Dagur - 20.08.1999, Page 4
20-FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1999
rD^tr
LÍFIÐ í LANDINU
Með dylgjum á Hólahátíð
færðiDavíð Oddsson
„kjaftasögur upp á
hápólitískt plan, og hann
verður að skýra sitt mál
frekar. Maður talar ekki
undir rós með svona
voldugum þyrnum og skilur
okkur SW3 eftir í lausu !ofti.“
Undir Rós
Allt er í heiminum
hverfult, orti Jónas Hall-
grímsson, og það höfum
við rækilega fengið að
reyna undanfarin ár. Sú
var tfðin að hér voru í
veröldinni tvö stórveldi
alheimskommúnismans,
Rússland og Kína, og
ógnuðu ekki aðeins
Vesturlöndum, heldur
einnig hvort öðru, svo
að ófriðvænlegt virtist
stundum með afbrigð-
um. Sem betur fer gengu stórveldi al-
heimskommúnismans þó aldrei al-
mennilega hvort á hólm við annað; til
þess var andstæðingurinn of öflugur. En
í áróðursstríði hinna máttugu stórvelda
var ýmsum brögðum beitt. Rússar komu
sér upp þeim sið að þegar þeir töldu sig
þurfa að gagnrýna Kínverja, án þess þó
að styggja um of hina voldugu nágranna
sína, þá skömmuðu þeir Albaníu, sem
heita mátti leppríki Kínverja í Evrópu.
Og Kínverjar vildu heldur ekki hætta á
of opinskáar deilur við Rússa og
skömmuðu þess vegna Búlgaríu eða
Tékkóslóvakíu þegar þeir meintu Rúss-
land. Þetta allt saman urðu menn brátt
leiknir í að ráða í og með þessu móti
varð togstreita stórveldanna sýnileg, án
þess að verða um of hættuleg. Því hver
vill styggja Kína ef dugar að skamma Al-
baníu, eða fá Rússland upp á móti sér
ef hægt er að láta sitja við að skamma
Búlgaríu? En nú er hún Snorra-
búð stekkur, orti Jónas líka, og stórveldi
alheimskommúnismans ekki svipur hjá
sjón. Menn reyna að vísu enn með flest-
um ráðum að komast hjá því að styggja
Kínverja, en fyrir hinu mikla stórveldi
Rússa er svo komið að enginn óttast
það lengur. Menn þurfa ekki lengur að
skamma Búlgaríu ef þeir meina Rúss-
Iand. Og reyndar er Rússland nú komið
í óvænt hlutverk, eða hvernig á annars
að skýra það að forsætisráðherrann í
smáríkinu Islandi virðist ekki líta stærra
á þetta fornfræga stórveldi en svo að nú
skammar hann Rússland þegar hann
meinar Jón Olafsson í Skífunni. Eg er
að sjálfsögðu að vísa til ræðu Davíðs
Oddssonar á Hólahátíð um daginn.
Samkvæmt því sem birt var úr ræðunni
í Morgunblaðinu virðist hún hafa verið
mesta prýðisræða, hugleiðingar um
stöðu okkar Islendinga í heiminum og
hvernig við getum stuðlað að því að
þjóðin týni ekki sjálfri sér í öllu því
ölduróti og ólgusjó og þeim hvassa vindi
sem nú þarf að sigla. Þrátt fyrir að við
tækjum nú síaukinn þátt í alþjóðlegu
samstarfi og átökum á alþjóðlegum
mörkuðum væri okkur engin nauðsyn á
því að fórna öllu sem íslenskt sé, né
heldur að færa síðasta orðið í okkar
málum í annarra hendur.
