Ijúki með kaffísölu
sem er mikilvægur þáttur þess. Kaffisal-
an er liður í fjáröflun sumarbúðanna og
gefur hún einnig velunnurum starfsins
og öðrum tækifæri til að koma að Hóla-
vatni, skoða sumarbúðirnar sem eru í
fallegu umhverfi, hittast og talast við.
Kaffisalan hefur oft verið mjög vel sótt
og greinilegt er að margir líta á það sem
fastan þátt að aka Eyjaíjörðinn á sunnu-
dagseftirmiðdegi í ágúst og fá sér kaffi
að Hólavatni.
T UTT?T r* ADTJT A DT nflTC
Útilokar ekki
formennsku
Fluguveiði, krossgáta,
Áskriftarsiminn er 800-7080 -
Bæði með
ferðabakteríuna
- Guðmundur Árni
Stefánsson í opinskáu
helgarviðtali við Kolbrúnu
Bergþórsdóttur
Tískan í
regnfatnaði
SÝN - FÖSTUDAGUR
KL. 20.30:
Alltaf í boltanum. Keppnistímabilið í
ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu
hefst á morgun með beinni útsendingu
á Stöð 2 kl. 13.45. í þættinum Alltaf í
boltanum sem er á dagskrá Sýnar í
kvöld verður hins vegar farið ítarlega
yfir alla leiki helgarinnar sem
framundan er og spáð í spilin fyrir
komandi keppnistíð. Athyglin mun
væntanlega heinast íyrst og fremst að
viðureign þrefaldra mcistara frá því í
fyrra, Manchester United, og Everton.
Liðið sem vermdi annað sæti úrvals-
deildarinnar á síðasta ári, Arsenal,
mun hins vegar mæta Leicester á
heimavelli. Þátturinn er endursýndur á
Stöð 2 á laugardögum.
STÖÐ 2 - FÖSTUDAGUR
KL. 22.30:
Eg veit hvað þið gerðuð í fyrrasum-
ar. Seinni frumsýningarmynd kvölds-
ins á Stöð 2 er bandaríska spennu-
myndin Eg veit hvað þið gerðuð í fyrra-
sumar (I Know What You Did Last
Summer) frá 1997. Fjögur ungmenni í
Norður-Karólínu keyra að slysni niður
gangandi mann á fáförnum vegi og
verða honum að bana. Þau kasta líkinu
í sjóinn og heita því að nefna þetta
aldrei við nokkurn mann. Ari síðar fara
vinunum hins vegar að berast dularfull
bréf og virðist sem sendandinn viti allt
um það sem gerðist því í bréfunum
segir: „Eg veit hvað þið gerðuð í fyrra-
sumar“. Með helstu hlutverk fara
Jennifer Love Hevvitt (Party of Five),
Sara Michelle Gellar (Buffý the Vamp-
ire Slayer), Ryan Phillippe og Freddie
Prinze. Leikstjóri er Jim Gillespie.
SÝN - LAUGARDAGUR
KL. 17.00:
Islenskt golf í beinni á Sýn. Golfí-
þróttinni eru gerð góð skil á Sýn og nú
verður sýnt beint frá næstsíðasta
keppnisdegi á Landsmótinu í golfi þar
sem allir bestu kylfingar landsins
keppa um sjálfan íslandsmeistaratitil-
inn. Það verður án efa skemmtilegt að
fylgjast með þeim Erni Ævari Hjartar-
syni, Sigurpáli G. Sveinssyni, Björgvini
Sigurbergssyni og Helga Þórissyni í
eldlínunni. Vænta má harðrar baráttu
á milli Ijórmenninganna en aðrir gætu
vissulega blandað sér í slaginn. I
kvennaílokki er líklegast að Ragnhildur
Sigurðardóttir, núverandi Islands-
meistari, og Olöf María Jónsdóttir,
berjist um titilinn. Það eru þeir Páll
Kctilsson og Úlfar Jónsson sem verða
við hljóðnemann og lýsa gangi mála í
beinni útsendingu.