Eiturlyfj abarónar
og blóöpeningar
Gott og vel. En svo kom þessi kafli hér:
„Það mikla land Rússland með öllum
sínum náttúrukynstrum og kostum fær
ekki notið sín, því stjórnkerfið og efna-
hagslífið nær ekki að þroskast og virðist
um þessar mundir einkum Iúta lögmál-
um glæpalýðs og eiturlyfjabaróna. Blóð-
peningar þeirra flæða um Evrópu og
skapa þar ótta og öryggisleysi. Menn
sem engar leikreglur virða, leitast við að
þvo illa fengið fé sitt í fjármálakerfum
þjóðanna. Margir stjórnmálaforingjar
telja þetta mestu ógnun sem nú sé við
að eiga á Vesturlöndum. Við íslending-
ar, sem svo nýlega höfum opnað okkar
hagkerfi, þurfum að gæta þess að verða
ekki leiksoppur slíkra afla.“' A yf-
irborðinu má auðvitað túlka þetta sem
almenn varnaðarorð, og kannski ekkert
nema gott um þau að segja, þótt vissu-
lega sé í sjálfu sér einkennilegt að eitur-
Iyfjabarónar Rússlands skjóti upp koll-
inum í ræðu á Hólahátíð. Ef meiningin
var ekki dýpri en lesa má út úr orðanna
hljóðan, þá skuldar forsætisráðherra
okkur samt skýringu. Hvers vegna er
hann að vara við akkúrat þessu, þegar
önnur vá virðist nærtækari? Hefur hann
eitthvað fyrir sér í því að rússneskur
glæpalýður sé farinn að herja á Islend-
inga? Getur ekki verið að í sumum til-
fellum sé það jafnvel öfugt? Eða hefur
forsætisráðherra ekki tekið eftir rúss-
nesku sjómönnunum sem haldið hafa
til dögum saman fyrir utan skrifstofu
hans, af því þeir hafa verið hlunnfarnir
af íslenskum - ég kann ekki alveg við að
segja glæpalýð, en alla vega mönnum
sem borga ekki umsamin laun? En nú
vita það allir sem vilja vita að forsætis-
ráðherra var í rauninni ekki að vara við
uppgangi glæpalýðs og eiturlyfjabaróna
frá Rússlandi hér í íslensku hagkerfi.
Við skulum ekki tala neina tæpitungu
og það dugar ekki að halda þvi fram að
fjölmiðlar hafi oftúlkað þessi orð Davíðs
í ræðunni á Hólahátíð. Nógu margir
skildu orðin á sama hátt til þess að aug-
Ijóst megi heita að Davíð vildi að
minnsta kosti Iáta merkingu orða sinna
vera tvíræða, og leyfa okkur að skilja
ræðuna þannig að þó hann skammaði
Rússland þá meinti hann Jón Ólafsson í
Skífunni. Og það hefur hann í raun
staðfest sjálfur; hann hefur neitað að
skýra þessi ummæli sín frekar og þar
með veitt okkur fullt leyfi til að skilja
þau svona. Þess vegna er algjörlega
tómt mál að tala um oftúlkun eða mis-
skilning, en þess vegna hefur forsætis-
ráðherra heldur engan rétt til þess að
neita að skýra orð sín nánar.
Forsætisráðherra
brúkar kjaftasögur
Við vitum öll um tilefnið. Meðal þeirra
fjárfesta sem keyptu stóran hlut í Fjár-
festingarbanka atvinnulífsins um dag-
inn skipaði Jón Ólafsson öndvegi, og
það fór aldrei milli mála að sú stað-
reynd fór meira í taugarnar á forsætis-
ráðherra og bandamönnum hans heldur
en að kaupin í sjálfu sér skyldu gerð.
Háskólaprófessor nokkur, sem Davíð
sendir gjarnan glaðan á foraðið, hafði
þegar skrifað stubb í Morgunblaðið þar
sem hann líkti Jóni Ólafssyni við arab-
íska fjármálaspekúlantinn A1 Fayed, sem
frægur er fyrir að beita mútum og hvers
kyns bellibrögðum þegar heiðarleg við-
skipti duga ékki til. Kunnur lögmaður
sem iðulega er á snærum Jóns Ólafs-
sonar hafði að vísu svarað í sömu mynt,
þegar hann sakaði forsætisráðherra um
að taka að minnsta kosti óeðlilegt tillit
til annarra fjármálamanna í störfum
sínum, og með þessu öllu saman virtist
íslensk stjórnmálabarátta komin á ann-
að stig en við höfum átt að venjast
lengi. Og það var svo staðfest á Hólahá-
tíð, þar sem Davíð Oddsson gerði sér
mat úr kjaftasögum um að Jón Ólafsson
hafi fjármagnað vaxandi veldi sitt á Is-
landi með því að selja eiturlyf. Eg
endurtek: við skulum ekki tala neina
tæpitungu. Þetta er það sem málið
snýst um og með í hæsta máta tvíræð-
um orðum sínum á Hólahátíð bauð
Davíð Oddsson viljandi upp á þessa
túlkun, og þess vegna skulum við tala
hreint út. Jón Ólafsson komst í kast við
lögin fyrir margt löngu, eins og oft hef-
ur verið rakið í blöðum, honum sjálfum
sjálfsagt til lítillar ánægju, en síðan hef-
ur það orð gjarnan Ioðað við hann að
hann hljóti að hafa kostað uppgang sinn
í íslensku efnahagslifi með óheiðarleg-
um hætti. Vonandi eru þetta bara
kjaftasögur og ég veit það fullvel sjálfur
að það þarf ekki að vera minnsti flugu-
fótur fyrir kjaftasögum sem fara á kreik
og lifa síðan góðu lífi; það er ekki alltaf
eldur þó rjúki. Og framganga Jóns
Ólafssonar hefur verið svo skjót og svo
mikil að það er vart nema við því að bú-
ast að einhverjir sem hann hefur troðið
um tær í viðskiptalífinu komi á flot
svona sögum til að skýra hvernig hann
hefur hafist úr engu til þess að verða
einhver ríkasti maður á landinu og með
ítök æ víðar. En þetta voru kjafta-
sögur fyrst og fremst. Með því að viðra
þær svona á Hólahátíð, og gefa sterk-
lega í skyn - svo ekki sé fastar að orði
kveðið - að Jón Olafsson í Skífunni væri
með kaupunum á hlut sínum í Fjárfest-
ingarbanka atvinnulífsins að þvo illa
fengið fé sitt, að hann teldist til manna
sem engar leikreglur virða, og svo l’ram-
vegis - með þessu færði Davíð Oddsson
kjaftasögur upp á hápólitískt plan, og
hann verður að skýra sitt mál frekar.
Maður talar ekki undir rós með svona
voldugum þyrnum og skilur okkur svo
eftir í lausu lofti. Það var forsætisráð-
herra þjóðarinnar sem talaði á þeim
stað þar sem síðasti Islendingurinn á
sextándu öld réði ríkjum.
Skýring óskast
Tvennt kemur til mála. Annað hvort veit
Davíð Oddsson eitthvað sem við vitum
ekki um umsvif Jóns Ólafssonar, og þá
ber honum skylda til þess að gera eitt-
hvað meira í málinu en að dylgja á
Hólahátíð og neita svo að segja nokkuð
meira. Gleymum því ekki að uppgangur
Jóns Ólafssonar hefur orðið mestur nú í
forsætisráðherratíð Davíðs Oddssonar;
það er Davíð sjálfur sem annaðhvort
hefur skapað honum skilyrði til að
koma svona ljómandi vel undir sig fót-
unum, eða - og það sem uggvænlegra
væri - ekki staðið sig í stykkinu við að
hemja þessa ógnun. Hefur Davíð þá
ekkert vald haft þessi síðustu átta ár;
hafi hann vitað eitthvað um óheiðarleg-
ar aðferðir Jóns Ólafssonar hefur hann
þá ekki haft nein ráð til að sporna við
því, fyrr en nú að hann talar á Hólahá-
tíð? Eða þá að forsætisráðherra veit £
rauninni ekkert meira en við hin, vegna
þess að kjaftasögurnar eru bara kjafta-
sögur. En þá hefur Davíð Oddsson Iíka
fært sig niður á eitthvað einkennilega
Iágt plan, með því að ráðast undir rós á
mann sem allir vita hver er og saka
hann um að vera glæpalýður og eitur-
lyfjabarón. Er Davíð Oddsson bókstaf-
lega genginn af göflunum af illsku yfir
því að Jón Ólafsson í Skífunni en ekki
vinir hans skyldu ná tangarhaldi á Fjár-
festingarbanka atvinnulífsins, eða hvað
er eiginlega á seyði? Forsætisráð-
herra skuldar okkur altént skýringu.
Pistill Illuga var fluttur t morgunút-
varpi Rásar 2 í gær.
UMBUÐfl-
LAUST