STÖÐ 2 - LAUGARDAGUR
KL. 21.10:
Andvökudraumur. Andvökudraumur,
eða Dream for an Insomniac, nefnist
rómantfsk gamanmynd frá 1997 sem
Stöð 2 sýnir. Aðalsögupersónan er
gengilbeinan Frankie sem hugsar um
fátt annað en að finna hinn eina rétta
karlmann. Hún getur yfirleitt ekkert
sofið á næturnar og annaðhvort stafar
það af ástarþrá cða of mikilli kaffi-
drykkju. Dag einn kemur hún auga á
David og stúlkukindin ákveður að kló-
festa hann umsvifalaust. Frankie lætur
ekki einu sinni hugfallast þótt í ljós
komi að David er lofaður annarri. Það
má alltaf finna einhver ráð... I helstu
hlutverkum eru Ione Skye (dóttir
söngvarans Donovans), Jennifer Ani-
ston (úr Vinum eða Friends) og Mac-
Kenzie Astin.
SÝN - SUNNUDAGUR
KL. 17.00:
Islenskt golf í beinni á Sýn. Golf-
íþróttinni eru gerð góð skil á Sýn og
nú verður sýnt beint frá síðasta keppn-
isdegi á Landsmótinu f golfi þar sem
allir bestu kylfingar landsins keppa um
sjálfan Islandsmeistaratitilinn. Spenn-
an er nú í hámarki og verður án efa
skemmtilegt að fylgjast með þeim Erni
Ævari Hjartarsyni, Sigurpáli G.
Sveinssyni, Björgvini Sigurbergssyni og
Helga Þórissyni í eldlínunni. Vænta
má harðrar baráttu á milli fjórmenn-
inganna en aðrir gætu vissulega bland-
að sér í slaginn. I kvennaflokki er lík-
legast að Ragnhildur Sigurðardóttir,
núverandi Islandsmeistari, og Olöf
María Jónsdóttir, berjist um titilinn.
Það eru þeir Páll Ketilsson og Ulfar
Jónsson sem verða við hljóðnemann og
lýsa gangi mála í beinni útsendingu.
STÖÐ 2 - SUNNUDAGUR
KL. 21.30:
Síðasta bíómynd Hitchcocks. Seinni
hluti heimildarþáttarins um leikstjór-
ann Alfred Hitchcock er á dagskrá
Stöðvar 2 kl. 20.40 en þar strax á eftir
verður sýnd síðasta bíómyndin sem
þessi mikli kvikmyndajöfur leikstýrði.
Þar er um að ræða myndina Maðkur í
mysunni, eða Family Plot, frá 1976.
Sagan hefst á miðilsfundi þar sem
Blanche Tyler setur sig í samband við
hulda heima með það fyrir augum að
finna systurson hinnar forríku Juliu
Rainbird. Sagt er að systir Juliu hafi
gefið drenginn frá sér í æsku til að
forðast hneyksli. En hér er ekki allt
sem sýnist. Blanche hefur aflað sér
upplýsinga fyrirfram og er í raun ekk-
ert annað en loddari. Með helstu hlut-
verk í myndinni fara Karen Black,
Bruce Dern og Barbara Harris.
SÝN - MÁNUDAGUR
KL. 18.55:
Tottenham og Newcastle í beinni!
Enska knattspyrnan er nú að komast á
fullt skrið og að sjálfsögðu verður
henni gert hátt undir höfði á Sýn.
Ahorfendur hafa úr nægu að velja og í
kvöld verður boðið upp á beina út-
sending frá viðureign Tottenham
Hotspur og Newcastle United á White
Hart Lane. Eftir síðasta keppnistímabil
voru Iiðin bæði íyrir neðan miðja deild
og hafa eflaust valdið áhangendum
sinum nokkrum vonbrigðum. Gamla
stórveldið Tottenham má inuna fífil
sinn fegurri og það sama má í raun
segja um Newcastle. Nú verða liðs-
menn þeirra einfaldlcga að bíta á jaxl-
inn ef þeir ætla að ná að blanda sér í
toppbaráttuna í vctur.
iflfe
nm
ucjuwJ I myi